Atli Óskar Fjalarsson & Elías Helgi Kofoed Hansen

Atli & Elías

Tv IS ↓ 58 episodes

Einn heitir Atli, hinn heitir Elías og saman ræða þeir opinskátt um það að vera inní, útúr og við jaðarinn á kvikmyndabransanum á Íslandi.

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: podcasters.spotify.com

Author

Atli Óskar Fjalarsson & Elías Helgi Kofoed Hansen

Category

Tv

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

Jan 13, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

31. Þáttur - Sellát á Skriðuklaustri 24.05.2021

Elías snýr aftur til siðmenningar og ræðir um listamannasetrið á Skriðuklaustri þar sem hann dvaldi í mánuð. Atli reynir sitt besta til að fela biturleika sinn gagnvart Eddunni og drengirnir tilkynna stórar breytingar á umgjörð hlaðvarpsins.

30. Þáttur - Tónlistarmyndbönd 101 31.03.2021

Í vikunni ræðum við framleiðslu tónlistarmyndbanda og fögnum þrítugasta þættinum af Atla & Elías!

29. Þáttur - Íslensk framleiðsla 2021 15.03.2021

Í vikunni er farið yfir úthlutanir úr Kvikmyndasjóði til að sjá við hverju megi búast í íslenskri framleiðslu yfir árið.

28. Þáttur - Blái máninn & Opalferðin 08.03.2021

Strákarnir ræða sín allra fyrstu verkefni, sem flest enduðu ofan í skúffu, en kenndu þeim þó margt.

27. Þáttur - Samningaviðræður 101 01.02.2021

Í þessum þætti förum við út í það sem við höfum lært að passa okkur á þegar skrifað er undir samninga fyrir ný verkefni. Eða reynum að gera það að minnsta kosti.

26. Þáttur - Zen í seinni tíð 26.01.2021

Drengirnir ræða horfur til ársins 2021, erfiða ráðgjafa hjá kvikmyndamiðstöð og það stefnulausa ráf sem þessi þáttur er.

25. Þáttur - Í mynd með George Clooney 11.01.2021

Atli lék í kvikmyndinni THE MIDNIGHT SKY, sem er fáanleg á Netflix og við ræðum hans ferli í þeirri mynd ásamt öðrum gersemum sem komu út á árinu.

24. Þáttur - Comeback Atla 17.09.2020

"Þú getur kallað það comeback en hann fór bara í skóla". Strákarnir fara yfir þann aragrúa íslenskra verkefna á árinu og ræða um þau sem hljóma mest spennandi.

23. Þáttur - Framleiðslustyrkir stuttmynda 101 14.08.2020

Elías spyr Atla spjörunum úr varðandi ferlið að sækja um framleiðslustyrk stuttmynda hjá Kvikmyndasjóði Íslands.

22. Þáttur - Einkamál, opnist ekki 22.07.2020

Drengirnir eru töluvert undirbúnari í þetta skiptið en hætta sér kannski of langt yfir opinberunarlínuna. Því ætti enginn að hlusta á þennan þátt. Þökkum skilninginn.

21. Þáttur - Kompan opnar aftur! 08.07.2020

Nú hefur kompan opnað aftur og Atli & Elías hafa snúið aftur og vita ekkert hvað þeir eiga að tala um, rétt eins og venjulega.

20. Þáttur - Einir heima 06.04.2020

Í þessum sérkennilega þætti reyna Atli & Elías að taka upp í sitthvoru lagi. Strákarnir ræða vinnuhagræðingar sínar á tímum veirunnar og áhrif ástandsins á kvikmyndagerð í heild.

19. Þáttur - 2019 í hnotskurn 17.12.2019

Atli og Elías eru í jólaskapi, með jólabjór, og þræða síðasta ár saman, en gaman!

18. Þáttur - Vigfús Þormar um leikaraval og Bergmál 27.11.2019

Vigfús Þormar Gunnarsson kíkir í heimsókn og tekur stórskemmtilegt spjall um sinn feril og fyrirtæki sitt Doorway Casting, sem hefur séð um leikaraval í mörgum af stærri verkefnum landsins síðustu ár.

17. Þáttur - Viktor Bogdanski um bókhald 20.11.2019

Viktor Bogdanski sem að heldur námskeið um bókhald í kvikmyndagerð sest niður með okkur.

16. Þáttur - Davíð Már skrifar Kötluseríu 12.11.2019

Davíð Már Stefánsson handritshöfundur kíkir í heimsókn og spjallar um vinnu sína við nýjustu sjónvarpsseríu Baltasars Kormáks, sem gerist einu ári eftir að Katla gýs. Óvæntur gestur hringir inn og er mikið niðri fyrir. Strákarnir skúbba leiðindamáli úr bransanum sem gæti leitt til málaferla.

15. Þáttur - Atli & Elías í 10 ár 24.10.2019

Í dag eru 10 ár liðin síðan tökur hófust á kvikmyndinni ÓRÓI, en þar kynntust Atli og Elías. Hér þræða þeir í gegnum þau verkefni sem aldrei komu út, en á sama tíma mynduðu það vinasamband sem bjó til þetta forláta hlaðvarp.

Reykjavík Creative Hub: Lilja Ósk & Anton Máni 19.10.2019
14. Þáttur - Margt og Appelsín 10.10.2019

Ég meina...

13. Þáttur - Atli & Viktor smíða stuttmynd 17.09.2019

Strákarnir fá til sín góðan vin, Viktor Sigurjónsson, sem ræðir samstarf sitt og Atla í gegnum ferlið að gera heila stuttmynd. Lífið á Eyjunni. - Umsagnir um Viktor - "Very unpleasant to work with"

12. Þáttur - Aðstandendur RVK Creative Hub 09.09.2019

Aðstandendur Reykjavík Creative Hub í IÐNÓ svara sínum eigin spurningum sem þau Baldvin Z og Silja Hauksdóttir fengu þann 18.Ágúst, og þá með heilum helling af útúrsnúningum!

Reykjavík Creative Hub: Baldvin Z & Silja Hauksdóttir 02.09.2019

Upptaka frá IÐNÓ, þann 18.Ágúst 2019, pallborðsumræður með kvikmyndaleikstjórum.

11. Þáttur - Þorsteinn Bachmann man aldrei hver ég er 27.08.2019

Einn heitir Atli, hinn heitir Elías, og ræða þeir opinskátt um það að vera inni, útúr, og við jaðarinn við kvikmyndabransann á Íslandi.

10. Þáttur - VFX & Skapandi Hittingur í IÐNÓ 17.08.2019
9. Þáttur - Tónlistarleyfi í kvikmyndum & RIFF (eða: Myrkvi 2) 17.07.2019

Listen to the Atli & Elías podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.