Jóhannes Bjarni Guðmundsson
Flugvarpið
Fjallað er um flugmál á Íslandi, viðburði, málefni og áhugavert fólk tekið tali. Jói Baddi hefur langa reynslu sem atvinnuflugmaður og flugkennari og starfaði einnig um tíma við fjölmiðla. Flugvarpið er þannig góður farvegur til að sameina þetta tvennt - flugið og fjölmiðlun.
Husk å besøke podkastens nettsted og støtte skaperen: soundcloud.com
Forfatter
Jóhannes Bjarni Guðmundsson
Kategori
Podkastens nettsted
Siste episode
4. nov 2026
Hvor kan du lytte?
Podkaster i appen Replaio Radio Kommer snartPodkaster kommer snart til appen. Installer nå, og bli den første som ser en helt ny tilnærming til podkaster
Episoder
#176 – ETS viðskiptakerfið í endurskoðun – engin varanleg lausn í hendi en vilji til að framlengja sérlausn fyrir flugið – Kristinn Már Reynisson og Ágúst Elvar Bjarnason 04.11.2026 52:24
ETS viðskiptakerfi ESB með kolefnisheimildir var mikið til umræðu á umhverfisdegi atvinnulífsins fyrir skömmu. Af því tilefni er í þessum þætti rætt við Kristin Má Reynisson lögfræðing hjá Samtökum verslunar- og þjónustu og Ágúst Elvar Bjarnason verkefnisstjóra hjá Samtökum ferðaþjónustunnar, en bæði þessi samtök standa í hagsmunagæslu við enduskoðun á ETS kerfinu og eru að senda umsagnir til Evró...
#175 - Góður Q3 hjá Icelandair en mikill mótbyr í kortunum að óbreyttu – sóknarfæri í einfaldari flugflota til framtíðar – Bogi Nils Bogason 24.10.2026 1:00:48
Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair um stöðu félagsins í tilefni af uppgjöri fyrir þriðja ársfjórðung 2026. Farið er yfir helstu niðurstöðu uppgjörsins og spáð í spilin varðandi næstu mánuði og misseri. Bogi Nils fer líka yfir stöðu kjarasamningaviðræða við flugvirkja, flugmenn og flugfreyjur sem hafa gengið mjög illa og ekki sér fyrir endann á. Hátt eldsneytisverð og minnkandi varn...
#174 – Stýrir rannsóknardeild flugslysa innan ICAO - Eykst að sóst sé eftir aðkomu ICAO vegna milliríkjadeilna og til að tryggja trúverðugleika - Þormóður Þormóðsson 16.10.2026 1:02:04
Í þessum þætti er spjallað við Þormóð Þormóðsson sem stýrir sérstakri rannsóknardeild flugslysa innan Alþjóða flugmálastofnunarinnar ICAO með aðsetur í Montreal þar sem hann hefur búið síðustu 20 árin. Þormóður fer yfir ástæður þess að sérfræðingar frá ICAO eru kallaðir til í rannsóknum flugslysa og segir frá nokrum slíkum tilvikum þar sem hann hefur verið í forsvari. Hann segir það hafa aukist á...
#173 – Skynsemi og öllum landsmönnum til heilla að staðsetja eina þyrlu LHG á Akureyri. – Sigurður Ásgeirsson og Njáll Trausti Friðbertsson 09.10.2026 49:32
Í þættinum er rætt við Sigurð Ásgeirsson flugstjóra hjá Landhelgisgæslu Íslands og Njál Trausta Friðbertsson alþingismann um kosti þess að staðsetja björgunarþyrlu á Akureyri. Tilefnið er að Njáll Trausti hefur ásamt fleiri þingmönnum lagt fram þingsályktun á Alþingi um að dómsmálaráðherra verði falið að hefja uppbyggingu á Akureyrarflugvelli til að þar megi stðasetja eina björgunarþyrlu Landhelgi...
#172 – Skilgreina þarf hlutverk LHG í öryggis- og varnarmálum, en brýnasta verkefnið er að fá fjórðu þyrluna segir forstjórinn í tilefni 100 ára afmælis Landhelgisgæslunnar – Georg Kr. Lárusson 04.10.2026 1:07:16
Landhelgisgæsla Íslands fagnar 100 ára afmæli á þessu ári og af því tilefni er rætt við Georg Kr. Lárusson forstjóra. Farið er yfir afmælisfagnaðinn og rætt um ýmis atriði í langri sögu gæslunnar og einkum þær breytingar sem hafa orðið á þeim rúmlega tveimur áratugum sem Georg hefur setið í stóli forstjóra. Fjallað er um öryggis- og varnarmálin sem forstjórinn segir að falli vel að hlutverki og st...
#171 – „Ekki tapa gleðinni” – Ein af síðustu flugferðum PLAY rifjuð upp þegar 1 ár er liðið frá falli félagsins - Una Gísladóttir og Bjarni Jónsson 30.09.2026 58:37
Rætt er við þau Bjarna Jónsson flugstjóra og Unu Gísladóttur flugmann í tilefni af því að nú er 1 ár liðið frá falli flugfélagsins Play. Þau voru saman í áhöfn á síðasta degi sem félagið starfaði og flugu Airbus vél félagsins frá Keflavík til Dublin að morgni 29. september 2025 þar sem þau fengu fréttirnar um að félagið væri hætt rekstri. Þau segja frá þessum örlagaríka degi, frá vinnunni hjá Play...
#170 - Neytendavernd flugfarþega í Evrópu kostar flugfélögin um 8 milljarða USD á ári – fjallað um GROUNDED ráðstefnu AVILABS um flugraskanir og ferðarof (IROPS) – Sveinn Akerlie 17.09.2026 34:55
Grounded ráðstefnan fór fram í Hörpu í Reykjavík 2.–3. september 2026 og var þetta í þriðja sinn sem hún er haldin á vegum íslenska hugbúnaðarfyrirtækisins AVILABS. Í þættinum er rætt við Svein Akerlie forstjóra AVILABS um efni ráðstefnunnar og einnig eru tveir þátttakendur þau Sherly Lee frá United Airlines og Devon Brown frá WestJet tekin tali. Á Grounded ráðstefnuna mæta sérfræðingar og stjórne...
#169 – Gríðarleg uppbygging hjá RwandaAir í Kigali - 5 A330 vélar í flotann á næstu mánuðum og margföld stækkun flugvallarins – lægri skattar og gjöld laða flugfélög að Möltu - Andri Geir Eyjólfsson 14.09.2026 45:11
Rætt er við Andra Geir Eyjólfsson framkvæmdastjóra flugrekstrarsviðs hjá RwandaAir sem gerir út frá Kigali. Andri Geir hefur víðtæka reynslu úr fluginu og var einn af lykilstjórnendum Play allt þar til yfir lauk haustið 2025 og var í forystu þess að stofna Fly Play á Möltu, sem nú er komið að hluta til í eigu Icelandair. Í þættinum segir Andri Geir frá gríðarlegri uppbyggingu flugtenginga í Kigali...
#168 – Arnarflug 50 ára - Flugfélag með ferskan blæ og einstakan starfsanda – lítilmagni sem lifði lengi við hlið Flugleiða. 03.09.2026 2:14:53
Í þessum þættu er rakin saga Arnarflugs í tilefni af því að á þessu ári eru 50 ár liðin frá stofnun félagsins. Efni þáttarins byggir á samantekt Flugsafns Íslands um Arnarflug, en safnið opnaði sérstaka sýningu tileinkaða félaginu í byrjun sumars í tilefni tímamótanna. Í þættinum er rætt við nokkra fyrrverandi starfsmenn félgsins; flugfreyjurnar Þuríði Sigurðardóttur og Ágústu Halldórsdóttur og ei...
#167 - Eftir litlu að sljægjast fyrir flugið með inngöngu í ESB – rætt um kosti og galla aðildar Íslands að ESB fyrir flugrekstur, ETS málin og vond áhrif af reglugerð innviðaráðherra eftir fall Play - Erlendur Gíslason 26.08.2026 45:47
Í tilefni af þjóðaratkvæðagreiðslu Íslendinga um mögulegar aðildarviðræður að Evrópusambandinu fékk Flugvarpið Erlend Gíslason lögmann í viðtal til að ræða stuttlega um hvaða áhrif innganga í ESB hefði fyrir flugið; þessa stóru grein hérlendis sem þúsundir hafa atvinnu af með beinum og óbeinum hætti. Erlendur er einn eiganda LOGOS og hann hefur um árabil sérhæft sig í flugrétti og fjármögnun flugv...
#166 – Hátíðin Flug&fákar framundan á Egilsstaðaflugvelli – von á tugum flugvéla austur og margs konar græjur til sýnis – mikil tækifæri í að nýta flugvöllinn betur en gert er í dag – Þura Garðarsdóttir 25.07.2026 20:30
Flughátíðin Flug og fákar verður á Egilsstöðum 26. júlí og af því tilefni er rætt við Þuru Garðarsdóttur sem starfar í dag sem flugradíómaður á Egilsstaðaflugvelli og er aðalsprautan í skipulagningu hátíðarinnar. Hún segir að græjumenningin sé rík í Austfirðingum og það verði sannkölluð upplifun fyrir gesti að mæta á hátíðina á Egilsstaðaflugvelli þar sem verði fullt af alls konar græjum til sýnis...
#165 - Forystumaður í grasrót flugsins – hannar og framleiðir Pixweather, nýjar veðurstöðvar sem virka einkar vel fyrir flugið og vill opnari umræðu um flugatvik- og slys til að flugmenn geti lært af þeim – Ágúst Guðmundsson 21.07.2026 1:28:05
Ágúst Guðmundsson er tölvunarfræðingur og flugmaður sem er vel þekktur í grasrót flugsins hér á landi. Hann situr í framkvæmdastjórn alþjóða Flugmálafélagsins (FAI) og hefur á undanförnum áratugum tekið virkan þátt í félagsstörfum hér heima og erlendis. Ágúst er þjálfunar- og tæknistjóri Fisfélags Reykjavíkur sem er fjölmennasti flugklúbbur á Íslandi í dag með um 400 félagsmenn. Félagsstarfið þar...
#164 – Fyrstur á fisflugvél yfir Norðurpólinn – ferðasaga tékkneska fisflugmannsins – nú í fjórða skiptið á fisflugvél til Ísland og stefnir á að heimsækja alla flugvelli landsins - Jiří Pruša 14.07.2026 28:56
Tékkneski fisflugmaðurinn Jiří Pruša flaug yfir Norðurpólinn þann 4. júlí 2026 og var það í fyrsta sinn sem fisflugvél er flogið yfir pólinn og til baka. Jiří er mikill Íslandsvinur og hafði viðkomu hér á landi á leið sinni frá pólnum og heim til Tékklands. Hann segir hér frá ferðalaginu á fisflugvélinni frá Svalbarða til Norðurpólsins, en ferðin krafðist mikils undirbúnings og það tók langan tíma...
#163 – 80 ár frá því að Bretar afhentu Íslendingum Reykjavíkurflugvöll – völlurinn öruggari í sessi nú en áður – samantekt frá viðburði ISAVIA innanlandsflugvalla í tilefni tímamótanna. 12.07.2026 38:19
Þann 6. Júlí 2026 voru liðin 80 ár frá því að Bretar afhentu íslenska ríkinu Reykjavíkurflugvöll með formlegum hætti og af því tilefni efndi ISAVIA innanlands til kaffisamsætis í flugstjórnarmiðstöðinni við Nauthólsveg þar sem tímamótanna var minnst. Í þessum þætti fer samantekt Flugvarpsins á þessum viðburði, viðtöl við nokkra þá sem tóku til máls og við heyrum áhugaverða og sögulega yfirverð Ste...
#162 – Flughátíðin Allt sem flýgur á Hellu – einn af hápunktum flugsumarsins – margir viðburðir víða um land - Edda Ingibjörg Eggertsdóttir og Matthías Sveinbjörnsson 08.07.2026 36:38
Árleg flughátíð Flugmálafélags Íslands verður helgina 10. til 12. júlí n.k. og af því tilefni er spjallað við þau Eddu Ingibjörgu Eggertsdóttur varaforseta og Matthías Sveinbjörnsson forseta Flugmálafélagsins. Rætt er um dagskrá hátíðarinnar í ár og við hverju megi búast ásamt því að spjalla almennt um einkaflugið og stöðu mála í grasrót flugsins á Íslandi. Þau Edda Ingibjörg og Matthías segja lík...
