Samstöðin
Samstöðin
Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum. Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.
Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: samstodin.simplecast.com
Gdzie słuchać?
Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótcePodcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów
Odcinki
Rauða borðið - Helgi-spjall: Björn Leví 26.09.2026 1:53:00
Laugardagur 26. september Helgi-spjall: Björn Leví Í helgispjalli ræðir Björn Leví Gunnarsson við Björn Þorláks um einelti og fleira. Þegar einelti gengur langt má líkja því við tilraun til mannsdráps að sögn hans. Þingið, fall pírata, átök í Flokki fólksins og fleira verður til umræðu.
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 39 25.09.2026 1:11:55
Föstudagur 25. september Vikuskammtur: Vika 39 Fyrsta haustlægðin, hvellurinn í Flokki fólksins, Átök Ísraels og Palestínu, stórafmæli Menntaskólans í Hamrahlíð, staða pólitíkur og efnahagsmála, bridds, brennivín, bækur, músík og fleiri mál verða til umræðu í fréttaþættinum Vikuskammtur. Björn Þorláks hefur umsjá með dagskránni en gestir eru Matthías Imsland framkvæmdastjóri, Kristín Helga Gunnars...
Rauða borðið 24. sept - Utanríkismál, hugrekki, gervigreind, reynsluboltar, geðheilbrigði og ný bók 24.09.2026 5:15:04
Fimmtudagur 24. september Utanríkismál, hugrekki, gervigreind, reynsluboltar, geðheilbrigði og ný bók Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Þorsteinn Pálsson ræða utanríkismál og samband Íslands við umheiminn í samtali við Sigurjón Magnús Egilsson. Heimir Hallgrímsson hefur vakið reiði ísraelska knattspyrnusambandsins. Hjálmtýr Heiðdal hjá Ísland-Palestína ræðir við Björn Þorláks um hugrekki knattspyrnu...
Sjávarútvegsspjallið - 91. þáttur: Fiskeldi í landi og sjó 24.09.2026 58:22
Fimmtudagur 24. september Sjávarútvegsspjallið - 91. þáttur Viðmælandi Grétars að þessu er Jón Kaldal, sem er félagi í Íslenska náttúruverndarsjóðnum - The Icelandic Wildlife Fund.
Græna borðið - 21. þáttur - Þingheimur og grænu málin 23.09.2026 57:22
Þriðjudagur 22. september Græna borðið - 21. þáttur Hvalveiðar verða stóra umhverfisdeilan á þingi í vetur. Gervigreind og gagnaver koma lítið til tals meðal Alþingismanna. Sefur þingheimur á sitt græna eyra? Hver ber ábyrgð á Seyðisfirði? Var gangsetning Vaðölduvers gleðistund? Þetta er meðal þess sem rætt var við Græna borðið þegar þær Ása Berglind Hjálmarsdóttir og Ingveldur Anna Sigurðardóttir...
Rauða borðið 22. sept - Efnahagsmál, gunguháttur, ný skáldsaga, Grænland og næring 22.09.2026 4:56:16
Þriðjudagur 22. september Efnahagsmál, gunguháttur, ný skáldsaga, Grænland og næring Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur Visku og Ragnar Sigurður Kristjánsson hagfræðingur Viðskiptaráðs ræða við Gunnar Smára um fjárlögin og efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar og hætturnar í efnahaginum þar sem verðbólga, vaxandi atvinnuleysi og merki um stöðnun draga um dökka mynd. Auka þarf kröfur til skólabarna, se...
Bókaborðið - 2. þáttur: Hamraskáldin Þórunn og Yrsa 22.09.2026 50:54
Þriðjudagur 22. september Bókaborðið - 2. þáttur Í þessum þætti tekur Brynhildur Björnsdóttir tali tengdamæðgurnar og MH- ingana Þórunni Erlu Valdimarsdóttur og Yrsu Þöll Gylfadóttur. Þær ræða starf rithöfundarins, stuttar og langar bækur, nýju bókina hennar Yrsu og námsárin sín í MH.
Rauða borðið 21. sept - Pólitík, stefnumótamenning, PISA, atkvæðavægi og Lalli Johns 21.09.2026 4:23:32
Mánudagur 21. september Pólitík, stefnumótamenning, PISA, atkvæðavægi og Lalli Johns Guðmundur Ari Sigurjónsson er með metnað til að verða varaformaður Samfylkingarinnar þrátt fyrir ungan aldur og stutta þingreynslu. Hann hefur áður hent sér út í djúpa laug og ræðir baráttuna, sigra og töp í samtali við Björn Þorláks. „Karlar hræðast mest að konan líti verr út en á myndinni, en konur hræðast að ve...
