Myntkaup
Hlaðvarp Myntkaupa
Hlaðvarp Myntkaupa er nýtt hlaðvarp sem fjallar um allt tengt bitcoin og hvað er að gerast í hinum síbreytilega heimi rafmynta. Við fáum til okkar góða gesti og fjöllum um málefni sem tengjast rafmyntum. Myntkaup er vinsælasti staðurinn fyrir Íslendinga til að stunda viðskipti með Bitcoin og aðrar rafmyntir. Rúmlega 4% Íslendinga nota Myntkaup til þess að kaupa og selja bitcoin. Þú finnur okkur á myntkaup.is eða með því að sækja Myntkaup appið í App Store eða Google Play store.
Visita il sito del podcast e sostieni chi lo crea: myntkaup.is
Dove ascoltare?
I podcast nell'app Replaio Radio In arrivoI podcast stanno per arrivare nell'app. Installala ora e scopri per primo un modo tutto nuovo di vivere i podcast
Episodi
Björn Harðarson ræðir Solana og fleiri myntir | Hvað er framundan? 07.06.2024 1:21:23
Í þessum þætti fórum við yfir það helsta í heimi rafmynta sem gerst hefur eftir helmingunina 19. apríl, ásamt því að fjalla um lykilatriði þeirra rafmynta sem eru að bætast við vöruúrval Myntkaupa. Björn fer á dýptina og greinir helstu rafmyntir í þaula. Mælum eindregið með fyrir þá sem hafa áhuga á öðrum rafmyntum.
Fréttahornið: SEC samþykkir Ethereum kauphallarsjóði og rafmyntir fá byr undir báða vængi í bandarískum stjórnmálum 27.05.2024 5:24
Í þessum þætti er fjallað um nýfengið samþykki bandaríska verðbréfaeftirlitsins á Ethereum kauphallarsjóðum (Spot ETF), en Bitcoin kauphallarsjóðir fengu samþykki hjá SEC í janúar á þessu ári. Einnig er fjallað um vendingar í bandarískum stjórnmálum en þar eru nokkuð sterk teikn á lofti um að stjórnmálamenn beggja flokka sjái sér tækifæri í því að taka upp málstað rafmynta þar sem sífellt stækkand...
Avalanche mætir á Myntkaup! 27.05.2024 5:44
Kjartan fjallar um Avalanche (AVAX) sem er nýjasta rafmyntin í boði á Myntkaupum.
Solana mætir á Myntkaup! 27.05.2024 5:35
Kjartan fjallar um Solana sem er nýjasta rafmyntin í boði á Myntkaupum.
Fréttahornið: Bitcoin helmingunin afstaðin - hvað tekur við 28.04.2024 27:02
Í þessum þætti er fjallað um Bitcoin helmingunina og um vel heppnaðan helmingunarfögnuð Myntkaupa. Einnig er farið yfir hvers viðskiptavinir mega vænta á næstunni í vöruúrvali Myntkaupa.
Daði Kristjánsson - Innflæði kauphallarsjóða framar vonum. Hverju má búast við á komandi mánuðum? 29.02.2024 1:16:08
Daði Kristjánsson, framkvæmdastjóri Visku Digital Assets, fór yfir allt það helsta i heimi rafmynta. Ítarleg umfjöllun um áhrif kauphallarsjóðanna og Bitcoin sett í samhengi við efnahagslegar aðstæður í víðari skilningi. Einnig fjallað um viðhorf íslensks fjármálakerfis gagnvart Bitcoin og rafmyntum.
Björn Harðarson - Skiptir máli að setja sér fjárfestingaráætlun gagnvart Bitcoin? 19.02.2024 1:25:53
Í þessum þætti er vikið að helstu málefnum líðandi stundar í heimi rafmynta. Einnig er fjallað ítarlega um mikilvægi þess að setja sér markmið og áætlanir gagnvart fjárfestingum í rafmyntum.
Björn Harðarson mætir aftur - Hvað skýrir lækkun á gengi Bitcoin frá opnun kauphallarsjóðanna? 27.01.2024 1:26:51
Björn Harðarson, sálfræðingur, mætti aftur í stúdíóið og fór ítarlega yfir helstu áhrifaþætti gengisþróunar Bitcoin undanfarinna vikna. Einnig var snert á fjölmörgum öðrum hliðum rafmyntaheimsins um þessar mundir.
Fréttahornið: Vika liðin frá samþykki SEC. Hvernig hafa sjóðirnir farið af stað? 17.01.2024 9:26
Í þessum þætti er fjallað um hvað hefur gerst fyrstu dagana í starfsemi Bitcoin kauphallarsjóða frá því að þeir hlutu samþykki bandaríska verðbréfaeftirlitsins 10. janúar. Sérstaklega er fjallað um uppbyggingu og áhrif Grayscale sjóðsins og hvaða áhrif hann kann að hafa haft á gengi Bitcoin undanfarna daga.
Fréttahornið: Allar umsóknir um Bitcoin kauphallarsjóði samþykktar! 11.01.2024 5:19
Eftir lokun markaða vestanhafs í gær, 10. janúar 2024, tilkynnti bandaríska verðbréfaeftirlitið, SEC, að allar umsóknir um Bitcoin kauphallarsjóði hefðu verið samþykktar. Í þessu fréttahorni er fjallað um hvaða þýðingu má ætla að felist í tilkomu þessara sjóða.
Fréttahornið: Verður umsókn um Bitcoin kauphallarsjóði samþykkt í vikunni? 10.01.2024 5:44
Töluverðar verðhækkanir hafa einkennt gengi Bitcoin fyrstu daga ársins og má rekja þær til eftirvæntinga um tilkomu Bitcoin kauphallarsjóða. Vægast sagt undarleg atburðarás átti sér stað 9. janúar og leiða má líkur að því að ekki öll kurl séu komin til grafar
Við hverju má búast í næsta bolamarkaði Bitcoin? Með Birni Harðarsyni 17.12.2023 1:23:43
Sálfræðingurinn Björn Harðarson fjallar um bakgrunn sinn í rafmyntum, hverju hann býst við í næsta bolamarkaði, af hverju Bitcoin skiptir máli, sálfræðina á bak við ákvarðanatöku hjá þátttakendum á markaði og margt fleira.
Af hverju skiptir Bitcoin máli? Bitcoin brotið til mergjar með Víkingi Haukssyni 05.11.2023 1:28:55
Í þessum þætti fengum við Víking Hauksson eða Bitcoin Víkinginn í þáttinn til þess að fjalla á heildstæðan hátt um Bitcoin, núverandi peningakerfi, peningasöguna og fleira á þessum nótum. Mælum eindregið með hlustun fyrir þá sem vilja kafa djúpt í grundvallaratriði Bitcoin!
Fréttahornið: Bitcoin nær hæstu hæðum ársins - Er nýr bolamarkaður að hefjast? 30.10.2023 5:00
Í þessum þætti er fjallað um þær miklu verðhækkanir sem hafa átt sér stað undanfarna daga á gengi Bitcoin, en nýverið náði það hæstu hæðum ársins. Fjallað er um þær ástæður sem kunna að skýra þessar verðhækkanir. Eins er fjallað um næstu helmingun Bitcoin og þá þýðingu sem helmingunin hefur haft fyrir verðþróun myntarinnar í sögulegu samhengi.
Fréttahornið: Skuldavandi Bandaríkjanna & falsfrétt Cointelegraph 19.10.2023 10:09
Í þessum þætti er fjallað um skuldavanda Bandaríkjanna og hvernig Bitcoin getur verið lausnin við núverandi peningakerfi, en rætt var talsvert um þessi málefni á nýafstaðinni ráðstefnu um Bitcoin. Einnig er fjallað um áhugaverða falsfrétt frá Cointelegraph sem keyrði Bitcoin tímabundið í $30.000!
Hvað er framundan í lagasetningu gagnvart rafmyntum? Hvaða lög og reglur gilda nú þegar? Með Þorvarði Arnari Ágústssyni 04.10.2023 1:19:02
Í þessum þætti fær Kjartan til sín einn mesta sérfræðing úr hópi íslenskra lögfræðinga til þess að ræða rafmyntir í lögfræðilegu samhengi. Farið er um víðan völl, en meðal annars er sjónum beint að MICA, grundvallarlöggjöf ESB um rafmyntir og aðrar sýndareignir. Einnig er vikið að SEC og þeirri vegferð sem stofnunin virðist vera á í Bandaríkjunum. Loks er farið yfir helstu grundvallarreglur sem sn...
Fréttahornið: Grayscale leggur bandaríska verðbréfaeftirlitið í dómsmáli. Bitcoin kauphallarsjóður væntanlegur? 31.08.2023 8:04
Á þriðjudaginn komst áfrýjunardómstóll í Washington að þeirri niðurstöðu að höfnun SEC á umsókn Grayscale hefði verið ólögmæt. Greinendur markaðarins reikna fastlega með því að niðurstaðan muni hafa þau áhrif í för með sér að senn verði fjölmargar umsóknir um Bitcoin kauphallarsjóði samþykktar. Í sögulegu samhengi hefur tilkoma slíkra sjóða haft mjög jákvæð áhrif á verðhegðun undirliggjandi eignar...
Fréttahornið: Grundvallardómur kveðinn upp í New York. XRP ekki verðbréf. Hvað um aðrar rafmyntir? 01.08.2023 5:35
Hinn 15. júlí síðastliðinn féll tímamótadómur í máli SEC gegn Ripple. Dómarinn komst að þeirri niðurstöðu að ekki bæri að líta á XRP sem verðbréf. Rafmyntamarkaðir hækkuðu verulega við tíðindin enda vonir bundnar við það að niðurstaðan verði heimfærð yfir á aðrar rafmyntir. Einnig er stuttlega vikið að efnahagsmálum almennt, verðbólgu og stýrivöxtum í Bandaríkjunum og fleira.
Fréttahornið: Blackrock sækir um Bitcoin kauphallarsjóð - Eru miklar verðhækkanir í vændum? 23.06.2023 7:16
Blackrock, stærsti eignastýringaraðili í heimi, hefur sótt um að stofna Bitcoin kauphallarsjóð. Tveir aðrir eignastýringaraðilar hafa nú gert slíkt hið sama. Hvað nákvæmlega er kauphallarsjóður og hvaða áhrif hafa slíkir sjóðir á verðhegðun í sögulegu samhengi? Um þetta og fleira er fjallað í fréttahorni dagsins.
Fréttahornið: SEC höfðar mál gegn Binance og Coinbase - Hvað felst í lögsóknunum 09.06.2023 6:44
Í fréttahorni dagsins er fjallað um lögsóknir bandaríska verðbréfaeftirlitsins (SEC) á hendur rafmyntakauphöllunum Binance og Coinbase. Farið er yfir málsgrundvöllinn, lykilhugtök skilgreind og fjallað er um líklegar afleiðingar lögsóknanna á rafmyntamarkaðinn
Fréttahornið: Bitcoin stendur traustari fótum en nokkru sinni fyrr - Greiðslufærni Bandaríkjanna í óvissu? 26.05.2023 5:43
Í þessu fréttahorni er fjallað um hvernig fjársterkir aðilar eru að kaupa upp og safna Bitcoin til lengri tíma. Einnig er fjallað um líklegar afleiðingar fyrirhugaðrar hækkunar á skuldaþaki bandaríska ríkisins.
Fréttahornið: Grundvallaratriði Bitcoin bálkakeðjunnar 11.05.2023 5:28
Í þessu fréttahorni fjallar Kjartan um óvenjulegt álag á Bitcoin bálkakeðjunni undanfarið sem hefur leitt til aukins kostnaðar færslugjalda á keðjunni. Einnig er fjallað um grundvallaratriði Bitcoin bálkakeðjunnar í stuttu og kjarnyrtu máli.
Fréttahornið: Enn annar bankinn fallinn í Bandaríkjunum. Hvar endar þetta og hvernig bregst Bitcoin við? 04.05.2023 7:18
Nú á dögunum féll hinn stóri First Republic Bank í Bandaríkjunum, en þrátt fyrir það heldur gengi Bitcoin áfram á góðri siglingu. Stýrivextir í Bandaríkjunum hækkuðu um 25 punkta í gær, 3. maí 2023. Er greiðsluþrot bandaríska ríkisins yfirvofandi? Er meiri áhætta að eiga ekkert Bitcoin heldur en að eiga a.m.k. smá Bitcoin? Um þetta og fleira er fjallað um í þessu fréttahorni.
Fréttahornið: Shanghai uppfærslan væntanleg á Ethereum bálkakeðjunni, hvað felur hún í sér og hvaða áhrif mun hún hafa? 05.04.2023 5:37
Í þessu fréttahorni er sjónum beint að svonefndri Shanghai uppfærslu hjá Ethereum sem beðið hefur verið eftir með talsverðri eftirvæntingu, en þá loksins verður hægt að taka út og ráðstafa læstu ETH á bálkakeðjunni. Einnig er fjallað um hugtökin proof of work og proof of stake. Við hjá Myntkaupum erum mjög jákvæðir gagnvart Shanghai uppfærslunni og könnum nú bestu leiðir til þess að viðskiptavinir...
Fréttahornið: Bitcoin rýkur upp meðan bankar heimsins titra og skjálfa. Hvernig bregst Seðlabanki Bandaríkjanna við? 20.03.2023 4:57
Í þessu fréttahorni er fjallað um áframhaldandi vandræði í bankakerfi heimsins, samhliða allverulegri hækkun á gengi Bitcoin. Er Bitcoin eina leiðin til þess að verja sig gagnvart kerfislægum vanda fjármálakerfisins? Öll augu beinast nú að viðbrögðum Seðlabanka Bandaríkjanna. Um þetta og fleira er fjallað í þessu fréttahorni Myntkaupa.
Podcast simili
Replaio non è un editore di podcast; i nomi dei programmi, le copertine e l'audio appartengono ai rispettivi autori e vengono distribuiti tramite feed RSS pubblici