433.is

433.is

Sports IS ↓ Odcinki: 271

Hlaðvarpsveita 433.is

Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: www.433.is

Autor

433.is

Kategoria

Sports

Strona podcastu

www.433.is

Ostatni odcinek

23 paź 2026

Gdzie słuchać?

Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótce

Podcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów

Pobierz z Google Play Zainstaluj za darmo Android prawie 10 mln pobrań · ocena 4,8 iOS niedługo

Odcinki

433, 29. júní 2021: Sigurbjörn Hreiðarsson og Benedikt Bóas 30.06.2021

Gestir þáttarins eru Sigurbjörn Hreiðarsson þjálfari Lengjudeildarliðs Grindavíkur og Benedikt Bóas Hinriksson blaðamaður.

90 mínútur með Davíð Þór Viðarssyni 08.11.2019

Davíð Þór Viðarsson er hættur í fótbolta, hann átti frábæran feril. Sjöfaldur Íslandsmeistari og var fyrirliði FH um langt skeið. Hann lék á ferlinum í Noregi, Belgíu, Svíþjóð og Danmörku. Davíð spilaði 45 sinnum fyrir Ísland, hann var barnastjarna sem afrekaði margt en vildi meira.

90 mínútur með Gary Martin 30.09.2019

Gestur þáttarins að þessu sinni er Just a kid from Darlo sem vann gullskóinn. Það hefur fátt annað verið rætt í sumar í Pepsi Max-deildinni en um Gary Martin. Framherjinn sem Valur fékk en sparkaði út eftir nokkra leiki. Hann fór í ÍBV og vann gullskóinn. Gary Martin hefur átt áhugaverðan feril, farið víða og ræðir það allt hér í 90 mínútum.

90 mínútur með Skúla Jóni Friðgeirssyni 27.09.2019

Skúli Jón Friðgeirsson hefur leikið sinn síðasta leik á ferlinum, aðeins 31 árs gamall. Skúli hefur átt geggjaðan feril með KR og lék í 3 ár í Svíþjóð. Hann hefur leikið fyrir öll landslið Íslands og gengur stoltur frá borði. Við gerum upp feril Skúla í þessu áhugaverða spjalli.

90 mínútur með Óskari Erni Haukssyni 20.09.2019

Óskar Örn Hauksson er einn allra besti leikmaður í sögu efstu deildar á Íslandi, hann hefur leikið með KR í 12 ár og varð Íslandsmeistari með liðinu á mánudag. Óskar er besti leikmaður Pepsi Max-deildar karla í ár að mati 433.is en hann hefur skarað fram úr í sterku KR liði. Hann gerir upp þennan árangur í sumar og fer yfir feril sinn í þessu áhugaverða viðtali.

90 mínútur með Alberti Guðmundssyni 06.09.2019

Albert Guðmundsson er aðeins 22 ára gamall en hefur lengi verið í sviðsljósinu, hann hefur spilað fyrir þrjú félög í atvinnumennsku og er hluti af íslenska landsliðinu. Hann hafnaði Arsenal sem ungur drengur og fór á reynslu til Liverpool. Hann leikur með AZ Alkmaar í Hollandi en á sér stóra drauma.

Sóknin: Slök dómgæsla í allt sumar - Kemst ÍBV strax aftur á lappir? 27.08.2019

18. umferð Pepsi Max deildar karla lauk i gær en Stjarnan sótti stig í svakalegum leik á Hlíðarenda. Helgi Mikael dómari er maðurinn sem allir ræða. Breiðblik vann sigur á FH í Kaplakrika og tryggir sér nánast Evrópusæti, Fylkir vann HK og tryggði veru sína í deildinni. ÍBV féll úr Pepsi Max-deildinni eftir tap gegn ÍA, Víkingur vann Grindavík og staðan suður með sjó er ekki góð. Þá gerði topplið...

90 mínútur með Kára Árnasyni 28.06.2019

Kári Árnason hefur átt magnaðan feril í atvinnumennsku, hann er nú mættur heim eftir 15 ára feril erlendis. Kári lék í Svíþjóð, Danmörku, Englandi, Skotlandi, Kýpur og Tyrklandi á ferlinum. Hann hefur upplifað allar hliðar fótboltans, það góða og slæma við hann. Kári hefur einnig reynst einn besti landsliðsmaður Íslands frá upphafi.

Sóknin: Sterkasta lið FH sett upp - Þarf ÍBV að skipta um þjálfara? 24.06.2019

Sóknin gerir upp 10 umferð Pepsi Max-deildar karla. Breiðablik vann góðan sigur á ÍBV en KR vann FH, það er krísa í Kaplakrika. Stjarnan pakkaði Fylki saman og Víkingur vann góðan sigur á KA á Akureyri. Valur vann sigur á Grindavík á heimavelli en viðtalið við Ólaf Jóhannesson er það sem fólk ræðir eftir leik, þá vann HK frábæran sigur á ÍA.

90 mínútur með Kolbeini Sigþórssyni 06.06.2019

Kolbeinn Sigþórsson er einn allra besti knattspyrnumaður sem Ísland hefur átt, þá sérstaklega þegar hann hefur klæðst treyju landsliðsins. Hann hefur upplifað allar hliðar fótboltans, hann var barnastjarna sem varð síðar Hollandsmeistari með Ajax, þrjú ár í röð. Hann gekk í raðir Nantes í Frakklandi, þar sem hann upplifði afar erfiða tíma. Hann ræðir allt af ferli sínum, í þessum nýjasta þæti af 9...