Synir Egils 20. sept - Evrópa og Bandaríkin, skattar, kjarabarátta, húsnæði, pólitík 20.09.2026 2:26:42
Sunnudagurinn 20. september Synir Egils: Evrópa og Bandaríkin, skattar, kjarabarátta, húsnæði, pólitík Til okkar koma á vettvang dagsins Árni Helgason þingmaður, Líf Magneudóttir borgarfulltrúi og Margrét Helga Erlingsdóttir sjónvarpskona og ræða fréttir vikunnar og ástand samfélagsins og síðan þeir Jónas Atli Gunnarsson hagfræðingur Húsnæðis og mannvirkjastofnunar, Ragnar Þór Ingólfsson félags- o...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Ása Berglind 19.09.2026 1:18:16
Laugardagur 19. september Helgi-spjall: Ása Berglind Ása Berglind Hjálmarsdóttir þingkona fyrir Samfylkinguna var gestur Sigurjóns Magnúsar í Helgispjallinu þessa helgina. Ása Berglind á rætur í tónlist og spilar til að mynda á trompet. Ása Berglind segir af sjálfri sér og uppvextinum, hvernig það er að verða móðir aðeins 17 ára, frá störfum sínum í bæjarstjórn Þorlákshafnar og frá störfum sínum á...
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 38 18.09.2026 1:44:12
Föstudagur 18. september Vikuskammtur: Vika 38 Dóra Jóhannsdóttir leikkona og leikstjóri, Freyr Eyjólfsson öskukarl og poppari, Hólmfríður Gísladóttir fréttakona og Nína Helgadóttir fulltrúi í málsvarastarfi Rauða kross Íslands koma í Vikuskammt og ræða fréttir vikunnar við Gunnar Smára, fréttir sem einkenndust af átökum, deilum og upplausn, stríðum, mögulegum heimsenda og langdrægnum markmiðum.
Rauða borðið 17. sept - Laxeldisskaði, reynsluboltar, kannabis, laxveiði og heildræn heilsa 17.09.2026 4:05:01
Fimmtudagur 17. september Laxeldisskaði, reynsluboltar, kannabis, laxveiði og heildræn heilsa Jóhannes Sturlaugsson fiskifræðingur ræðir hvers vegna opinberar stofnanir hundsa íbúalýðræði og náttúruvernd. Björn Þorláks ræðir við hann. Ragnheiður Davíðsdóttir, Hákon Gunnarsson og Þorsteinn Sæmundsson voru gestir í Reynsluboltum Sigurjóns. Að venju var víða komið við. Kannski stal Donald Trump senun...
Sjávarútvegsspjallið - 90. þáttur: Strandveiðar og staða fiskistofna 17.09.2026 1:07:30
Fimmtudagur 17. september Sjávarútvegsspjallið - 90. þáttur Viðmælendur Grétars eru að þessu sinni þeir Þórólfur Júlían Dagsson, strandveiðimaður, og Sigurjón Þórðarson, formaður fjárlaganefndar Alþingis.
Græna borðið - 20. þáttur: Stórgölluð stjórnsýsla 17.09.2026 49:00
Miðvikudagur 16. september Græna borðið - 20. þáttur Þær Katrín Oddsdóttir og Benedikta Svavarsdóttir frá samtökunum Vá-félag um verndun fjarðar settust við Græna borðið ásamt Páli Ásgeiri Ásgeirssyni. Umræðuefnið var nýlegt leyfi sem fyrirtækinu Kaldvík fékk til laxeldis í Seyðisfirði. Þær lýsa meingallaðri stjórnsýslu sem dregur blygðunarlaust taum hagsmunaðila og hunsar almannahagsmuni. Þær boð...
Rauða borðið 16. sept - Gervigreind, einræði, kosningar, hugvíkkandi og Ingimar Eydal 16.09.2026 3:40:43
Miðvikudagur 16. september Gervigreind, einræði, kosningar, hugvíkkandi og Ingimar Eydal Kristinn Rúnar Þórisson prófessor í tölvuvísindum við HR ræðir um gervigreind við Gunnar Smára, hvort tæknin geti vaxið manninum yfir höfuð og eytt honum. Björn Bjarnason fyrrum þingmaður og ráðherra sendir frá sér þrjár þýðingar í ár, allt á bókum sem fjalla um breytta stöðu heimsmála. Hann segir Gunnari Smár...
Rauða borðið 15. sept - Flugvirkjar, Trump, baktal, sundrung og hrakvæðing 15.09.2026 3:34:09
Þriðjudagur 15. september Flugvirkjar, Trump, baktal, sundrung og hrakvæðing Flugvirkjar hafa boðað verkfall og mikið ber á milli þeirra og Icelandair. Óskar Einarsson formaður Flugvirkjafélags Íslands skýrir stöðuna fyrir Gunnari Smára. Brynja Elísabeth Halldórsdóttir dósent við menntavísindasvið, Magnús Helgason sagnfræðingur og Bjarni Randver Sigurvinsson trúarbragða- og guðfræðingur ræða við G...
