Podcaststöðin

Mótorvarpið

Sports IS ↓ Odcinki: 272

Bragi Þórðarson fjallar um allt mótorsport á fjórum hjólum og fær til sín góða gesti, bæði fyrrum og núverandi keppendur ásamt öðrum mótorsport-fræðingum.

Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: podcasters.spotify.com

Autor

Podcaststöðin

Kategoria

Sports

Strona podcastu

podcasters.spotify.com

Ostatni odcinek

28 paź 2026

Gdzie słuchać?

Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótce

Podcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów

Pobierz z Google Play Zainstaluj za darmo Android prawie 10 mln pobrań · ocena 4,8 iOS niedługo

Odcinki

#72 Sögustund - Rafn Arnar Guðjónsson 17.03.2021

Rafn Arnar var í kringum flest allar tegundir akstursíþrótta í 37 ár, bæði sem keppandi, keppnishaldari og starfsmaður. Þekktastur er hann fyrir torfæruakstur í kringum aldamótin.

#71 Torfæra - Jóhann Gunnlaugs og Jón Reynir 10.03.2021

Liðsmenn torfæruliðsins b You Racing mættu til Braga en þeir kepptu sitt fyrsta tímabil í torfærunni á síðasta ári á Thunderbolt. Það er heil fjölskylda sem rekur liðið en Jóhann keyrir bílinn.

#70 Sögustund - Eyjólfur Melsteð 06.03.2021

Eyjólfur hefur verið að keppa ralli í um 20 ár á allskyns bílum, allt frá Renault Clio yfir í sérsmíðaðan Jeep Cherokee. Auk þess hefur hann farið í rallýskóla í Noregi og þekktur fyrir að pæla vel í uppstillingu bíla.

#69 Sögustund - Kristján Einar Kristjánsson (seinni hluti) 24.02.2021

Kristján Einar er sennilega sá Íslendingur sem náð hefur hvað lengst í akstursíþróttum. Hann varð Íslandsmeistari í Go-Kart árið 2006 og keppti þrjú ár erlendis í Formúlu 3.

#68 Sögustund - Kristján Einar Kristjánsson (fyrri hluti) 17.02.2021

Kristján Einar er sennilega sá Íslendingur sem náð hefur hvað lengst í akstursíþróttum. Hann varð Íslandsmeistari í Go-Kart árið 2006 og keppti þrjú ár erlendis í Formúlu 3. Hann fer það ítarlega yfir ferilinn með Braga að skipta þurfti þættinum í tvo hluta.

#67 Rallý - Baldur Haraldsson 10.02.2021

Baldur varð Íslandsmeistari í ralli árin 2014 og 2015. Hann fer vel yfir ferilinn með Braga en Baldur byrjaði að fylgjast með ralli árið 1977.

#66 Torfæra - Steingrímur Bjarnason 03.02.2021

Steingrímur hefur verið að keppa í torfæru frá 1990 og alltaf á sama Willys jeppanum. Hann er fjórfaldur Íslandsmeistari í götubílaflokknum ásamt því að eiga tvo titla í sandspyrnu.

#64 Uppgjör 2020 - Kvartmíla, Sandspyrna og Rallýcross 27.01.2021

Bragi heldur áfram að gera upp árið 2020 og í þessum lokaþætti uppgjörsins fær hann til sín Íslandsmeistara í spyrnugreinum og rallýcrossi.

#65 Torfæra - Verðlaunaafhending FO Iceland 23.01.2021

Sérstakur aukaþáttur Mótorvarpsins fer í að veita þrjá farandbikara sem venjulega eru veittir á lokahófi torfærunnar.

#63 Uppgjör 2020 - Kappakstur, E-Rally, Torfæra og Drift 20.01.2021

Bragi heldur áfram að gera upp árið 2020 og fær til sín Íslandsmeistara í Kappakstri, E-Rally, Torfæru og Drifti

#62 Uppgjör 2020 - Rallý 13.01.2021

Bragi fékk til sín Íslandsmeistarana í ralli og fóru þeir yfir síðasta tímabil þegar Akís var að afhenda keppendum meistarabikarana.

#61 Torfæra - Haukur Viðar Einarsson 06.01.2021

Bragi byrjar nýja árið á að tala við torfærukappann Hauk Viðar Einarsson sem að stendur í stórræðum fyrir komandi keppnistímabil. Haukur hefur verið í toppslagnum í sérútbúna flokknum síðustu ár og stefnir á titil árið 2021.

#59 Sögustund - Þórir Schiöth 09.12.2020

Þórir Schiöth kom með margar nýungar í torfæruna, m.a. stýri á fjórum hjólum og ausudekk. Hann fer yfir ferilinn með Braga en Þórir var einn litríkasti keppandi torfærunnar á sínum Jaxl.

#58 Sögustund - Hlöðver Baldursson 02.12.2020

Hlöðver Baldursson hefur verið í kringum rallið síðustu 23 ár bæði sem keppandi, service-maður og starfsmaður. Hans fjölskylda er sú næstsigursælasta í íslenskri rallsögu, alls með 13 titla.

#57 Sögustund - Björn Ingi Jóhannsson 25.11.2020

Björn Ingi keppti í torfæru frá 1999-2004 með góðum árangri. Hann var einnig þekktur fyrir mikil tilþrif og svakalegar veltur í slagnum við Gísla G og Halla P.

#56 Sögustund - Steingrímur Ingason (fyrri hluti) 18.11.2020

Steingrímur Ingason keppti í ralli frá 1978 til ársins 2000, bæði hér heima og erlendis. Hann er einna þekktastur fyrir að hafa sérsmíðað sér rallýbíl og keppt á honum með góðum árangri í tæplega 10 ár. Þátturinn varð svo langur að skipta þurfti honum í tvo hluta, í þessum fyrri hluta tölum við um árin 1978-1988.

#56 Sögustund - Steingrímur Ingason (seinni hluti) 18.11.2020

Steingrímur Ingason keppti í ralli frá 1978 til ársins 2000, bæði hér heima og erlendis. Hann er einna þekktastur fyrir að hafa sérsmíðað sér rallýbíl og keppt á honum með góðum árangri í tæplega 10 ár. Í þessum seinni hluta fjöllum við um 1988-2000.

#55 Sögustund - Ívar Guðmundsson 11.11.2020

Ívar keppti í torfæru í 8 keppnistímabil og vann á þeim tíma 15 keppnir og 4 Íslandsmeistaratitla. Hann fór yfirlitríkan ferilinn með Braga.

#54 Spyrna - Feðgarnir Stefán og Kristján 04.11.2020

Bragi fær spyrnufeðgana Stefán Kristjánsson og Kristján Stefánsson í spjall og fara þeir yfir ferla sína bæði í kvartmílu og sandspyrnu. Þeir hafa unnið Íslandsmeistaratitil í flokki breyttra jeppa síðustu tvö ár með talsverðum tilþrifum.

#53 Sögustund - Helgi Óskarsson 28.10.2020

Helgi Óskarsson byrjaði að fylgjast með ralli árið 1977 og var draumurinn alltaf að fara keppa sjálfur. Eftir að hafa farið í kvalafulla lengingaraðgerð í Síberíu á táningsárunum varð sá draumur að veruleika.

#52 Rallý - Guðmundur Snorri og Magnús 21.10.2020

Bragi fær til sín Íslandsmeistarana í jeppaflokknum árið 2020 í ralli en bæði Gummi Snorri og Maggi hafa keppt í ralli í 15 ár.

#51 Rallý og Rallýcross - Fylkir og Heiða Karen 14.10.2020

Fylkir Jónsson og Heiða Karen Fylkisdóttir urðu fyrstu feðginin til að vinna rallýkeppni yfir heildina með sigri í Haustrallinu. Fylkir byrjaði að keppa í Rallýcrossi löngu áður en Heiða fæddist en fjölskyldan sér líka um keppnishald.

#50 Torfæra - Snorri Þór Árnason 07.10.2020

Á torfæruferlinum hefur Snorri keppt í 21 keppni, unnið 13, 5 sinnum í öðru og tvisvar í þriðja. Hann kom í Mótorvarpið til Braga að ræða þennan magnaða feril en Snorri snýr aftur í torfæruna á Kórdrengnum sínum árið 2021.

#49 Rallý - Ísak Guðjónsson 30.09.2020

Lifandi goðsögn í íslenku ralli mætir aftur í Mótorvarpið! Ísak Guðjónsson heldur áfram þar sem frá var horfið í þætti #18 og fer yfir ferilinn allt til dagsins í dag, en Ísak tryggði sér sinn þriðja Íslandsmeistaratitil árið 2020.

#48 Torfæra - Jiiibbííí 23.09.2020

Sigurður Ingi Sigurðsson byrjaði að keppa í torfæru í vor. Hann fer yfir hvernig það er að byrja í þessu sporti ásamt liðstjóranum sínum, Sævari Jónssyni.

Słuchaj podcastu Mótorvarpið w Replaio

Radio i podcasty w jednej aplikacji - za darmo, bez zakładania konta. Zainstaluj już dziś i nie przegap premiery

Pobierz z Google Play

Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS