AnnaKrissa og Ari Björn
Áhugavaldar
Sperrtu eyrun, því systkinin Anna og Ari eru mættust hingað með áhugaverðasta hlaðvarp Íslands lóðbeint til þín. Nýir þættir á þriðjudögum.
Author
AnnaKrissa og Ari Björn
Category
Podcast website
Latest episode
Jun 30, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
17. Einn af Hverjum Tíu Tannlæknum eru Kolklikkaðir 30.06.2026 1:39:15
Það er alltaf þessi eini sem er ósammála... í dag fer Ari með Önnu á ókunnugar slóðir. Stoppað er á subredditinu r/The10thDentist þar sem er ekki alveg í lagi með suma. Vonandi finnst ykkur kaldar pullur góðar. Tímastimplar; 0:00 yapperville 4:29 áhugaverðar staðreyndir 14:57 tíundi tannlæknirinn byrjar 16:37 Ég elska þegar hnerrinn minn hverfur 22:00 Ég elska að borða kaldar pylsur + stærsta h...
16. Forvitnin Drap Köttinn (Köttur = Anna) 23.06.2026 1:27:02
TW: Weird og ógeðslegt stuff. Anna hendir Ara aftur í djúpu laugina og segir honum frá mörgum áhugaverðum þráðum sem hún stólpast stundum á þegar hún skoðar /askreddit.
15. ÞAÐ ER KOMINN 17. JÚNÍ!! 17.06.2026 1:31:40
HÆ HÓ OG JIBBÝ JEI! ÁFRAM ÍSLAND!! WOOHOOOOO! ÍSLAND ER BEST Í HEIMI!! BÆ DANMÖRK ÁFRAM ÍSLAND! RAMMÍSLENSKASTI ÞÁTTUR ÍSLANDS. FARÐU NORÐUR OG NIÐUR OG ÞAÐAN Í VERRI STAÐ DANMÖRK! ÁFRAM ÍSLAND!!
14. SkýrAri Mynd af Ara 16.06.2026 1:37:57
Ari er grínAri, trommAri, frábær leikAri, algjör töffAri, góður teiknAri, geggjaður söngvAri og tónlistarskapAri, góður söguskrifAri og lesAri og bæði sterkAri, vitrAri, hressAri, nettAri og klárAri en Anna. Í þætti vikunnar fáum við skýrAri mynd af Ara með handahófskenndAri og flottAri spurningum heldur en eðlilegt væri að spurja. FyndnAri og heitAri þátt er erfitt að finna.
13. Spurningar, Spurningar, og Fleiri...Spurningar? 09.06.2026 1:37:46
Áhugavaldarnir kafa djúpt ofan í heilann á Önnu. Hvort myndir þú? Spurningar um tilveruna, og margt annað áhugavert ™ í þessum fróðlega þætti.
12. Funheitar Frásagnir Fólksins 02.06.2026 1:59:15
Við spurðum, þið svöruðuð. Dónalegir viðskiptavinir, MJÖG furðulegar uppákomur, játningar og svo miklu meira í þessum funheita þætti. Anna les fyrir Ara sögurnar sem þið senduð inn og það má segja að þær eru svakalegar. Spennið beltin og náið ykkur í popp. Tímastimplar; 0:00 Vitleysisgangur og Yapperville 15:04 Áhugaverðar Staðreyndir 22:10 Umræðuefni Þáttarins 29:40 TW emetophobia /ælufóbía 32:...
11. Buzz Buzz.., og Svaraðu Nú! 26.05.2026 1:23:02
Hvort myndir þú frekar, og kanntu gen alpha tungumál? er meðal þeirra prófa sem Ari leggur fyrir Önnu í þessum þætti áhugavaldanna. Það eru stóru spurningarnar í dag!
10. Heimsmet á (Skrítnum) Heimsmælikvarða 19.05.2026 1:17:59
Lengstu neglurnar, háværasta ropið, o.fl. Vonandi býður ykkur ekki eins mikið við og honum Ara. Enda fór Anna með ótrúlegustu heimsmet sem hún gat fundið í þessum bráðfyndna þætti hjá áhugavöldunum.
9. Er Ekki Kominn Tími til að Pústa? 12.05.2026 1:23:03
Það lendir enginn í svona hjá tannlækninum nema Anna... það verður sko sannarlega pústað úr öllum áttum í þessum þætti! Þú vilt sko alls ekki missa af því.
8. Seinustu Tvær Heilasellurnar 07.04.2026 54:39
Í þætti vikunnar förum við í nokkra áhugaverða tveggja manna leiki. Afslappað, fyndið og út um allt, bara eins og við!
7. Snúast Páskarnir um Jesú? 31.03.2026 1:26:45
Málshættir, trúarbrögð, pólitík, o.fl. Páskarnir eru tíminn þar sem maður borðar yfir sig af súkkulaði (Og rífst kannski smá við ættingja um stjórnmál og samfélagið). Halda samt allir eins upp á páskana? Og hvað þýða þessir djös...Ég meina, forvitnilegu málshættir eiginlega?
6. Stórasti Hatari Íslands 26.03.2026 1:37:45
Rant - þátturinn mikli! Vonandi er hjartað ykkar fullt af hatri þegar þið smellið á þennan þátt. Það eru samt nokkrir pabba-brandarar til þess að mýkja stemmarann í byrjun.
5. Eru Þjóðsögur Ömurlega Leiðinlegar? 17.03.2026 1:27:24
Þessi tók skarpa U-beygju. Það eru mörg umræðuefni sem áhugavaldarnir brenna fyrir. Eftirhermur, hot takes, samfélagsleg vandamál o.fl. Ari reynir líka að koma inn nokkrum "æsispennandi" þjóðsögum en Anna reynir sitt allra besta til að villa hann af leiðum...
4.Er Ég Þöngulhausinn?.. M/ Egill Bro 10.03.2026 1:29:39
Það eru nú allir mismikið gáfaðir... Í þessum bráðfyndna þætti með Áhugavöldunum, kíkir Egill í smá heimsókn. Anna færir okkur svo rjúkandi, sjóðheitar Reddit sögur á diskinn. En hver er aðal þöngulhausinn í þessum þætti?
3. Svaðalega Áhugavalda Spurningakeppnin! 03.03.2026 1:16:22
Í þessum þætti setur Anna á sig hugsunarhattinn. Ari gerir sitt besta til þess að henda Önnu úr öskunni í eldinn, með því að leggja fyrir ansi strembinn spurningaleik. Kannski fylgir smá rapp og beatbox líka...
2. Furðulegar Samsæriskenningar 17.02.2026 1:14:47
Settu á þig álhattinn og stilltu geiger-mælinn, því í dag tekur Anna fyrir furðulegar samsæriskenningar. Kannski ertu búin/n að heyra þennan þátt áður?..
1. Sögulegar Reddit Sögur 09.02.2026 1:29:08
Í þessum fyrsta þætti okkar áhugavalda fáið þið létta kynningu á okkur og nokkrar áhugaverðar staðreyndir - Ari tekur svo fyrir mjög áhugaverðar sögulegar Reddit sögur - og ein svakaleg æskuminning sem þú vilt ekki missa af því að heyra, úff.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.