Fotbolti.net

Fotbolti.net

Podcastþættir Fótbolta.net

Bezoek zeker de website van de podcast en steun de maker: fotbolti.net

Auteur

Fotbolti.net

Categorie

Sports

Website van de podcast

fotbolti.net

Nieuwste aflevering

9 okt. 2026

Waar luisteren?

Podcasts in de app Replaio Radio Binnenkort beschikbaar

Podcasts komen binnenkort naar de app. Installeer nu en zie als eerste een compleet nieuwe kijk op podcasts

Download het op Google Play Gratis installeren Android bijna 10 mln downloads · beoordeling 4,8 iOS binnenkort

Afleveringen

Meistaradeildin - Spáð í spilin fyrir 8-liða úrslit 16.03.2019

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór skoðuðu dráttinn í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar en dregið var á föstudag. Ajax - Juventus Liverpool - Porto Tottenham - Man City Man Utd - Barcelona

Heimavöllurinn - Ótímabær spá fyrir Pepsi Max 15.03.2019

Í nýjasta hlaðvarpsþætti Heimavallarins spá þáttastýrurnar í spilin fyrir komandi tímabil. Nú eru 7 vikur í að keppni hefjist í Pepsi Max-deildinni og af því tilefni skella þær Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir í ótímabæra spá fyrir deildina.

Innkastið - Hin fjögur ensku og fræknu 13.03.2019

Í Evrópu-Innkastinu að þessu sinni var dregið til gamans í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu! Fjögur ensk lið voru í pottinum en ekkert pláss var fyrir fulltrúa frá Þýskalandi. Í þættinum er rætt um Meistaradeildina, endurkomu Zidane, kaflaskil hjá Bayern og Rea...

Miðjan - Frakklandsævintýrið með Rikka og Rúnari 13.03.2019

Gestir Miðjunnar í þessari viku eru fyrrum landsliðsmennirnir Ríkharður Daðason og Rúnar Kristinsson. Í þættinum var farið aftur til 5. september 1998 og rifjaður upp leikur Íslands og Frakklands á Laugardalsvellinum. Seinna í þættinum var rifjaður upp leikur Frakklands og Íslands í París 1999 í sömu keppni. Einnig var rætt um leikinn þegar þessar sömu þjóðir mættust á EM í Frakklandi 2016 og í lo...

Innkastið - Margir gerðu mistök og bestu kaup Klopp 10.03.2019

Evrópu-Innkastið er í samstarfi við Ölver í Glæsibæ. Elvar og Daníel fóru yfir helgina í ensku úrvalsdeildinni, skoðuðu stórleikinn í London og fóru yfir áhugaverða helgi þar sem markverðir og dómarar gerðu mörg mistök! Einnig valdi Daníel bestu ka...

Íslenski boltinn - Óskar Örn gestur þáttarins 09.03.2019

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Elvar Geir og Tómas Þór fengu Óskar Örn Hauksson, leikmann KR, í heimsókn í útvarpsþáttinn. Óskar var tekinn inn í úrvalsliðið áratugarins í Pepsi-deildinni. Viðtalið við Óskar kemur eftir um 18 mínútu í upptökunni. Fyrst er umræða um Kolbein Sigþórsson og viðtal við Eið Aron Sigurbjörnsson, varnarmann Vals, sem einnig var tekinn inn í úrvalsliðið.

Meistaradeildin - Gummi Ben sá kraftaverkasigur Man Utd í París 09.03.2019

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Fjallað um Meistaradeild Evrópu. Guðmundur Benediktsson var staddur í París þegar Manchester United vann sögulegan sigur gegn PSG. Hann heimsótti Elvar Geir og Tómas Þór. Einnig var rætt um stöðu mála hjá Real Madrid. Mikaael Marinó Rivera er stuðningsmaður Madrídarliðsins og var á línunni.

Miðjan - Fatastíll litla frænda, babyshower og sveindómsmissirinn 08.03.2019

Knattspyrnumaðurinn, Albert Brynjar Ingason er gestur Miðjunnar í þessari viku. Albert gekk á dögunum í raðir Fjölnis frá uppeldisfélagi sínu Fylki. Albert hefur á ferli sínum leikið með Fylki, Þór, Val, FH og nú Fjölni. Hann varð til að mynda Íslandsmeistari með FH sumarið 2012. Undanfarin ár hefur hann vakið mikla athygli á Twitter og þá sérstaklega undanfarnar vikur. Í miðjunni í dag ræðum við,...

Innkastið - Klopp farinn að hegða sér furðulega 04.03.2019

Einvígi Manchester City og Liverpool um Englandsmeistaratitilinn heldur áfram og nú er City komið skrefinu á undan. Enski boltinn er að vanda í aðalhlutverki í Evrópu-Innkastinu en Elvar og Daníel skoðuðu leiki helgarinnar. Einnig var horft til Þýskalands, Ítalíu og komandi leikja í Meista...

Ótímabæra spáin - Tíðindi á toppnum 02.03.2019

Elvar Geir og Tómas Þór komu með aðra ótímabæru spá ársins fyrir Pepsi-Max deildina í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Það hafa orðið nokkrar tilfæringar síðan fyrsta spáin var birt fyrir rúmum mánuði. Á toppnum eru stór...

Enska hringborðið - Þriðja fjórðungsuppgjör 02.03.2019

Þriðja fjórðungsuppgjör tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni var á dagskrá útvarpsþáttarins Fótbolti.net. Elvar Geir og Tómas ræddu við sérfræðing þáttarins, Kristján Atla Ragnarsson, um þriðja fjórðung ensku úrvalsdeildarinnar og...

Heimavöllurinn - Algarve og yngri landsliðin 02.03.2019

Þær Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir og Guðrún Jóna Kristjánsdóttir eru gestir Heimavallarins í dag og ræða við Mist Rúnarsdóttur um landsliðin okkar og þau verkefni sem eru í gangi um þessar mundir.

Innkastið - Liverpool svarar gagnrýni með markaflóði 27.02.2019

Sex efstu lið ensku úrvalsdeildarinnar voru öll í eldlínunni í kvöld í 28. umferð. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fóru yfir umferðina í Evrópu-Innkastinu. Meðal efnis: Margir áttu stórleik hjá Liverpool, sterkur sigur hjá City, sem betur fer fyrir Sarri vann hann,...

Miðjan - Óvæntir spádómar og þrumustuð í Championship 27.02.2019

Ástríðan er við völd í ensku Championship deildinni en fjölmargir Íslendingar hafa taugar til félaga sem spila í þessari stórskemmtilegu deild.

Innkastið - Stórleikirnir og besta miðja sögunnar 24.02.2019

Það var nóg um að vera í Innkasti dagsins hjá þeim Elvari Geir og Daníel Geir. Stóru liðin voru í brennidepli en til gamans má geta að leikir þeirra allra eru sýndir hjá samstarfsaðila Innkastsins, Ölveri í Glæsibæ.

Hlustaðu á afmælisþáttinn - Gulli Gull gestur 23.02.2019

Elvar Geir og Tómas Þór héldu upp á tíu ára afmæli útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 í dag. Farið var yfir sögu þáttarins og einnig hitað upp fyrir Pepsi Max-deildina og farið yfir tíu leikmenn sem þáttastjórnendur eru virkilega spenntir fyrir að sjá í deildinni í sumar. Gestur var Gunnleifur Gunnleifsson sem var einlægur og skemmtilegur.

Hitað upp fyrir stórleik Man Utd og Liverpool 23.02.2019

Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur útvarpsþáttarins Fótbolta.net um Liverpool, var á línunni í þættinum í dag þegar hitað var upp fyrir stórleik Manchester United og Liverpool. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu við Kristján.

Miðjan - Baráttan við matarfíkn 20.02.2019

Lára Kristín Pedersen, leikmaður Þórs/KA, hefur undanfarin ár verið einn besti miðjumaðurinn í Pepsi-deild kvenna. Hin 24 ára gamla Lára hefur tvíveigs orðið íslandsmeistari og tvívegis bikarmeistari með Stjörrnunni á ferli sínum. Lára hefur á sama tíma glímt við matarfíkn og meðal annars misst af landsleik og Evrópuleik af þeim sökum. Í miðju dagsins ræðir Lára meðal annars um matarfíknina, hvern...

Innkastið - Blóraböggull skein skært á Anfield 19.02.2019

Þrátt fyrir markaleysi í Meistaradeildinni í kvöld var slatti af fjöri og útlit fyrir spennandi og skemmtilegan seinni leik milli Bayern München og Liverpool. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz tóku upp nýtt Evrópu-Innkast eftir leiki kvöldsins. Í þættinum var meðal annars rætt um blóraböggla í boltanum, stöðu Sarri, könnun um hvort Solskjær eða Pochettino yrði betri ráðning, óvinsælustu k...

Blikar hrannast til útlanda - Hvað verður gert í Kópavogi? 16.02.2019

Úr útvarpsþættinum á X977. Eysteinn Lárusson, framkvæmdastjóri hjá Breiðabliki, mætti í þáttinn. Í vikunni seldu Blikar tvo lykilmenn út í atvinnumennsku en alveg ótrúlegt magn af ungum leikmönnum félagsins hefur haldið út fyrir landsteinana. Breiðablik hafnaði í 2. sæti Pepsi-deildarinnar í fyrra. Hvernig ætlar félagið að fylla í skörðin? Eysteinn svaraði því og sagði frá umhverfinu sem Breiðabli...

Bjarni Ólafur og Vals draumaliðið 16.02.2019

Bjarni Ólafur Eiríksson var tekinn inn í úrvalslið áratugarins í efstu deild í útvarpsþættinum Fótbolti.net. Liðið er valið í tilefni tíu ára afmælis þáttarins. Bjarni kom í heimsókn í þáttinn og sagði meðal annars frá &...

Boltapólitíkin - Margt gott en líka eitthvað slæmt á ársþingi 16.02.2019

Þórir Hákonarson hjá ÍTF er sérfræðingur útvarpsþáttarins Fótbolti.net í fótboltapólitíkinni. Hann mætti í þáttinn og gerði upp ársþing KSÍ. Hann telur að fótboltahreyfingin þurfi að íhuga með hvaða hætti formannsslagurinn var og segir að Ceferin málinu sé ekki lokið. Hann segir að ársþingið hafi skilið eftir sig margt jákvætt en þó séu einni neikvæðir punktar. Rætt var um með hvaða hætti nýr vara...

Heimavöllurinn: Vetrarmótin og fleira með góðum gesti 15.02.2019

Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir þáttastýrur Heimavallarins taka stöðuna á boltanum ásamt Báru Kristbjörgu Rúnarsdóttur, þjálfara og fyrrum leikmanns, í nýjasta þætti Heimavallarins.

Miðjan - Gulli Jóns opnar sig um sjúkdóm sinn 14.02.2019

Gunnlaugur Jónsson er gestur Hafliða Breiðfjörð í aukaþætti af Miðjunni á Fótbolta.net í dag.

Innkastið - Hæðir og hægðir í Evrópuboltanum 14.02.2019

Elvar og Daníel eru mættir með Evrópu-Innkast vikunnar. Það er Ölver í Glæsibæ sem býður upp á Innkastið. Meistaradeildin var plássfrek í þættinum en ungar stjörnur skinu skært. Mögnuð úrslit hjá Tottenham og franskir yfirburðir á Old Trafford. Stjörnuframmistaða Angel Di Maria, hörmungarframmistaða Alexis Sanchez og fleira. Er Mbappe kominn að hlið Ronaldo og Messi? Einnig var rætt um ferð til Br...

Luister naar de podcast Fotbolti.net in Replaio

Radio en podcasts in één app - gratis en zonder account. Installeer vandaag nog en mis de lancering niet

Download het op Google Play

Replaio is geen uitgever van podcasts; namen van shows, covers en audio zijn eigendom van hun makers en worden verspreid via openbare RSS-feeds