Sóknin - FH-ingur Gumma Kristjáns - Pedro at the wheel 03.06.2019

7. umferð Pepsi Max-deildar karla lauk í gær með fimm leikjum, FH fékk skell þegar liðið heimsótti Breiðablik, sem fór á topp deildarinnar. ÍA sem er ásamt Blikum á toppnum, töpuðu gegn ÍBV á útivelli. Valur heldur áfram að tapa og fékk 0 stig í Garðabæ í gær. Fylkir vann góðan sigur á HK, þar var Helgi Valur Daníelsson stjarnan. KR vann góðan sigur á KA en Víkingur er eina liðið án sigurs, eftir...

Sóknin - Krísa á Hlíðarenda, Garðabæ og Eyjum 27.05.2019

6. umferð Pepsi Max-deildar karla lauk í gær en þar vann Breiðablik 0-1 sigur á Val. Skagamenn eru áfram á toppnum eftir sigur á Stjörnunni en FH og Fylkir gerðu 2-2 jafntefli. Á laugardag vann KA góðan 2-0 sigur á slöku liði ÍBV en Grindavík sótti stig í Kórinn, gegn HK. Þá vann KR sigur á ungu liði Víkings.

90 mínútur með Ögmundi Kristinssyni 24.05.2019

Ögmundur Kristinsson hefur verið einn besti markvörður Íslands síðustu ár, hann hefur á fimm ára atvinnumannaferli leikið í Danmörku, Svíþjóð, Hollandi og nú Grikklandi. Ögmundur átti frábæra tíma í Grikklandi í vetur og er eftirsóttur biti. Hann hefur upplifað erfiða tíma á ferlinum líkt og flestir sem fara í atvinnumennsku, hann ræðir um allt sem hefur gengið á.

Sóknin: Leysir Ólafur Karl krísu Vals? - Stemmningsleysi í Garðabæ 21.05.2019

5 umferð Pepsi Max-deildar karla lauk í gær. Krísa Vals heldur áfram en liðið tapaði gegn frábæru FH liði. Grindavík vann öflugan sigur á Fylki og KR vann nauman sigur á HK. Á sunnudag vann ÍA toppslaginn gegn Breiðabliki, á sama tíma tapaði Stjarnan gegn KA á heimavelli. ÍBV og Víkingur gerðu svo 1-1 jafntefli í Eyjum.

Sóknin - Gary Martin, barnalegir FH-ingar og vesen í Eyjum 17.05.2019

4. umferð Pepsi Max-deildarinnar lauk í gær, Valur vann góðan sigur á Fylki og Grindavík hafði betur gegn KR. HK lagði ÍBV og Stjarnan vann góðan sigur á Víkingi. Blikar gerðu góða ferð á Akureyri og vann KA, þá tapaði FH á barnalegan hátt gegn ÍA. Bjarni Helgason, blaðamaður Morgunblaðsins gerir upp umferðina með okkur.

Sóknin - Gucci trefill og krísa Vals 13.05.2019

3. umferð Pepsi Max-deildar karla kláraðist í gær, uppgjör á henni og öllu því sem skiptir máli. Hrafn Norðdahl kíkti á okkur og fór yfir sviðið.

90 mínútur með Pálma Rafni 10.05.2019

Pálmi Rafn Pálmason hefur átt áhugaverðan feril, strákurinn frá Húsavík upplifði draumalífið í sjö ár. Hann hefur spilað fyrir KA, Val og KR. Hann hefur tvisvar upplifað það að félag hans í atvinnumennsku var á barmi gjaldþrots, hann er einn besti leikmaður í efstu deild á Íslandi frá aldamótum.

Sóknin - Uppgjör á 2. umferð Pepsi Max-deildarinnar 07.05.2019

2. umferð Pepsi Max-deildar karla lauk í gær þegar tíu FH-ingar náðu í stig gegn Víkingi á útivelli. Valur tapaði á útivelli gegn KA en á sama tíma vann KR fínan sigur á ÍBV á heimavelli. Breiðablik og HK gerðu 2-2 jafntefli í Kórnum og Stjarnan náði aðeins í stig gegn Grindavík. Fylkir og ÍA gerðu 2-2 jafntefli í leik sínum í Lautinni. Lið umferðarinnar er hér að neðan. Gestur þáttarins er Bjarni...

90 mínútur með Arnari Þór Vðarssyni 03.05.2019

Arnar Þór Viðarsson átti magnaðan feril sem atvinnumaður, hann var elskaður og dáður hjá þeim félögum sem hann lék fyrir. Arnar hefur búið erlendis í 22 ár en er mættur aftur heim. Hann er nú þjálfari U21 árs landsliðsins og var í vikunni ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá KSÍ.

90 mínútur með Ólafi Kristjánssyni 18.04.2019

Ólafur Kristjánsson er að hefja sitt annað tímabil með FH, þetta viðtal verður aðeins frábrugðið öðrum viðtölum í 90 mínútum. Við ræðum bara um FH og það sem Ólafur hefur verið að gera með liðið síðustu mánuði.

90 mínútur með Margréti Láru 11.04.2019

Margrét Lára Viðarsdóttir hefur átt magnaðan feril, hún er ein allra besta, ef ekki besta knattspyrnukona sem Ísland hefur átt. Margrét var barnastjarna, sem ólst upp í Vestmannaeyjum. Hún var einn besti leikmaður í heimi en meiðsli gerðu henni erfitt fyrir. Tölfræði hennar með kvennalandsliðinu er svo ótrúleg.

Słuchaj podcastu 433.is w Replaio

Radio i podcasty w jednej aplikacji - za darmo, bez zakładania konta. Zainstaluj już dziś i nie przegap premiery

Pobierz z Google Play

Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS