Atli Óskar Fjalarsson & Elías Helgi Kofoed Hansen
Atli & Elías
Einn heitir Atli, hinn heitir Elías og saman ræða þeir opinskátt um það að vera inní, útúr og við jaðarinn á kvikmyndabransanum á Íslandi.
N'hésitez pas à visiter le site du podcast et à soutenir son créateur : podcasters.spotify.com
Auteur
Atli Óskar Fjalarsson & Elías Helgi Kofoed Hansen
Catégorie
Site du podcast
Dernier épisode
13 janv. 2025
Où écouter ?
Les podcasts dans l'appli Replaio Radio Bientôt disponibleLes podcasts arrivent très bientôt dans l'appli. Installe-la dès maintenant et découvre en avant-première une toute nouvelle façon de vivre les podcasts
Épisodes
56. Þáttur - Þurrt og blautt comeback! 13.01.2025 56:46
Atli & Elías snúa aftur, einn þurr og annar blautur þennan dimma janúarmánuð. Svokallaður 'catch up þáttur' (ekki tómatsósan) eftir áralangt hlé. Farið er yfir hvaða verkefni seljast í dag á íslenskum markaði, fyrsta þáttinn af nýju þáttaröðinni Vigdís, og margt fleira. Tvöföld gullkorn í lokin til að afsaka hlé.
55. Þáttur - Spjall við Hannes Þór Halldórsson 22.03.2024 1:29:24
Leikstjóri, höfundur, klippari og framleiðandi (og jújú, landsliðsmaður í fótbolta en hver er það ekki?) Hannes Þór Halldórsson kíkir til okkar í spjall niður í Kompu. Þrír prúðir drengir og þrír bjórar á mann. Við ræðum IceGuys, Leynilögguna, Séð&Heyrt og Óróa og allt þar á milli nema það að verja víti frá Lionel Messi -- Í staðinn verjum við tíma okkar í að ræða DVD safnið hans á skrifstofu...
54. Þáttur - Hlaupandi hádegismatur 15.02.2024 1:09:41
Elías er rekinn. En það varir ekki lengi. Drengirnir rifja markmiðin sem þeir settu sér í byrjun síðasta árs og hvernig gekk að ná þeim. Flest eru brostin en örfáum þeirra var náð og því má vera stoltur af! Elías talar um áskoranir þess að vera með of mörg járn í eldinum á meðan Atli leggur orð í belg um framleiðslufyrirtæki sem standa ekki í skilum og potar svo í séríslenskt fyrirkomulag sem efla...
53. Þáttur - 2023 í hnotskurn 22.01.2024 1:10:29
Þunglyndasti dagur ársins og mikil gleði! Talað er um vinnuálag síðasta árs og vonir og drauma þess nýja... Atli er loksins byrjaður að skrifa lokaritgerðina sína á meðan Elías lýsir ferli sínu við að endurskrifa kvikmynd.
52. Þáttur - Minning um sól 22.01.2024 1:02:50
„Nei sko! Ætli það séu ekki afleiðingar gjörða minna?“ Rúmu hálfu ári síðar ákveður Atli að girða sig í brók og klippa þáttinn. Sem þá var stútfullur af ferskum umræðum og sumargleði en er nú orðin sorgleg minningarsúpa um sól sem einhverntíman skein. Ókei. Þetta er kannski ekki alveg svona hádramatískt... Við erum allavega mættir aftur!
51. Þáttur - Þurrkur 19.05.2023 57:24
Það var ekki lengi kalt á toppnum hjá Atla & Elíasi eftir mikilfenglegt LIVE EXTRAVAGANZA. Hér ræðum við þurrk og dali í verkefnum okkar, sem alltof margir geta kannski tengt aðeins við. Því miður. En engar áhyggjur! Atli er búinn að gera fullt í dag!
50. Þáttur - Afmælisþáttur í Bíó Paradís í beinni (á þeim tíma) 12.05.2023 1:39:55
Strákarnir eru í sannkölluðu afmælisstuði enda er þetta FIMMTUGASTI þátturinn af Atla & Elíasi. Vá... Þeir fá til sín góða gesti í sérstakan live þátt í Bíó Paradís í samvinnu við Stockfish kvikmyndahátíðina. Tommi Valgeirs kvikmyndagagnrýnandi með meiru og Einar Pétursson (eftir allt saman EKKI eini hlustandi þáttarins) heiðra drengina og áhorfendur með nærveru sinni. Bjór og gleði, fjórir mí...
49. Þáttur - Tölvuleikir, Svörtu Sandar & Leyndarmál 18.02.2023 1:40:42
ALDÍS AMAH HAMILTON sest niður með okkur og ræðir þá marga bolta sem hún heldur á lofti, en nú er hún í miðjum skrifum á SVÖRTU SANDAR II
48. Þáttur - Árið sem kom of seint 10.02.2023 1:15:53
Atli klippti. Þið vitið hvað það þýðir. Allt sem við tölum um í þættinum eru úreltar fréttir. En þó ná drengirnir að kreista út góðum þætti þar sem farið er yfir bestu hluti sem gerðust á árinu og markmið fyrir árið í ár. Þeir deila fræðandi áhorfstölum um hlustendur þáttarins, Elías kveður langt verkefni og rekur sig á í nýju handritaherbergi og Atli leggur niður næstu skref framleiðsluferilsins.
47. Þáttur - Logi Staðgengill 23.12.2022 1:18:51
Atli & Elías tala um nýjar reynslur af setti, annar sem staðgengill og hinn sem allt á milli himins og sjávar. Óh! Og Robbi ljósamaður (með meiru) hringir óvart inn.
46. Þáttur - & Baldvin fokking Zeta 18.08.2022 1:51:15
Loksins loksins loksins bjóðum við hinum umtalaða Baldvini Z í hlaðvarpið! Leikstjóri, trommari, hraðskákmeistari á Akureyri í unglingaflokki og skítsæmilegur golfari en fyrst og fremst gamall og góður vinur. Við förum um víðan völl og ruglum saman ártölum, kvikmyndum og Line Producerum í þessari epísku yfirferð um gamla tíma, framtíðina og jaðarinn þar á milli.
45. Þáttur - Cannes prógram ungra framleiðanda 29.06.2022 1:48:58
Djöfullega langur þáttur (sem á það alveg skilið) um prógram ungra famleiðanda á Cannes Film Festival sem Atli tók þátt í. Margt annað er rætt en hér er þetta prógram eins og það leggur sig. Hinn almenni Einar Pétursson lærir allt sem Atli lærði í þessu prógrami við það að hlusta á þennan þátt.
44. Þáttur - Vegurinn til Cannes er olíuborinn 17.05.2022 1:15:44
Mögulega er kominn tími til að horfast í augu við að þetta sé mánaðarlegt podcast en ekki vikulegt. Fyrsta skrefið í átt að betrun er að viðurkenna vanmátt sinn (eða svo höfum við allavega heyrt). Atli er á leiðinni á kvikmyndahátíðina í Cannes og Elías segir okkur loksins frá seríunni sinni sem hafa prýtt innantóm loforð hans síðastliðna mánuði (er annað skrefið ekki annars að bæta upp fyrir gjör...
43. Þáttur - Ungur framleiðandi á Cannes 06.04.2022 55:06
Atli var valinn á námskeið ungra framleiðanda á kvikmyndahátíðinni í Cannes og við hringjum í Dag Benedikt leikstjóra, ljósamann og handritshöfund og spyrjum hann spjörunum úr en hann sótti sama prógramm 2018. Einnig ræðum við Stockfish og misheppnaða tilraun Elíasar við að koma vel fram í útvarpsviðtali. Til að toppa þetta fer Atli með undurfagurt ljóð í Gullkornum dagsins. PS. Því miður fundum v...
42. Þáttur - Engin þöggun í skúrnum 10.03.2022 1:05:51
Drengirnir hittast aftur eftir langa fjarveru. Atli talar EKKI um vinnutörn sem hann var að ljúka við hjá Truenorth en heit umræða á Facebook-síðu kvikmyndagerðarfólks er krufin til mergjar. Hvað er til bragðs ef verkefnið manns er sett á ís?
