Myntkaup

Hlaðvarp Myntkaupa

Hlaðvarp Myntkaupa er nýtt hlaðvarp sem fjallar um allt tengt bitcoin og hvað er að gerast í hinum síbreytilega heimi rafmynta. Við fáum til okkar góða gesti og fjöllum um málefni sem tengjast rafmyntum. Myntkaup er vinsælasti staðurinn fyrir Íslendinga til að stunda viðskipti með Bitcoin og aðrar rafmyntir. Rúmlega 4% Íslendinga nota Myntkaup til þess að kaupa og selja bitcoin. Þú finnur okkur á myntkaup.is eða með því að sækja Myntkaup appið í App Store eða Google Play store.

Auteur

Myntkaup

Categorie

Business

Website van de podcast

myntkaup.is

Nieuwste aflevering

4 jul. 2026

Waar luisteren?

Podcasts in de app Replaio Radio Binnenkort beschikbaar

Podcasts komen binnenkort naar de app. Installeer nu en zie als eerste een compleet nieuwe kijk op podcasts

Download het op Google Play Gratis installeren Android bijna 10 mln downloads · beoordeling 4,8 iOS binnenkort

Afleveringen

Fréttahornið: Bitcoin nær hæstu hæðum ársins - Er nýr bolamarkaður að hefjast? 30.10.2023

Í þessum þætti er fjallað um þær miklu verðhækkanir sem hafa átt sér stað undanfarna daga á gengi Bitcoin, en nýverið náði það hæstu hæðum ársins. Fjallað er um þær ástæður sem kunna að skýra þessar verðhækkanir. Eins er fjallað um næstu helmingun Bitcoin og þá þýðingu sem helmingunin hefur haft fyrir verðþróun myntarinnar í sögulegu samhengi.

Fréttahornið: Skuldavandi Bandaríkjanna & falsfrétt Cointelegraph 19.10.2023

Í þessum þætti er fjallað um skuldavanda Bandaríkjanna og hvernig Bitcoin getur verið lausnin við núverandi peningakerfi, en rætt var talsvert um þessi málefni á nýafstaðinni ráðstefnu um Bitcoin. Einnig er fjallað um áhugaverða falsfrétt frá Cointelegraph sem keyrði Bitcoin tímabundið í $30.000!

Hvað er framundan í lagasetningu gagnvart rafmyntum? Hvaða lög og reglur gilda nú þegar? Með Þorvarði Arnari Ágústssyni 04.10.2023

Í þessum þætti fær Kjartan til sín einn mesta sérfræðing úr hópi íslenskra lögfræðinga til þess að ræða rafmyntir í lögfræðilegu samhengi. Farið er um víðan völl, en meðal annars er sjónum beint að MICA, grundvallarlöggjöf ESB um rafmyntir og aðrar sýndareignir. Einnig er vikið að SEC og þeirri vegferð sem stofnunin virðist vera á í Bandaríkjunum. Loks er farið yfir helstu grundvallarreglur sem sn...

Fréttahornið: Grayscale leggur bandaríska verðbréfaeftirlitið í dómsmáli. Bitcoin kauphallarsjóður væntanlegur? 31.08.2023

Á þriðjudaginn komst áfrýjunardómstóll í Washington að þeirri niðurstöðu að höfnun SEC á umsókn Grayscale hefði verið ólögmæt. Greinendur markaðarins reikna fastlega með því að niðurstaðan muni hafa þau áhrif í för með sér að senn verði fjölmargar umsóknir um Bitcoin kauphallarsjóði samþykktar. Í sögulegu samhengi hefur tilkoma slíkra sjóða haft mjög jákvæð áhrif á verðhegðun undirliggjandi eignar...

Fréttahornið: Grundvallardómur kveðinn upp í New York. XRP ekki verðbréf. Hvað um aðrar rafmyntir? 01.08.2023

Hinn 15. júlí síðastliðinn féll tímamótadómur í máli SEC gegn Ripple. Dómarinn komst að þeirri niðurstöðu að ekki bæri að líta á XRP sem verðbréf. Rafmyntamarkaðir hækkuðu verulega við tíðindin enda vonir bundnar við það að niðurstaðan verði heimfærð yfir á aðrar rafmyntir. Einnig er stuttlega vikið að efnahagsmálum almennt, verðbólgu og stýrivöxtum í Bandaríkjunum og fleira.

Fréttahornið: Blackrock sækir um Bitcoin kauphallarsjóð - Eru miklar verðhækkanir í vændum? 23.06.2023

Blackrock, stærsti eignastýringaraðili í heimi, hefur sótt um að stofna Bitcoin kauphallarsjóð. Tveir aðrir eignastýringaraðilar hafa nú gert slíkt hið sama. Hvað nákvæmlega er kauphallarsjóður og hvaða áhrif hafa slíkir sjóðir á verðhegðun í sögulegu samhengi? Um þetta og fleira er fjallað í fréttahorni dagsins.

Fréttahornið: SEC höfðar mál gegn Binance og Coinbase - Hvað felst í lögsóknunum 09.06.2023

Í fréttahorni dagsins er fjallað um lögsóknir bandaríska verðbréfaeftirlitsins (SEC) á hendur rafmyntakauphöllunum Binance og Coinbase. Farið er yfir málsgrundvöllinn, lykilhugtök skilgreind og fjallað er um líklegar afleiðingar lögsóknanna á rafmyntamarkaðinn

Fréttahornið: Bitcoin stendur traustari fótum en nokkru sinni fyrr - Greiðslufærni Bandaríkjanna í óvissu? 26.05.2023

Í þessu fréttahorni er fjallað um hvernig fjársterkir aðilar eru að kaupa upp og safna Bitcoin til lengri tíma. Einnig er fjallað um líklegar afleiðingar fyrirhugaðrar hækkunar á skuldaþaki bandaríska ríkisins.

Fréttahornið: Grundvallaratriði Bitcoin bálkakeðjunnar 11.05.2023

Í þessu fréttahorni fjallar Kjartan um óvenjulegt álag á Bitcoin bálkakeðjunni undanfarið sem hefur leitt til aukins kostnaðar færslugjalda á keðjunni. Einnig er fjallað um grundvallaratriði Bitcoin bálkakeðjunnar í stuttu og kjarnyrtu máli.

Fréttahornið: Enn annar bankinn fallinn í Bandaríkjunum. Hvar endar þetta og hvernig bregst Bitcoin við? 04.05.2023

Nú á dögunum féll hinn stóri First Republic Bank í Bandaríkjunum, en þrátt fyrir það heldur gengi Bitcoin áfram á góðri siglingu. Stýrivextir í Bandaríkjunum hækkuðu um 25 punkta í gær, 3. maí 2023. Er greiðsluþrot bandaríska ríkisins yfirvofandi? Er meiri áhætta að eiga ekkert Bitcoin heldur en að eiga a.m.k. smá Bitcoin? Um þetta og fleira er fjallað um í þessu fréttahorni.

Fréttahornið: Shanghai uppfærslan væntanleg á Ethereum bálkakeðjunni, hvað felur hún í sér og hvaða áhrif mun hún hafa? 05.04.2023

Í þessu fréttahorni er sjónum beint að svonefndri Shanghai uppfærslu hjá Ethereum sem beðið hefur verið eftir með talsverðri eftirvæntingu, en þá loksins verður hægt að taka út og ráðstafa læstu ETH á bálkakeðjunni. Einnig er fjallað um hugtökin proof of work og proof of stake. Við hjá Myntkaupum erum mjög jákvæðir gagnvart Shanghai uppfærslunni og könnum nú bestu leiðir til þess að viðskiptavinir...

Fréttahornið: Bitcoin rýkur upp meðan bankar heimsins titra og skjálfa. Hvernig bregst Seðlabanki Bandaríkjanna við? 20.03.2023

Í þessu fréttahorni er fjallað um áframhaldandi vandræði í bankakerfi heimsins, samhliða allverulegri hækkun á gengi Bitcoin. Er Bitcoin eina leiðin til þess að verja sig gagnvart kerfislægum vanda fjármálakerfisins? Öll augu beinast nú að viðbrögðum Seðlabanka Bandaríkjanna. Um þetta og fleira er fjallað í þessu fréttahorni Myntkaupa.

Fréttahornið: Fall Silicon Valley Bank. Hvernig bregst rafmyntamarkaðurinn við? 13.03.2023

Óhætt er að segja að atburðarás síðustu daga hafi valdið titringi á fjármálamörkuðum, en þrír bankar, Silvergate Capital, Silicon Valley Bank og New York Signature Bank, hafa allir fallið vestanhafs. Yfirvöld þar í landi hafa stigið inn í og tryggt allar innstæður bankanna að fullu. Þessir bankar hafa verið áberandi fyrir að þjónusta fyrirtæki í rafmyntageiranum, meðal annars Circle sem heldur uta...

Tæknigreining, staða á mörkuðum og hverjar eru framtíðarhorfurnar? Með Elmari Johnson | Fyrsti þáttur 28.02.2023

Í þessum fyrsta þætti af Hlaðvarpi Myntkaupa fengum við góðan gest í heimsókn. Þúsundþjalasmiðurinn Elmar Johnson hefur farið um víðan völl, hann er læknir að mennt og hefur starfað sem slíkur en hann var einnig einn af stofnendum ferðaþjónustufyrirtækisins Guide to Iceland. Síðustu ár hafa fjárfestingar í rafmyntum og öðrum eignarflokkum átt hug hans allan en í þessum þætti ræðir Elmar við Kjarta...

Luister naar de podcast Hlaðvarp Myntkaupa in Replaio

Radio en podcasts in één app - gratis en zonder account. Installeer vandaag nog en mis de lancering niet

Download het op Google Play

Replaio is geen uitgever van podcasts; namen van shows, covers en audio zijn eigendom van hun makers en worden verspreid via openbare RSS-feeds