Hljóðkirkjan
Besta platan
Umræða um bestu plötu hljómsveitar og tónlistarfólks. Nýtt meistaraverk í hverri viku.
Author
Hljóðkirkjan
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 3, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#0182 Ozzy Osbourne – The Ultimate Sin 11.08.2023 1:45:49
Sabbath voru afgreiddir í þætti #33 á „öld Bibbans“, en nú er komið að framhaldssögunni: sólóferli Ozzy Osbourne.
#0181 Frímínútur – Gervigreind í tónlist 04.08.2023 1:08:50
Gervigreind. Mun hún hjálpa okkur að búa til betri músík? Eða tortíma tónlist eins og við þekkjum hana?
#0180 Frímínútur – Tónlistarhátíðir 30.06.2023 1:13:08
Tónlistarhátíðir eru í fullum gangi um sumarmál og síðustu helgi lauk einni frægustu þeirra, Glastonbury. Tímasetningin til að fara yfir þennan geira popp- og rokkmenningarinnar er því fullkomin!
#0179 My Bloody Valentine – Isn’t Anything 23.06.2023 1:33:20
Hin írsk-enska sveit My Bloody Valentine er óhikað með áhrifamestu neðanjarðarsveitum allra tíma. Doktorinn sveiflar dúskinum af krafti og teflir hiklaust fram breiðskífu sveitarinnar frá 1988, Isn’t Anything, sem hennar bestu en bæði makker og upptökustjóri hafa margt til mála að leggja í þessu snúna máli.
#0178 Huey Lewis and the News – Sports 16.06.2023 1:33:49
Íslenska sumarveðrið í ár hefur valdið vonbrigðum til þessa, en hér er meðalið. Með Huey Lewis í eyrunum eru nefnilega allir dagar sólardagar.
#0177 Frímínútur - Álitamál: Tónlistargagnrýni fyrr og nú 09.06.2023 1:12:34
Í þetta sinnið var hinn opni vettvangur frímínútnanna nýttur undir pælingar um tónlistargagnrýni. Hvað er hún, hvernig er hún og hvaða tilgangi þjónar hún? Ágætlega var mannað í setti þar sem fóru tveir tónlistarmenn og einn tónlistargagnrýnandi, gersamlega hokinn af reynslu.
#0176 Manowar – Kings of Metal 02.06.2023 1:45:39
Falsmálmurinn er fjarri góðu gamni í þætti vikunnar, þar sem fjallað er um bandarísku stórsveitina Manowar. Athugið að þátturinn spilast eingöngu á 10.
#0175 Sinéad O’Connor - The Lion and the Cobra 26.05.2023 1:24:45
Frumburður Sinéad O’Connor frá árinu 1987 vakti gríðarlega athygli á þessari írsku söngkonu og er sú plata hennar sem doktorinn stillir fram sem hennar bestu. Að öðru leyti fór teymið á djúpið í vangaveltum um mikilvægi þessarar mjög svo áhrifaríku tónlistarkonu.
#0174 Elton John – Goodbye Yellow Brick Road 19.05.2023 1:17:49
„Kubbinn“ þarf vart að kynna. Ekki bestu plötuna hans heldur. Hlustið bara og njótið.
#0173 The Replacements – Let it Be 12.05.2023 1:22:46
Mikil költaðdáun fylgir bandarísku neðanjarðarrokksveitinni The Replacements sem tók drjúgan þátt í að kollvarpa tónlistarlandslagi níunda áratugarins. Haukur Viðar teflir fram þessari plötu hennar frá 1984 sem hápunkti meðfram því sem hann og félagar hans grennslast ærlega fyrir um áhrif þessarar merkissveitar.
#0172 Frímínútur – Hin efri ár Metallica 05.05.2023 1:21:05
Það er löngu búið að taka fyrir bestu plötu Metallica, en við vildum skoða aðeins „seinni hálfleikinn“ í tilefni af útgáfu nýju plötunnar.
#0171 Frímínútur – Besta yfirskeggið 28.04.2023 1:01:41
Tónlist er nótur og hljómar en líka framsetning, stíll, sjarmi og holning. Í þessum frímínútum förum við ofan í rótina á bestu yfirskeggjum poppsögunnar. Já, þú last rétt!
#0170 Fear Factory – Demanufacture 21.04.2023 1:40:55
Kaliforníusveitin Fear Factory kom eins og stafrænn stormsveipur inn í miðjan 10. áratuginn með sérstakri blöndu sinni af melódísku þungarokki og dynjandi teknói. Platan Demanufacture frá árinu 1995 er til umfjöllunar hér, enda besta plata Fear Factory.
