Myntkaup

Hlaðvarp Myntkaupa

Hlaðvarp Myntkaupa er nýtt hlaðvarp sem fjallar um allt tengt bitcoin og hvað er að gerast í hinum síbreytilega heimi rafmynta. Við fáum til okkar góða gesti og fjöllum um málefni sem tengjast rafmyntum. Myntkaup er vinsælasti staðurinn fyrir Íslendinga til að stunda viðskipti með Bitcoin og aðrar rafmyntir. Rúmlega 4% Íslendinga nota Myntkaup til þess að kaupa og selja bitcoin. Þú finnur okkur á myntkaup.is eða með því að sækja Myntkaup appið í App Store eða Google Play store.

Bezoek zeker de website van de podcast en steun de maker: myntkaup.is

Auteur

Myntkaup

Categorie

Business

Website van de podcast

myntkaup.is

Nieuwste aflevering

3 okt. 2026

Waar luisteren?

Podcasts in de app Replaio Radio Binnenkort beschikbaar

Podcasts komen binnenkort naar de app. Installeer nu en zie als eerste een compleet nieuwe kijk op podcasts

Download het op Google Play Gratis installeren Android bijna 10 mln downloads · beoordeling 4,8 iOS binnenkort

Afleveringen

Bergþór Másson - Bitcoin: Sannleikur, sameiningarkraftur og sanngirni 04.10.2025

Í þessum þætti tók athafnamaðurinn, Bergþór Másson, hús á okkur og við áttum gott samtal. Bergþór hefur vakið mikla athygli í fjölmiðlum undanfarið fyrir hugrakka ákvörðun um að selja fasteign sína og kaupa Bitcoin í staðinn, en hann fjallaði meðal annars um þá ákvörðun í þættinum Ísland í dag. Í þættinum rekur Bergþór bakgrunn sinn og sögu og fer yfir hvað varð til þess að hann komst að þeirri ni...

Víkingur Hauksson snýr aftur - Hvenær nær Bitcoin 1.000.000$? 27.09.2025

Í þessum þætti kíkti stórvinur okkar og Bitcoin sérfræðingurinn Víkingur Hauksson í stúdíóið og fjallaði listilega um viðfangsefni sem hefur verið honum mjög hugleikið undanfarin 3 ár: Vöxtur Bitcoin samkvæmt veldislögmáli. Sjón er sögu ríkari og mælum við eindregið með áhorfi, ekki eingöngu hlustun. Víkingur sýnir gröf sem benda til þess að Bitcoin vaxi samkvæmt veldislögmáli, ekki aðeins með til...

Stýrivaxtalækkun í USA - Solana fer yfir 250$ - Hverju má búast við á fjórða ársfjórðungi? 20.09.2025

Í þessum þætti er fjallað um lækkun stýrivaxta í Bandaríkjunum, en markaðir hafa brugðist vel. S&P500 vísitalan er í hæstu hæðum, og helstu rafmyntir nálgast sömuleiðis hæstu hæðir. Solana heldur áfram að gera gott mót og má rekja það talsvert til skráðra fyrirtækja á markaði sem eru að kaupa SOL, svokallaðra SOL Treasury Companies. Þá er að sjálfsögðu fjallað um helstu fréttir og farið yfir s...

Solana leiðir hækkanir í september - Vaxtalækkun framundan 13.09.2025

Septembermánuður hefur tvímælalaust farið betur af stað en margir þorðu að vona. Aðrar rafmyntir en Bitcoin hafa staðið sig vel og ber þar helst að nefna Solana, þótt segja megi að flestar af helstu myntunum hafi hækkað talsvert frá byrjun mánaðar. Í þessum þætti er sjónum einkum beint að jákvæðri atburðarás fyrir Solana og Björn fjallar um af hverju hann reiknar með auknu fjármagnsflæði inn í Sol...

Ágústmánuður gerður upp á rafmyntamörkuðum - Hvað er World Liberty Financial? 06.09.2025

Í þessum þætti er ágústmánuður gerður upp og gerð grein fyrir forsendum septembermánaðar eins og þær blasa við Birni og Kjartani, en í sögulega samhengi hafa þessir tveir mánuðir verið þeir slökustu á rafmyntamörkuðum. Einnig er fjallað ítarlega um nýjasta framtak Trump fjölskyldunnar í heimi rafmynta; World Liberty Financial (WLFI) og Björn gefur óhlutdrægt álit á því verkefni og hvort WLFI tóken...

