Hefnendurnir

Hefnendurnir

Tv IS ↓ 237 afleveringen

Podcast by Hefnendurnir

Bezoek zeker de website van de podcast en steun de maker: hefnendurnir.castos.com

Auteur

Hefnendurnir

Categorie

Tv

Website van de podcast

hefnendurnir.castos.com

Nieuwste aflevering

9 okt. 2026

Waar luisteren?

Podcasts in de app Replaio Radio Binnenkort beschikbaar

Podcasts komen binnenkort naar de app. Installeer nu en zie als eerste een compleet nieuwe kijk op podcasts

Download het op Google Play Gratis installeren Android bijna 10 mln downloads · beoordeling 4,8 iOS binnenkort

Afleveringen

237: Stolni svanurinn 09.10.2026

Hefnendurnir smjatta á hugverkahnupli Aronovskys, spila sjónvarpsþáttaspil, spá í spjótin sem beinast að Colberti, furða sig á földum söngleikjum og sigla enn dýpra inn í spoooooky season 

236: Tinni versus Ástríkur Part VI: Jason Lives 02.10.2026

Hefnendurnir hringjast milli landa og ræða tengsl Georgs Washington og Michael Myers, flótta Finchers frá flixinu, hæga hesta og áframhaldandi baráttu Tinna við Ástrík.

235: Stóri Gollum 25.09.2026

Hefnendurnir flækja fyrir sér innkomu Bullseye, hneykslast á greddu Rómeó og Júlíu, verða vonsviknir yfir geimveruhönnun Birds, flissa að gollum-stærðar-misskilningi Jansons og fatta að Rock og Stifler hafa verið tvisvar saman í mynd. 

234: Horfa á hluti 18.09.2026

Hefnendurnir horfa á hluti og tala um hlutina sem þeir horfðu í þessum sérstaka "horfa á hluti" þætti. 

233: Geim Spond 11.09.2026

Hulli og Ævar ræða gleymda Curry fjölskyldu, Ghost Rider teikningar, Star Trek potta, japanska tölvuleiki, blandaðar hnetur og duglega froska. 

232: Heilagar kýr 04.09.2026

Hefnendurnir ræða um sveiflur Shyamalans, litlausann Potter, kínverskar kýr, gallann við fullkomnar myndir og Peter Pan prump Spielbergs. 

231: King Kong fer til tannlæknis 28.08.2026

Hefnendurnir snúa fílelfdir aftur úr sumarfríi og ráðast á mikilvægustu málefnin!: Kosningagrafík! Ung X-menni! Stútinn á Knightley! Fjöldafráföll snillinga! Rofin snagagöt! Og góða og græna lampa!

230: Fín Grey 07.08.2026

Hulli og Ævar heilsa uppá haustið, segja bless við Blade, segja hæ við Emmu Frost, telja upp sumarlegustu sumarmyndirnar, rýna í persnesk dvergaskegg og fagna nýrri kóngulóarræmu!

229: Ódysseifs kviðmágar 31.07.2026

Hetjurnar ræða fall Letós, fregnir San Diego og ferðalag Ódysseifs. 

AFSAKIÐ HLÉ (má bjóða ykkur morb?) 24.07.2026

SÖKUM TÆKNILEGRA ÖRÐUGLEIKA er enginn nýr Hefnendaþáttur í dag!!! Til að bæta ykkur það upp ætlum við að pósta sérvöldum þætti að Patreon síðunni okkar. Það er þátturinn um Morbius. Við biðjumst afsökunar og lofum glænýju hefni í næstu viku. Koss. 

228: Friday the thirteenth the thirteenth 17.07.2026

Hefnendurnir hafa áhyggjur af Tick ruglingi, átta sig á aldri iMax, skipta sér af Skerjagarðsdrama og syrgja Sam. 

227: Quicksilver Egils 10.07.2026

Hefnendurnir rannsaka mútanta Íslandssögunnar, rugla saman Carpenter og Gomez, spá í hrukkur Ali G og láta sig dreyma um vélvini framtíðarinnar. 