#0169 Suede - Suede 14.04.2023 1:26:51
Breska sveitin Suede tekin til kostana og hún skoðuð í krók og kima. Stóra samhengið, lagasmíðahápunktar, drama og allur pakkinn!!
#0168 Frímínútur – Íslensk sönglög 1940–1960 07.04.2023 1:28:42
Sveitarómatíkin svífur yfir vötnum í þætti vikunnar, þar sem tímabilið frá sirka stríðslokum og fram að bítlinu er tekið fyrir. Upp með söngbækurnar!
#0167 aha - Scoundrel Days 31.03.2023 1:08:12
Norska eitíssveitin a-ha fór með himinskautum árin 1985 - 1988 og dældi út smellum linnulaust. En var eitthvað meira í gangi en “Take on Me” sem Haukur segir að kjarni níunda áratuginn í tónlist fullkomlega? Eru þetta einsmellungar eða þrettán-smellungar? BP-teymið lagðist í rannsóknir…
#0166 Öldungadeildin: Billie Holiday 24.03.2023 1:04:21
Djassgoðsögnin Billie Holiday lifði í 44 frekar nöturleg ár, en á þeim stutta tíma afrekaði hún meira en flestir. Hún gaf að vísu ekki út LP-plötur fyrr en undir lok ferilsins, en það er um nóg annað að tala.
#0165 Frímínútur – Spurt og svarað 03.03.2023 1:35:32
Við kölluðum eftir spurningum úr sal og fengum þær. Hér eru svörin!
#0164 Celtic Frost – To Mega Therion 24.02.2023 1:11:40
Tvær áhrifaríkustu þungarokkssveitir allra tíma eru Black Sabbath og Celtic Frost. Besta platan hefur þegar farið í saumana á Black Sabbath en nú er það svissneska sveitin Celtic Frost sem feðraði nærfellt allt öfgarokk samtímans. Doktorinn teflir fram To Mega Therion (1985) sem hátindi sveitarinnar en auk þess velta þeir félagar fyrir sér mótunarárum hinna ýmsu öfgarokksstefna (e. extreme metal)...
#0163 Tom Waits – Swordfishtrombones 17.02.2023 1:37:25
Tom Waits er skrítin skrúfa, sem er í guðatölu hjá enn skrítnari skrúfum. Platan Swordfishtrombones frá 1983 varð ofan á hjá Hauki, en það var hnífjafnt í efstu sætum framan af. Afsakið biðina.
#0162 Frímínútur – Út vil ek 10.02.2023 1:00:35
Í þessum frímínútum - sem voru teknar upp í miklum kvöldúlfsham - hallar þríeykið sér aftur, gæðir sér á Conga-bitum og sýpur á kamillutei. Eftir þétta upptökulotu var ákveðið að pæla aðeins í hinni íslensku tónlistarútrás sem á sér langa og áhugaverða sögu. Frá Thor’s Hammer til Árnýjar Margrétar, allar þessar þreifingar eru varðaðar sigrum jafnt sem sorgum í mismunandi mæli. Hvað þarftu að hafa...
#0161 The Decemberists – The Crane Wife 03.02.2023 1:43:51
Indie-uppskafningarnir í The Decemberists voru iðnir við kolann á fyrsta áratug þessarar aldar, stefndu í að verða risaband, en náðu því aldrei almennilega. Það vill svo til að Haukur tilheyrir sértrúarsöfnuðinum í kringum sveitina og tilnefnir hann fjórðu plötuna, The Crane Wife frá 2006, sem þeirra bestu.
#0160 Jet Black Joe – Jet Black Joe 27.01.2023 1:39:39
Rokksveitin Jet Black Joe spratt fullsköpuð úr höfði Seifs sumarið 1992 og fyllti ljósvakabylgjurnar með glæsismíðinni „Rain“. Frumburður hennar kom út þá um haustið og teflir doktorinn henni fram sem bestu plötu sveitarinnar.
#0159 Frímínútur – Út á gólfið 20.01.2023 1:06:05
Vínarborg í upphafi 19. aldar. Ljósakrónur, pípuhattar, púðruð andlit ... og mjög mikið af kynsjúkdómum.
#0158 Death – Spiritual Healing 13.01.2023 1:16:20
Dauðarokkssveitin Death frá Florida, leidd af höfuðsnillingnum Chuck Schuldiner, er ein allra áhrifamesta sveit af þeim toganum. Schuldiner var sannur brautryðjandi þessa tónlistarforms sem reist hæst á árabilinu 1988 - 1993. Doktorinn telur þriðju breiðskífu hennar, Spiritual Healing (1990), vera hennar bestu og var sæmilega tekist á um þetta athyglisverða val.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.