Bókaborðið - 1. þáttur: Eru allar gamlar bækur merkilegar? 15.09.2026 57:05
Þriðjudagur 15. september Bókaborðið - 1. þáttur Í þessum fyrsta þætti Bókaborðsins spjalla María Hjálmtýsdóttir og Eiríkur Ágúst Guðjónsson um fornbókabúðir fyrr og nú, bókasöfnun, verðmæti gamalla bóka, bókband og ýmislegt fleira tengt bókum sem gripum.
Rauða borðið 14. sept - Laxeldishneyksli, skólinn og PISA, Ísland Trumps og jóga 14.09.2026 3:40:40
Mánudagur 14. september Laxeldishneyksli, skólinn og PISA, Ísland Trumps og jóga Jódís Skúladóttir fyrrum þingmaður og sveitarstjórnarfulltrúi á Austurlandi gagnrýnir suma fyrrverandi félaga í VG harðlega í tengslum við áform um laxeldi á Seyðisfirði. Björn Þorláks ræðir við Jódísi. Anna Kristín Sigurðardóttir prófessor á menntavísindasviði ræðir við Gunnar Smára um stöðuna á grunnskólanum í ljósi...
Bridgeþátturinn - Úrvalsdeildin 13.09.2026 31:35
Sunnudagurinn 13. september Bridgeþátturinn: Úrvalsdeildin Matthías Imsland framkvæmdastjóri Bridgesambands Íslands og Magnús E. Magnússon landsliðsmaður og briddskennari ræða við Björn Þorláks um sjónvarpsmót fram undan og fleira.
Synir Egils 13. sept - Æskan, þingið, kjaramál, utanríkis- og öryggismál 13.09.2026 2:20:54
Sunnudagurinn 13. september Synir Egils: Æskan, þingið, kjaramál, utanríkis- og öryggismál Þau koma og ræða fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins þau Rósa Björk Brynjólfsdóttir formaður Vg, Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélags Íslands og Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda; PISA, fjárlagafrumvarp, stefnuræðu, landakort Trump, EES og bókun 35, aðgerðir ríkisstj...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Lýður Árna 12.09.2026 1:46:38
Laugardagur 12. september Helgi-spjall: Lýður Árna Lýður Árnason læknir er litríkur persónuleiki sem hefur komið víða við. Hann ræðir sjálfan sig, læknisfræðina, pólitík og samfélagið í helgi-spjalli við Björn Þorláks.
Föstudagur 11. september - Vikuskammtur: Vika 37 11.09.2026 1:17:44
Föstudagur 11. september Vikuskammtur: Vika 37 Þóroddur Bjarnason félagsfræðiprófessor, Valgerður Árnadóttir aktívisti, Lísa Margrét Gunnarsdóttir stúdent og Bubbi, nemi við Verzló, ræða við Björn Þorláks um fréttir vikunnar. Verður Ísland innlimað í Bandaríkin? Eru nemendur í háskólanum að verða vitlausari og vitlausari? Hvert stefnir ríkisstjórnin? Þessi mál og fleiri til umræðu.
Rauða borðið 10. sept - Reynsluboltar, heimsmálin, íslenskan, Þórir og skaflinn í Esjunni 10.09.2026 3:16:34
Fimmtudagur 10. september Reynsluboltar, heimsmálin, íslenskan, Þórir og skaflinn í Esjunni Erna Indriðadóttir, Helga Jónsdóttir og Magnús Stefánsson voru reynsluboltarnir að þessu sinni. farið yfir stefnuræðu forsætisráðherra og mál tengd henni, stöðu Reykjavíkurborgar, mismunin á þéttbýlinu og landsbyggðinni, ESB kosningarnar og ýmislegt annað. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir við Gunnar Sm...
Rauða borðið 9. sept - Uppsagnir, Svíþjóð, geðveiki, gervigreind og íþróttir 09.09.2026 3:57:31
Miðvikudagur 9. september Uppsagnir, Svíþjóð, geðveiki, gervigreind og íþróttir Uppsagnir hjá Reykjavíkurborg munu án efa skerða viðkvæma þjónustu við börn og ungmenni og auka hættu á ójöfnuði. Þetta segir Árni Gunnarsson forvarnafulltrúi í samtali við Björn Þorláks. Kristján Sigurjónsson ritstjóri FF7 ræðir við Gunnar Smára um kosningarnar í Svíþjóð, sem verða um helgina. Verða stjórnarskipti? Ól...
Podobne podcasty
Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS