Fotbolti.net

Fotbolti.net

Podcastþættir Fótbolta.net

Bezoek zeker de website van de podcast en steun de maker: fotbolti.net

Auteur

Fotbolti.net

Categorie

Sports

Website van de podcast

fotbolti.net

Nieuwste aflevering

10 okt. 2026

Waar luisteren?

Podcasts in de app Replaio Radio Binnenkort beschikbaar

Podcasts komen binnenkort naar de app. Installeer nu en zie als eerste een compleet nieuwe kijk op podcasts

Download het op Google Play Gratis installeren Android bijna 10 mln downloads · beoordeling 4,8 iOS binnenkort

Afleveringen

Innkast frá Austurríki - Jón Daði og Viðar Örn gestir 05.09.2018

Íslenska landsliðið í fótbolta býr sig undir leiki gegn Sviss og Belgíu í Þjóðadeildinni. Liðið er við æfingar í Austurríki, í fögrum fjallabæ sem heitir Schruns, og heldur svo yfir til Sviss á morgun. Elvar Geir Magnússon er í Austurríki og fékk s...

Ástríðan í neðri deildunum - Æsispennandi lokabarátta framundan í 2. deild 04.09.2018

Það eru þrjár umferðir eftir í 2. deildinni og spennan mikil. Enn eru fimm lið sem eiga möguleika á að komast upp. Afturelding er í fínum málum eftir sigur á Gróttu í toppslagnum í síðustu umferð en þessi lið verma tvö efstu sætin. Ingólfur Sigurðsson mætti í kaffi til Elvars Geirs Magnússonar og rýnt var í gang mála fyrir lokasprettinn. Í lokin var rætt um 3. deildina þar sem einnig er líf og fjö...

Innkastið - Í misjöfnu skapi inn í landsleikjahlé 03.09.2018

Heil umferð var leikin í enska boltanum um helgina og af því tilefni hlóðu þeir Daníel Geir Moritz og Elvar Geir Magnússon í spánýtt Innkast. Um var að ræða 4. umferðina og vekur athygli að enn eru þrjú lið með fullt hús stiga. Þá var rýnt í dr&aa...

Innkastið - Spennustigið magnast og þjálfarasögum fjölgar 03.09.2018

Elvar Geir, Magnús Már og Gunni Birgis eru á sínum stað í Innkastinu en þar var 19. umferð Pepsi-deildarinnar skoðuð. Aðeins þrjár umferðir eru eftir af deildinni og Valsmenn með eins stigs forystu eftir umferðina. Meðal efnis: Engar lausnir finnast í Grafarvoginum, hungur Stjörnunnar eykst, áföll dynja á KA, hugur Guðmanns leitar til Reykjavíkur, flautumark Birkis gæti reynst dýrmætt, þunnskipaðu...

Óskar Hrafn talaði umbúðalaust um íslenska boltann 01.09.2018

Óskar Hrafn Þorvaldsson er þekktur fyrir að liggja ekki á skoðunum sínum en hann mætti í útvarpsþáttinn Fótbolti.net og ræddi um íslenska boltann. Óskar er núverandi þjálfari Gróttu og fyrrum íþróttafréttamaður og sérfræðingur Pepsi-markanna, um íslenska fótboltann. Ýmislegt mætti betur fara í íslenska boltanum eins og fram kemur í spjalli hans við Elvar Geir og Magnús Má.

Mikið undir í Pepsi-deildinni - Áhugaverðir leikir framundan 01.09.2018

Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson hituðu upp fyrir komandi leiki Pepsi-deildarinnar í útvarpsþættinum Fótbolti.net í dag. Leikir 19. umferðar voru skoðaðir og Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, var á línunni og ræddi um komandi leik gegn FH.

Ástríðan í neðri deildunum - Rosaleg úrslitakeppni í 4. deild 29.08.2018

Úrslitakeppnin í 4. deildinni hefst á laugardaginn þegar flautað verður til leiks í 8-liða úrslitum. Magnús Már Einarsson, Magnús Valur Böðvarsson og Haraldur Árni Hróðmarsson settust niður og fóru yfir riðlakeppnina og viðureignirnar sem eru framundan í úrslitakeppninni.

Innkastið - Geggjaður leikur framundan í Garðabæ 28.08.2018

18. umferð Pepsi-deildar karla er að baki en umferðin var gerð upp í Innkastinu að vanda. Elvar Geir, Magnús Már og Gunni Birgis voru á sínum stað og hituðu meðal annars upp fyrir stórleik Stjörnunnar og Vals sem verður á miðvikudagskvöld. Meðal efnis: Mikilvægur sigur Fylkis, varnarsinna&e...

Innkastið - Fyrirsjáanleg vandræði á Old Trafford 27.08.2018

Innkastið heilsar með nýjum þætti og var farið yfir 3. umferðina í enska og einnig komið við á Ítalíu. Þættinum stjórnuðu Daníel Geir Moritz og Elvar Geir Magnússon en þeir ræddust við á sitt hvorri eyjunni. Meðal þess sem rætt var í þættinum var ótrúlega dapurt gengi Man Utd, Liverpool vörnin, Arsenal sigur, Watford nær í Evrópu, Son og herskydan, Everton leikir bjóða upp á fjör, hanskinn tekinn...

Landsliðsvalið og meðalaldur íslenskra liða 25.08.2018

Hér má nálgast upptöku úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um fyrsta landsliðshóp Erik Hamren, hópinn sem valinn var fyrir leiki gegn Sviss og Belgíu í Þjóðadeildinni. Þá sagði Tómas frá útreikningi sínum á meðalaldri liða á Íslandsmótinu í fótbolta.

Ólafur Ingi heimsótti útvarpsþáttinn 25.08.2018

Reynsluboltinn Ólafur Ingi Skúlason var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Ólafur er kominn heim eftir atvinnumennskuna og spilar með Fylki. i Hann hjálpar uppeldisfélagi sínu að forðast fall úr Pepsi-deildinni. Ólafur á 36 landsleiki fyrir Ísland og var í hópnum á HM í Rússlandi. Hér má nálgast upptöku af spjalli Elvars og Tómasar við Ólaf.

Inkasso umræða - Hitað upp fyrir lokasprettinn með Láka 25.08.2018

Fjórar umferðir eru eftir af Inkasso-deildinni og hörð barátta framundan á lokasprettinum. ÍA og HK eru í fínum málum á toppi deildarinnar og líklegast að þessi lið fari upp. Spenna er í fallbaráttunni en Selfoss og Magni sitja í fallsætunum. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu við Þorlák Árnason um lokasprettinn í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.

Innkastið - Toppliðin sameinuð og Finni fær afsökunarbeiðni 21.08.2018

Það vantaði ekki umræðupunktana eftir 17. umferð Pepsi-deildarinnar. Elvar Geir, Magnús Már og Gunnar Birgis fóru yfir málin. Magnús og Gunnar leystu heimaverkefni sín. Þeir settu saman úrvalslið úr leikmannahópum þriggja efstu liða deildarinnar. Meðal umræðuefna: Toppframmi...

Innkastið - Mourinho mæða og titilvonir Liverpool 21.08.2018

Í fyrra Innkasti dagsins er enski boltinn í aðalhlutverki en einnig er rætt um helstu tíðindi frá Spáni og Ítalíu. Elvar Geir, Magnús Már og Egill Sigfússon, starfsmenn Fótbolta.net, fóru yfir 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar og ræddu helstu mál. Meðal efnis: Erfitt að finna veikan blett á Liverpool, Mourinho með miðverði í B-flokki, Murray æfði sig á Tenerife, Kante fær meira frjálsræði, erfið...

Leiðin út - Orri Sigurður Ómarsson 20.08.2018

Leiðin út er hlaðvarpsþáttaröð þar sem rætt er við fótboltamenn sem fóru ungir út í atvinnumennsku. Sumir eru þar enn, aðrir komu heim og fóru jafnvel aftur út. En hvað voru þeir að gera til að komast út og hvernig voru fyrstu skrefin erlendis? Viðmælandi þáttarins er Orri Sigurður Ómarsson. Orri Sigurður ræðir leiðina út og fyrstu skrefin, yngri landsliðin og hvernig var að koma aftur til Íslands...

Hitað upp fyrir 17. umferð - Sérstaklega toppslaginn 18.08.2018

17. umferð Pepsi-deildarinnar er leikin á næstu þremur dögum. Hitað var upp fyrir umferðina í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Sérstaklega var hitað upp fyrir leik Breiðabliks og Vals, toppslaginn, sem verður á mánudagskvöld. Elvar Geir ræddi við Benedikt Bóas, stu...

