RÚV
Frjálsar hendur
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: www.ruv.is
Gdzie słuchać?
Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótcePodcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów
Odcinki
Thor Vilhjálmsson 2 10.08.2025 49:56
Annar þáttur þar sem lesið er úr verkum Thors Vilhjálmssonar rithöfundar sem hefði orðið 100 ára um þessar mundir. Að þessum sinni er athyglinni beint að blaðaskrifum hans og lesið úr ferðafrásögnum hans frá Ítalíu á 7. áratugnum. Jafnframt kemur fram hve lunkinn og skemmtilegur blaðamaður hann var, ekki síst í fróðlegri samantekt um heimspekinginn Bruno sem hann fléttar inn í ferðasögu sína.
Thor Vilhjálmsson 1 03.08.2025 49:59
Um þessar mundir er ein öld liðin frá fæðingu Thors Vllhjálmssonar rithöfundar. Af því tilefni les umsjónarmaður nokkra valda kafla úr skáldverkum Thors sem lýsa orðsnilld hans og innsæi. Í þessum þætti hafa orðið fyrir valinu tvær stuttar frásagnir úr bókinni Maðurinn er alltaf einn, upphafskaflinn úr hinni áhrifamiklu sögu Fljótt fljótt sagði fuglinn, tvær stuttar frásagnir úr Tvílýsi og tvö bro...

Ódysseifskviða 2 - Telemakkus fer að leita föður síns 27.07.2025 50:01
Í apríl las umsjónarmaður fyrsta þáttinn af Ódysseifskviðu Hómers í tilefni af því að nú er verið að taka upp kvikmynd eftir kviðunni á Íslandi. Hér er komið að öðrum þætti kviðunnar þar sem segir frá því er sonur Ódysseifs, Telemakkus, að heiman frá Íþöku til þess að leita föður síns sem er ekki snúinn heim úr Trójustríðinu. Jafnvel er fjallað um hvað er vitað um höfundinn Hómer.

Stefan Zweig 20.07.2025 50:06
Zweig (1881-1942) var einn frægasti og vinsælasti rithöfundur millistríðsáranna, frægur fyrir ævisögu sína Veröld sem var. Sumarið 1936 fór hann á rithöfundaþing í Argentínu og þar var Halldór Laxness líka einn fundarmanna. Halldór skrifaði í Skáldatíma eftirminnilega lýsingu af kynnum sínum af Zweig og í þessum þætti verður fjallað um baksvið þeirra kynna - ef einhver voru.

Hendrik Ottósson 2 13.07.2025 49:59
Áfram er haldið frá síðasta þætti að lesa úr æviminningum Hendriks Ottóssonar fréttamanns þar sem hann segir frá æskuminningum sínum í Reykjavík í byrjun 20. aldar. Hér segir af litríkum nágrönnum, kátum börnum og alls konar uppátækjum Hendriks sjálfs og félaga hans.
Hendrik Ottósson 1 06.07.2025 49:59
Hendrik Ottósson var blaðamaður og fréttamaður við útvarpið, hann skrifaði frægar barnabækur um líf barna og unglinga í Reykjavík um og laust upp úr aldamótunum 1900 og hann var líka skeleggur pólitískur baráttumaður á vinstri vængnum. Hann skrifaði bráðskemmtilegar æviminningar sem hann nefndi frá Hlíðarhúsum og hér segir af bernskunni í Reykjavík.
Mannlíf í Aðalvík og Goðafossstrandið 29.06.2025 50:46
Gunnar Friðriksson starfaði lengi fyrir Slysavarnarfélag Íslands en hann skrifaði líka æskuminningar sínar frá Aðalvík á Hornströndum í byrjun 20. aldar. Þar segir frá fjölskyldu hans, nágrönnum og lífinu við hið ysta haf, auk þess sem fjallað er um strand Gosafoss í Aðalvík 1916 en það var afar örlagaríkur atburður.
Tómas Sæmundsson: Ferð til Prag 2 22.06.2025 50:14
Tómas Sæmundsson er enn í Prag, líkt og í síðasta þætti, en síðan segir áfram frá ferðalagi hans aftur til Þýskalands og loks til Austurríkis og Rómar. Kólera gengur ljósum logum um Evrópu svo stundum þarf Tómas að sitja dögum saman í sóttkví en alltaf tekst honum að gera skarplegar og skemmtilegar athugasemdir um það sem fyrir augu ber.

Tómas Sæmundsson: Ferð til Prag 1 15.06.2025 50:00
Einn Fjölnismanna var Tómas Sæmundsson sem fór í mikla Evrópureisu eftir að hafa lokið guðfræðinámi í Kaupmannahöfn upp úr 1830. Áður hefur verið lesið úr Ferðabók hans þar sem fjallað var um Napólí og nágrenni en hér er athyglinni beint að ferð hans um Mið-Evrópu frá Þýskalandi til Prag. Bráðskemmtilegar lýsingar á landi og þjóðum!

Steindór Finnsson valdsmaður 08.06.2025 50:09
Á 18. öldinni urðu miklar sviptingar á Íslandi. Hörmungar gengu yfir en samfélagið var að smátt og smátt að opnast. Steindór Finnsson sýsumaður þótti mildur valdsmaður enda var hann bróðir Hannesar biskups, sem var einn helsti upplýsingamaður landsins. En hvernig horfði „mildi“ Steindórs við þeim smælingjum sem hann hafði með að sýsla?

Þegar Göteborg strandaði 01.06.2025 50:00
Frásagnir um strand hollenska Indíafarsins Het Wapen van Amsterdam á Skeiðarársandi þekkja margir en nokkru síðar strandaði annað stórt og merkilegt skip þarna á ekki ósvipuðum slóðum, en það var sænska fleyið sem fórst hér við land 1718 og varð af strandinu og björgun skipverja mikil örlagasaga.

Þorsteinn Kjarval 25.05.2025 49:59
Allir þekkja Jóhannes Kjarval og margir Ingimund fiðlu bróður hans en þriðji bróðirinn Þorsteinn er ekki eins þekktur. En hann skrifaði gagnmerka ævisögu þar sem hann segir frá uppvexti sínum í mikilli fátækt í Meðallandi og síðan vist sinni hjá vandalausum á Austfjörðum.

Forystufé 18.05.2025 50:00
Óvíst er hvort til er í öðrum löndum ámóta fyrirbæri og hið íslenska "forystufé" sem leiðir annað sauðfé af mikilli dirfsku og gáfum. Í þessum þætti er litið í nokkrar frásagnir um þennan einstæða stofn og stuðst við frásagnir Óskars Stefánssonar af forystufé sem hann átti.
Síðasta skip suður 5 11.05.2025 49:59
Vegna fjölda áskorana er hér kominn síðasti þátturinn þar sem lesið úr bók Jökuls Jakobssonar sem hann skrifaði ásamt teiknaranum Baltasar og fjallaði um mannlíf í Breiðafjarðareyjum að fornu og nýju. Merkilegt mannlíf, hlýleg frásögn.
Podobne podcasty
Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS