Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

Hlaðvarp

Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: www.spreaker.com

Autor

Thorarinn Hjartarson

Kategoria

Society

Strona podcastu

www.spreaker.com

Ostatni odcinek

23 paź 2026

Gdzie słuchać?

Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótce

Podcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów

Pobierz z Google Play Zainstaluj za darmo Android prawie 10 mln pobrań · ocena 4,8 iOS niedługo

Odcinki

#219 Slagorð og slaufunarstríð (með Hrafni Haraldssyni Dungal) 12.04.2023

Www.pardus.is/einpaeling Þórarinn ræðir við Hrafn Haraldsson Dungal um slagorða- og slaufunarmenningu.

#218 Fighting censorship (with Toby Young) 07.04.2023

Toby Young er stofnandi Free Speech Union sem að berst fyrir tjáningarfrelsi bæði í Bretlandi og víðar. Hann skrifar fyrir the Spectator og hefur mikla reynslu á sviði fjölmiðlunar. Einnig er hann gagnrýninn á stöðu upplýsingadreifingar og samfélagsmiðla.

#217 NATO: Kjarnorkusprengjur, herbrölt og hernaðarandstæðingar (með Stefáni Pálssyni) 30.03.2023

www.pardus.is/einpaeling Þórarinn ræðir við Stefán Pálsson um NATO, hernaðarandstöðu á Íslandi, Íraksstríðið, fall Sovíetríkjanna og margt fleira.

#216 Hvað er að gerast í hagkerfinu? (Með Má Wolfgang Mixa) 22.03.2023

Már Wolfgang Mixa er fjármálafræðingur og lektor við Háskóla Íslands. Í þessum þætti ræðir Þórarinn við Má um fall bandarískra Banka og Credit Suisse og möguleg áhrif á Ísland, húsnæðismál, stjórnmál, kjarasamninga og Tenerife.

#215 Það er alltaf einhverjum misboðið (með Brynjari Níelssyni) 18.03.2023

www.pardus.is/einpaeling Þórarinn ræðir við Brynjar Níelsson um flóttamannamál, transmál, Covid-19, stéttabaráttu og woke-isma. Hvað finnst Brynjari um Óperumálið. Er hann latasti stjórnmálamaður samtímans? Hvert er viðhorf hans til föstudagsþáttar Gísla Marteins? Hvert er viðhorf hans til málefni transfólks? Öllum þessum spurningum er svarað hér.

#214 Það eru bara lúserar á leigumarkaði (með Ólafi Margeirssyni) 10.03.2023

Þórarinn ræðir við Ólaf Margeirsson, doktor í hagfræði, um húsnæðismálin á Íslandi. Rætt er um verðbólguna, kjarasamningana, félagsleg áhrif húsnæðisskorts, stjórnmálin og fólk á leigumarkaði.

#213 Stjórnmálin eru loksins að byrja aftur (með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni) 08.03.2023

www.pardus.is/einpaeling Þórarinn ræðir við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins, um íslensk stjórnmál, rétttrúnaðinn, bókmenntir og margt fleira.

#212 Frelsi og bönn (með Lenyu Rún Taha Karim) 04.03.2023

www.pardus.is/einpaeling Þórarinn ræðir við Lenyu Rún, varaflokksþingmann Pírata, um stjórnmál á Íslandi, hatursorðræðu, frelsi og fleira.

#211 Skólakerfið er að bregðast börnunum okkar 2 (með Hermundi Sigmundssyni) 01.03.2023

www.pardus.is/einpaeling Þórarinn ræðir öðru sinni við Hermund Sigmundsson um skólakerfið, hugmyndafræði, framtíðarhorfur og fleira.

#210 Skólakerfið er á rangri braut (með Jóni Pétri Zimsen) 25.02.2023

www.pardus.is/einpaeling Þórarinn ræðir við Jón Pétur Zimsen um skóla- og menntakerfið á Íslandi. Jón Pétur hefur náð miklum árangri í þeim skólum sem hann hefur starfað hjá en stjórnvöld og hagsmunaaðilar virðast hafa lítinn áhuga á að kynna sér af hverju sá árangur stafar. Rætt er um einelti, símanotkun, hugmyndafræði, borgarpólitíkina og fleira.

#209 Tveir stuttir strámenn - Kjaramál og hinir ofurríku (með Þórði Snæ Júlíussyni) 21.02.2023

www.pardus.is/einpaeling Þórarinn ræðir við Þórð Snæ Júlíusson um kjaramál, pólitík og stöðu efnahagsmála á Íslandi.

#208 Kynfrelsi, klám og vændi (með Hönnu Björg Vilhjálmsdóttur) 15.02.2023

Þórarinn ræðir við Hönnu Björg Vilhjálmsdóttur um kynfrelsi, klám og vændi. Rætt er um menningarleg áhrif þessara þriggja hluta, fræðsluefni, stjórnmálin og fleira.

#207 Hrunið, verðbólga og kjaramál (með Ásgeiri Brynjari Torfasyni) 12.02.2023

Www.pardus.is/einpaeling Þórarinn ræðir við Ásgeir Brynjar Torfason um efnahagshorfur á Íslandi. Rætt er um Hrunið 2008, áhrif stjórnvalda, verðbólgu, kjaramál og MMT (Modern monetary theory).

