Samstöðin

Samstöðin

News IS ↓ Odcinki: 694

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum. Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.

Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: samstodin.simplecast.com

Autor

Samstöðin

Kategoria

News

Strona podcastu

samstodin.simplecast.com

Ostatni odcinek

18 paź 2026

Gdzie słuchać?

Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótce

Podcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów

Pobierz z Google Play Zainstaluj za darmo Android prawie 10 mln pobrań · ocena 4,8 iOS niedługo

Odcinki

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 23 05.06.2026
Rauða borðið 4. júní - Vitsmunakreppa, þurfamenn, bókmenntir, listir og neytendamál 04.06.2026

Fimmtudagur 04. júní Vitsmunakreppa, þurfamenn, bókmenntir, listir og neytendamál Sverrir Norland rithöfundur ræðir þverrandi áherslu á vitsmuni en aukinn þunga á öryggi í samtali við Björn Þorláks. Ragnheiður Kristjánsdóttir prófessor segir Gunnari Smára frá breytingum á fátæktarlögum 1927 þar sem þurfamenn fengu meðal annars kosningarétt, en fram að því missti fólk þann rétt ef það þáðu stuðning...

Rauða borðið 3. júní - Ofbeldi, öryrkjar, fánar, íbúðamarkaður og sundlaugar 03.06.2026

Miðvikudagur 3. júní Ofbeldi, öryrkjar, fánar, íbúðamarkaður og sundlaugar Hrundið hefur verið af stað landsátaki gegn kynbundnu ofbeldi næstu fimm árin. Linda Dröfn Gunnarsdóttir ræðir í samtali við Björn Þorláks átakið, flutning athvarfsins, samstöðu og stuðning en einnig ökklabönd og kyrkingartök. Unnur Hrefna Jóhannsdóttir blaðakona og öryrki ræðir við Gunnar Smára um stöðu öryrkja í samfélagi...

Rauða borðið 2. júní - Bitbein, mygluveiki, villistrákar, ferðaþjónustufúsk og hringvegurinn 02.06.2026

Þriðjudagur 2. júní Bitbein, mygluveiki, villistrákar, ferðaþjónustufúsk og hringvegurinn Páll Valsson rithöfundur og ævisagnaritari Jónasar Hallgrímssonar skýrir fyrir Birni Þorláks hvers vegna hann telur það góða hugmynd að grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar. Hugmyndin hefur vakið deilur meðal fræðimanna. Aðalheiður Sigursveinsdóttir stjórnunarráðgjafi og listakona varð fyrir alvarlegum áhrif...

Rauða borðið 1. júní - Lyfjahagsmunir, pólitík, fasteignasala og menntun 01.06.2026

Mánudagur 1. Júní Lyfjahagsmunir, pólitík, fasteignasala og menntun Hagsmunir sem stýra lyfjarannsóknum og heilbrigðiskerfinu eru miklir og spurningar vakna hvort árangursrík og ódýr meðferð gegn krabbameini sé ekki í boði vegna hagsmuna lyfjafyrirtækja? Ásdís Olsen ræðir við Karl Snæbjörnsson lækni og Jón Ármann Steinsson sem segist hafa náð bata af fjórða stigs krabbameini með lyfi sem læknar er...

Bridgeþátturinn - Flott frammistaða 31.05.2026

Sunnudagurinn 31. maí Bridgeþátturinn - Flott frammistaða Matthías Imsland, framkvæmdastjóri Bridgesambands Íslands, og Magnús Magnússon briddskennari og landsliðsmaður ræða við Björn Þorláks um Evrópumótið framundan, æfingar að baki, maraþonviðureign við Hollendinga og fleira.

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 22 29.05.2026

Föstudagur 29. maí Vikuskammtur: Vika 22 Í Vikuskammt að þessu sinni mæta þær Nanna Hlín Halldórsdóttir, Elín Oddný Sigurðardóttir og Valgerður Árnadóttir til að ræða fréttir vikunnar með Laufeyju Líndal. Nýir borgar- og sveitarstjórnarmeirihlutar, samstarfssáttmálar, þjóðaratkvæðagreiðsla, vafasamar fyrirmyndir, hvalveiðar, netárásir og fordómar verða til umræðu.

Rauða borðið 28. maí - Olíuborpallur, reynsluboltar, heimsmálin, innflytjendur og plastbarkamálið 28.05.2026

Fimmtudagur 28. maí Olíuborpallur, reynsluboltar, heimsmálin, innflytjendur og plastbarkamálið Steingrímur Ólafsson er einn fárra Íslendinga sem starfar á olíupalli. Hann lýsir þeirri reynslu í samtali við Björn Þorláks og spáir fyrir um framtíð jarðefnaeldsneytis. Aðalsteinn Tryggvason blaðamaður á Heimildinni, Steingerður Steinarsdóttir, blaðamaður, Lifðu núna og Margrét Valdimarsdóttir afbrotaf...

Græna borðið - 14. þáttur - Velsældarhagkerfið 28.05.2026

Hagvöxtur sem mælikvarði framfara ógnar náttúrunni og heilsu samfélagins, segja höfundar nýrrar bókar um velsældarhagkerfið. Ásgeir Brynjar Torfason og Kristín Vala Ragnarsdóttir eru gestir Græna borðsins, ásamt Silju Elvarsdóttur verkefnisstjóra í Norræna húsinu. Félagið Miðstöð velsældarhagkerfis, verður stofnað í Norræna húsinu í dag og stefnir að fræðslu og umræðu um leiðir til betra lífs, Kri...

Rauða borðið 27. maí - Kennsla, geðheilsa, golf, heilsulæsi, tónlistarósómi 27.05.2026

Miðvikudagur 27. maí Kennsla, geðheilsa, golf, heilsulæsi, tónlistarósómi Gunnar Smári Egilsson ræðir við Ingvar Sigurgeirsson og Lilju M. Jónsdóttur, fyrrverandi háskólakennara um nýja skýrslu um starfsaðstæðiur kennara. Forsvarsmenn Geðhjálpar geta ekki opnað skjólshús á jafningjagrunni í Breiðholti vegna andstöðu íbúa. Björn Þorláks ræðir við Sigrúnu Ólafsdóttur prófessor í félagsfræði. Lukka P...

Rauða borðið 26. maí - Náttúruhamfarir, dýrtíð, einhverfa og hamingja 26.05.2026

Þriðjudagur 26. maí Náttúruhamfarir, dýrtíð, einhverfa og hamingja Margt bendir til að eldgosahrinunni sé lokið á Reykjanesi og að besta sviðsmynd allra möguleika verði ofan á. Öryggi og nægur jarðvarmi. Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur ræðir við Björn Þorláksson. Dýrtíð innanlands er í hæstu hæðum. Framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, Þórður Snær Júlíusson, ræðir í samtali við Bjö...

Rauða borðið - Helgi-spjall: Ragnar Freyr Ingvars 23.05.2026

Laugardagur 23. maí Helgi-spjall: Ragnar Freyr Ingvars Ragnari var nýlega sagt upp störfum á Landspítalanum sem hefur vakið sterk viðbrögð. Hann er vinsæll og vel metinn lyf- og gigtarlæknir og formaður Læknafélags Reykjavíkur. Hann segir yfirstjórn spítalans vanhæfa og segir óhræddur skoðun sína á Landspítalanum og hvað mætti bæta í heilbrigðiskerfinu okkar. Ragnar er í Helgi-spjalli vikunnar með...

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 21 22.05.2026

Föstudagur 22. maí Vikuskammtur: Vika 21 Í Vikuskammt til Björns Þorlákssonar mæta þau Steinunn Ólína leikkona, Bragi Páll rithöfundur, Halldór Ólafsson kvikmyndagerðarmaður og Þorsteinn Siglaugsson hagfræðingur. Þau ræða m.a. pólitík, löggur sem skjóta fólk, dýrtíð, menningu og menningarleysi.

Rauða borðið 21. maí - Rasismi, bakslag, reynsluboltar, Rauði krossinn og draumar 21.05.2026

Fimmtudagur 21. maí Rasismi, hinsegin bakslag, reynsluboltar, Rauði krossinn og draumar Brynjar Karl hjá körfuboltafélaginu Aþenu saknar ekki fráfarandi meirihluta Reykjavíkurborgar, enda hafa samskipti hans og borgarinnar verið stirð á umliðnum árum. Hann ræðir við Björn Þorláks og segist reiður, enda sé borgin beint eða óbeint að stuðla að rasisma. Alexandra Briem, Arna Magnea Danks og Svenný Kr...

Rauða borðið 19. maí - Vinstrið, Píratar, vísindi, hamingja og minningartónleikar 20.05.2026

Þriðjudagur 19. maí Vinstrið, Píratar, vísindi, hamingja og minningartónleikar Stefán Pálsson sagnfræðingur ræðir við Björn Þorláks um úrkomu kosninganna og hvaða breytinga megi vænta með hægri meirihluta. Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns formaður Pírata segir Gunnari Smára hver framtíð Pírata er og metur hvers vegna svona fáir kusu þá í borgarstjórnarkosningum og til þings. Árni Kristjánsson, prófesso...

Rauða borðið 19. maí - Vinstrið, Píratar, vísindi, hamingja og minningartónleikar 19.05.2026

Þriðjudagur 19. maí Vinstrið, Píratar, vísindi, hamingja og minningartónleikar Stefán Pálsson sagnfræðingur ræðir við Björn Þorláks um úrkomu kosninganna og hvaða breytinga megi vænta með hægri meirihluta. Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns formaður Pírata segir Gunnari Smára hver framtíð Pírata er og metur hvers vegna svona fáir kusu þá í borgarstjórnarkosningum og til þings. Árni Kristjánsson, prófesso...

Rauða borðið 18. maí - Kosningaúrslitin, tímamótabók, dáleiðsla og fíkn 18.05.2026

Mánudagur 18. maí Kosningaúrslitin, tímamótabók, dáleiðsla og fíkn Blaðamennirnir Jón Trausti Reynisson á Heimildinni og Atli Þór Fanndal, sem starfar sjálfstætt, rýna í helstu atriði kosningaúrslita um helgina og spá fyrir um framhaldið. Björn Þorláks stýrir umræðunni. Umtalaðasta íslenska bókin þessa dagana er lífsreynslusaga Gyrðis Elíassonar, Ótíð í víti. Þar lýsir Gyrðir eigin baráttu við geð...

Synir Egils 17. maí - Uppgjör kosninga 17.05.2026

Sunnudagurinn 17. maí Synir Egils: Uppgjör kosninga Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um niðurstöður kosninganna. Fyrst koma þau Gísli Marteinn Baldursson sjónvarpsmaður, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir ráðgjafi og Árni Helgason nýr þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fara yfir kosningabaráttuna, úrslitin og áhrif þeirra. Síðan koma starfsmenn stjórnmá...

Rauða borðið - Helgi-spjall: Vigfús Bjarni 16.05.2026

Laugardagur 16. maí Helgi-spjall: Vigfús Bjarni Vigfús Bjarni Albertsson prestur segir frá lífinu, þessa heims og annars, í helgispjalli við Gunnar Smára; ræðir hversu stórkostleg manneskjan er og breysk, um sorgina, dauðann og lífið sem verður sterkara af áföllum.

Föstudagur 15. maí Vikuskammtur: Vika 20 15.05.2026

Föstudagur 15. maí Vikuskammtur: Vika 20 Vikuskammtur tekur mið af kjördegi á morgun. Við fáum fólk af listum þeirra þriggja flokka sem hafa mælst með mest fylgi til að ræða stöðuna í Reykjavík: Líf Magneudóttir er í öðru sæti á lista Vinstrisins, Heiða Björg Hilmisdóttir er í öðru sæti á lista Samfylkingarinnar og Brynjar Níelsson er í þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins. Þau ræða kosningaba...

Rauða borðið - Aukaþáttur: Vinstrið 14.05.2026

Fimmtudagur 14. maí Vinstrið Aukaþáttur á uppstigningardag: Ester Bíbí Ásgeirsdóttir, Finnur Ricart Andrason, María Hjálmtýsdóttir og Svenný Kristins koma að Rauða borðinu og ræða Vinstrið, framboð í Reykjavík og Hafnarfirði. Hvað vill Vinstrið og hvert stefnir það?

Sjávarútvegsspjallið - 83. þáttur: Fiskmarkaðir og kvóti 14.05.2026

Fimmtudagur 14. maí Sjávarútvegsspjallið - 83. þáttur Það eru þeir Atli Hermannsson og Kári Jónsson sem mæta til Grétars að þessu sinni að ræða fiskmarkaði og kvótamál.

Græna borðið - 13. þáttur: Ráðherra styður hugmynd um hálendisþjóðgarð 14.05.2026

Miðvikudagur 13. maí Græna borðið - 13. þáttur: Ráðherra styður hugmynd um hálendisþjóðgarð Páll Ásgeir Ásgeirsson og Jón Kaldal settust við Græna borðið ásamt Jóhanni Páli Jóhannssyni ráðherra umhverfis og orkumála. Þar var rætt um margt sem heyrir undir ráðuneyti hans allt frá rammaáætlun, vindorku, átökum um Hvammsvirkjun, lagareldi og kortlagningu víðerna.

Rauða borðið 13. maí - Vinur, heimsmálin, kappræður, vond kjör, FÍB, Starmer og einhverfa 13.05.2026

Miðvikudagur 13. maí Vinur, heimsmálin, kappræður, vond kjör, FÍB, Starmer og einhverfa Sævar Ciesielski var misnotaður af séra Georg í Landakotsskóla og síðan píndur, niðurlægður og útskúfaður af íslensku þjóðinni,“ segir vinur hans, Jón Ármann Steinsson, í viðtali við Ásdísi Olsen um nýja sjónvarpsþáttaröð um Geirfinnsmálið. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um ferð Trump ti...

Rauða borðið 12. maí - Viðskiptaráð, kæra Rúv, lögfræðispjall, skólakerfið, læsishrun og mjúkir menn 12.05.2026

Þriðjudagur 12. maí Viðskiptaráð, kæra á Rúv, lögfræðital, skólakerfið, læsishrun og mjúkir karlmenn Gunnar Smári ræðir við Björn Brynjúlf Björnsson framkvæmdastjóra um stefnu og markmið Viðskiptaráðs, fyrirferð þess í samfélaginu og hverjum það þjónar. Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum hafa kært Rúv til Fjölmiðlanefndar. Árni Guðmundsson talsmaður samtakanna telur að Rúv stundi ólöglega augl...

Słuchaj podcastu Samstöðin w Replaio

Radio i podcasty w jednej aplikacji - za darmo, bez zakładania konta. Zainstaluj już dziś i nie przegap premiery

Pobierz z Google Play

Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS