Hafsteinn Sæmundsson
Bíóblaður
Podcast þar sem Hafsteinn Sæmundsson fær alls konar fólk til sín og spjallar við það um lífið og bíómyndir. Nýr þáttur alla miðvikudaga.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#54 Nördaspjall með Tomma Valgeirs 10.02.2021 2:50:52
Kvikmyndagagnrýnandinn, hlaðvarpsstjórnandinn og ritstjóri Kvikmyndir.is, Tómas Valgeirsson, kíkti til Hafsteins og þeir áttu langt og áhugavert spjall saman. Tómas hefur verið einn helsti kvikmyndagagnrýnandi Íslands síðastliðin ár og Hafsteini fannst því sérstaklega spennandi að fá hann til sín. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvernig það er ekki hægt að ákveða fyrirfram að vera cool, hverni...
#53 Terminator með Diðriki Steins 05.02.2021 1:54:58
Diðrik Steinsson, stofnandi hugbúnaðarfyrirtækisins Porcelain Fortress, kíkti til Hafsteins og spjallaði um Terminator myndirnar. Terminator 2 er uppáhalds myndin hans Diðriks og Hafsteini fannst því upplagt að fá hann til sín og ræða þessa forvitnilegu seríu. Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu illa fyrsta Terminator myndin eldist, hversu vel Terminator 2 eldist, hversu gamall Arnold virka...
#52 Bransaspjall með Maríu Thelmu 03.02.2021 1:53:00
Leikkonan og handritshöfundurinn, María Thelma Smáradóttir, kíkti til Hafsteins í fjölbreytt og skemmtilegt bransaspjall. Í þættinum ræða þau meðal annars hvernig María rýnir í bíómyndir, muninn á indie og mainstream myndum, hversu mikil vonbrigði Wonder Woman 1984 var, hversu miklu máli það skiptir fyrir leikara að vera með góða væntingastjórnun, muninn á leikhúsleik og kvikmyndaleik, hvernig M...
#51 1980 - 1989 með Hödda 27.01.2021 2:31:22
Grafíski hönnuðurinn Hörður Ásbjörnsson kíkti aftur til Hafsteins og í þetta skipti ákváðu þeir að ræða 80's myndir. Strákarnir fara í sameiningu yfir þennan áratug og velja sínar uppáhalds myndir fyrir hvert ár. Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu frábært árið 1989 var, hversu mikið Hödda langar í Indiana Jones búninginn, hversu mikil gersemi Michael J. Fox er, hvort að Conan myndirnar séu...
#50 TV áskorun með Sjonna og Högna 20.01.2021 1:39:32
Grafíski hönnuðurinn Högni Valur og forritarinn Sigurjón Viðar kíktu til Hafsteins og tóku þátt í glænýrri sjónvarpsþátta áskorun. Strákarnir skiptust á að svara 10 fjölbreyttum sjónvarpsþátta spurningum. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort að Stranger Things séu ofmetnir þættir, hvaða sjónvarpsþátta karakter væri bestur til að fremja glæp með, hvaða seríu væri best að taka með sér á eyðieyj...
#49 Nördaspjall með Gunnari Daníels 13.01.2021 1:56:56
Kvikmyndafræðingurinn og kvikmyndaáhugamaðurinn, Gunnar Egill Daníelsson, kíkti til Hafsteins og þeir áttu gott og fjölbreytt spjall saman. Gunnar er mikill hryllingsmyndaáhugamaður og strákarnir ræddu meðal annars A Nightmare on Elm Street seríuna, ógeðslegar myndir frá Frakklandi, hversu miklu máli það skiptir að nota förðunarbrellur í staðinn fyrir tölvubrellur, 90's slasher myndir, hvort að...
#48 Bíó áskorun með Teiti og Dóra 08.01.2021 2:14:26
Tónlistarmaðurinn Teitur Björgvinsson og grafíski hönnuðurinn Dóri Andrésson kíktu til Hafsteins og tóku þátt í kvikmyndaáskorun sem Hafsteinn bjó til. 10 fjölbreyttar kvikmyndaspurningar sem strákarnir skiptust á að svara. Í þættinum ræða þeir meðal annars í hvaða kvikmyndaheimi þeir væru mest til í að búa í, hvaða ógeðslega morðingja þeir væru alls ekki til í að hafa á eftir sér, hvort Darth M...
#47 WW84 með Alex from Iceland 06.01.2021 55:58
Content creatorinn og kvikmyndaáhugamaðurinn Alex from Iceland kíkti aftur til Hafsteins og í þetta skipti ræddu strákarnir myndina Wonder Woman 1984. Í þættinum ræða Alex og Hafsteinn hvernig tilfinning það var að fara aftur á nýja stórmynd í bíó, hversu vel heppnuð fyrsta myndin var, hvernig framhaldsmyndin nær að klúðra ýmsum hlutum, hversu hræðilegt handritið er, 80's cheesiness og margt, ma...
#46 2020 með Kilo 30.12.2020 2:14:19
Árið 2020 er alveg að klárast og Hafsteini datt í hug að fá Kilo aftur til sín og fara aðeins yfir árið. Þeir ræða alveg heilan helling í þættinum en meðal annars ræða þeir Tiger King seríuna, hversu marga John Wick hefur drepið, bestu myndir og þætti ársins, hversu leiðinleg Tenet var, hvort að Devs sé betri sería en Raised by Wolves, augnablikið þegar Kilo ákvað að nota snjóskóflu sem vopn og ma...
#45 Jólin með Bjögga og Sigga 23.12.2020 1:28:01
Jólin eru á næsta leiti og Hafsteini datt í hug að búa til sérstakan jólaþátt. Hann fékk vini sína, Bjögga og Sigga, til þess að mæta sem gestir og keppa í spurningakeppni. Í þættinum eru bjölluspurningar, hraðaspurningar, jólaspurningar og flokkaspurningar. Hvaða ár kom Die Hard út? Hvað eru til margar Harry Potter myndir? Hvaða ár fæddist Steven Spielberg? Svörin eru í þessum spennandi jólaþæt...
#44 Létt spjall með Ernu Dís 18.12.2020 1:48:59
Útvarpskonan, Erna Dís, kíkti til Hafsteins í létt og skemmtilegt spjall. Erna og Hafsteinn ræða ýmsa hluti en í þættinum ræða þau meðal annars misheppnuð stefnumót, útvarpsþáttinn hennar Ernu, Magasín, sem er á FM957, hvernig börn eru ekki með neinn filter, hvernig Joker kom Ernu á óvart, hvort að Erna líti á fangelsi sem endurhæfingu eða refsingu, hversu klikkuð Tiger King serían var og margt, m...
#43 Landverðirnir með Degi og Úlfari 16.12.2020 1:21:56
Dagur Lárusson og Úlfar Konráð Svansson gáfu út á dögunum teiknimyndasöguna, Landverðirnir. Þeir sköpuðu þessa bók ásamt teiknaranum Fannari Gilbertssyni og mun ágóðinn renna til Barnaspítala Hringsins. Dagur og Úlfar kíktu til Hafsteins og ræddu meðal annars hugmyndina á bakvið bókina, hvernig þeir fundu Fannar, hvernig þeir náðu að fá einhvern til þess að búa til búningana, hvaða ofurkraft þei...
#42 Topp 10 með Lilju Gísla 11.12.2020 1:29:02
Förðunarfræðingurinn og hlaðvarpsstjórnandinn, Lilja Gísla, kom í heimsókn til Hafsteins og tók með sér listann sinn yfir sínar topp 10 bíómyndir. Lilja og Hafsteinn fara vel yfir listann hennar og ræða meðal annars hversu fyndin Bridesmaids er, hvernig sumar barnastjörnur verða smá ruglaðar með tímanum, hvort The Bachelor séu vandaðir þættir, hversu mikið jólabarn Lilja er, hvort það sé í lagi að...
#41 Bíóspjall með Páli Óskari 09.12.2020 1:48:56
Poppkóngurinn, Páll Óskar Hjálmtýsson, er þekktastur fyrir tónlistina sína en það sem kannski færri vita er að hann er líka grjótharður kvikmyndaáhugamaður. Hafsteinn var því mjög spenntur að fá hann í þáttinn og Páll Óskar olli ekki vonbrigðum. Strákarnir ræða meðal annars hversu sérstakur John Waters er sem leikstjóri, hversu gróf og ógeðsleg Cannibal Holocaust er, hversu mikið Russ Meyer elskað...
#40 Létt spjall með Evu Ruza 04.12.2020 1:20:04
Áhrifavaldurinn og útvarpskonan, Eva Ruza, kíkti til Hafsteins og þau áttu skemmtilegt og fjölbreytt spjall saman. Í þættinum ræða þau meðal annars raunveruleikaþætti, hvort það væri sniðug hugmynd fyrir par að taka þátt í Temptation Island, hversu mikið Eva elskar Fast and the Furious myndirnar, leiðinlegar athugasemdir á netinu og margt, margt fleira.
#39 Bransaspjall með Unni Eggerts 02.12.2020 1:49:17
Leikkonan og hlaðvarpsstjórnandinn, Unnur Eggerts, kom í heimsókn til Hafsteins og sagði honum aðeins frá sinni reynslu sem leikkona í Bandaríkjunum. Unnur talar meðal annars um hvernig ferlið er þegar hún sækist eftir hlutverki, hvernig henni líkaði að búa í LA og NYC, hvernig hryllingsmyndir hræða úr henni líftóruna, hvernig COVID hefur breytt öllu ferlinu í kringum bransann og margt, margt flei...
