Podcaststöðin
Tölvuleikjaspjallið
Tölvuleikjaspjallið eru vikulegir þættir með almennum umræðum um tölvuleiki og leikjastefnur, umsögnum um leiki auk frétta úr tölvuleikjaheiminum.
Bezoek zeker de website van de podcast en steun de maker: podcasters.spotify.com
Auteur
Podcaststöðin
Categorie
Website van de podcast
Nieuwste aflevering
7 okt. 2026
Waar luisteren?
Podcasts in de app Replaio Radio Binnenkort beschikbaarPodcasts komen binnenkort naar de app. Installeer nu en zie als eerste een compleet nieuwe kijk op podcasts
Afleveringen
122. Úr kokteilum yfir í tölvuleiki - viðtal við RunicDices 24.08.2022 45:46
Hvað gerir Tölvuleikjaspjallið þegar við finnum út að þrír Íslendingar eru að framleiða leik útí Danmörku? Jú, við drögum þá á Discord og fáum þá til að segja okkur frá öllu saman! Þáttur vikunnar er helgaður tölvuleikjaframleiðandanum RunicDices, en við tókum viðtal við Leó, Villa og Axel sem eru búsettir í Danmörku. Fyrsta verkefnið þeirra, leikurinn Nanokings, er enn á framleiðslustigi en um...
121. Ömurlegar Tölvuleikjakvikmyndir IX: Uncharted 17.08.2022 1:15:31
Þessi erfiða, erfiða spurning vaknar enn á ný: Af hverju er svona erfitt að gera góða tölvuleikjakvikmynd? Við höldum áfram að safna upplýsingum með því að horfa á og gagnrýna Uncharted myndina sem kom út í vor. Tom Holland leikur Nate og Marky Mark Wahlberg leikur Sully. Annar stendur sig vel og hinn stendur sig hrikalega. Arnór Steinn og Gunnar ræða alla myndina eftir bestu getu, karaktera, plot...
120. Kisi á þysi - leikurinn Stray 10.08.2022 1:06:04
Hvað er hægt að segja marga kattabrandara þegar fjalla á um kattaleik? Í stuttu máli; marga. Arnór Steinn og Gunnar dýfa loppunum í frábæra leikinn Stray sem kom út fyrir ekki svo löngu. Um er að ræða stutt og hnitmiðað ævintýri þar sem kisikis, undir þinni stjórn, fer í svaðilför frelsis, safnar nótnablöðum og mjálmar stanslaust. Leikurinn er það stuttur að það hefði ekki verið hægt að fjalla um...
119. Electronic Arts hluti II - Skrýmslið nærist 03.08.2022 57:13
Umfjöllun Tölvuleikjaspjallsins um Veldið Illa heldur ótrauð áfram. Í fyrri þætti (nr 106, mælum með) fórum við yfir upphaf fyrirtækisins og hvað var verið að bralla innan veggja fyrirtækisins fyrstu áratugina. Það var slatti. Í þætti vikunnar fjöllum við um ástandið frá sirka 2000 til 2010. Hvað var EA að gera sem þótti svo skítlegt að innan bransans eru þau þekkt sem Evil Empire? Slatta. Við fjö...
118: Horizon: Forbidden West - Þáttur 2 27.07.2022 1:25:36
Það hlaut að koma að því - strákarnir eru báðir búnir með leikinn og ræða hann í þaula í drekkhlöðnum þætti. Það fylgir því miður höskuldarviðvörun með þættinum, við ræðum alla karaktera og söguþráð sem þýðir að ef þú vilt spila leikinn blint þá mælum við frekar með fyrri þættinum okkar um þennan ágæta leik. Og hvílíkur leikur! Hann startaði árinu með stæl, fínasti opinheimsleikur með sjúklega fló...
117: Ísland og Playstation: Af hverju við fáum ekki Premium pakkann 20.07.2022 50:57
Er Playstation Plus Premium komið í þína tölvu? Tókstu eftir því að við erum ekki með það sem heitir Premium? Í þætti vikunnar kafa Arnór Steinn og Gunnar í Playstation fréttir síðustu vikna. Premium er vissulega farið af stað og slatti af löndum (þar á meðal Kýpur) geta streymt leikjum eins og Fallout: New Vegas í gegnum netþjón. Skítaskerið Ísland getur það hins vegar ekki. Ásamt því að greina f...
116. The Show Must Go On - viðtal við Mónu og Völlu úr Queens 13.07.2022 1:46:12
Nýr miðvikudagur þýðir nýtt og geggjað viðtal í boði Tölvuleikjaspjallsins! Í þetta skiptið eru það tveir gestir sem skemmta okkur með sögum sínum, Móna Lind og Valla sem eru streymaratvíeykið Queens! Við heyrum hvaðan þær koma tölvuleikjalega séð, hvernig þær kynntust og svo auðvitað hvernig þeim tekst að streyma sirka vikulega þrátt fyrir að allt fari reglulega til fjandans hjá þeim tæknilega sé...
115. Tveggja Ára Afmælisþáttur! 06.07.2022 2:17:09
Vá. Tvö RISA stór ár komin í bankann. Hefðum ekki getað þetta án ykkar hlustenda og ekki án yndislegu styrktaraðilanna. Takk. Takk takk takk TAKK kærlega fyrir áhugann, skilaboðin, peppið og traustið. Við ætlum heldur betur að verðlauna það með frábæru efni héðan í frá. Þessi afmælissérþáttur fjallar um margt. Í fyrsta lagi segjum við frá óreiðuástandi síðustu mánaða. Stúdíóið sem við nefnum ekki...
114. Star Wars Jedi Knight 3: Jedi Academy 29.06.2022 1:05:02
Sorrí, einn Star Wars þáttur í viðbót og svo smá pása. Já hlustendur kærir, í dag er það költ leikurinn Jedi Academy sem fær útreið frá Tölvuleikjaspjallinu. Þessi er á meðal elstu sem við höfum fjallað um, alla leið frá 2003. Þá var Arnór eitthvað að dandalast í Terra Mitica á Benidorm og Gunnar var að kenna Skaganum hvernig draga skal tölvustól yfir götu. Í þessum þriðja og síðasta leik Jedi Kni...
113. Ghost of Tsushima III: Iki Island DLC 22.06.2022 1:08:10
*VARÚÐ: HÖSKULDARVIÐVÖRUN FYLGIR ÞÆTTINUM* Draugurinn hefur sigrast á mongólunum … en hann á eftir eitt ævintýri í dýragarðinum á Iki Eyju. Það er rétt hlustendur kærir, í þessum þætti ætlum við að taka fyrir aukapakkann Iki Island sem kom út árið 2021. Ghost of Tsushima heldur áfram að fá geggjaðar viðtökur og ef Director’s Cuttið er ekki komið í safnið þitt þá skaltu laga það hið snarasta. Arnór...
112. Leikja Kynningar Sprengja 15.06.2022 1:32:20
Síðasta helgi var smekk full af kynningum frá hinum og þessum tölvuleikjafyrirtækjum! Arnór Steinn og Gunnar segja frá áhugaverðustu punktunum og koma með hugmyndir um hvað er í vændum. Sony var með State of Play, Geoff Keighley var með Summer Games Fest, við fengum indie veislu hjá Future Games Show og Xbox&Bethesda komu með algjöra haglabyssu af efni. Capcom rúnaði þetta af í gær með nettri...
111. Jedi: Survivor, Kenobi þættirnir og meira Star Wars! 08.06.2022 58:24
Hvað segiði, vantaði nýjan Star Wars þátt? Ekkert mál, það er af NÆGU að taka. Nýlega var tilkynnt að framhaldið af Fallen Order væri væntanlegt á næsta ári. Ekki nóg með það, heldur mun hann tengjast nýju Obi Wan þáttunum! Okkur fannst upplagt að ræða þetta allt saman í þætti vikunnar. Við rifjum aðeins upp Fallen Order, hvað við fíluðum við hann og hvernig við sjáum fyrir okkur Survivor. The tri...
110. Mjamix - viðtal við Marín Eydal 01.06.2022 1:25:46
Marín Eydal hefur átt ævintýralegan feril sem streymari. Hún byrjaði að streyma úr einangrun í janúar og er nýbúin að klára seríu af þáttum fyrir GameTíví! Geri aðrir betur! Tölvuleikjaspjallið heldur áfram umfjöllun sinni um íslenska streymara, að þetta sinni er það Marín, eða mjamix eins og hún kallar sig á Twitch, sem kemur í Nóa Síríus stúdíóið og segir okkur frá ferlinum. Við fáum að vita um...
109. Trek to Yomi 25.05.2022 59:40
Hvað gerir þú þegar draugar fortíðar byrja að berja þig í alvörunni? Indie leikurinn Trek to Yomi hefur verið umdeildur frá útgáfudegi. Hann er með einstakt lúkk sem virðist ekki hafa verið gert áður. Hins vegar eru ekki allir á eitt um hvort það sé góður hlutur eður ei. Arnór Steinn og Gunnar eru allavega ósammála um leikinn í þessum þætti - eitthvað sem gerist ALDREI. Við ræðum söguna, bardagake...
108. Uncharted 3: Drake's Deception - með Sigurði Pétri 18.05.2022 1:23:32
Er fjársjóður sama virði og vinátta? Það kom loksins að því! Lokahlekkurinn í upprunalegu trílógíunni um Nathan Drake og félaga er hér til umfjöllunar. Við fáum til okkar góðann gest, Sigurður Pétur er sérfræðingur okkar um Uncharted en hann er einmitt sá sem platínaði alla þrjá leikina á einni viku á Playstation 3. Geri aðrir betur. Við tökum söguna, karakterana, spilun og margt margt fleira í st...
107. It Takes Two 11.05.2022 51:10
Það er fátt, ef eitthvað, sem skiptir meira máli í samböndum en samskipti. Hvernig er best að sýna fram á það? Jú, með tveggja spilara samspilunarleik! Í þætti vikunnar kafa Arnór Steinn og Gunnar í It Takes Two, leik ársins samkvæmt Game Awards í fyrra. Þar stjórna spilarar (já, fleirtala) hjónakornunum May og Cody, en vegna slæmra samskipta eru þau á leiðinni að skilja. Einhverjir galdrar verða...
106. Electronic Arts hluti I - Skrýmsli fæðist 04.05.2022 47:18
Við þekkjum öll þetta fyrirtæki. Það var kosið versta fyrirtæki Bandaríkjanna tvö ár í röð, reyndi að plokka peninga af spilurum oftar en þrisvar og hefur margt, margt, MARGT á ferilskránni sem gerir það umdeilt og hatað í tölvuleikjaheimum. En ... af hverju? Af hverju er Electronic Arts svona hatað? Hvað gerði þetta fyrirtæki til að verðskulda þessi viðbrögð? Arnór Steinn og Gunnar kafa í konsept...
105. Ömurlegar tölvuleikjakvikmyndir VIII: Sonic the Hedgehog 27.04.2022 42:36
Hver bjóst við því að blá ófreskja myndi kenna okkur mikilvæga lexíu um vináttu í formi bíómyndar? Það er nákvæmlega það sem gerist í hinni ágætu Sonic the Hedgehog frá 2020. Í þessum nýjasta þætti geysivinsælu seríunnar Ömurlegar Tölvuleikjakvikmyndir taka Arnór Steinn og Gunnar alls ekki ömurlega mynd fyrir. Þar bregður stórleikarinn Ben Schwartz (betur þekktur sem Jean Ralphio úr Parks & Re...
104. NFT, Örgreiðslur og annað peningaplokk 20.04.2022 54:39
Tölvuleikjaspjallið kafar dýpra í alls konar peningalega hluti í þætti vikunnar. Eftir að hafa rætt áskriftir í þaula fórum við aðeins að pæla meira í NFT. Einhver fyrirtæki á markaðnum eru farin að fikta með þetta torskilda hugtak og við viljum endilega útskýra hvað það þýðir fyrir spilara. Hvað er NFT? Hvernig er verið að blanda þeim í heim tölvuleikja? Við stoppum þó ekki þar. Arnór Steinn og G...
103. Tiny Tina's Wonderlands 13.04.2022 56:34
Ævintýri, sprengingar, bein og meiri sprengingar! Ef Tiny Tina sjálf væri fengin til að lýsa leiknum sínum væri það mögulega einhvern veginn svona. En við ætlum ekki að eyða einni setningu í að lýsa stórverkinu Tiny Tina‘s Wonderlands. Við ætlum frekar að segja ykkur frá leiknum í þætti! Það er heldur betur umfjöllunarefni vikunnar! Arnór Steinn og Gunnar eru búnir að kafa í Undraheiminn og segja...
102. Playstation Plus Premium og aðrar áskriftir 06.04.2022 54:26
Í dag erum við með bestu tölvurnar, bestu tæknina og sjúklega góða leiki. Gallinn við nútímann er sá að við þurfum fyrst að fjárfesta í þessu öllu og SVO bætist við áskriftargjald við þína uppáhalds leikjatölvu. Já, í dag ætlum við að fjalla aðeins um nýjustu fréttir frá Playstation. Sony ætlar loksins að svara frábærri þjónustu Xbox og bjóða upp á þrepaskipt áskriftarmódel þar sem - já maður - þa...
101. Tölvuleikjagerð í Menntaskólanum á Ásbrú - viðtal við Darra Arnarson 30.03.2022 49:15
Þegar gömlu kallarnir í Tölvuleikjaspjallinu voru ungir drengir fyrir sirka 150 árum þá dreymdi þá um að læra eitthvað tengt tölvuleikjum í menntaskóla. Nú í dag, kæru hlustendur, er það hægt. Já heldur betur, Menntaskólinn á Ásbrú er í ár að fara að útskrifa sinn fyrsta hóp sem lærði tölvuleikjagerð innan þeirra veggja - þriggja ára stúdentsprófsnám þar sem þú lærir tölvuleikjagerð! Til að læra m...
100. Strákarnir búa til tölvuleik 23.03.2022 1:14:34
TIL HAMINGJU MEÐ HUNDRAÐASTA ÞÁTTINN ELSKU HLUSTENDUR! Við erum svo endalaust, ENDALAUST þakklátir fyrir þennan frábæra áfanga. Í byrjun var þetta eitt af okkar villtustu takmörkum, að ná að framleiða hundrað stykki en það tókst! Á tuttugu mánuðum tókst okkur að gera fjölbreytta þætti um allt sem tengist tölvuleikjamenningu. Það er ekki amalegt ... Hér bjóða strákarnir upp á viðhafnar útgáfu af um...
99. Splitgate 16.03.2022 46:00
Það styttist óðfluga í HUNDRAÐASTA þáttinn okkar og því hendum við í einn léttan þátt um áhugaverðan leik! Umfjöllunarefni vikunnar er einhvers konar bræðingur af Halo, Portal og öðrum FPS leikjum. Útkoman er Splitgate, leikur sem kemur á óvart þrátt fyrir að vera nokkur einsleitur við fyrstu sýn. Spilarar koma saman í alls kyns leikjategundum en algengasta markmiðið er að slátra hinu liðinu...
98. Elden Ring 09.03.2022 58:43
Eftir langa, LANGA bið, er þessi risastóri leikur loksins kominn út. Mörg ykkar hafa beðið í ofvæni eftir honum, mörg ykkar hafa lítið pælt í útgáfunni. Hvað sem því skiptir, þá er umfjöllunarefni vikunnar ELDEN RING. Nýjasta útspil From Software er unnið í samstarfi við hinn margrómaða George R.R. Martin. Leikurinn er margslunginn og flókinn og fokk erfiður, honum er held ég ekki betur lýst í ein...
Vergelijkbare podcasts
Replaio is geen uitgever van podcasts; namen van shows, covers en audio zijn eigendom van hun makers en worden verspreid via openbare RSS-feeds