Kop.is

Gullkastið

Sports IS ↓ Odcinki: 412

Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is sem hóf göngu sína í maí árið 2011.

Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: www.kop.is

Autor

Kop.is

Kategoria

Sports

Strona podcastu

www.kop.is

Ostatni odcinek

12 paź 2026

Gdzie słuchać?

Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótce

Podcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów

Pobierz z Google Play Zainstaluj za darmo Android prawie 10 mln pobrań · ocena 4,8 iOS niedługo

Odcinki

Gullkastið – Borgin er Rauð 22.09.2025

Liverpool borg er að sjálfsögðu rauð, góður sigur á Everton í kjölfarið á sigri í miðri viku gegn Atletico Madrid. Liverpool er því með fullt hús stiga áfram en á meðan töpuðu bæði Arsenal og Man City stigum, reyndar í sama leiknum. Það var Breiðholtsþema í þættinum að þessu sinni í stjórn Magga sem fékk þá Addó og Garðar Gunnar til sín. Stjórnandi:  Maggi Viðmælendur:  Garðar Gunnar Ásgeirsson og...

Gullkastið – 90 mínútur plús uppbótartími! 18.09.2025

Fótboltaleikur er 90 mínútur plús uppbótartími, blessunarlega! Liverpool er búið að klára fimm leiki í röð með sigurmarki á lokamínútunum. Þrír af þeim reyndar eftir að hafa hent frá sér 2-0 forystu. Tveir afar ólíkir leikir í þessari viku og alvöru stórleikur framundan um helgina. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa...

Gullkastið – Fáum við að sjá Isak? 11.09.2025

Landsleikjahlé að renna sitt skeið og Isak mættur til æfinga klár í slaginn með toppliðinu. Tókum stöðutékk á byrjun mótsins, fréttum vikunnar og næstu umferð. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

Gullkastið - Isak mættur 01.09.2025

Alexander Isak er mættur til Liverpool og var síðasta viðbótin við hópinn í sumar eftir ótrúlegan leikmannaglugga og nokkuð fáránlegan lokadag. Marc Guéhi var líka búinn með læknisskoðun og kveðjumyndbönd hjá Palace aðeins til að fá svo ekki að fara þökk sé stjóra Palace sem tapaði alveg gleðinni og hótaði að hætta. Liverpool vann svo auðvitað frábæran sigur á flugher Arsenal, það lið ber sannarle...

Gullkastið - RIO 26.08.2025

Við þurftum að upplifa einn mest pirrandi leik Liverpool í langan tíma til að fá eitt besta augnablikið í tíð Arne Slot. Ngumoah kom inná eftir að hafa beðið í 5-6 mínútur á hliðarlínunni horfandi á háloftabolta Newcastle manna, kom loksins inná og slúttaði stuttu seinna nánast einu góðu sóknaraðgerð Liverpool í seinni hálfleik. Reyndum að ná utan um hvernig við erum núna búin að fá tvö svona augn...

Gullkastið – Ballið Byrjað 18.08.2025

Sigur á Anfield í fyrsta leik tímabilsins en frekar ósannfærandi. Lokakaflinn á leikmannamarkaðnum að hefjast og ljóst að Liverpool má ekki vera búið á markaðnum. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

Gullkastið - Næstu leikmannakaup í vinnslu 12.08.2025

Fréttir um Marc Guéhi til Liverpool og Leoni frá Parma fóru á yfirsnúning á meðan upptöku stóð og í morgun komu fréttir af Isak sem er heldur betur að gera sitt til að fá sín félagsskipti til Liverpool í gegn. Rosalega spennandi dagar og vikur framundan á leikmannamarkaðnum, Liverpool þarf að fylla í nokkrar stöður áður en glugganum lokar það er ljóst. Enska deildin fer af stað á föstudagskvöldið...

Gullkastið – Æfingatímabilið á lokametrunum 05.08.2025

Alexander Isak er ennþá leikmaður Newcastle aðallega vegna þess að þeim gengur ekki nokkurn skapaðan hlut að kaupa arftaka fyrir hanna eða bara nokkrun skapaðan hlut. Liverpool spilaði tvo leiki saman daginn og vann báða með fullt af spennadi atvikum og æfingaleikirnir fara upp um eitt level um helgina þegar Liverpool mætir Palace í Góðgerðarskildinum. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  Mag...

Gullkastið – Mikið meira en bara reykur! 29.07.2025

Slúður um Alexander Isak til Liverpool er orðið mikið meira en bara reykur, þetta er orðið að björtu báli og jafnvel talað um að hann sé farinn í verkfall hjá Newcastle til að pressa á sölu til Liverpool núna í sumar. Spáum í þeirri viðbót ef af verður og öðru slúrði tendu Liverpool í vikunni. Luis Diaz virðist t.a.m. vera farin til Bayern. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  Maggi Þökkum að...

Gullkastið – Isak til Liverpool? 15.07.2025

Silly season er farið aftur af stað með látum eftir afar þunga viku og alvöru bombur tengdar Liverpool, Alexander Isak var sterklega orðaður við Liverpool af blaðamönnum eins og David Ornstein sem gefur til kynna að þar sé einhver reykur. Minna áreiðanlegir miðlar tala um Rodrygo líka frá Real Madríd auk þess sem Liverpool á eftir að selja nokkrar stórar kanónur líka, eða hvað? Það hefur aldrei ve...

Gullkastið – Harmleikur í Portúgal 08.07.2025

Fráfall Diogo Jota og André bróður hans er auðvitað ofsalegt áfall fyrir alla tengda Liverpool og knattspyrnuheiminn í heild. Þessi vika átti að vera spennandi þar sem nýir leikmenn mæta til æfinga í fyrsta skipti ásamt öllum hópnum en byrjaði á jarðarför Diogo Jota í Portúgal. Erfitt í raun að ná utan um þennan harmleik. Hvaða áhrif hefur þetta á Liverpool og hvernig bregst félagið við? Stjórnand...

Gullkastið – Leikmannasölur framundan? 26.06.2025

Kerkez er kominn til Liverpool og því búið að staðfesta alla sem voru líklegastir til að koma núna strax í júní. Þá eru leikmannasölur líklega næstar á dagskrá og líklegt að þar verði ekki minna að gera hjá okkar mönnum. Skoðum líka stöðuna á leikmannamarkaðnum hjá hinum stórliðunum. Minnum svo á að Verdi Travel er komið með ferðir á Anfield í sölu fyrir næsta tímabil Stjórnandi:  Einar Matthías V...

Gullkastið - Wirtz Vikan 19.06.2025

Frá því að FSG keypti Liverpool hefur leikmannaglugginn aldrei farið eins spennandi af stað og núna. Það er búið að staðfesta kaup á Frimpong frá Leverkusen, eins er svo gott sem búið að staðfesta kaupin á besta vini hans og dýrasta leikmanni í sögu Liverpool, Florian Wirtz. Besta leikmanni þýsku deildarinnar undanfarin tvö tímabil. Ungverjinn Milos Kerkez hefur svo hamast við það sjálfur að staðf...

Gullkastið – Leikmannaglugginn að opna 29.05.2025

Tímabilið 2024-25 er búið og bara gat ekki farið mikið betur fyrir Liverpool, létt uppgör á því. Sigurhátíð um helgina og almenn gleði þar til eitt fífl setti stóran svartan skugga á hátíðarhöldin. Leikmannaglugginn opnar eftir helgi og Liverpool virðist heldur betur ætla að vera með og gera stórar breytingar á hópnum fyrir næsta tímabil. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi...

Gullkastið – Schadenfreude 22.05.2025

Þvílíka snilldar tímabilið sem þetta er að verða, Liverpool eru Englandsmeistarar og lyfta bikarnum á loft um helgina á meðan lið eins og Arsenal, Man City og Man Utd fara öll titlalaus í gegnum mótið. Leikmannaglugginn virðist heldur betur ætla að verða fjörugri í sumar en hann var síðasta sumar og mjög spennandi nöfn orðuð við Liverpool, jafnvel strax í næstu viku. Stjórnandi:  Einar Matthías Vi...

Gullkastið – Slúðrið komið á fullt en tímabilið þarf að klára 16.05.2025

Seint mætti Gullkastið þessa vikuna, sem er til marks um ákveðinn slaka í hugum okkar, enda Englandsmeistarar. Við fórum yfir töluvert af safaríku slúðri sem fjallað hefur um okkar menn undanfarið, veltum fyrir okkur fílupúkanum Arteta og hans stöðu hjá Arsenal. Skoðuðum stöðuna í Meistaradeildarbaráttunni, völdum framherja í Ögurverksliðið og skoðuðum síðasta útileik vetrarins í EPL, viljum klára...

Gullkastið – Hvað Næst? 06.05.2025

Arne Slot gaf hópnum aðeins séns um helgina töluverðum timburmannaleik gegn Chelsea og frammistaðan var ekki til að hrópa húrra fyrir. Skipti ekki öllu enda Liverpool nú þegar búið að vinna titilinn og stemningin á pöllunum í takti við það. Trent nýtti tækifærið til að staðfesta loksins brottför sína eftir tímabilið eftir að hafa forðast blaðamenn (og þannig stuðningsmenn Liverpool) mest allt þett...