Ítalski boltinn byrjar að rúlla - Við hverju má búast? 18.08.2018

Björn Már Ólafsson, sérfræðingur um ítalska boltann, birti sína spá fyrir komandi tímabil á Twitter nýlega. Þá spá má sjá hér að neðan. Hann ræddi við Elvar Geir og Benedikt Bóas, í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977, um tímabilið á Ítalíu á fyrsta leikdegi hennar. 1. Juventus 2. Inter 3. Roma 4. Napoli 5. Lazio 6. AC Milan 7. Fiorentina 8. Atalanta 9. Sampdoria 10. Torino 11. Sassuolo 12. Udines...

Gestir úr Garðabænum - Alex og Gaui Bald mættu í útvarpið 18.08.2018

Stjarnan er komin í úrslit Mjólkurbikarsins og er í harðri baráttu um Íslandsmeistaratitilinn. Tveir leikmenn liðsins, miðjumaðurinn ungi Alex Þór Hauksson og sóknarmaðurinn skæði Guðjón Baldvinsson, mættu í útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X977. Þeir spjölluðu við Benedikt Bóas og Elvar Geir.

Vængjum þöndum - Bjössi Hreiðars í Evrópuspjalli 15.08.2018

Á fimmtudagskvöld leikur Valur seinni leik sinn gegn Sheriff frá Moldavíu í forkeppni Evrópudeildarinnar. Sheriff vann nauman 1-0 sigur í fyrri leiknum og má búast við hörkuspennu á Hlíðarenda. Fótbolti.net varpar hér fram upphitun fyrir komandi leik. Benedikt Bóas Hinriksson, blaða&eth...

Innkastið - Þriggja hesta kapphlaupið og val á þeim besta í hverju liði 14.08.2018

Sextánda umferð Pepsi-deildarinnar er að baki. Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson skoða meðal annars hver hefur verið bestur í hverju liði deildarinnar og hver mestu vonbrigðin það sem af er móti. Meðal efnis: Kristinn Ingi minnir á sig, Viktor heldur Elfari á bekknum, Víkingar með sjálfseyðingarhvöt, erfið fæðing Stjörnunnar, staða Óla Kristjáns hjá FH, Kristján Guðmun...

Ástríðan í neðri deildunum - Líf og fjör í 3. deildinni 13.08.2018

Fimm umferðir eru eftir af tímabilinu í 3. deild karla og spenna er bæði á toppi og botni. Magnús Már Einarsson og Haraldur Hróðmarsson settust niður og fóru yfir stöðuna í deildinni.

Leiðin út - Emil Ásmundsson 13.08.2018

Leiðin út er hlaðvarpsþáttaröð þar sem rætt er við fótboltamenn sem fóru ungir út í atvinnumennsku.

Innkastið - Ótímabærir dómar eftir eina umferð 12.08.2018

Enski boltinn er í aðalhlutverki í Innkastinu þessa vikuna. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz ræddu málin á Ölveri í Glæsibæ eftir að fyrstu umferð deildarinnar lauk. Meðal efnis: Afmælisbarn dagsins, Liverpool byrjar með hvelli, Gylfa fórnað í Wolverhampton, Sarri tuggði sígarettu í flottri byrjun Chelsea, samband Pogba og Mourinho, Cardiff gæti endað langneðst, spá um lið tímabilsins.

Pepsi-upphitun - Komandi umferð skoðuð 11.08.2018

Elvar Geir Magnússon, Benedikt Bóas Hinriksson og Ingólfur Sigurðsson skoðuðu komandi umferð í Pepsi-deildinni í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Rýnt var í 16. umferð sem leikin verður á sunnudag og mánudag.

Enska hringborðið - Spáin fyrir tímabilið 11.08.2018

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net rýndi í sérstaka spá fyrir ensku úrvalsdeildina. Elvar Geir Magnússon, Benedikt Bóas Hinriksson og Ingólfur Sigurðsson skoðuðu spá Fótbolta.net og ræddu um liðin 20 sem skipa deildina.

Luister naar de podcast Fotbolti.net in Replaio

Radio en podcasts in één app - gratis en zonder account. Installeer vandaag nog en mis de lancering niet

Download het op Google Play

Replaio is geen uitgever van podcasts; namen van shows, covers en audio zijn eigendom van hun makers en worden verspreid via openbare RSS-feeds