Fotbolti.net

Fotbolti.net

Podcastþættir Fótbolta.net

Bezoek zeker de website van de podcast en steun de maker: fotbolti.net

Auteur

Fotbolti.net

Categorie

Sports

Website van de podcast

fotbolti.net

Nieuwste aflevering

10 okt. 2026

Waar luisteren?

Podcasts in de app Replaio Radio Binnenkort beschikbaar

Podcasts komen binnenkort naar de app. Installeer nu en zie als eerste een compleet nieuwe kijk op podcasts

Download het op Google Play Gratis installeren Android bijna 10 mln downloads · beoordeling 4,8 iOS binnenkort

Afleveringen

Innkastið - Sóknartilþrifa sárt saknað 09.08.2018

Fimm af sex leikjum 15. umferðar Pepsi-deildarinnar er lokið. Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson voru ekki hrifnir af lágu skemmtanagildi leikjanna þegar þeir fóru yfir þá í Pepsi-Innkasti vikunnar. Einnig var rætt um bikarinn, Val í Evrópu, Inkasso-deildina og nýjan landsliðsþjálfara Íslands.

Ástríðan í neðri deildunum - Rugluð spenna í 2. deild 08.08.2018

Gríðarlega spenna er bæði á toppi og botni 2. deildar karla þegar 14 umferðum er lokið í deildinni.

Innkastið - Besti sumargluggi Liverpool í áratugi 07.08.2018

Innkastið hitar upp fyrir komandi tímabil í enska boltanum. Í þessum þætti er fjallað um Liverpool.

Leiðin út - Hjörtur Hermannsson 06.08.2018

Leiðin út er hlaðvarpsþáttaröð þar sem rætt er við fótboltamenn sem fóru ungir út í atvinnumennsku.

„Myndu segja Íslandi að loka landamærunum út af Hamren" 04.08.2018

Robert Laul er einn af virtustu íþróttafréttamönnum Svíþjóðar var á línunni í útvarpsþættinum Fótbolta.net á X-inu 977 í hádeginu.

Er mætingin á Pepsi-deildina í sumar vonbrigði? 04.08.2018

Hér má nálgast seinni hluta útvarpsþáttarins Fótbolti.net laugardaginn 4. ágúst. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Bóas Hinriksson voru í þættinum. Hringt var til Vestmannaeyja í Daníel Geir Moritz, fyrir Þjóðh&aacute...

Innkastið - Mourinho leggur rútunni og kastar mönnum undir hana 31.07.2018

Innkastið hitar upp fyrir komandi tímabil í enska boltanum. Í þessum þætti er fjallað um Manchester United. Elvar Geir Magnússon ræddi við Halldór Marteinsson af raududjoflarnir.is um það neikvæða andrúmsloft sem er kringum United og Mourinho á þessu undirbúningstímabili. Er ástæða til svartsýni hjá stuðningsmönnum United? Tíðindi sumarsins og fleira til umræðu. Einnig er fjallað um stofnun kvenna...

Innkastið - Hungur, endurkomur og óboðlegar frammistöður 31.07.2018

14. umferð Pepsi-deildarinnar er að baki og það er mikil spenna á báðum endum. Elvar Geir Magnússon og Gunnar Birgisson eru á sínum stað í íslenska Innkastinu en Arnar Daði Arnarsson fyllir skarð Magnúsar Más að þessu sinni.

Leiðin út - Oliver Sigurjónsson 30.07.2018

Leiðin út er nýtt podcast hlaðvarpsþáttaröð þar sem rætt er við fótboltamenn sem fóru ungir út í atvinnumennsku. Sumir eru þar enn, aðrir komu heim og fóru jafnvel aftur út. En hvað voru þeir að gera til að komast út og hvernig voru fyrstu skrefin erlendis? Viðmælandi þáttarins er Oliver Sigurjónsson. Hann ræðir akademíu Breiðabliks, sjálfstraust, hvernig er best að hefja atvinnumannaferilinn, líf...

Oliver mætti í útvarpið - Blikaspjall og boltapælingar 29.07.2018

Oliver Sigurjónsson, miðjumaður Breiðabliks, var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Hann spjallaði við Elvar Geir og Tómas Þór um Breiðablik, stöðu sína hjá Bodö/Glimt og pælingar sínar varðandi þjálfun. Svo eitthvað sé nefnt!

Úrvalslið umferða 1-11 í Inkasso-deild karla 28.07.2018

Fyrri helmingur Inkasso-deildarinnar var gerður upp í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag, umferðir 1-11. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson opinberuðu úrvalsliðið, besta leikmanninn og besta þjálfarann en fréttaritarar Fótbolta.net voru í dómnefndinni.

Útvarpsumræða - Landsliðsmál, Pepsi og Evrópuframmistaða 28.07.2018

Hér má nálgast upptöku af fyrri hluta útvarpsþáttarins Fótbolti.net sem var á X977 laugardaginn 28. júlí. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu um leitina að næsta landsliðsþjálfara Íslands, skoðuðu komandi umferð í Pepsi-deildinni og ræddu um Evrópuframmistöðu íslenskra liða.

Leiðin út - Rúnar Alex Rúnarsson 23.07.2018

Leiðin út er ný hlaðvarpsþáttaröð þar sem rætt er við fótboltamenn sem fóru ungir út í atvinnumennsku. Sumir eru þar enn, aðrir komu heim og fóru jafnvel aftur út. En hvað voru þeir að gera til að komast út og hvernig voru fyrstu skrefin erlendis? Fyrsti gestur þáttarins er Rúnar Alex Rúnarsson. Í þættinum er meðal annars rætt um fótboltalegt uppeldi hans erlendis, aukaæfingar, hugarfar, samkeppni...

Inkasso-umræða úr útvarpsþættinum 21.07.2018

Inkasso-deildin er rétt rúmlega hálfnuð en hún var til umræðu í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Tómas Þór Þórðarson, Ingólfur Sigurðsson og Grétar Sigfinnur Sigurðarson ræddu málin.

Pepsi-hringborð: Tómas Þór, Ingó Sig og Grétar Sigfinnur ræða málin 21.07.2018

Pepsi-deildin tók stóran hluta af útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 þessa vikuna. Tómas Þór Þórðarson, Ingólfur Sigurðsson og Grétar Sigfinnur Sigurðarson ræddu málin og skoðuðu komandi leiki.

HM uppgjör 2018 - Sportrásin 15.07.2018

Sportrásin er á Rás 2 á sunnudagskvöldum en umsjónarmaður er Orri Freyr Rúnarsson. Í nýjasta þættinum var HM í Rússlandi gert upp en með Orra voru Elvar Geir Magnússon, ritstjóri Fótbolta.net, og Benedikt Bóas Hinriksson, blaðamaður á Fréttablaðinu. Rætt var um sigur Frakklands gegn Króatíu í úrslitaleiknum í Moskvu og sérstök verðlaunaafhending var sett upp fyrir mótið í heild sinni.

Elvar og Tómas ræða um Pepsi-deildina - Skortur á mörkum áhyggjuefni 14.07.2018

Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um Pepsi-deildina og frammistöðu íslenskra liða í Evrópukeppnum í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Talað var um hversu lítið flest liðin í Pepsi-deildinni skora af mörkum. Er lágt skemmtanagildi í deildinni áhyggjuefni. Víkingar fá verðskuldað lof og rætt um möguleika Valsmanna í seinni leiknum gegn Rosenborg.

Stærstu fótboltatíðindin - Sarri og Ronaldo færa sig um set 14.07.2018

Það bárust stórtíðindi í vikunni þegar Cristiano Ronaldo yfirgaf Real Madrid og samdi við Ítalíumeistara Juventus. Í morgun tilkynnti Chelsea svo formlega um ráðningu á Maurizio Sarri sem stýrði áður Napoli. Björn Már Ólafsson er helsti sérfræðingur landsins um ítalska fótboltann og hann ræddi við Elvar og Tómas um þessar stóru fréttir í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.

HM hringborðið - Í beinni frá Frakklandi og Englandi 14.07.2018

Úrslitaleikur Frakklands og Króatíu á HM í Rússlandi er framundan. Elvar og Tómas hituðu upp fyrir leikinn í útvarpsþættinum á X977. Davíð Snorri Jónasson, HM sérfræðingur þáttarins, er staddur í Frakklandi og sagði frá stemningunni í landinu og sinni tilfinningu fyrir leiknum. Þá var rætt um enska landsliðið og grasrótarstarfið í landinu. Árni Ingi Pjetursson vinnur fyrir Nike og hefur unnið náið...

Vængjum þöndum - Valur í Evrópu 10.07.2018

Fótbolti.net fékk sérstakt leyfi til að birta viðhafnarþátt af Podcasti Vals, Vængjum þöndum. Í þættinum er hitað upp fyrir komandi leiki Valsmanna gegn Rosenborg og möguleikarnir skoðaðir. Jón Grétar Jónsson og Þorgrímur Þráinsson, fyrrum leikmenn Vals, settust niður í hljóðveri og rifjuðu upp nokkra Evrópuleiki. Þegar Kevin Keegan spilaði með Hamburg, viðureignina við Mónakó þar sem Arsené Wenge...

Innkastið - Agabann, ljótt orðbragð og eitt sæti laust niður 09.07.2018

Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson ræða um 12. umferð Pepsi-deildarinnar í Innkastinu. Gunnar var fyrir norðan og sá KA vinna Fjölni.

Hannes: Tankurinn tómur eftir EM en ekki núna 08.07.2018

„Þetta kom upp beint eftir þennan Argentínuleik," segir markvörðurinn Hannes Þór Halldórsson en hann er genginn í raðir Qarabag í Aserbaídsjan. Hannes ræddi við Elvar Geir Magnússon og Benedikt Bóas Hinriksson í útvarpsþættinum Fótbolta.net á X-inu 977 í gær, laugardag.

Uppgjör umferða 1-11 í Pepsi með Elvari og Benna 07.07.2018

Pepsi-deildin er hálfnuð og á dögunum gerði Fótbolti.net upp fyrri helminginn. Elvar Geir og Benedikt Bóas skoðuðu niðurstöðuna í útvarpsþættinum á X977.

HM hringborðið - Átta liða úrslit með Davíð Snorra 07.07.2018

Er fótboltinn að koma heim? Davíð Snorri Jónasson er HM-sérfræðingur útvarpsþáttarins Fótbolti.net og fór yfir leikina í 8-liða úrslitum. Hann skoðaði sigurleiki Frakka og Belga í gær og ræddi um leiki dagsins við Elvar Geir Magnússon og Benedikt Bóas Hinriksson. Davíð var einn af leikgreinendum íslenska landsliðsins á HM í Rússlandi.

Innkastið - Leikurinn sem bjargaði mótinu 03.07.2018

Pepsi-útgáfan af Innkastinu er mætt aftur eftir hlé vegna þátttöku Íslands á HM í Rússlandi. Í þætti dagsins skoða Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson elleftu umferð deildarinnar. Einnig er rætt aðeins um HM í fótbolta og Inkasso-deildina.

Luister naar de podcast Fotbolti.net in Replaio

Radio en podcasts in één app - gratis en zonder account. Installeer vandaag nog en mis de lancering niet

Download het op Google Play

Replaio is geen uitgever van podcasts; namen van shows, covers en audio zijn eigendom van hun makers en worden verspreid via openbare RSS-feeds