#161 – Þyrluflugið mikilvægur þáttur í ferðaþjónstunni - Sameining HeliAir og Reykjavik Helicopters lofar góðu – Friðgeir Guðjónsson 03.07.2026 37:29
Rætt er við Friðgeir Guðjónsson framkvæmdastjóra sameinaðs þyrlufélags HeliAir Iceland og Reykjavik Helicopters. Farið er yfir aðdragandann að sameiningu félaganna nú í vor og hvernig gengur hjá nýju félagi. Friðgeir segir þyrlubransann engu líkann, þar fái viðskiptavinir stúkusæti til að skoða íslenska náttúru og rík eftirspurn sé eftir því að komast á afskekkta staði þar sem þögnin ríkir. Hann s...
#160 – „Flugið er lífsstíll“ – Stórveldið í Kópavogi með risaþotur um allan heim - Valdir kaflar úr upptöku frá „Live podcast“ viðburði Air Atlanta í tilefni 40 ára afmælis félagsins. 15.06.2026 2:09:33
Það var fjölmenni sem mætti á „live podcast“ viðburð í tilefni af 40 ára afmæli Air Atlanta á þessu ári sem haldinn var í Cafe Atlanta 28. maí 2026. Í þessum þætti er búið að klippa saman viðtalsefni frá kvöldinu en þennan dag var einmitt tilkynnt um viðskipti lykilstjórnenda Atlanta og Atlas flugfélagsins. Atlas kaupir 49% í Atlanta og núverandi stjórnendur Air Atlanta eignast 51%. Í ljósi þessar...
#159 – „Þetta er náttúrulega bara della“ – einstakur ferill í atvinnuflugi í meira en hálfa öld – flaug fyrstu Twin Otter vélinni til Íslands en besta tímabilið var í Þýskalandi – Ómar Ólafsson 03.06.2026 1:51:10
Ómar Ólafsson flugstjóri á að baki langan og stórmerkilegan feril í fluginu. Hann fór í flugnám um miðjan sjöunda áratuginn og hefur sinnt ótrúlega fjölbreyttum störfum á langri starfsævi hjá fjölda flugfélaga. Má þar nefna Flugfélagið Þór í Keflavík, flugþjónustu Björns Pálssonar, Vængi, Arnarflug, Transwede ab í Stokkhólmi, Sudflug GmbH og Condor í Þýskalandi. Að loknum atvinnuflugmannsferli réð...
#158 – ”Live podcast” - Viðburður Icelandair og Flugvarpsins – upptaka frá 7. maí 2026 – Linda Gunnarsdóttir, Snorri Tómasson og Guðbergur Ólafsson 20.05.2026 1:19:58
Upptaka frá ”live podcast” viðburði Icelandair sem haldinn var í samvinnu við Flugvarpið 7. maí 2026. Rætt er við þau Lindu Gunnarsdóttur director chief pilots office, Snorra Tómasson director network and scheduling og Guðberg Ólafsson manager operations control center. Spjallað er um starf þeirra hjá Icelandair og hvernig mismunandi deildir félagsins vinna í sameiningu við að halda tengimiðstöðin...
#157 – Samantekt frá fundi Flugmálafélagsins um Reykjavíkurflugvöll og flugið í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. 16.05.2026 43:30
Flugmálafélag Íslands stóð fyrir fundi um Reykjavíkurflugvöll og flugið í aðdraganda sveitastjórnarkosninga. Fulltrúar allra framboða sem bjóða fram í höfuðborginni mættu, hlustuðu á erindi og greindu frá afstöðu sinni og síns flokks. Þessi þáttur er stutt samantekt frá þessum fundi og samanstendur af inngangsorðum frá Matthíasi Sveinsbjörnssyni forseta Flugmálafélagsins, á eftir honum fer Viðar J...
#156 – Efast um heimildir heilbrigðiseftirlits borgarinnar til að setja hömlur á starfsemi flugvallarins - Rætt um skipulagsmál RKV og KEF og af hverju er Malta vinsæl? – Karl Alvarsson 13.05.2026 1:31:01
Karl Alvarsson er fyrrverandi flugumferðarstjóri og lögfræðingur og hefur unnið ýmis sérfræðistörf tengd fluginu. Hann er í dag formaður Fagráðs um flugmál sem er innviðaráðherra til ráðuneytis í málaflokknum og er þar að auki formaður skipulagsnefndar fyrir Keflavíkurflugvöll. Í þættinum er rætt við Karl um skipulagsmálin, þá einkum í Reykjavík. Karl gagnrýnir að alþjóðaflugvöllurinn í höfuðborgi...
#155 – Flugfreyja, leikkona, leiðsögumaður og uppistandari með ólæknandi ferðabakteríu – „Samskipti við fólk eru mínar ær og kýr“ segir Helga Braga í spjalli um flugfreyjustarfið, leiklistina o.fl. – Helga Braga Jónsdóttir 04.05.2026 1:13:50
Rætt er við Helgu Brögu Jónsdóttur flugfreyju og eina þekkturstu leikkonu landsins. Hún hefur verið í ferðabransanum í um 40 ár, vann um skeið hjá Ferðaskrifstofu Íslands og hóf flugfreyjuferil sinn hjá Iceland Express árið 2011, áður en hún fór til WOW air og síðar Icelandair þar sem hún starfar í dag. Helga Braga segir hér stuttlega frá ýmsu á sínum langa ferli og rifjar upp skemmtileg atvik og...
# 154 - Umhverfisskattar ógna tengimiðstöð flugs um Ísland. ESB vinnur að endurskoðun á ETS kerfinu. Flugvarpið rýnir í skýrslu sem íslensk stjórnvöld sendu til ESB sem innlegg í þessa vinnu og rætt er við Sigurberg Björnsson fulltrúa innviðaráðuneytisins 28.04.2026 1:01:26
Í þættinum er fjallað um ETS viðskiptakerfið og áhrif þess á flugrekstur í Evrópu og ekki síst hér á Íslandi. Rýnt er í skýrslu sem íslensk stjórnvöld sendu í samráðsgátt Evrópusambandsins sem innlegg Íslands í vinnu við endurskoðun á ETS kerfinu. Rætt er við Sigurberg Björnsson fulltrúa innviðaráðuneytisins í Brussel en hann hefur á síðustu árum unnið að því að greina áhrif ETS kerfisins á flug o...
#153 – Sérfræðingur í skipulagningu á viðhaldi flugvéla – er ein fárra kvenna í stétt flugvirkja á Íslandi – Guðrún Hrefna Kolbeinsdóttir 21.04.2026 48:43
Rætt er við Guðrúnu Hrefnu Kolbeinsdóttur flugvirkja hjá Icelandair um hennar starf við skipulagningu á viðhaldi flugvéla sem hún hefur starfað við í á annan áratug. Guðrún Hrefna segir líka frá því hvernig það kom til að hún fór í flugvirkjanámið á sínum tíma til Danmerkur og hvernig hún fann sína fjöl þar þrátt fyrir að hafa aldrei í bernsku haft sérstakan áhuga á að gera við og laga hluti. Guðr...
#152 – AVIANS tekur við af ISAVIA ANS. Ísland í leiðtogahlutverki í flugleiðsöguþjónustu á Norður-Atlantshafinu. Framkvæmdastjórinn segir metnað um að auka sveigjanleika og bæta þjónustuna við flugið. - Kjartan Briem. 17.04.2026 42:11
Rætt er við Kjartan Briem framkvæmdastjóra AVIANS dótturfyrirtækis ISAVIA, en fyrirtækið annast flugleiðsöguþjónustu á íslenska flugstjórnarsvæðinu, sem er eitt hið stærsta í heimi. Kjartan segir frá breytingum sem orðið hafa í tækni og þjónustu á liðnum árum og ræðir þær áskoranir sem blasa við. Unnið er að því að fjölga í hópi flugumferðarstjóra til að tryggja að ekki verði skortur sem komi niðu...
Lignende podkaster
Replaio er ikke podkastutgiver; programnavn, omslag og lyd tilhører opphavspersonene og distribueres via offentlige RSS-feeder.