RÚV
Heimskviður
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Husk å besøke podkastens nettsted og støtte skaperen: www.ruv.is
Hvor kan du lytte?
Podkaster i appen Replaio Radio Kommer snartPodkaster kommer snart til appen. Installer nå, og bli den første som ser en helt ny tilnærming til podkaster
Episoder
146|Kosningar í Póllandi og Ólympíuleikar í París 06.05.2023 40:00
Við byrjum þáttinn í Póllandi, þar sem þingkosningar verða haldnar í haust, kosningar sem gætu verið afdrifaríkar. Stærsti stjórnmálaflokkurinn, sem á pólsku kallast Lög og réttlæti, hefur ráðið lögum og lofum í Póllandi undanfarin átta ár en togstreita innan flokksins, og gagnvart smærri samstarfsflokkum á hægri vængnum, hefur að vissu leyti veikt stöðu pólsku ríkisstjórnarinnar. Stjórnarandstaða...
145| Borgarastríð og misskilinn Dalai Lama 29.04.2023 40:00
Í þættinum í dag eru umfjöllunarefnin tvö, annars vegar borgarastyrjaldir og hins vegar meintur misskilningur á hvað átti sér stað þegar trúarleiðtoginn Dalai Lama bað ungan dreng að sjúga á sér tunguna á dögunum. Nokkur óeining hefur ríkt síðustu misseri um framtíðarstjórnskipan eins stærsta og fjölmennasta ríkis Afríku, Súdan. Súdanar eru því vanir, enda eru valdarán og stríðsátök reglulegir við...
144| Flóttamannavandi Ítala og ofbeldi í kvennafangelsum Bandaríkjanna 22.04.2023 40:00
Flóttamannastraumurinn frá Norður-Afríku, yfir Miðjarðarhafið og til Ítalíu hefur fjórfaldast síðan í fyrra og kostað gífurlegan fjölda mannslífa. Orsakar straumsins er að leita í verra ástandi í þessum löndum, einkum Túnis. Og þetta allt saman veldur miklum vandræðum á Ítalíu. Stjórnvöld þar, sem hafa á stefnuskránni að draga úr þessum flóttamannastraumi, hafa lýst yfir neyðarástandi og segjast e...
143| Gagnaleki og Biden á Írlandi og sambúð Moldóvu og Rússlands 15.04.2023 40:00
Fjögurra daga heimsókn Joe Bidens bandaríkjaforseta til Írlands og Norður-Írlands lauk í gær en afar óvenjulegt er að bandaríkjaforsetar staldri svo lengi við í opinberum erindagjörðum. Biden hefur svo gott sem staðfest að hann ætli að berjast fyrir endurkjöri eftir rúmt ár og tímasetning heimsóknarinnar heppileg til að afla vinsælda í kosningabaráttunni, en friðarsamkomulagið á Írlandi, sem banda...
142| Bankar í vandræðum og spennandi kosningar í Finnlandi 01.04.2023 40:00
Það kerfishrun, sem varð á alþjóðlegum fjármálamörkuðum haustið 2008, er með því stærsta orðið hefur síðastliðna öld. Hrun bankakerfisins hér á landi í framhaldinu er síðan einn afdrifaríkasti atburður í Íslandssögunni. Það hefur löngum verið deilt um áhrif erlendis frá, á þá atburðarás sem leiddi til hruns íslenskra banka 2008, og þá hversu mikil þau voru. Það verður hins vegar ekki um það deilt...
141| Uppgangur Kína og framtíðarborg byggð á sandi 25.03.2023 40:00
Xi Jinping varð nýlega sá fyrsti í áratugi til að vera kjörinn forseti Kína þriðja kjörtímabilið í röð. Stefna hans í utanríkismálum hefur verið að berjast gegn því sem hann hefur talið vera viðleitni Bandaríkjamanna til að halda aftur af Kína. Og til að einangrast ekki frá Vesturlöndum er mikilvægt fyrir Kína að vera í tengslum við Rússland. Kínverjar hafa reynt að tala fyrir friði í Úkraínu en l...
140| Ferðasögur frá Úkraínu 18.03.2023 40:00
Við helgum þáttinn Úkraínu og stríðsátökunum rúmu ári eftir að Rússar réðust þar inn. Jón Björgvinsson fréttamaður hefur dvalið þar mánuðum saman á þessu ári. Hann er nýkominn frá Lviv í vesturhlutanum og segir að þar sé að verða til einhvers konar stríðstúrismi, þar sem kaffibollar í úkraínsku fánalitunum og skeinipappír með myndum af Pútín rússlandsforseta selst eins og heitar lummur, og söluágó...
139| Konurnar og ISIS liðarnir og háleynilegur hálsmenafundur 11.03.2023 44:00
Hvernig má það vera að samtök sem eru einna helst þekkt fyrir hrottalegt ofbeldi, hryðjuverk og illa meðferð á konum heilli konur sem búa á Vesturlöndum? Hryðjuverkasamtökin sem kenna sig við íslamskt ríki, hið alræmda ISIS, lokkuðu til sín metfjölda kvenna frá vestrænum ríkjum - miðað við sambærilega hópa. En hvaða konur voru þetta? Voru þetta upp til hópa ungar áhrifagjarnar konur sem létu gelpj...
138| Kosningar í Nígeríu og umsvif Rússa í Afríku 04.03.2023 40:00
Nígeríumenn fá líklega ekki þær breytingar og endurnýjun sem svo margir höfðu kallað eftir. Bola Tinubu var sigurvegari kosninganna þar í vikunni, en hann er úr sama flokki og Buhari fráfarandi forseti. Tinubu hefur verið lengi í stjórnmálum og slagorð hans í kosningabaráttunni var - nú er komið að mér. Átti að vera tákn mikilla breytinga en það er mjög ólíklegt að af þeim verði. Nígería er eitt f...
137| Plastmengun á Norðurslóðum og málsókn Nígeríumanna gegn Shell 25.02.2023 40:00
Þó plastmengun í hafi sé heldur lítil á Norðurslóðum miðað við til dæmis Miðjarðarhafið þá er hún að aukast. Og hvaðan kemur þessi plastmengun á svæðinu sem sárafáir búa á? Það er mikið til úr sjávarútveginum, en sömuleiðis áhrif frá okkur, til dæmis úr dekkjakurli og í plastþráðum úr útivistarfatnaði sem losna úr þeim við þvott og komast þannig út í umhverfið. Hallgrímur Indriðason var á ráðstefn...
136| Stjórnmálakonur hætta og framtíð eyríkis í sýndarveruleika 18.02.2023 40:00
Þemaþættir Heimskviða halda áfram og að þessu sinni er sjónum beint að svæði sem er hinum megin á jarðkringlunni, Nýja Sjálandi og eyríkinu Tuvalu. Stjórnmálakonur sem hafa notið mikillar hylli alþjóðlega hverfa nú á braut ein af annarri, og segja álagið og atganginn sem fylgi nútímastjórnmálum helstu ástæðuna. Við ætlum að rýna í stöðu kvenleiðtoga og ástæður þess að aðeins tíu prósent þjóðarleið...
135 | Sprenging í Líbanon og jarðskjálftar í Tyrklandi og Sýrlandi 11.02.2023 40:00
Í næstu þáttum ætlum við að einbeita okkur að ákveðnum svæðum á kortinu, hafa eins konar þemu, sem eru annað hvort landfræðileg eða hugmyndafræðileg. Þetta er fyrsti Þema-þáttur Heimskviða og við færum okkur suðaustur á bóginn. Til miðausturlanda, þar sem óútreiknanleg plánetan sýndi ógurlega krafta sína í byrjun vikunnar, með skelfilegum afleiðingum. Við förum til Tyrklands, Sýrlands, Sádí Arabíu...
134 | Erdogan í kosningaslag og saga LEGO 04.02.2023 40:00
Erdogan Tyrklandsforseti ætlar sér að ná aftur kjöri í kosningum í maí, en stjórnarandstaðan hefur enn ekki komið sér saman um frambjóðanda gegn honum. Erdogan hefur verið forseti síðan 2014, var áður forsætisráðherra í ellefu ár, og þar áður borgarstjóri í Istanbúl, Arftaki hans þar, gæti orðið hans helsti keppinautur í kosningunum í maí. Flokkur hans hefur dalað í skoðanakönnunum en Erdogan er s...
133 | Mótmæli í Perú og sívaxandi spenna Armeníu og Aserbaísjan 28.01.2023 40:00
Það hefur verið glundroði í stjórnmálunum í Perú undanfarin ár. Spilling hefur verið landlæg og mótmæli tíð. Eftir misheppnaða tilraun forseta til að leysa upp þingið í desember, og brottrekstur þessa sama forseta í kjölfarið, hefur hins vegar soðið upp úr. Fjölmenn mótmæli hafa verið barin niður af hörku og á fimmtug tug hefur látið lífið. Ástæðu þessara átaka má hins vegar rekja áratugi og jafnv...
131| Dauðarefsingar og harðlínustjórn í Ísrael 14.01.2023 41:56
Bann við palestínska fánanum á almannafæri, fleiri landtökubyggðir á landsvæði Palestínumanna og umdeild yfirhalning á dómskerfinu eru á meðal þess sem ný ríkisstjórn í Ísrael hefur boðað. Benjamín Netanjahú er snúinn aftur sem forsætisráðherra í ríkisstjórn sem er sögð mesta harðlínustjórn í sögu Ísraels. Ólöf Ragnarsdóttir ræddi við Magnús Þorkel Bernharðsson, prófessor í sögu Miðausturlanda, um...
129| Heimskviður ársins 2022 17.12.2022 40:00
Í þessum síðasta Heimskviðu-þætti ársins rifjum við upp allt það helsta sem gerðist úti í heimi á árinu sem senn er á enda. Umsjónarmenn þáttarins eru Birta Björnsdóttir, Bjarni Pétur Jónsson og Sunna Valgerðardóttir.
127| Fjölmiðlakeisarinn Murdoch og milliríkjadeila um númeraplötur 03.12.2022 43:13
Donald Trump ætlar að reyna að verða aftur forseti Bandaríkjanna. Hann tilkynnti þetta með pompi og prakt á heimilinu sínu í Florida, Mar-O-Lago, um miðjan síðasta mánuð. Marolago er muniði sama hús og alríkislögreglan réðst inn í á dögunum og tók fullt af skjölum sem Trump hafði tekið heldur ófrjálsri hendi í forsetatíð sinni. En, það sem vakti ekki síður athygli þegar Trump lét vita af áformum s...
126| Jarðsprengjur í Úkraínu, kókaínfjall í Evrópu og ofbeldi í Afríku 26.11.2022 40:00
Rússar eru sagðir hafa breytt kornökrum víða um Úkraínu í jarðsprengjuakra. Talið er að svæði sem er jafnstórt og rúmlega eitt og hálft Ísland sé þakið þessum skaðræðisvopnum. Sérfræðingur segir að það eigi eftir að taka tuttugu ár að hreinsa jarðveginn. Dagný Hulda Erlendsdóttir fjallar um málið og ræðir meðal annars við Alistair Moir sem hefur yfir tíu ára reynslu af umsjón með sprengjuleit, svo...
125| Heimsmeistaramótið í Katar 19.11.2022 40:00
Það hefur líklega ekki farið fram hjá nokkrum einsta manni að heimsmeistaramótið í knattspyrnu hefst á morgun. Þátturinn í dag verður helgaður Katar og mótinu sem þau halda. Jón Björgvinsson fer með okkur til Katar, þessarar 300 þúsund manna þjóðar í harðbýlu en vellauðugu landi. Þá segir Arnar Björnsson okkur frá upplifun sinni af Katar og hvaða veruleika leikmennirnir standa frammi fyrir, að tak...
124| Framtíðarhorfur í loftslagsmálum og kosningar í Bandaríkjunum 12.11.2022 40:00
27. loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna er yfirstandandi en henni lýkur í lok næstu viku. Og þar fer eins og venjulega mikið fyrir háleitum markmiðum um að draga úr losun og aðgerðir kynntar til að svo verði en þetta skilar sér ekki. Losun er enn að aukast og hefur aukist frá því Parísarsamkomulagið var samþykkt 2015. En er fólk að missa trú á þessi markmið náist? Bjarni Pétur Jónsson ræddi við...
123| Mannskæður troðningur í Seúl og kosningar í Danmörku 05.11.2022 40:00
Meira en 150 manns, lang mest ungt fólk, krömdust til dauða í miðborg Seúl, höfuðborgar Suður Kóreu, um síðustu helgi. Fólkið var að fagna hrekkjavökunni, höfðu klætt sig upp í búninga að því tilefni og planið var að vera þar sem stuðið var mest. Itaewon hverfið í Seúl er lifandi djammsuðupottur, stútfullt af börum, skemmtistöðum og veitingastöðum - þar eru líka þröngar og sjarmerandi götur eins....
122| Lobbíistar, pólitík og Kanye West 29.10.2022 41:24
Í Svíþjóð hafa nokkrir fyrrverandi stjórnmálmenn og áhrifamenn í stjórnmálum hagnast gríðarlega undanfarin ár, með því að staðsetja sig á mörkum stjórnmála og atvinnulífs. Sumir hafa grætt á einkavæðingu sem þeir stóðu sjálfir að. Aðrir hafa farið að starfa sem lobbýistar nær strax og þeir hættu í stjórnmálum. Óljós mörk stjórnmálaþátttöku, hagsmunagæslu og fyrirtækjareksturs hafa verið gagnrýnd í...
116 | Bill Browder og Elísabet Englandsdrottning 17.09.2022 37:37
Það eru næstum sjö mánuðir liðnir síðan Rússar réðust inn í Úkraínu og það eru allskonar afleiðingar að koma betur og betur í ljós. Orkukreppan og verðbólgan í mörgum ríkjum Evrópu er til dæmis bein og óbein afleiðing af þessum átökum, orkukreppan vegna þeirra viðskiptaþvingana og refsiaðgerða sem Evrópusambandið og önnur vestræn ríki, Ísland þar með talið, hafa sett, bæði á stjórnvöld í Rússlandi...
115 | Kosningar í Svíþjóð og sambúðin við Rússa. 10.09.2022 40:00
Það verður gengið til kosninga í Svíþjóð á morgun. Afar mjótt verður á mununum ef marka má skoðanakannanir. Kosið er í þremur kosningum í einu - þingkosningum, sveitarstjórnarkosningum og kosningum til héraðsstjórna. Og því er allt undir - frá heilbrigðis- og menntakerfinu til aðgerða í loftslagsmálum, hvernig stemma eigi stigu við glæpum, afstöðu í utanríkismálum, innflytjendamálum og svo mætti l...
114 | Vígbúnaðarkapphlaup til tunglsins og Kevin Spacey 03.09.2022 40:26
NASA, geimferðastofnun Bandaríkjanna, ætlar síðar í dag að skjóta á loft geimflaug, þeirri lang öflugustu sem smíðuð hefur verið, og þar með má segja að Artemis verkefnið sé komið á fullt en helsta markmið þess er að koma mönnuðu geimfari til tunglsins og síðar til Mars. Tólf karlmenn stigu fæti á tunglið á aðeins tæpum fjórum árum, frá 1969 til 1972. Og nú á að endurtaka leikinn. Eða það átti að...
Lignende podkaster
Replaio er ikke podkastutgiver; programnavn, omslag og lyd tilhører opphavspersonene og distribueres via offentlige RSS-feeder.