41. Þáttur - Sá úrelti 04.03.2022 1:07:07
Tekinn upp á óræðum tíma í janúar en gefinn út í mars. Þetta gæti verið nýtt met í frestunaráráttu Atla. En hann er þó með ágæta afsökun í þetta skiptið. Verbúðin, Svörtu Sandar og svo margt margt fleira.
40. Þáttur - 2021 í hnotskurn 13.12.2021 1:19:03
Við horfum aftur til Janúar 2021, og veltum fyrir okkur hvernig ár við sáum fyrir okkur í samanburði við það ár sem við fengum. Persónulegri þáttur svona rétt fyrir jól, og örlítil sjálfsást sem fylgir því að lesa lítil fanmail sem barst okkar -- Það í samanburði við póst sem Atli fékk frá stalker þegar Órói var ný og vinsæl mynd.
39. Þáttur - Labbaðu upp á þetta fjall 03.12.2021 1:09:41
Drengirnir eru komnir aftur eftir alltof langa pásu. Elías hefur ferðast heimshorna á milli og smitaðist af Covid fyrir vikið á meðan Atli mætti seint á fyrirlestur Kvikmyndamiðstöðvar um umsóknarferlið þeirra. Strákarnir drulla EKKI yfir Ófærð og Atli segir frá erlendu tökuteymi sem gjörsamlega gekk frá honum.
38. Þáttur - RIFF ’21: Blaðamannapassinn 13.10.2021 1:08:30
Alþjóðlega kvikmyndahátíð Reykjavíkur er í fullu fjöri á meðan við tókum upp þennan þátt, Eddu-styttur ársins búnar að finna sín heimili, og Atli og Elías eru aftur komnir í þægilegri stöðu bara tveir. Engir gestir. Bara þægindi.
37. Þáttur - Ninna Pálma, Áratugur í bransanum 05.10.2021 59:51
Leikstýran Ninna Pálmadóttir fór strax að vekja athygli þó hún væri enn ekki útskrifuð úr Tisch School of the Arts með myndunum sínum Blaðberinn og Allir hundar deyja. En hún vann bæði Edduna og RIFF fyrir Blaðberann. Við ræðum við Ninnu um uppkomu hennar í bransanum og yfirþyrmandi drauma um að verða leikstjóri sama hvað það kostaði.
36. Þáttur - Birna Rún, Eddustyttur og stuttmyndir 13.09.2021 1:11:52
Leikkonan Birna Rún Eiríksdóttir tekur að sér fyrsta gesta hlutverk hjá okkur eftir að Covid tók yfir, og hún veit margt um það að vera inní, útúr, og við jaðarinn á kvikmyndabransanum á Íslandi -- og þau Atli bera saman Eddu-upplifanir sínar. Bónus topic um stuttmynda-skriftir og strúktúr í lokin!
35. Þáttur - Einar Pétursson 31.07.2021 59:34
Drengirnir uppgötva tæknina til að hringja í fólk í miðjum þætti og auðvitað nýta þeir nýfengna krafta sína hóflega og aðeins til góðs..
34. Þáttur - Ekki vera hálfviti á setti 09.07.2021 1:09:19
Í dag ræðum við toxic hegðun á kvikmyndasettum, og segjum hvað okkur fannst um KÖTLU á Netflix.
33. Þáttur - Handritateymið í Skuggahverfinu 28.06.2021 1:04:43
Fyrir langa löngu tóku drengirnir upp þátt. En svo komu afléttingar og allir duttu í það í marga marga daga. Okkur rámar í að þessi þáttur fjalli um Shadowtown sem Atli leikur í og svokallað writer's room sem Elías var ráðinn í á dögunum.
32. Þáttur - Stútfullur þáttur með tannpínu 03.06.2021 1:05:52
Atli gerist svo brattur að segjast vera með alveg stútfullan þátt í dag. Hann fjallar um styrkveitingu handritasjóðs KMÍ, stuttmyndakeppni Stockfish, áhugaverða umræðu á Kvikmyndagrúppu Facebook, nýja íslenska streymiveitu, og fleira var það ekki. Nema ein sársaukafull saga frá tannlækninum.
Podcasts similaires
Replaio n'est pas éditeur de podcasts ; les noms des émissions, les visuels et l'audio appartiennent à leurs auteurs et sont diffusés via des flux RSS publics