RÚV
Heimskviður
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Husk å besøke podkastens nettsted og støtte skaperen: www.ruv.is
Hvor kan du lytte?
Podkaster i appen Replaio Radio Kommer snartPodkaster kommer snart til appen. Installer nå, og bli den første som ser en helt ny tilnærming til podkaster
Episoder
170 - Palestínuflóttamannahjálpin, skotárás í Serbíu og örlög Duffy 03.02.2024 44:16
Það er talið að um tvær milljónir íbúa á Gasa reiði sig á UNRWA, Palestínuflóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna. Það eru hátt í níutíu prósent þeirra sem þar búa. En nú er óvissa með fjármögnum samtakanna, eftir að fram komu ásakanir um að nokkrir starfsmenn þeirra hefði tekið þátt í árás Hamas á Ísrael í haust. Bjarni Pétur Jónsson fjallar um málið. Í vikunni hófust réttarhöld yfir foreldrum drengs...
169 - Íþróttaþvætti Sádi Araba og kosningaeftirlit ÖSE 27.01.2024 41:13
Yfirvöld í einræðisríkinu Sádi-Arabíu eru sökuð um íþróttaþvætti (sportswashing á ensku) með því að setja fjármuni í íþróttir víða um heim til að bæta ímynd sína. Þetta hefur víða heppnast vel frá þeirra sjónarhóli. Eitt dæmi um þetta er að síðasta sumar komu margir af bestu knattspyrnumönnum heims í lið í sádiarabísku deildinni gegn himinháum launum. Sú tilraun virðist ekki ganga vel og farið er...
168 - Saga Húta og Jemen og staða grænlenskunnar 20.01.2024 40:00
Árásir Húta á Rauðahafi og árásir Bandaríkjamanna og Breta á Húta á móti hafa verið talsvert í fréttum það sem af er þessu ári og enginn friður í augsýn þar frekar en annars staðar í þessum heimshluta núna. Tilgangur þeirra árása, að sögn Húta er að hamla hefbundnum vöruflutningum til Ísraels þar til íbúum Gaza verði tryggðar alllar nauðsynjar á borð við mat, drykk og lyf. Hútar nota þessar aðferð...
167| Hvað er framundan árið 2024? 16.12.2023 40:00
Í þessum síðasta þætti ársins 2023 horfa Heimskviður til framtíðar, nánar tiltekið til ársins 2024 sem er handan við hornið. Við förum yfir sviðið með góðkunningjum þáttarins, Birni Malmquist, Dagnýju Huldu Erlendsdóttur, Hallgrími Indriðasyni, Oddi Þórðarsyni og Ólöfu Ragnarsdóttur og skoðum flestar heimsálfurnar. Hvernig þróast átökin sem geisa í heiminum og hvaða áhrif hafa þau utan átakasvæða?...
166| Samningaborðið á COP28 og Úkraínumenn breyta jólunum 09.12.2023 40:00
Heimskviður hefja leika í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, í Dubai þar sem COP28 stendur nú sem hæst. Og hún á að verða ráðstefna aðgerða, svo að þau markmið sem sett hafa verið í loftslagsmálum síðustu ár náist. En er það yfir höfuð hægt? Erum við ef til vill orðin of sein að grípa í taumana? Þau sem eru við samningaborðið í Dubai telja að svo sé ekki. Og eru reyndar mörg hver á því að lokasamþy...
165| Framtíð Kristjaníu og forsetakosningar í Bandaríkjunum 02.12.2023 40:00
Ein helsta sérstaða fríríkisins Kristjaníu í Kaupmannahöfn er gatan Pusherstræti, þar sem lengi fór fram sala á hassi fyrir opnum tjöldum án verulegra afskipta yfirvalda. Undanfarin ár hafa yfirvöld haft sífellt meiri afskipti af Pusherstræti og nú bendir allt til þess að þessi kannbissala hætti alfarið. Hallgrímur Indriðason skoðar hvað skýrir þessa breytingu og hvaða áhrif hún hefur á þróun og t...
164| Undirheimastríð í Svíþjóð og það besta og versta á Indlandi. 25.11.2023 43:04
Svíar vonast til að glæpahrina haustsins sé á enda. Dregið hefur úr skot- og sprengjuárásum nærri sænsku höfuðborginni frá því mest var í september og október. Aðferðir glæpagengjanna sænsku og árásir eru óvenju hrottalegar. Börn og ungmenni eru fengin til að fremja voðaverkin og æðstu kónarnir hundelta hver annan um alla Evrópu eins og í mafíumyndum eða glæpasögum frá Hollywood. Sænsk yfirvöld ei...
163| Stjórnarkreppa á Spáni og sextugar samsæriskenningar 18.11.2023 40:00
Stjórnarkreppan sem hefur verið á Spáni síðan í júlí leystist á fimmtudaginn þegar 179 þingmenn á spænska þinginu greiddu atkvæði með tillögu Pedros Sanchez, leiðtoga sósíalista, um meirihlutastjórn. Sanchez er þannig búinn að púsla saman átta flokka meirihluta og verður áfram forsætisráðherra Spánar - eftir umdeilt samkomulag við flokka aðskilnaðarsinna í Katalóníu. Það samkomulag snýst meðal ann...
162| Kynferðisofbeldi innan kaþólsku kirkjunnar og körfuboltastjarna 11.11.2023 40:00
Fyrir fáeinum dögum loguðu fjölmiðlar á Spáni, vegna skýrslu sem leiddi í ljós umfang kynferðisbrota kaþólsku kirkjunnar þar í landi. Þolendur kirkjunnar manna frá því um miðbik síðustu aldra skipta hundruðum þúsunda. Kaþólska kirkjan hefur um áratugaskeið varist ásökunum um að hafa leyft ofbeldinu að þrífast innan veggja hennar, jafnvel þótt stöðugt væri kvartað. Hagur gerendanna, var nær alltaf...
161| Stórstjarnan Taylor Swift og nýafstaðið Norðurlandaráðsþing 04.11.2023 46:55
Sama hvort fylgst er með fréttum af menningu, viðskiptum eða öðru, nafn Taylor Swift kemur mjög víða við. Heimskviður gera hér tilraun til að kortleggja þessar um margt ótrúlegu fréttir af velgengni hennar og vinsældum. Það duga ekkert minna en þrír viðmælendur til að hjálpa til við að meta áhrif og stöðu stórstjörnunnar. Sérfræðingarnir í líkja henni við Lionel Messi eða við rúllandi snjóbolta se...
160| Stórveldið Kína og meint þjóðarmorð á Grænlandi 28.10.2023 42:26
Kína er að verða öflugasta heimsveldið og átök þeirra við Bandaríkin um völd eiga sér margar birtingarmyndir, stríðsátökin á Gaza og spennan þar í kring gæti hæglega verið ein þeirra. Margir óttast líka sókn Kínverja á Norðurslóðum, sérstaklega Bandaríkjamenn. Við ræðum þær ógnir við Lisu Murkowski, öldungadeildarþingmann frá Alaska, og skoðum fleiri birtingarmyndir átaka Bandaríkjanna og Kína með...
159| Landamæri og kosningar í Póllandi og söguslóðir bardaga í Belgíu 21.10.2023 41:11
Meðferð flóttafólks á landamærum Póllands og Belarús er eins og andstyggilegur borðtennisleikur, segir aðgerðarsinni sem hefur veitt mannúðaraðstoð á svæðinu. Við ætlum að fjalla um þetta ástand og nýafstaðnar kosningar í Póllandi sem fara líklega í sögubækurnar, ekki síst fyrir metkosningaþátttöku. Ólöf Ragnarsdóttir fór til Varsjár síðustu helgi og segir okkur frá. Stjórnvöld í velflestum ríkjum...
158| Áratuga átök Ísraels og Palestínu 14.10.2023 40:00
Heimskviður í dag verða helgaðar stríðsátökunum í Ísrael og Palestínu. Við ætlum að fara yfir atburðarás síðastliðinnar viku, alveg frá árásinni hrottafengnu á Ísrael að morgni laugardagsins síðasta, stríðsyfirlýsingu Ísraelsmanna og blóðbaðið sem fylgdi á Gaza. Við heyrum sögur fólks sem hefur orðið fyrir árásum, unnið á vígvellinum, þá sem hafa misst ættingja og vini og þá sem sérhæfa sig í að r...
157| Blaðamenn í hættu á afmæli Pútíns og áhrif verkfalla í Hollywood 07.10.2023 40:00
Eftir innrásina í Úkraínu hefur verið hert enn frekar að fjölmiðlafrelsi í Rússlandi og í sérstakri hættu eru þeir sem fjalla um hernað Rússlandshers í Úkraínu. Allir stærstu sjálfstætt starfandi fjölmiðlarnir hafa flutt starfsemi sína úr landi. Dagný Hulda ræddi við rússnesku fréttakonuna Sofiu Rusova, sem einnig er formaður stéttarfélags blaðamanna og starfsmanna fjölmiðla. Hún leiðir okkur í al...
156| Kjördagur í Slóvakíu og mistök lögreglu við leit að raðmorðingja 30.09.2023 40:00
Af öllum þeim kosningum sem fara fram í Evrópu í ár - og þær eru þó nokkrar - eru kosningarnar í Slóvakíu í dag með þeim áhugaverðustu. Skoðanakannanir benda til þess að fyrrverandi forsætisráðherra landsins, Robert Fico sem hrökklaðist úr embætti fyrir fimm árum, geti núna komist aftur til valda, og jafnvel tekið með sér öfgahægriflokka í samsteypustjórn. Í kosningabaráttunni hefur Fico ítrekað t...
155| Líf í geimnum og ólíft á ferðamannastöðum 23.09.2023 40:31
Við reynum að svara erfiðum spurningum í Heimskviðum í dag, um líf á öðrum hnöttum og hvers vegna við hópumst öll á sömu örfáu ferðamannastaðina. Geimrannsóknarstofnun Bandaríkjanna - NASA - vill breyta umræðu um fljúgandi furðuhluti og færa á hærra plan. Nær vísindum og frá æsingu og samsæriskenningum. Og liður í því er einmitt að hætta að kalla þessi óþekktu fyrirbæri fljúgandi furðuhluti. NASA...
154| Náttúruhamfarir í Afríku, kosningar í Póllandi og Novo Nordisk 16.09.2023 40:00
Í Heimskviðum í dag förum við víða eins og venjulega, náttúruhamfarir í Afríku, pólitík í Póllandi og fjöllum svo um verðmætasta fyrirtæki Evrópu. Íbúar Norður-Afríku máttu þola tvenns konar náttúruhamfarir á þremur dögum um síðustu helgi. Mikið manntjón varð eftir jarðskjálfta í Marokkó og flóð í Líbíu og íbúar kvarta undan því að neyðaraðstoð berist ekki nógu hratt. Bjarni Pétur ræddi við Jóhann...
153| Heimsreisa án flugvéla og tíð valdarán í Afríku 09.09.2023 42:57
?Yfir 13 þúsund manns hafa hjólað Tour de France. Fleiri en sex þúsund sem hafa komist á tind Everest. Yfir 550 hafa komist út í geim. En það innan við 300 manns hafa heimsótt öll lönd heimsins. Þau eru fjögur sem hafa heimsótt öll lönd í heiminum tvisvar. Tveir hafa komið til allra landa í heiminum í einni og sömu ferðinni, það er án þess að fara heim á milli. Daninn Torbjørn Pedersen er annar þe...
152| Uppgjör við fortíðina í Chile og óspennandi kosningar í Rússlandi 02.09.2023 40:00
Líkt og fjallað hefur verið töluvert um í fréttum verða forsetakosningar í Bandaríkjunum eftir rúmt ár. Bandaríkin eru þó ekki eina stórveldið sem heldur slíkar kosningar á næsta ári því að í mars verða forsetakosningar í Rússlandi. Það er óhætt að segja að það ríki ekki mikil spenna varðandi það hver hljóti flest atkvæði í Rússlandi. Það eru ekki aðeins við fréttamenn sem fylgjumst spennt með því...
151| Áhrif kjarnorkusprengjunnar og arfleifð Megan Rapinoe 26.08.2023 40:00
Bíóaðsókn fór fram úr björtustu vonum í sumar þegar fólk víða um heim flykktist í kvikmyndahús til að sjá bæði Barbie, sem við heyrðum í áðan og svo myndina um ævi og uppfinningar Oppenheimers, föður kjarnorkusprengjunnar. Myndin hverfist um eðlisfræðinginn J. Robert Oppenheimer, sem fór fyrir Manhattan-verkefni Bandaríkjastjórnar. Myndinni verður ekki spillt þó að hér sé sagt, að ætlunarverkið tó...
Argentína og Óperudraugurinn 19.08.2023 42:01
Fjallað um stjórnmálaástandið í Argentínu og síðustu sýningar söngleiksins Óperudraugsins (Phanton of the Opera) á Broadway.
150 | Mansal og söngleikir 03.06.2023 40:00
Mansal og söngleikir eiga fátt ef nokkuð sameiginlegt, kannski annað en það en að vera umfjöllunarefni þáttarins í dag. Evrópulögreglan, Europol, greindi frá því í fyrradag að rúmlega 200 hafi verið handtekin í aðgerð gegn skipulögðum glæpahópum sem tengjast mansali. Um 13 þúsund lögreglumenn leituðu í fjörutíu og fjórum löndum, í íbúðarhúsum, lestarstöðvum, flugvöllum og víðar. Rúmlega 14 hundruð...
149 |Skuldaþakið og barneignir 27.05.2023 40:00
Stífar samningaviðræður um hækkun skuldaþaksins í Bandaríkjunum hafa staðið yfir undanfarið. Oddur Þórðarson rýndi í þetta fyrirbæri, hvað er skuldaþak og til hvers er það? Og hvers vegna er settur á svið samkvæmisleikur og samningaviðræður þegar kemur að nauðsynlegri hækkun skuldaþaksins. Fólk í dag eignast töluvert færi börn nú en fyrir 50 árum. Fæðingartíðnin í löndum OECD er nú komin niður fyr...
148 |Gjaldþrot VICE og hryllingurinn í Shakahola skógi 20.05.2023 40:00
Fjölmiðlahrun í Ameríku og fjöldamorð í Afríku eru á dagskrá í Heimskviðuþætti vikunnar. Bandarísk/kanadíska fjölmiðlafyrirtækið Vice Media er gjaldþrota og söluferlið er hafið. Þótt Vice hafi upp á síðkastið verið virt vörumerki í fréttaheiminum, fyrir sína beinskeittu vettvangsblaðamennsku kemur gjaldþrotið ekki alveg á óvart. Fyrirtækið hefur í nokkurn tíma barist í bökkum í breyttu landslagi s...
147|Úkraínska moldin og argentínska silfrið 13.05.2023 39:00
Við komum við í Úkraínu og Argentínu í Heimskviðum þessa vikuna. Innrás Rússa hefur ekki aðeins lagt líf fólks í rúst, heldur líka náttúruna og auk allra morðanna sem Rússar eru sakaðir um eru þeir einnig sakaðir um vistmorð. Alveg eins og það er óljóst hvort fólkið í Úkraínu eigi nokkurn tíma eftir að jafna sig eftir voðaverk Rússa, þá gildir það sama um náttúruna. Vegna sprengjubrota, sprengjugí...
Lignende podkaster
Replaio er ikke podkastutgiver; programnavn, omslag og lyd tilhører opphavspersonene og distribueres via offentlige RSS-feeder.