Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi

Hljóðbrot - Hljóðtímarit Blindrafélagsins

Í þættinum er að finna ýmist efni, bæði fræðandi og skemmtilegt. Við tökum viðtöl við blint og sjónskert fólk og aðra sem standa okkur nærri, fjöllum um tækninýjungar og samfélagsþróun sem varðar blinda og sjónskerta og margt fleira. Þátturinn kemur að jafnaði út mánaðarlega og hann má nálgast á öllum helstu stöðum þar sem hlaðvörp er að finna og er hann einnig aðgengilegur í vefvarpi Blindrafélagsins og á heimasíðu þess, blind.is.

Bezoek zeker de website van de podcast en steun de maker: www.blind.is

Auteur

Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi

Categorie

Business

Website van de podcast

www.blind.is

Nieuwste aflevering

2 okt. 2026

Waar luisteren?

Podcasts in de app Replaio Radio Binnenkort beschikbaar

Podcasts komen binnenkort naar de app. Installeer nu en zie als eerste een compleet nieuwe kijk op podcasts

Download het op Google Play Gratis installeren Android bijna 10 mln downloads · beoordeling 4,8 iOS binnenkort

Afleveringen

Þáttur 90 02.10.2026

Í þessum þætti ræðir Ágústa Gunnarsdóttir við þau Gísla Helgason, blokkflautuskáld og Ásdísi Þórðardóttur, starfsmann Sjónstöðvarinnar um punktaletur á Íslandi fyrr og nú, um þróun tækninnar og annarra aðferða við punktaletursframleiðslu og mikilvægi punktaleturs fyrir þá sem eiga það sem sitt les- og skrifmál.

Þáttur 89 25.09.2026

Í þessum þætti tökum við viðtal við Leslie Dickson sem kennir handverk og trésmíðar við endurhæfingarmiðstöð fyrir fyrrverandi hermenn í Bandaríkjunum.

Þáttur 88 11.09.2026

Í þessum þætti sláumst við í för með leiðsöguhundadeild Blindrafélagsins í hina árlegu leiðsöguhundaferð í Stykkishólm. Við fylgjumst með alls konar æfingum, tökum viðtöl við þátttakendur og kynnumst staðháttum í hólminum fagra.

Þáttur 87 28.08.2026

Í þessum þætti förum við í heimsókn á spilakvöld hjá Blindrafélaginu, sem njóta aukinna vinsælda meðal félagsmanna. Einnig heyrum við stutt hljóðbrot úr 87 ára afmæli Blindrafélagsins, sem haldið var í Hamrahlíð 17 miðvikudaginn 19. ágúst.

Þáttur 86 14.08.2026

Í þessum þætti ræðum við aðgengislausnir, þar á meðal Glide, sem fjallað var um í síðasta þætti.

Þáttur 85 31.07.2026

Í þættinum er fjallað um þróun á nýju hjálpartæki sem nefnist Glide. Már Gunnarsson ræðir við Amos Miller, stofnanda og forstjóra bandaríska fyrirtækisins Glidance, um þetta metnaðarfulla verkefni.

Þáttur 84 10.07.2026

Við höldum áfram umfjölluninni þar sem frá var horfið í síðasta þætti. Að þessu sinni ræðir Már Gunnarsson við Ragnar Þór Ingólfsson um stjórnmál á Íslandi, nýja reglugerð er varðar ferðalög blindra einstaklinga erlendis í fylgd leiðsöguhunda og stefnumál Flokks fólksins.

Þáttur 83 26.06.2026

Í þessum þætti fjöllum við um nýja reglugerð er varðar ferðalög blindra einstaklinga erlendis í fylgd leiðsöguhunda. Már Gunnarsson ræðir við Elfu Svanhildi Hermannsdóttur forstjóra Sjónstöðvarinnar um breytingarnar. Þessi þáttur er í tveimur hlutum og verður umfjölluninni haldið áfram í næstu útgáfu með viðtali við ráðherra.

Þáttur 82 12.06.2026

Í þessum þætti ræðir Hlynur Þór við Guðvarð Birgisson, félagsmann í Blindrafélaginu.

Þáttur 81 29.05.2026

Í þessum þætti ræðum við um hljóðhönnun, kvikmyndatónlist og áhrif hennar. Einnig fáum við að heyra syrpu með lögum Björgvins Halldórssonar sem Hlynur Þór setti saman og sendi frá sér nýlega.

Þáttur 80 08.05.2026

Í þessum þætti ræðir Eyþór Kamban Þrastarson við Scott Chesworth, hljóðvinnslu- og tónlistarmann frá London. Umræðuefnið er stafrænt aðgengi, en Scott er brautryðjandi í þeim málaflokki og tók m.a. stóran þátt í því að gera Reaper upptöku- og hljóðvinnsluforritið aðgengilegt fyrir blinda og sjónskerta.

Þáttur 79 28.04.2026

Í þessum þætti ræðum við um nýja leigubíla-appið frá Hreyfli og heyrum kynningar frambjóðenda til stjórnar Blindrafélagsins, en kosið verður til stjórnar á aðalfundi þann 9. maí næstkomandi.

Þáttur 78 10.04.2026

Í þessum þætti fáum við doktor Rósu Maríu Hjörvar. Hún útskrifaðist nýlega með doktorsgráðu í bókmenntafræði og er fyrsti blindi- eða sjónskerti einstaklingurinn til að öðlast nafnbótina doktor. Við ræðum við hana um námið og ferðalagið sem það var. Rósa er einnig varaformaður Blindrafélagsins og stafrænn aðgengisfulltrúi hjá ÖBÍ réttindasamtökum og við ræðum nýja aðgengistilskipun EES sem tók nýl...

Þáttur 77 27.03.2026

Í þessum þætti förum við á Insight 2026-ráðstefnuna í Lúxemborg, spjöllum stuttlega við skipuleggjendur og heyrum fyrirlestur hjá dr. Katie Williams um rannsókn hennar á heilatengdri sjónskerðingu (CVI).

Þáttur 76 13.03.2026

Í þessum þætti fjöllum við um Relumino frá Samsung, nýja græju sem Eyþór varð sér út um og nýja og spennandi alþjóðlega tónlistarkeppni fyrir blinda og sjónskerta.

Þáttur 75 27.02.2026

Í þessum þætti ræðir Eyþór við Stefán Gunnlaug Jónsson, gagnavísindamann og gervigreindarsérfræðing, um gervigreind í nútíma samfélagi.

Þáttur 74 13.02.2026

Í þessum þætti heimsækjum við Akureyri þar sem við hittum fyrir Bjarma Friðgeirsson. Bjarmi er félagsmaður í Blindrafélaginu, spilar tónlist og er núverandi yngsti leiðsöguhundanotandi á Íslandi.

Þáttur 73 30.01.2026

Í þessum þætti fjöllum við um atvinnumál blindra og sjónskertra á Íslandi og hinum Norðurlöndunum. Gestir þáttarins eru þau Marjakaisa Matthíasson og Þorkell Jóhann Steindal, en þau fóru ásamt hópi fólks frá Blindrafélaginu og Sjónstöðinni á norræna ráðstefnu um málefnið í Hurdal í Noregi í byrjun janúar.

Þáttur 72 16.01.2026

Í þessum þætti ræða Eyþór og Már um punktaletur og hlutverk þess á okkar tímum.

Þáttur 71 23.12.2025

Í þessum jólaþætti Hljóðbrots heyrum við jólakveðju formanns Blindrafélagsins, Sigþórs U. Hallfreðssonar, lítum yfir farinn veg í því helsta sem við tókum fyrir á árinu og heyrum nokkur vel valin jólalög, leikin á píanó af Theodór Helga Kristinssyni, félaga í Blindrafélaginu. Gleðileg jól öll sömul!

Þáttur 70 12.12.2025

Í þessum þætti heyrum við viðtal sem Hlynur Þór tók við Ólaf Þór Jónsson, félagsmann í Blindrafélaginu til margra ára.

Þáttur 69 28.11.2025

Í þessum þætti ræðum við um Hljóðbókasafn Íslands, förum yfir sögu þess og stofnun, hlutverk og fyrirkomulag, núverandi stöðu og yfirvofandi innleiðingu safnsins inn í Landsbókasafn Íslands ásamt Kvikmyndasafni Íslands. Viðmælendur í þættinum eru Gísli Helgason, félagsmaður í Blindrafélaginu, tónlistamaður og hljóðbókaútgefandi, Marín Guðrún Hrafnsdóttir, forstöðumaður Hljóðbókasafns Íslands og Sn...

Þáttur 68 14.11.2025

Í þessum þætti tökum við Ívu Adrichem, félaga í Blindrafélaginu, í spjall og kynnumst henni nánar.

Þáttur 67 24.10.2025

Í þessum þætti ræðir Már Gunnarsson við Sam Seavey, sem er best þekktur fyrir YouTuber rás sína, The Blind Life. Sam var nýlega á Íslandi, heimsótti meðal annars Blindrafélagið og hélt fróðlegan fyrirlestur fyrir félagsfólk og aðra áhugasama. Við kynnumst Sam nánar og ræðum meðal annars æsku hans og fáum góða innsýn inn í hans líf.

Þáttur 66 10.10.2025

Í þessum þætti ræðum við um punktaletur á iPhone og tökum spjall við tvo hressa félagsmenn, þau Kjartan og Vöku.

Luister naar de podcast Hljóðbrot - Hljóðtímarit Blindrafélagsins in Replaio

Radio en podcasts in één app - gratis en zonder account. Installeer vandaag nog en mis de lancering niet

Download het op Google Play

Replaio is geen uitgever van podcasts; namen van shows, covers en audio zijn eigendom van hun makers en worden verspreid via openbare RSS-feeds