226: Júdas - Dead and loving it 03.07.2026

Strákarnir ræða um Helsinki syndrómið, áhrifavaldarassa, píkuhallir, nornahreima, gervi-wonka, endaleysuframhöld og ofurstelpur. 

225: Edward Woodward if he Couldward 26.06.2026

Ævar fer yfir helstu animationfréttirnar í okkar júniversi og Hulli bjargar Marvel Cinematic júniversi En hvorugir botna þeir neitt í quantum júniversi (Hey það er nú einu sinni júní(versi)).

224: Barna Mad Max 19.06.2026

Strákarnir spjalla um óþarft áframhald Austins, meltingarfæri hvals, nýjustu geimverumynd geimverumeistarans, íslenskar poppfötur og Arthúr Björgvin Bollason.

223: He-Manspreading 12.06.2026

Ævar mikli og Hulli litli ræða um upphaf nördahaustsins, fráhvarf doktorsins, endurgerða sjóræningja, framhaldna fugla, klippta tittlinga og tik tok villinga. 

222: Eitt prósent mannæta 05.06.2026

Hulkleikur og Ævorman taka símafund yfir hafið um mandolínmanninn, falsaðan ofurhetjuhöfund, endurtekinn nýju-jórvíkurflótta, hnefaleikahæfileika útikatta og endalok strákanna. 

221: Neo Costanza 29.05.2026

Félagarnir voga sér í dýfuna, kýla í fötuna og fara gaumgæfilega yfir kvikmyndasumarið 2026.

220: Jabba the Kött(aður) 22.05.2026

ÆvorMan og Hulkleikur póka hvorn annan í mon, hafa uppá vampýrum í sjöheimi og skella sér á date night í stjörnuþoku langt langt í burtu. 

219: Hákarlakafbátahallæri 15.05.2026

Hulli upprifjar uppistand, Ævar púslar Pratchett, báðir blaðra um Ofurhugabrölt, Goðheimagusugang og Tinnatjón.

218: Ekki allar hetjur... 08.05.2026

Hulkleikur og ÆvorMan minnast liðinna skiptikorta, velta fyrir sér verðbólgu ástarinnar og telja upp besta dósahláturstilefnið á youtube.

217: Make 616 199999 Again 01.05.2026

Félagarnir forðast að fara yfir faðm-protocol, tala um traðk á tinnarétti, detta í djúpa digital dótaskúffu, týnast í tölusettum tímalínum teiknimyndasögurisa og leiðrétta lygar um lýtalæknaðan lagasmið. 

216: Erfðaskrá Auðkýfingsins 24.04.2026

Hulli og Ævar spila kvikmynda-sudoku, fagna nýjum ritstjóra upplýsingastríðsins og flótta sléttuúlfsins undan skattaafskriftum, eru misspenntir yfir leirkallastiklu og reyna að muna hvað í ósköpunum bækurnar hétu þarna með stelpunni og stráknum og apanum þarna sem sami og gerði Tinna gerði.  

215: Reyktu, Lína! Reyktu! 17.04.2026

Endur hefndarinnar fá Þorstein Joð til að finna góða þýðingu á Intellectual Property, reyna að éta hina ríku áður en þeir éta okkur, skammast útí loftbeyglaraþjófa og fagna komu Bullocks á grammið.

214: Takk, Jack Black 10.04.2026

Hefnendurnir fara enn og aftur í tiltölulega niðurstöðulaust umræðuferðalag um óumflýjanleika gervigreindarinnar, endurreista undraheima, ekki svo fantastic mr. fantastic og aldur Jasons Voorhees.

Luister naar de podcast Hefnendurnir in Replaio

Radio en podcasts in één app - gratis en zonder account. Installeer vandaag nog en mis de lancering niet

Download het op Google Play

Replaio is geen uitgever van podcasts; namen van shows, covers en audio zijn eigendom van hun makers en worden verspreid via openbare RSS-feeds