Fotbolti.net

Fotbolti.net

Podcastþættir Fótbolta.net

Bezoek zeker de website van de podcast en steun de maker: fotbolti.net

Auteur

Fotbolti.net

Categorie

Sports

Website van de podcast

fotbolti.net

Nieuwste aflevering

9 okt. 2026

Waar luisteren?

Podcasts in de app Replaio Radio Binnenkort beschikbaar

Podcasts komen binnenkort naar de app. Installeer nu en zie als eerste een compleet nieuwe kijk op podcasts

Download het op Google Play Gratis installeren Android bijna 10 mln downloads · beoordeling 4,8 iOS binnenkort

Afleveringen

Miðjan - Skemmtilegur ferill Hemma Hreiðars 12.02.2019

Hermann Hreiðarsson er gestur vikunnar hjá Magnúsi Má Einarssyni í Miðjunni. Í þættinum kemur hann með margar skemmtilegar sögur frá áhugaverðum ferli sínum. Hemmi spilaði í enska boltanum í fimmtán ár en hann er einnig næstleikjahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi. Eftir ferilinn hefur Hemmi þjálfað ÍBV og Fylki auk þess sem hann var síðast aðstoðarþjálfari Kerala Blasters í Indlandi.

Fjörugt viðtal við Björgvin Stefáns 11.02.2019

Björgvin Stefánsson, framherji KR, var gestur í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu 97,7 á laugardaginn þar sem hann ræddi við Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Bóas Hinriksson. Björgvin er skemmtilegur karakter og óhætt er að mæla með spjallinu við hann.

Hlustaðu á útvarpsþáttinn - Bjöggi Stef, úrvalslið og ársþing 09.02.2019

Það var líf og fjör í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu í dag þar sem Tómas Þór Þórðarson, Benedikt Bóas Hinriksson og Magnús Már Einarsson voru við stjórnvölinn. Björgvin Stefánsson, framherji KR, var gestur þáttarins að þessu sinni og farið var yfir víðan völl í stórskemmtilegu spjalli við hann. Útvarpsþátturinn Fótbolti.net fagnar tíu ára afmæli um þessar mundir og fram á vor verður valið úrval...

Miðjan - Rýnt í formannsslaginn og ársþingið 07.02.2019

73. ársþing KSÍ fer fram á laugardaginn en þar berjast Guðni Bergsson og Geir Þorsteinsson um formannsstólinn. Á þinginu fer einnig fram stjórnarkjör auk þess sem tillögur verða teknar fyrir. Í Miðju vikunnar var rætt um þingið en þeir Lúðvík Arnarson, fyrrum varaformaður knattspyrnudeildar FH, og Þórður Guðjónsson, fyrrum framkvæmdastjóri ÍA, fóru yfir stöðuna.

Innkastið - Klopp á móti sápukúlum en Liverpool líklegast 06.02.2019

Evrópu-Innkastið var tekið upp strax eftir að Man City skaust á toppinn í ensku úrvalsdeildinni og fóru þeir Elvar Geir og Daníel Geir yfir toppbaráttuna.

Björn Daníel í skemmtilegu spjalli 02.02.2019

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Björn Daníel Sverrisson var gestur þáttarins og ræddi við Tómas Þór og Elvar Geir. Björn er kominn aftur í FH-búninginn og miklar væntingar eru gerðar til hans.

Íslenski boltinn - Brjáluð breidd Vals og þing framundan 02.02.2019

Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um íslenska boltann í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Úrslitaleikir undirbúningsmóta, möguleg heimkoma Hannesar, útlitið hjá KR, brjáluð breidd Vals, leikmenn að færa sig um set, Guðjón Þórðarson og...

Heimavöllurinn: Vildi nýja áskorun eftir erfiða mánuði 31.01.2019

Sandra María Jessen er nýjasta atvinnukonan okkar í knattspyrnu en hún skrifaði nýlega undir samning við þýska liðið Bayer 04 Leverkusen. Þangað fer hún frá Þór/KA þar sem hún hefur leikið allan sinn meistaraflokksferil eftir að hafa alist upp hjá Þór.

Innkastið - Ótrúleg umferð að baki! 30.01.2019

Dramatíkin var allsráðandi í 24. umferð ensku úrvalsdeildarinnar og fóru þeir Daníel Geir og Elvar Geir yfir úrslitin og umdeild atvik. Þá spáðu þeir félagar því hvaða lið kæmust í Meistaradeildina.

Miðjan - Guðni vs Geir 30.01.2019

Tíu dagar eru í ársþing KSÍ þar sem kosið verður um formann til næstu tveggja ára. Geir Þorsteinsson, heiðursformaður, ákvað á dögunum að bjóða sig fram gegn Guðna Bergssyni sem er núverandi formaður. Guðni og Geir eru í formannsslag þessa dagana en þeir mættu í dag í spjall hjá Elvari Geir Magnússyni og Magnúsi Má Einarssyni ritstjórum Fótbolta.net. Rætt var um helstu málefni fyrir ársþingið og á...

Innkastið - Lúxus útgáfa með góðum gestum 27.01.2019

Daníel Geir Moritz fór í bæjarferð en hann og Elvar Geir fengu til sín góða gesti í höfuðstöðvar Fótbolta.net að þessu sinni. Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, og Martin Sindri, stuðningsmaður Liverpool, voru með þeim í Innkastinu. Rætt var um toppliðin og farið í tvo skemmtilega samkvæmisleiki. Meðal annars voru valdir bestu leikmenn Arsenal, Manchester United, Chelsea og Liverpool frá...

Fyrsta ótímabæra spáin fyrir Pepsi-deildina 27.01.2019

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór komu með fyrstu ótímabæru spá ársins fyrir Pepsi-deildina í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Þeir skoðuðu félagaskiptin í vetur og felldu dóma!

Ole Gunnar er meira en skemmtanastjóri 27.01.2019

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór spjölluðu við Manchester United sérfræðinginn og fréttamanninn Tryggva Pál Tryggvason. Rætt var um gengi United undir stjórn Ole Gunnar Solskjær.

Miðjan - Bransasögur úr litríkum ferli Gary Martin 23.01.2019

Enski framherjinn Gary Martin skrifaði á dögunum undir samning hjá Íslandsmeisturum Vals. Gary er mættur aftur í Pepsi-deildina eftir dvöl hjá Lokeren og Lilleström. Gary vakti mikla athygli í íslenska boltanum á árunum 2010 til 2016 þegar hann skoraði mikið með ÍA, KR og Víkingi. Í Miðju vikunnar tók Magnús Már Einarsson langt viðtal við Gary þar sem farið var yfir feril hans, allt frá barnæsku í...

Innkastið - Dýfur og besta vörnin í sögunni 20.01.2019

23. umferðin í ensku úrvalsdeildinni kláraðist rétt áðan og hlóðu Elvar Geir og Daníel Geir Moritz í nýtt Innkast að því tilefni. Rétt áður en hætt var að taka upp sá Elvar frétt um að Hannes Þór Halldórsson væri á leið í Val og kom það sem þruma úr heiðskýru lofti í þáttinn. Þá var einnig farið í samkvæmisleik og völdu þeir bestu vörnina í sögu deildarinnar, fjagra manna varnarlínu, og er góð vör...

Útvarpsþátturinn 19. janúar - Orri gestur 19.01.2019

Upptaka af útvarpsþættinum Fótbolti.net 19. janúar. Elvar Geir Magnússon var einn í hljóðverinu að þessu sinni en hann hringdi í Tómas Þór Þórðarson sem er í Þýskalandi að fylgjast með strákunum okkar í handboltalandsliðinu. Enski boltinn var...

Heimavöllurinn: Óvænt U-beygja eftir sjö stóra titla í Garðabæ 17.01.2019

Ásgerður Stefanía Baldursdóttir hefur verið áberandi í íslenskum fótbolta í rúman áratug. Hún ólst upp hjá Breiðablik en skipti yfir í Stjörnuna fyrir tímabilið 2005. Þar tók hún þátt í ótrúlegum uppgangi félagsins. Spilaði 271 meistaraflokksleiki, flesta með fyrirliðabandið, og vann fjóra Íslandsmeistaratitla og þrjá bikarmeistaratitla. Á þeim tíma spilaði Adda einnig 10 A-landsleiki og fór á lán...

Miðjan - Öskubuskusaga Andra Rúnars 16.01.2019

Andri Rúnar Bjarnason, framherji Helsingborg, hefur klifið metorðastigann hratt undanfarin ár. Hinn 28 ára gamli Andri jafnaði markametið í Pepsi-deildinni 2017 og í fyrra varð hann markakóngur í sænsku B-deildinni með Helsingborg. Þá hefur hann einnig leikið sína fyrstu landsleiki fyrir Íslands hönd.

Innkastið - Arsenal þema og sól hjá Solskjær 15.01.2019

Evrópu-Innkastið var eingöngu innan ensku úrvalsdeildarinnar að þessu sinni þegar 22. umferðin var gerð upp.

Innkast frá Katar - Steikt upplifun 14.01.2019

Elvar Geir Magnússon og Magnús Már Einarsson, ritstjórar Fótbolta.net, hafa undanfarna viku dvalið í Katar.

Útvarpsþátturinn með Benna og Mána 13.01.2019

Þrátt fyrir að Elvar Geir Magnússon sé í Katar og Tómas Þór Þórðarson í Þýskalandi þá var útvarpsþátturinn Fótbolti.net á sínum stað á X977. Benedikt Bóas Hinriksson og Þorkell Máni Pétursson leystu af í la...

Miðjan - Heimir Hallgríms fer yfir málin í Katar 09.01.2019

Mánuður er síðan Heimir Hallgrímsson var ráðinn sem þjálfari Al Arabi í Katar. Heimir hefur verið að taka til í leikmannahópnum að undanförnu og koma sínum hugmyndum að.

Miðjan - Guðni Bergs ræðir mótframboð og fleira 09.01.2019

Í hlaðvarpsþættinum Miðjunni í þessari viku mætti Guðni Bergsson formaður KSÍ í ítarlegt spjall. Guðni er að ljúka tveggja ára kjörtímabili sínu og þarf að sækja nýtt umboð á ársþingi í febrúar þar sem honum mætir mótframboð frá Geir Þorsteinssyni forvera hans í embætti. Hafliði Breiðfjörð ræddi við Guðna á mánudaginn og spjallið má heyra í spilaranum að ofan og öllum helstu Podcast þjónustum.

Innkastið - Inn og út um gluggann 06.01.2019

Janúarglugginn er fyrirferðarmikill í fyrsta Evrópu-Innkastinu á nýju ári. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz skoðuðu hvað efstu sex liðin ættu að gera í vetrarglugganum. Bikarkeppnin, eigendur í enska boltanum, komandi leikir í úrvalsdeildinni, bestu mennirnir á almanak...

Enska hringborðið - Uppgjör númer tvö 05.01.2019

oppbaráttan var að sjálfsögðu í aðalhlutverki við enska hringborðið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Elvar Geir og Benedikt Bóas ræddu við Kristján Atla um fyrsta fjórðung ensku úrvalsdeildarinnar og hann valdi úrvalsliðið, besta leikmanninn, besta stjórann og mestu vonbrigðin. Úrvalsliðið: Alisson; Aspilucueta, Van Dijk, Maguire, Robertson, Torreira, Son, Shaqiri, Aubameyang, Kane, Sa...

Luister naar de podcast Fotbolti.net in Replaio

Radio en podcasts in één app - gratis en zonder account. Installeer vandaag nog en mis de lancering niet

Download het op Google Play

Replaio is geen uitgever van podcasts; namen van shows, covers en audio zijn eigendom van hun makers en worden verspreid via openbare RSS-feeds