GULLKASTIÐ – LIVERPOOL ENGLANDSMEISTARAR 27.04.2025

Það er komið (Staðfest) á Englandsmeistaratitilinn og tilfinningin er vægast sagt frábær. Meistarar á Anfield og samt eru fjórar umferðir eftir. Liverpool hafa einfaldlega verið langbestir í vetur sama hvað hávær hópur stuðningsmanna annarra liða hefur grenjað.  Loksins fá leikmenn og stuðningsmenn að fagna almennilega saman og líklega er veislan bara rétt að byrja. Stöðutaflan í deildinni er eins...

Gullkastið – Eitt Stig! 23.04.2025

Liverpool er með 89 stig eftir sigur gegn Leicester um helgina, Arsenal getur max náði 79 stigum á þessu tímabili vinni þeir alla leikina sem þeir eiga eftir og markatalan er 10 mörkum Liverpool í vil með leik til góða. Án þess að segja (Staðfest) er óhætt að fullyrða að staðan hefur sjaldan eða aldrei verið betri. Jafntefli Arsenal gegn Palace gerir það að verkum að Liverpool geta klárað fótbolta...

Gullkastið – Endamarkið Nálgast 16.04.2025

Það er ennþá styttra í fyrirheitna landið eftir leiki vikunnar. Liverpool náði í þrjú stig á Anfield á meðan Arsenal tapaði stigum. Sex stig duga því til að vinna deildina þannig að tölfræðilega gæti einmitt það gerst núna um helgina. Liverpool mætir Leicester en Arsenal fær Ipswich í heimsókn þannig að við höldum ekkert niðri í okkur andanum. Veljum í Ögurverk liðið og skoðum stöðuna í deildinni...

Gullkastið – Salah og Van Dijk að semja? 10.04.2025

Annað tap tímabilsins í deildinni um síðustu helgi og löng vika fram að næsta leik fyrir vikið. Góðar fréttir af Salah og Van Dijk Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

Gullkastið – Liverpool Borg Er Rauð 03.04.2025

Liverpool borg er og hefur alltaf verið rauð, sigur á David Moyes og Everton var aðalatriði í leik sem tók vel á þolrifin og þökk sé því hvernig hann var dæmdur. Tólf stig þarf úr átta síðustu leikjunum til að klára titilinn. Hlóðum í nýtt Ögurverk lið og spáðum í spilin fyrir leikinn gegn Fulham um helgina og leikjaprógrammið í þessum mánuði. Allir leikir Liverpool sem eftir lifa tímabilsins verð...

Gullkastið – Hvað gerir Liverpool á leikmannamarkaðnum? 27.03.2025

Allar helstu fréttir vikunnar benda til að Trent sé við það að skrifa undir hjá Real Madríd og fari þangað á frjálsri sölu. Afskaplega leiðinlegur viðskilnaður hjá uppöldum leikmanni og lykilmanni í algjöru toppliði. Óháð framtíð Trent er ljóst að Liverpool þarf að láta til sín taka á leikmannamarkaðnum í sumar og tókum við púlsinn á því hvaða leikmenn eru líklegir til að fara og hvað er í boði í...

Gullkastið - Allur fókus á deildina 17.03.2025

Arne Slot valdi hreint afleita viku til að tapa tveimur leikjum í röð í fyrsta skipti á ferlinum. Liverpool lauk leik í 16-liða úrslitum þrátt fyrir að hafa toppað deildarfyrirkomulagið í Meistaradeildinn og tapaði svo með afar þreyttum og ósannfærandi hætti gegn Newcastle Wembley, versta frammistaða Liverpool þar síðan 1988. Alls ekki gott og ágætt að fá bæði landsleikjahlé og bikarhelgi í kjölfa...

Gullkastið - PSG og Anfield South 10.03.2025

Bilið breikkaði um tvö stig í viðbót í deildinni og staðan orðin vægast sagt góð. Seinni leikurinn gegn PSG er næst á dagskrá og Wembley um helgina. Liverpool spilar bara stórleiki. Stjórnandi:  Einar Matthías Viðmælendur:  SSteinn og Maggi  

Słuchaj podcastu Gullkastið w Replaio

Radio i podcasty w jednej aplikacji - za darmo, bez zakładania konta. Zainstaluj już dziś i nie przegap premiery

Pobierz z Google Play

Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS