Benedikt bókaútgáfa

Sólin - Hlaðvarp Benedikts bókaútgáfu

Arts IS ↓ 28 episodi

Í Sólinni er rætt um bækur sem koma út hjá Benedikt bókaútgáfu. Höfundar lesa úr og segja frá verkum sínum og góðir gestir spjalla um þýddar bækur.

Visita il sito del podcast e sostieni chi lo crea: benedikt.is

Autore

Benedikt bókaútgáfa

Categoria

Arts

Sito del podcast

benedikt.is

Ultimo episodio

18 nov 2026

Dove ascoltare?

I podcast nell'app Replaio Radio In arrivo

I podcast stanno per arrivare nell'app. Installala ora e scopri per primo un modo tutto nuovo di vivere i podcast

Scaricala su Google Play Installala gratis Android 10 mln+ di download · valutazione 4,7+ iOS in arrivo

Episodi

Höfundaspjall: Margrét Bjarnadóttir og Marta María Jónsdóttir 18.11.2026

Margrét Bjarnadóttir og Marta María Jónsdóttir bera saman bækur sínar: Varkár og Fuglamál.

Ljóðastund til heiðurs Hannesi Péturssyni 30.10.2026

Upptaka af ljóðastund til heiðurs Hannesi Péturssyni sem fram fór í Eddu 23. október. Tilefnið var að Hannes Pétursson (f. 1931) sendi nýlega frá sér sína tólftu ljóðabók, Hjá Leyningsvötnum. Fimm rithöfundar komu saman og heiðruðu stórskáldið með upplestri ljóða frá löngum ferli Hannesar og gerðu grein fyrir vali sínu 📖 Fram koma: Guðmundur Andri Thorsson Jón Kalman Stefánsson Karólína Rós Ólafs...

Höfundaspjall: Brynja Hjálms og María Elísabet 20.10.2026

Brynja Hjálmsdóttir og María Elísabet Bragadóttir bera saman bækur sínar: Undir fögru skinni og Þúsund barna móðir!

Einfætta ballerínan: Inga Bjarnason ræðir við Hlín Agnarsdóttur 14.10.2026

Endurminningar Ingu Bjarnason eru dásamlegur aldarspegill, í senn tragískur, fjörugur og fyndinn. Inga heillaðist snemma af leiklist og kom víða við í heimi leikhússins. Af fullri einlægni lýsir hún baráttu sinni við eigin takmörk, segir frá ástum og sorgum, sigrum og ósigrum – og leitar loks sátta við liðna tíð. Þar er fátt dregið undan.

Höfundaspjall: Kari Ósk og Karólína Rós 06.10.2026

Höfundaspjall: Kari Ósk Grétudóttir og Karólína Rós Ólafsdóttir ræða um ljóðabækurnar þeirra; Undir þér jörðin og Lífskán.

Fríða Þorkelsdóttir ræðir Kæri fáviti eftir Virginie Despantes 25.06.2026

Upptaka frá Sólarkvöldi í Skáldu 18. júní 2026. Einar Kári Jóhannsson ræðir við Fríðu Þorkelsdóttur um skáldsöguna Kæri fáviti eftir Virginie Despentes, í íslenskri þýðingu Kristínar Jónsdóttur. Um bókina: Þrjár ólíkar raddir segja frá – útskúfaður rithöfundur, þekkt leikkona og róttækur femínisti. Í gegnum tölvupóstsamskipti þeirra fáum við innlit í heim gegnsýrðum af kynbundinni valdbeitingu, af...

Fríða Ísberg ræðir við Jón Kalman um Þyngsta frumefnið 15.12.2025

Fríða Ísberg ræðir við Jón Kalman Stefánsson um fimmtu ljóðabók hans; Þyngsta frumefnið. Upptakan var gerð fyrir framan fullan sal af fólki í Skáldu bókabúð 5. nóvember 2025.

Sigríður Hagalín ræðir Vegur allrar veraldar 08.12.2025

Einar Kári Jóhannsson ræðir við Sigríði Hagalín Björnsdóttur um skáldsöguna Vegur allrar veraldar - Skálkasaga, sem er sjálfstætt framhald af Hamingja þessa heims - Riddarasaga. Þau ræða söguna, sagnaritun, heimildir og söguleganskáldskap.

Dagur Hjartarson ræðir Frumbyrjur 25.11.2025

Einar Kári Jóhannsson ræðir við Dag Hjartarson um skáldsöguna Frumbyrjur. Um bókina: Það er aðfangadagur og hjónin á Kölduhömrum búa sig undir jólahaldið. Handan áramóta eiga þau von á sínu fyrsta barni og spennan í kviðnum smitar andrúmsloftið. Snjórinn hleðst upp og vegurinn út úr firðinum hefur ekki enn verið ruddur. Þegar kýrin á bænum tekur sótt hrökkva dyr upp á gátt sem ekki verður lokað.

Kristín Svava Tómasdóttir ræðir Fröken Dúllu: Ævisögu Jóhönnu Knudsen 18.11.2025

Einar Kári Jóhannsson ræðir við sagnfræðinginn og skáldið Kristínu Svövu Tómasdóttur um bókina Fröken Dúlla: Ævisaga Jóhönnu Knudsen sem nýlega kom út á vegum Benedikts bókaútgáfu. Jóhanna Knudsen, kölluð Dúlla af ástvinum sínum, er alræmd vegna rannsókn hennar á siðferðisástandinu í Reykjavík á árum seinni heimsstyrjaldar. Nærgöngular yfirheyrslur hennar yfir stúlkum sem grunaðar voru um samneyti...

Sif Sigmarsdóttir ræðir Allt sem við hefðum getað orðið 10.11.2025

Sif Sigmarsdóttir ræðir við Helgu Ferdinands um skáldsöguna Allt sem við hefðum getað orðið. Bókin fjallar um þrjár konur og leyndarmál sem leiðir þær saman. Blaðamaðurinn Lilja fær veður af því að hún sé líklegt fórnarlamb niðurskurðar. Þegar henni er falið að fjalla um nýútkomna bók um Annie Leifs, eiginkonu tónskáldsins Jóns Leifs, vakna hjá henni grunsemdir. Getur verið að mislyndi skjalavörðu...

Fríða Ísberg um Huldukonuna 07.11.2025

Fríða Ísberg ræðir við Einar Kári Jóhannsson um skáldsöguna Huldukonan. Þau ræða hvernig er að fylgja eftir fyrstu skáldsögu með bók númer tvö, fortíðarþrá, nútímavæðingu, rómans og margt fleira.

Natasha S. spjallar um Mara kemur í heimsókn 30.04.2025

Einar Kári Jóhannsson ræðir við Natöshu S. um nýjustu ljóðabók hennar, Mara kemur í heimsókn. Bókin fjallar um heimkomu til Rússlands eftir langa fjarveru, en er um leið uppgjör við pólitískt og menningarlegt ástand í gamla heimalandi ljóðmælanda.

Fríða Ísberg spjallar um Stargate eftir Ingvild Rishøi 10.12.2024

Fríða Ísberg spjallar við Einar Kára Jóhannsson um skáldsöguna Stargate eftir Ingvild Rishøi. Stargate er jólaævintýri frá Noregi sem hefur farið sigurför víða um heim og endaði meðal annars á lista Oprah Winfrey yfir bækur ársins 2024. Fríða ræðir líka um útkomu Merkingar á ensku í sumar, kunningsskap þeirra Ingvild Rishøi og áhuga sinn á bókmenntum frá Norðurlöndum.

Eva Rún Snorradóttir spjallar um Eldri konur 25.11.2024

Eva Rún Snorradóttir spjallar við Einar Kára Jóhannsson um sína fyrstu skáldsögu, Eldri konur. Þau ræða þráhyggju höfundar fyrir eldri konum, bókmenntahátíðina Queer Situations og að kerlingabylting sé leiðin til að breyta heiminum til betri vegar.

Eva Rún Snorradóttir les úr Eldri konur 19.11.2024

Eva Rún Snorradóttir les úr sinni fyrstu skáldsögu, Eldri konur.

Þórdís Gísladóttir spjallar um Aðlögun og þýðingar 08.11.2024

Þórdís Gísladóttir ræðir við Einar Kára Jóhannsson um ljóðabókina Aðlögun. Þau ræða líka feril Þórdísar og þýðingar hennar á tveimur nýjum bókum, Þessir djöfulsins karlar eftir Andrev Walden og Æsku eftir Tove Ditlevsen.

Þórdís Gísladóttir les úr Aðlögun 08.11.2024

Þórdís Gísladóttir les ur sinni sjöttu ljóðabók, Aðlögun.

Halla Þórðardóttir spjallar um Sólin er hringur 08.11.2024

Halla Þórðardóttir spjallar við Einar Kára Jóhannsson um sína fyrstu ljóðabókina sína Sólin er hringur. Þau ræða um feril Höllu hjá Íslenska dansflokknum og hvernig dansinn smitast yfir í ljóðlistina.

Halla Þórðardóttir les úr Sólin er hringur 08.11.2024

Halla Þórðardóttir les úr sinni fyrstu ljóðabók, Sólin er hringur.

Jón Kalman Stefánsson les úr Himintungl yfir heimsins ystu brún 23.10.2024

Jón Kalman Stefánsson les upphafið á sinni fimmtándu skáldsögu; Heimintungl yfir heimsins ystu brún

Jón Kalman Stefánsson spjallar um Himintungl yfir heimsins ystu brún 23.10.2024

Jón Kalman Stefánsson spjallar við Einar Kára Jóhannsson um sína fimmtándu skáldsögu; Himintungl yfir heimsins ystu brún. Þeir ræð Spánverjavígin, vinnubrögð rithöfunda, fræð úti í heimi og rapptónlist.

Tómas Ævar Ólafsson les úr Breiðþotum 23.10.2024

Tómas Ævar Ólafsson les valin kafla úr skáldsögunni Breiðþotur.

Tómas Ævar Ólafsson spjallar um Breiðþotur 23.10.2024

Tómas Ævar Ólafsson spjallar við Einar Kára Jóhannsson um sína fyrstu skáldsögu, Breiðþotur. Þeir ræða uppgang öfgahugmynda, uppvöxt á Akranesi, gagnaleka og ást á pizzum!

Brynja Hjálmsdóttir les úr Friðsemd 23.10.2024

Brynja Hjálmsdóttir les upphafið á skáldsögunni Friðsemd.

Ascolta il podcast Sólin - Hlaðvarp Benedikts bókaútgáfu su Replaio

Radio e podcast in un'unica app - gratis e senza registrazione. Installala oggi e non perderti il lancio

Scaricala su Google Play

Replaio non è un editore di podcast; i nomi dei programmi, le copertine e l'audio appartengono ai rispettivi autori e vengono distribuiti tramite feed RSS pubblici