#38 Unbreakable með Óla Bjarka 27.11.2020 1:44:31
Kvikmyndaneminn og kvikmyndaáhugamaðurinn, Óli Bjarki Austfjörð, var að leggja lokahönd á stuttmyndina sína, Verndarinn, og Hafsteini fannst því upplagt að fá hann til sín og spjalla aðeins við hann. Strákarnir ræða meðal annars hvernig Verndarinn er ástarbréf til Unbreakable, hvernig leikstjórinn M. Night Shyamalan hefur breyst í gegnum árin, hryllingsmyndaáhugann hjá Óla og margt, margt fleira.
#37 Topp 10 með Hauki H 25.11.2020 1:37:57
Rapparinn Haukur H kom í heimsókn til Hafsteins með Topp 10 listann sinn. Haukur hefur verið rappari í mörg ár en inn á milli rappsins, þá hefur hann gefið sér tíma til að horfa á góðar bíómyndir. Strákarnir ræða meðal annars hvernig rappið hefur þróast í gegnum árin, hvernig Haukur varð mikill Johnny Cash aðdáandi eftir myndina Walk the Line, hvort það væri sniðugt að gera Titanic 2, hversu mikið...
#36 Bíó Chill með Alex from Iceland 20.11.2020 1:51:54
Ljósmyndarinn og content creatorinn, Alex from Iceland, kíkti til Hafsteins til að ræða ýmislegt tengt bíómyndum. Alex hefur verið mikill kvikmyndaáhugamaður síðan hann var krakki og var mjög spenntur að nördast með Hafsteini. Strákarnir ræða meðal annars hversu mikinn áhuga Alex hefur á kvikmyndagerð, töfrana í Marvel myndunum, hversu mikið DC klúðraði sínum myndum, hversu mikil áhrif hryllingsmy...
#35 1990 - 1999 með Kilo 18.11.2020 2:36:56
Kilo snýr aftur! Í þetta skipti ákváðu strákarnir að ræða 90's myndir. Þeir völdu eina mynd fyrir hvert 90's ár og báru saman listana sína í þættinum. Þeir ræða alveg heilan helling en þar á meðal ræða þeir hversu geggjað montage-ið er í Tombstone, hvernig glerbrot í mat hræðir ekki Kilo, hversu mikið strákarnir sakna alvöru gerviblóðs í myndum, hvort Mel Gibson sé í alvörunni asni og margt, margt...
#34 Bransaspjall með Völu Kristínu 13.11.2020 59:58
Leikkonan og handritshöfundurinn, Vala Kristín Eiríksdóttir, kom til Hafsteins og þau ræddu leiklist og handritagerð. Vala hefur leikið í þáttum og bíómyndum og Hafsteini fannst áhugavert að fá að heyra hennar hlið á bransanum. Þau ræða meðal annars hversu krefjandi leiklist getur verið, hversu skemmtilegt en erfitt það er að skrifa handrit, stærðarmun á framleiðsluteymum, hvernig ferlið var í kri...
#33 Nördaspjall með Hugleiki Dags 11.11.2020 2:03:03
Hugleikur Dagsson er mikill kvikmyndaáhugamaður og Hafsteini fannst því upplagt að fá hann í heimsókn og blaðra við hann um ýmislegt nördalegt. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars ofurhetjumyndir, hvernig Hugleikur nálgast uppistand, hversu erfitt það er að skrifa Áramótaskaupið, hvers konar maður nennir að gera fimm Transformers myndir, Star Wars myndirnar, bíómyndir sem eru byggðar á teiknim...
#32 Spænskar myndir með Bjögga 09.11.2020 1:31:39
Bjöggi snýr aftur og í þetta skipti vildi hann ræða myndir sem komu honum á óvart. Þær eru allar spænskar en þetta eru meðal annars myndirnar Timecrimes, Kidnapped og The Platform. Strákarnir ræða langar tökur, sniðug handrit, ógeðið í myndinni Rec, döbbaðar myndir og hvaða hlut þeir hefðu valið að taka með sér í fangelsið í The Platform.
#31 Létt Spjall með Bjarna Áka 06.11.2020 48:24
Eigandi Bako Ísberg, Bjarni Ákason, kom í heimsókn til Hafsteins og spjallaði við hann um allt og ekkert. Strákarnir ræddu meðal annars þegar Hafsteinn vann hjá Bjarna, Steve Jobs og Apple, þegar Bjarni hitti Mel Brooks í París, hvernig Bjarni var með þeim fyrstu sem fóru í sóttkví vegna COVID og hversu mikilvægt það er að leyfa börnunum sínum að velja sína eigin ástríðu.
#30 Borat 2 með Binna Löve 04.11.2020 1:02:37
Binni Löve kom aftur í heimsókn til Hafsteins og í þetta skipti ræddu þeir Borat 2, samfélagsmiðla og áhrifavalda. Strákarnir ræða meðal annars hversu fyndinn Sacha Baron Cohen er, hvort Nicolas Cage púlli virkilega að vera með sítt hár í Con Air, hvort einhver hafi einhvern tímann sagt eitthvað jákvætt um áhrifavalda og hvort það væri ekki gott sjónvarpsefni ef Binni væri með sinn eigin raunverul...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.