Podcaststöðin

Tölvuleikjaspjallið

Leisure IS ↓ 296 episodi

Tölvuleikjaspjallið eru vikulegir þættir með almennum umræðum um tölvuleiki og leikjastefnur, umsögnum um leiki auk frétta úr tölvuleikjaheiminum.

Visita il sito del podcast e sostieni chi lo crea: podcasters.spotify.com

Autore

Podcaststöðin

Categoria

Leisure

Sito del podcast

podcasters.spotify.com

Ultimo episodio

7 ott 2026

Dove ascoltare?

I podcast nell'app Replaio Radio In arrivo

I podcast stanno per arrivare nell'app. Installala ora e scopri per primo un modo tutto nuovo di vivere i podcast

Scaricala su Google Play Installala gratis Android quasi 10 mln di download · valutazione 4,8 iOS in arrivo

Episodi

46. Overwatch 24.03.2021

Loksins loksins!  Eftir margra mánaða bið þá er Gunnar byrjaður að spila Overwatch! Við ræddum leikinn aðeins fyrst í viðtalinu okkar við streymarann Jönu Sól, en nú gerum við sér þátt. Hér ræðum við aðeins hvernig Gunnari hefur gengið að byrja og Arnór Steinn kemur með nokkur góð ráð. Þeir fara yfir hetjurnar, game modes og alls kyns gúmmelaði.  Við hlökkum til að fjalla frekar um Overw...

45. Skyrim II 17.03.2021

Hvaða leikur hefur haft mest áhrif á þessa kynslóð tölvuleikjaspilara?  Það er erfitt að negla það niður nákvæmlega, en við getum flest verið sammála um að Skyrim sé andskoti ofarlega á lista. Leikurinn kom út í nóvember 2011 og enn þann dag í dag er verið að rýna í allt sem hann hefur gert fyrir tölvuleikjalandslagið. Við erum ennþá að spila hann (að sjálfsögðu einungis sem stealth archer) o...

44. Hitman 3 10.03.2021

Viltu ferðast um heiminn? Skoða fallega og framandi staði? Kynnast menningunni? Drepa mjög mikilvægt fólk á téðum stöðum og fá borgað fyrir? Þá er Hitman 3 leikurinn fyrir þig! Í þessum samstarfsþætti okkar og Elko fjalla Arnór Steinn og Gunnar um lokaleikinn í trílógíunni World of Assassination. Hitman 3 er fyrsti stóri leikur ársins og því um margt að tala. Við tökum fyrir borðin, spilunina og o...

43. Parity Games - viðtal við Maríu Guðmundsdóttur 03.03.2021

Tölvuleikjaspjallið heldur áfram umfjöllun sinni um íslenska tölvuleikjaframleiðslu.  Í þetta sinn spjalla Arnór Steinn og Gunnar við Maríu Guðmundsdóttur, stofnanda og framkvæmdastjóra Parity Creative House. María hefur mikla reynslu úr bransanum og var lengi vel hjá CCP, var meðal annars í Kína að vinna að Eve titli!  Hún stofnaði Parity árið 2017 og fyrirtækið vinnur nú að spennandi l...

42. Blizzcon Online 2021 24.02.2021

Misstir þú af Blizzcon?  Ekki örvænta! Vinir þínir hjá Tölvuleikjaspjallinu horfðu á það fyrir þig og koma með samantekt í þætti vikunnar! Við ræðum helstu tilkynningar Blizzard og komum með okkar skoðun á málum.  Diablo IV, Diablo II Resurrected, WOW Classic og Overwatch 2. Er hægt að biðja um meira? Þátturinn er í boði Elko Gaming og veitingastaðarins Le Kock!

41. Mafia Definitive Edition 17.02.2021

"Remember that money, jobs, even best pals will come and go. But family? Family is forever." Í þessum samstarfsþætti við Elko ræða Arnór Steinn og Gunnar endurgerðina á Mafia sem kom út árið 2002. Þessi leikur hefur verið gerður frá toppi til táar upp á nýtt og það sést heldur betur á öllum hliðum leiksins. Við ræðum söguþráðinn að einhverju leyti en við spillum ekki fyrir endinum né neinum mikilv...

40. Gælunöfn (e. nicknames) Íslendinga í Tölvuleikjum 10.02.2021

Eitt af markmiðum Tölvuleikjaspjallsins er að rannsaka tölvuleikjamenningu Íslendinga.  Í þessum þætti uppfyllum við hluta af því markmiði OG gerum eitthvað sem er einstakt áhugamál þáttastjórnenda; Rannsökum gælunöfn (e. nicknames/nicks) Íslendinga í tölvuleikjum. Þau geta komið hvaðan sem er.  Arnór Steinn (keisaritunglsins) og Gunnar (Bismark) ræða meðal annars sín eigin gælunöfn og h...

39. GameTíví - Viðtal við Ólaf Þór Jóelsson 03.02.2021

Tölvuleikjaspjallið er að miklu leyti starfandi í dag vegna þess að GameTíví lagði grunninn að íslenskri tölvuleikjaumfjöllun á sínum tíma.  Í þætti vikunnar fáum við Ólaf Þór Jóelsson, framkvæmdastjóra Senu og upphafsmann GameTíví í viðtal! Arnór Steinn og Gunnar ræða við hann um sögu GameTíví og hvernig þættinum gengur í dag, um VR aðstöðuna hjá Smárabíó, Playstation 5, Sinclair Spectrum tö...

38. Spider-Man 27.01.2021

Spider-Man! Hvað þarf meira að segja?  Jæja ókei ... segjum aðeins meira. Hér tekur spilarinn upp þráð Köngulóarmannsins eftir átta ára feril og reynir að halda á lofti einkalífi Peter Parker og ferli hans við að berjast við glæpamenn.  Arnór Steinn og Gunnar ræða alla helstu þætti leiksins í algjörlega SPOILER FREE þætti. Hvað fannst ykkur um Spider-Man? Þátturinn er í boði Elko Gaming...

37. Arkham Knight 20.01.2021

Hvað gerir góði kallinn þegar markmiði hans er náð? Í þessum lokaþætti okkar um Return to Arkham seríuna fjöllum við um Batman: Arkham Knight! Þessi frábæri leikur gerist níu mánuðum eftir atburði Arkham City. Hér þarf Blakan að kljást við hinn ógnarlega Scarecrow sem hefur hrætt líftóruna úr Gotham borg og hyggst gera allt sem hann getur til að sýna umheiminum að Batman er bara lítil og hrædd man...

36. Bónusþáttur! Lucasfilm Games og EA 18.01.2021

Árið 2021 byrjaði á þeirri sprengju að EA væri ekki lengur með einkarétt á Star Wars leikjum.  Geta fréttir almennt verið betri? Nei við segjum svona.  En í þessum bónusþætti ræða Arnór Steinn og Gunnar um hið nýja Lucasfilm Games og hvað ákvörðunin þýðir fyrir framtíð Star Wars leikja. Tölvuleikjaspjallið hefur lengi kallað eftir því að EA missi einkaréttinn og það er mjög greinilegt að...

35. GTA V 13.01.2021

Fyrir rétt rúmum sjö árum síðan kom út GTA V.  Tveimur leikjatölvukynslóðum síðar hefur leikurinn komið út á sjö tölvum og selt fleiri en 130 milljón eintök. Arnór Steinn og Gunnar ræða þennan ágæta leik en þar spilar þú sem þrír karakterar - Michael, Franklin og Trevor - og færir þá upp metorðastigann í undirheimum Los Santos. Við ræðum flestar hliðar leiksins, söguna, lúkkið, bílana og byss...

34. Rafíþróttasamtökin - Viðtal við Aron Ólafsson 06.01.2021

Fyrsti þáttur ársins er ekki af verri gerðinni. V ið fengum til okkar í viðtal framkvæmdastjóra Rafíþróttasambands Íslands (RÍSÍ), Aron Ólafsson! Við förum um víðan völl í þessum ótrúlega skemmtilega þætti. Við byrjum á að heyra hvaðan Aron kemur „tölvuleikjalega“ séð og hvernig hans fyrstu kynni við mótahald í tölvuleikjum voru.  Seinni hluti þáttarins er um starf RÍSÍ og þá sérstaklega um ó...

33. Áramótaþáttur Tölvuleikjaspjallsins 30.12.2020

Tölvuleikjaspjallið kveður árið 2020 með stæl!  Rúmlega tveggja klukkustunda þáttur þar sem farið er um VÍÐAN völl og ýmsir hlutir ræddir í þaula! Arnór Steinn og Gunnar ræða hvernig það var að byrja hlaðvarp um tölvuleiki og söguna á bak við „heimastúdíóið“ hans Arnórs.  Við ræðum okkar uppáhalds þætti og alla þá leiki sem við höfum spilað á árinu, bæði nýja og eldri. Við tókum líka smá...

32. Arkham City 23.12.2020

Þorláksmessuþátturinn þetta árið er Batman: Arkham City!  Í þessum frábæra framhaldsleik Arkahm Asylum skellir þú blökuhettunni á þig, mundar blökuverplana og byrjar að berja alla vondu kalla Gotham borgar. Í þetta sinn er það hin fluggáfaði Hugo Strange sem hefur klófest fátækrahverfi borgarinnar og búið til hið alræmda Arkham City ofurfangelsi utan um. Blakan neyðist til að fljúga í gegnum...

31. Cyberpunk 2077 16.12.2020

**ÞETTA ER ALGJÖRLEGA SPOILER FREE ÞÁTTUR**  Hann er loksins kominn! Eftir margra ára bið er þessi risastóri leikur kominn í hendur spilara. Í þessum samstarfsþætti okkar við Elko Gaming fjöllum við um Cyberpunk 2077. Hann gerist í steiktri framtíð þar sem bilið á milli manna og vélmenna hefur minnkað allsvakalega. Það eru meira en sjö ár frá því að hann var kynntur og því fannst okkur upplag...

30. Assassin's Creed: Valhalla 09.12.2020

Ert þú ekki búin/n að leita að spoiler-free þætti um Assassin‘s Creed Valhalla í margar vikur?  Leitaðu ekki lengra, því strákarnir í Tölvuleikjaspjallinu eru búnir að græja hann fyrir þig! Í þessum samstarfsþætti okkar við Elko Gaming förum við yfir víkinga RPG leikinn sem mikil spenna hefur verið fyrir. Þú stýrir víkingnum Eivor í gegnum Noreg og England þar sem þú þarft að mynda vinasambön...

29. Fallen Order 02.12.2020

Ekki skera þig úr, gleymdu fortíðinni og ekki treysta neinum. Þetta eru orðin sem Cal Kestis, padawan á tímum Jedi hreinsunarinnar þurfti að tileinka sér til að lifa af, hundeltur af veiðimönnum Veldisins.  Í þessum þætti ræða Arnór Steinn og Gunnar leikinn Star Wars: Fallen Order! Hann kom mjög á óvart þegar hann kom út í fyrra og í tilefni af eins árs afmæli leiksins þá rifja þeir hann upp....

28. Myrkur Games - viðtal við Halldór Snæ 25.11.2020

Tölvuleikjaspjallið fjallar loksins um innlenda tölvuleikjaframleiðendur eins og hlustendur hafa beðið okkur um!  Arnór Steinn og Gunnar ræða hér við Halldór Snæ Kristjánsson, framkvæmdastjóra Myrkur Games, en þar vinna metnaðarfullir tölvuleikjaáhugamenn að stórum og spennandi leik. Hann talar um sitt upphaf í tölvuleikjaspilun og hvaða leikir höfðu helst áhrif á hann. Svo talar hann um stof...

27. Watch Dogs: Legion 18.11.2020

Hefur þig alltaf langað til að hakka þig inn í síma fólks og gefa þeim raflost?  Ef svo er þá er mögulega eitthvað smá í ólagi hjá þér, en þú getur gert nákvæmlega þetta og margt meira í leiknum Watch Dogs: Legion! Í þessum SPOILER FREE samstarfsþætti okkar við Elko Gaming ræðum við nýjasta leikinn í WD seríunni. Sögusviðið er London í náinni framtíð þar sem tækni hefur tekið yfir flestar hli...

26. Star Wars: Squadrons 11.11.2020

Hversu mikið langar þig til að fljúga X-Wing eða Tie Fighter og fljúga um geiminn? Núna er það hægt!  Í þessum samstarfsþætti við Elko Gaming ræðum við um Star Wars Squadrons! Hann kom út fyrir stuttu síðan og þar er spilað geimflaugabardaga í fyrstu persónu! Það hljómaði spennandi þegar við töluðum stuttlega um það í síðasta Stjörnustríðsþætti (númer 7) og það hljómar spennandi núna! Le...

25. Arkham Asylum 04.11.2020

Eins og einhver orðaði það, þá er þetta eini hryllingsleikurinn þar sem ÞÚ ert hryllingurinn.  Já heldur betur, í þessum samstarfsþætti við Elko Gaming ætlum við að ræða þrekvirkið Arkham Asylum sem kom út árið 2009. Leikurinn sló algjörlega í gegn en þar fær maður að stýra Batman í þriðju persónu um Arkham eyju og Arkham geðspítalann. Jókerinn hefur náð völdum og þú þarft að nýta öll vopn í...

24. Hrekkjavöku Sérþáttur 31.10.2020

Hver er hryllilegasta tölvuleikjaupplifunin þín?  Þetta er ein af mörgum spurningum sem Arnór Steinn og Gunnar spyrja hvern annan í þessum fyrsta HREKKJAVÖKUSÉRÞÆTTI TÖLVULEIKJASPJALLSINS! Eins og alþjóð veit þá eru þeir báðir algerir aumingjar og kjúklingar og þora ekki að spila neina hryllingsleiki. Samt spjalla þeir um sínar upplifanir af hryllingsleikjum (sem eru furðulega margar miðað vi...

23. Portal 28.10.2020

Nostalgíukast vikunnar er í boði Tölvuleikjaspjallsins!  Hefur þig ekki alltaf langað til þess að fara í gegnum ógeðslega steikta þrautabraut með einhverskonar gátta-byssu á meðan tölvukerfi niðurlægir þig og kallar þig morðingja? Ef svo er, þá er Portal leikurinn fyrir þig!  Fyrsti Portal leikurinn kom út árið 2007 og sló rækilega í gegn. Þar spilar þú sem Chell, en hún prufukeyrir gátt...

22. Ömurlegar Tölvuleikjakvikmyndir II: Hitman myndirnar 21.10.2020

Hefur þig alltaf langað til að horfa á allar þær ömurlegu tölvuleikjakvikmyndir sem til eru en þorir ekki að taka skrefið? H afðu ekki áhyggjur, því að Arnór Steinn og Gunnar hjá Tölvuleikjaspjallinu horfa á þær fyrir þig og gera svo þátt! Í dag ræða þeir um tvær myndir. Gunnar horfði á Hitman myndina frá 2007 þar sem Timothy Olyphant rakaði hausinn sinn og skaut fullt af fólki sem hinn goðsagnake...

Ascolta il podcast Tölvuleikjaspjallið su Replaio

Radio e podcast in un'unica app - gratis e senza registrazione. Installala oggi e non perderti il lancio

Scaricala su Google Play

Replaio non è un editore di podcast; i nomi dei programmi, le copertine e l'audio appartengono ai rispettivi autori e vengono distribuiti tramite feed RSS pubblici