ETH nær hæstu hæðum frá upphafi, rétt tæplega 5.000$ - Er Solana næst? 30.08.2025

Eftir erindi Jerome Powell í Jackson Hole 22. ágúst síðastliðinn eru greiningaraðilar sannfærðir um að vænta megi 25 punkta vaxtalækkun um miðjan september. Markaðurinn brást við með miklum hækkunum og náði Ethereum hæstu hæðum, eða rétt tæplega 5000$ og Solana hefur haldið sér yfir 200$. Bitcoin hefur hins vegar sigið niður frá því að það náði hæstu hæðum í um 124.000$ og vilja margir meina að þa...

Guðlaugur Steinarr Gíslason - Hver er staða og hlutverk rafmynta í fjármálum heimsins í dag? 23.08.2025

Guðlaugur Steinarr Gíslason, fjármálahagfræðingur og fjárfestingastjóri hjá Visku Digital Assets, fjallar um þróun Bitcoin og bálkakeðjutækninnar síðustu ár og hvernig staða og hlutverk rafmynta er óðum að vaxa og styrkjast í fjármálalífi heimsins í dag. Guðlaugur fjallar um hvernig Bitcoin hefur þroskast og færir rök fyrir því af hverju hann telur ólíklegt að við sjáum bjarnarmarkaði endurtaka si...

Ævintýralegar hækkanir ETH halda áfram - Ríkir meiri spenna á Wall Street gagnvart ETH en BTC? 16.08.2025

Verðbólgutölur í Bandaríkjunum (CPI) komu betur út en spár gerðu ráð fyrir og brugðust markaðir vel við og greiningaaðilar reikna nú með stýrivaxtalækkun í september. Rafmyntir hafa staðið sig vel það sem af er ágúst, en óhætt er að segja að engin eign hefur haft tærnar þar sem ETH hefur hælana síðustu vikur og nálgast myntin nú óðfluga hæstu hæðir frá nóvember 2021. Í þessum þætti ræða þeir félag...

Trump veitir 401k lífeyrissjóðum heimild til að fjárfesta í rafmyntum 10.08.2025

Í vikunni gaf Donald Trump út forsetatilskipun sem veitir 401k lífeyrissjóðum í Bandaríkjunum heimild til þess að fjárfesta í rafmyntum. Fjárfestar eru mjög bjartsýnir yfir fregnunum, enda sitja sjóðirnir á gríðarlegum fjármunum. Ethereum heldur ótrautt áfram með miklum látum og er gengi ETH myntarinnar yfir 4.000$ í þessum skrifuðu orðum. SEC hefur nú formlega lokið öllum málaferlum gagnvart Ripp...

SEC tilkynnir "Project Crypto" - Hvað felst í því og hvað þýðir það fyrir altcoins? 02.08.2025

Markaðir hafa brugðist illa við blaðamannafundi Jerome Powell, seðlabankastjóra Bandaríkjanna, sem haldinn var á miðvikudaginn eftir að hann hafði tilkynnt að stýrivextir yrðu óbreyttir í 4,25-4,5%. Powell treysti sér ekki til að vera bjartsýnn um vaxtalækkun í september og um leið tóku markaðir að lækka. Þrátt fyrir það eru þeir félagar, Björn og Kjartan, sammála um að mikið tilefni sé til bjarts...

Bitcoin hægir á sér og fjárfestar spyrja: Er Ethereum besta fjárfestingin á markaðnum í dag? 26.07.2025

Rafmyntamarkaðir hafa haldið vel í hækkanir undanfarinna vikna, en Bitcoin virðist ætla að þurfa nokkrar tilraunir til að keyra yfir 120k. Ethereum hefur hins vegar hækkað um meira en 50% síðustu 30 daga og gífurlegt fjárstreymi hefur verið í ETH kauphallarsjóðina á Wall Street. Þetta og fjölmargt annað var rætt í þessum þætti, meðal annars að Trump Media félagið keypti BTC fyrir 2 milljarða Banda...

Rafmyntamarkaðir áfram á fleygiferð - Þrjú crypto frumvörp samþykkt í Washington - Hvar stoppar XRP? 20.07.2025

Í þessum þætti er fjallað ítarlega um atburðarás liðinnar viku í Washington þar sem þrjú lagafrumvörp voru samþykkt með afgerandi og þverpólitískum meirihluta. Litlu munaði að ekkert yrði úr crypto vikunni en forseti Bandaríkjanna beitti sér fyrir, og náði því í gegn, að crypto vikan næði fram að ganga. Ýmis teikn eru á lofti um að aðrar rafmyntir láti nú loks ljós sitt skína eftir marga mánuði í...

Bitcoin nær hæstu hæðum á ný - nálgast 120k 12.07.2025

Í þessum þætti er fjallað um miklar hækkanir undanfarna daga á rafmyntum, en Bitcoin fór í um 118.800$ á föstudaginn, ETH fór yfir 3000$ og XRP fór nálægt 3$. Athygli vekur að ekki er hægt að benda á neinar sérstakar fréttir sem valda þessum hækkunum. Þeir félagar Björn og Kjartan fara þó yfir nokkur áhugaverð atriði sem styðja bjartsýn viðhorf gagnvart komandi vikum og mánuðum.

Hefur Blackrock meiri tekjur af Bitcoin heldur en bandarískum hlutabréfum? 06.07.2025

Í þessum þætti ræða þeir félagar Björn og Kjartan um fjölda stórra frétti úr heimi rafmynta í Bandaríkjunum. Má þar nefna að nú hefur verið starfræktur Solana kauphallarsjóður í Chicago. Einnig er rætt um þá áhugaverðu staðreynd, að miðað við núverandi gengi Bitcoin og SP500 hlutabréfavísitölunnar er útlit fyrir að Blackrock hafi meiri tekjur af Bitcoin kauphallarsjóð sínum (IBIT) heldur en S&...

Vopnahlé í Miðausturlöndum - S&P500 nær hæstu hæðum - Hvernig bregst rafmyntamarkaðurinn við? 29.06.2025

Í þessum þætti er rætt um hvaða áhrif nýlega umsamið vopnahlé í Miðausturlöndum kann að hafa á rafmyntamarkaði, en nú þegar hefur leiðandi hlutabréfavísitalan í Bandaríkjunum náð hæstu hæðum. Áfram berast góðar fréttir úr heimi rafmynta frá Bandaríkjunum, en nú virðist sem lánastofnunum þar í landi verði gert skylt að taka mið af rafmyntaeign þegar kemur að lánveitingum við fasteignakaup. Þetta og...

Lagafrumvarp um stöðugleikamyntir samþykkt í Washington - hvaða þýðingu mun það hafa fyrir rafmyntamarkaðinn? 21.06.2025

Í síðustu viku samþykkti Öldungadeildin í Bandaríkjunum GENIUS Act eða lagafrumvarp sem fól í sér heildstæða löggjöf um stöðugleikamyntir. Frumvarpið fékk sterkt fylgi en 68 öldungardeildarþingmenn sögðu já gegn 30 sem sögðu nei. Eru flestir greinendur á því að þetta muni skapa góðan jarðveg fyrir markað stöðugleikamynta til að vaxa gríðarlega hratt á næstu árum sem að sama skapi ætti að hafa mjög...

Bitcoin heldur velli yfir 100k þrátt fyrir óróa heimsmálanna 15.06.2025

Bitcoin náði nýjum methæðum í lok síðasta mánaðar í 112K USD og hefur síðan þá aldrei farið undir 100K þrátt fyrir að meira og minna allir markaðir hafi tekið dýfu í kjölfar árásar Ísraela á Íran. Allt stefnir í að Texas verði þriðja fylkið í Bandaríkjunum sem samþykki Bitcoin kaup hins opinbera. Þetta og margt fleira ræða þeir félagar Björn og Kjartan í þessum þætti.

Chainlink "deep dive" 07.06.2025

Þessi þáttur er hinn síðari af tveimur þar sem fjallað er um ONDO og LINK, að beiðni hlustenda og fjallar þessi um Chainlink eða LINK. Farið er yfir sögu Chainlink, grundvallaratriði keðjunnar og narratífið í dag. Af hverju heldur gengi LINK áfram að valda vonbrigðum þrátt fyrir að tæknin sé ein sú mest notaða í heimi bálkakeðjutækninnar? Þetta og margt fleira er rætt í þessum þætti.

Hvað er ONDO Finance? 31.05.2025

Í þessum þætti er fjallað um hvernig eignir í raunheimum (Real World Assets) verða mögulega færðar yfir á bálkakeðjur. Til að mynda er Larry Fink, framkvæmdastjóri Blackrock, mjög sannfærður um þessa framtíðarsýn. Ein af mest spennandi bálkakeðjum í þessum efnum er ONDO og fara þeir félagar Björn og Kjartan á dýptina um hvað það er sem gerir ONDO spennandi og markar þeim jafnframt ákveðna sérstöðu...

Bitcoin nær hæstu hæðum á ný - Af hverju vekur það ekki meiri athygli? 24.05.2025

Í vikunni sem var að líða náði gengi Bitcoin 112.000 USD. Mörgum Bitcoin eigendum þykir þó sérkennilegt að fæstir gefa því mikinn gaum enn sem komið er. Í þessum þætti fara Björn og Kjartan að sjálfsögðu einnig yfir fréttir liðinnar viku, meðal annars hvernig hin ýmsu fylki Bandaríkjanna virðast í auknum mæli sjá hag sinn í því að tileinka sér Bitcoin. Þetta og margt fleira í þessum þætti.

Stóri Solana þátturinn 16.05.2025

Í þessum þætti, sem tekinn var upp 21. apríl 2025, ræða þeir félagar, Björn og Kjartan, um Solana. Farið er yfir grundvallaratriði keðjunnar, söguna, stofnandann og markmið hans og margt fleira. Björn svarar spurningum um fjárfestingu sína í SOL myntinni, til dæmis hvar hann væri spenntur fyrir að selja.

Stóri Ethereum þátturinn 09.05.2025

Í þessum þætti, sem tekinn var upp 21. apríl síðastliðinn, fjalla þeir félagar Björn og Kjartan ítarlega um grundvallaratriði Ethereum. Útskýra hvaða áskoranir bíða þeirra, hverjir eru helstu styrkleikar og reyna að svara þeirri spurningu hvort ástæða sé til að vanmeta ekki þá möguleika sem Ethereum býður upp á. Saga Ethereum er rakin og farið er yfir samanburð Ethereum bálkakeðjunnar við aðrar sa...

Innflæði kauphallarsjóða nálgast sömu hæðir og í nóvember á síðasta ári - Er tilefni til bjartsýni gagnvart sumrinu? 03.05.2025

Landið heldur áfram að rísa á rafmyntamörkuðum eftir því sem Bitcoin færist nær 100k verðmiðanum. Frumvarp um Bitcoin kaup Arizona-fylkis fékk samþykki bæði í fulltrúa- og öldungardeild fylkisins, en allt bendir þó til þess að ríkisstjórinn muni ekki skrifa undir frumvarpið sökum pólitískrar pattstöðu. Kauphallarsjóðir hafa verið að kaupa talsvert BTC undanfarið og er BTC eign Blackrock komin yfir...

Bitcoin nálgast 100k - Eru nautin aftur við völd? 26.04.2025

Í þessum þætti er fjallað um hvað veldur hækkunum á gengi Bitcoin undanfarna daga. Meðal annars er fjallað um hvernig Trump virðist hafa hætt við áform sín um að reyna að víkja Jerome Powell úr embætti seðlabankastjóra. Einnig er fjallað um nýjar myntir í vöruúrvali Myntkaupa, en á dögunum bættust við SUI, HBAR og DOT.

Páskaþátturinn - Trump lýsir yfir óánægju með Jerome Powell - Hvaða heimildir hefur forseti Bandaríkjanna gagnvart seðlabankastjóra? 19.04.2025

Í þessum þætti var farið yfir fréttir síðustu viku. Landið virðist aðeins vera að rísa á rafmyntamörkuðum, þótt enn sé hræðsla ráðandi samkvæmt mælikvörðum. Donald Trump ýjaði að því í vikunni að víkja Jerome Powell úr embætti seðlabankastjóra, en óljóst virðist vera hvort hann hafi heimildir til þess. Frumvarp um Bitcoin varaforða Oklahoma fylkis var naumlega hafnað og athygli vekur að það voru þ...

Luister naar de podcast Hlaðvarp Myntkaupa in Replaio

Radio en podcasts in één app - gratis en zonder account. Installeer vandaag nog en mis de lancering niet

Download het op Google Play

Replaio is geen uitgever van podcasts; namen van shows, covers en audio zijn eigendom van hun makers en worden verspreid via openbare RSS-feeds