#206 Aðför opinberrar stofnunar að tjáningarfrelsi (með Ivu Adrichem) 09.02.2023

www.pardus.is/einpaeling Iva Adrichem var fjarlægð úr myndbandi Ferðamálastofu, ÖBÍ og Sjálfsbjargar um aðgengismál fatlaðs fólks. Ástæðan var sú að hún þótti hafa óæskilegar skoðanir. Iva fer yfir málið í hlaðvarpinu Ein pæling.

#205 Kauphöllin - Óvissutímar og kjaradeilur (með Magnúsi Harðarsyni) 03.02.2023

Þórarinn ræðir við Magnús Harðarson um kauphöllina og fjármál á Íslandi.

#204 Íslenskir þrælar og rúllukragapeysur í Borgartúni (með Gunnari Smára Egilssyni) 29.01.2023

www.pardus.is/einpaeling Gunnar Smári Egilsson mætir enn á ný. Rætt er um kjaradeilur Eflingar og Samtaka atvinnulífsins, veruleika hinna lægstlaunuðu í samanburði við mann í rúllukragapeysu í Borgartúni og fleira. Er Vilhjálmur Birgisson skúrkurinn? Hvernig á að takast á við verðhækkanir húsnæðismarkaði? Virka verkföll? Öllum þessum spurningum er svarað hér.

#203 Rauði þráðurinn (með Ögmundi Jónassyni) 26.01.2023

www.pardus.is/einpaeling Ögmundur Jónasson hefur haft víðtæk áhrif á íslensk stjórnmál og stjórnmálamenningu. Hann er yfirlýstur sósíalisti, fyrrum dómsmálaráðherra, verkalýðsleiðtogi, fréttamaður og fleira. Í þættinum Ein pæling er rætt við Ögmund um málfrelsi, Kúrda, hugmyndafræði, forræðishyggju, hina ósýnilegu hönd markaðarins, nútímastjórnmál á Íslandi og margt fleira.

#202 Framtíð hægrisins (með Ísaki Rúnarssyni) 21.01.2023

Www.pardus.is/einpaeling Þórarinn ræðir við Ísak Rúnarsson um framtíð hægrisins. Rætt er um hugmyndafræði, íslenska hægrið í samanburði við þróun þess erlendis, ungt fólk, rétttrúnað og fleira.

#201 Nýjar átakalínur stjórnmálanna (með Arnari Þór Jónssyni) 17.01.2023

Www.pardus.is/einpaeling Þórarinn ræðir enn á ný við Arnar Þór Jónsson. Að þessu sinni er rætt um hugmyndir Arnars um nýjar átakalínur stjórnmálanna, skólamál, tjáningarfrelsi, lýðskrum og fleira.

#200 Málfrelsi og það sem ekki má ræða (með Þorsteini Siglaugssyni) 14.01.2023

Þórarinn ræðir við Þorstein Sigulaugsson, formann félagsins Málfrelsi - samtök um frjálsa og opna umræðu, lýðræði. Umræðuefnin snúast um mál- og tjáningarfrelsi, rétttrúnað og fleira.

#199 Stjórnmál og íþróttir (með Stefáni Pálssyni) 07.01.2023

www.pardus.is/einpaeling Þórarinn og Stefán Pálsson ræða um stjórnmál og íþróttir.

#198 Fólk sem telur sig vera umburðarlynt verður að geta þolað umræðu (með Diljá Mist) 03.01.2023

www.pardus.is/einpaeling Þórarinn ræðir við Diljá Mist Einarsdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins, um útilokunarmenningu, orkumál, hugmyndafræði og margt fleira

#197 Áramótadeigla 31.12.2022

www.patreon.com/einpaeling Eyþór, Ívar og Þórarinn gera upp árið 2022.

#196 Yfirgengilegri ávöxtunarkröfu leigufélaga er ávallt velt yfir á leigjendur (með Guðmundi Hrafni Arngrímssyni) 24.12.2022

www.patreon.com/einpaeling Alma leigufélag komst nýlega í fréttirnar fyrir yfirgengilegar hækkanir á leiguíbúðum í sinni eigu. Guðmundur Hrafn telur þetta ekki endilega vera frábrugðið því sem tíðkast hefur á leigumarkaði heldur sé vaninn að ávöxtunarkröfur og áhættufjárfestingar eiganda leigufélaga og íbúðarhúsnæða sé nær alltaf velt yfir á þá sem eru á leigumarkaði.

#195 Skólakerfið er að bregðast börnunum okkar (með Hermundi Sigmundssyni) 21.12.2022

www.patreon.com/einpaeling Hermundur Sigmundsson er prófessor í lífeðlis­legri sál­fræði við háskólann í Þrándheimi í Noregi. Hann býr yfir áratuga reynslu í rannsóknum á lestrarhæfni og árangri skólabarna sem hann hefur kynnt víða um heim. Hermundur hefur stórkostlegar áhyggjur af þróun skólamála hér á landi og telur hann að ef að ekki sé tekist á við þennan vanda verði erfitt að vinda ofan af þv...

Słuchaj podcastu Ein Pæling w Replaio

Radio i podcasty w jednej aplikacji - za darmo, bez zakładania konta. Zainstaluj już dziś i nie przegap premiery

Pobierz z Google Play

Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS