Myntkaup
Hlaðvarp Myntkaupa
Hlaðvarp Myntkaupa er nýtt hlaðvarp sem fjallar um allt tengt bitcoin og hvað er að gerast í hinum síbreytilega heimi rafmynta. Við fáum til okkar góða gesti og fjöllum um málefni sem tengjast rafmyntum. Myntkaup er vinsælasti staðurinn fyrir Íslendinga til að stunda viðskipti með Bitcoin og aðrar rafmyntir. Rúmlega 4% Íslendinga nota Myntkaup til þess að kaupa og selja bitcoin. Þú finnur okkur á myntkaup.is eða með því að sækja Myntkaup appið í App Store eða Google Play store.
Visita il sito del podcast e sostieni chi lo crea: myntkaup.is
Dove ascoltare?
I podcast nell'app Replaio Radio In arrivoI podcast stanno per arrivare nell'app. Installala ora e scopri per primo un modo tutto nuovo di vivere i podcast
Episodi
Trump tekur U-beygju í tollamálum - Hvað vakir fyrir manninum? 12.04.2025 59:17
Í þessum þætti er sjónum fyrst og fremst beint að tollaákvörðunum Trump. Segja má að markaðir hafi byrjað vikuna á því að vera lamaðir af hræðslu vegna tollaákvarðana Bandaríkjanna en réttu heldur betur við sér eftir að forsetinn tilkynnti að Bandaríkin munu fresta gildistöku nýsettra tolla í 90 daga, að undanskildum nokkrum ríkjum, þar með talið gagnvart Kína. Kjartan og Björn ræða atburðarásina...
Tollar Trumps valda titringi á mörkuðum - Hlutabréf í Bandaríkjunum í frjálsu falli - Hvernig bregst Bitcoin við? 04.04.2025 58:25
Frétt vikunnar að þessu sinni eru umdeildar ákvarðanir forseta Bandaríkjanna um að setja tolla á öll ríki heimsins, frá 10% og upp í tæplega 50%. Hlutabréf í Bandaríkjunum hafa verið í frjálsu falli frá ákvörðuninni en hingað til hefur Bitcoin haldið sæmilega velli. Kjartan og Björn ræða um hvernig landslagið horfir við þeim og hverju þeir búast við þegar fram líða stundir.
Markaðir missa flugið eftir nýlegar hækkanir - Hvað veldur? 29.03.2025 56:08
Segja má að lítið hafi dregið til tíðinda á rafmyntamörkuðum í síðustu viku. Markaðurinn leit út fyrir að vera að undirbúa sig fyrir frekari hækkanir eftir góða byrjun, en virðist aðeins vera að missa flugið. Í þessum þætti kryfja þeir félagar, Björn og Kjartan, helstu orsakavalda, þar með talið áframhaldandi áhyggjur af tollum Bandaríkjanna, ásamt því að fara yfir helstu fréttir.
SEC fellir loksins niður dómsmálið gegn Ripple - Ætlar Seðlabanki Bandaríkjanna að spýta fjármagni í markaðinn? 21.03.2025 52:42
Í þessum þætti er farið yfir fréttir liðinnar viku. Þar má helst nefna að bandararíska verðbréfaeftirlitið felldi loks niður málsókn á hendur Ripple sem hefur staðið yfir um árabil. Þá gaf Jerome Powell, seðlabankastjóri Bandaríkjanna út að stýrivextir yrðu ekki lækkaði strax. Á hinn bóginn tók hann fram að seðlabankinn ætlaði að draga úr aðhaldi gagnvart markaðnum (Quantitative tightening) og tók...
Hvað gerðist á hinum umtalaða "Crypto Summit" fundi í Hvíta húsinu? Eru Kína og Rússland farin að gera upp olíuviðskipti í Bitcoin? 14.03.2025 58:37
Í þessum þætti fjalla Björn og Kjartan um fréttir liðinnar viku, einkum umtalaðan fund í Hvíta húsinu, svokallaðan "White House Crypto Summit". Einnig fjalla þeir um hvort sjá megi aukningu á peningamagni í umferð í heiminum og hvaða áhrif það kunni að hafa á rafmyntamarkaði. Loks er drepið á nýlegum fréttum um uppgjör olíuviðskipta milli Kína, Rússlands og Indlands í Bitcoin og öðrum ra...
Fundur í Hvíta húsinu með helstu leiðtogum rafmyntageirans - Ætla Bandaríkin að fjárfesta í öðrum rafmyntum en Bitcoin? 08.03.2025 48:22
Miklar verðsveiflur einkenndu rafmyntamarkaðinn vikuna sem er að líða. Donald Trump ýjaði að því á Truth Social að Bandaríkin ætli sér að fjárfesta í öðrum rafmyntum en Bitcoin, mögulega XRP, SOL og ADA. Þá er mikil spenna á markaðnum vegna fundar í Hvíta húsinu þar sem Donald Trump og áhrifamenn ríkisstjórnar Bandaríkjanna funda með áhrifafólki rafmyntaiðnaðarins. Kjartan og Björn ræða sín á mill...
Hræðsla grípur um sig á mörkuðum vegna látlausra lækkana - Er ástæða til að hafa áhyggjur? 28.02.2025 54:32
Bitcoin féll í nótt undir 80k USD samhliða gríðarlegu verðfalli annarra rafmynta og "Fear and Greed Index" er kominn í 20, eða "extreme fear". Í þessum þætti fer Björn Harðarson yfir ástæður sínar fyrir því að hafa ekki áhyggjur af ástandinu heldur líta frekar á það sem tækifæri. Einnig er fjallað um stærsta rafmyntaþjófnað sögunnar, en í síðustu viku náðu tölvuþrjótar að stela...
Björn Harðarson - Fréttir liðinnar viku - Forseti Argentínu flæktur í jarmmyntarhneyksli. Abu Dhabi kaupir BTC fyrir meira en 400m USD. Hafa altcoins náð botninum? 22.02.2025 55:30
Í þessum þætti fara Kjartan og Björn yfir helstu fréttir liðinnar viku. Javier Milei, forseti Argentínu, sætir nú gagnrýni fyrir aðild í rafmyntinni LIBRA sem féll gífurlega í verði eftir skammvinnar hækkanir. Abu Dhabi tilkynnti um stór Bitcoin-kaup. Farið er vel yfir stöðuna á markaðnum og hvort tilefni sé til bjartsýni fyrir aðrar rafmyntir en Bitcoin fyrir komandi vikur. Þetta og margt fleira...
Fréttir liðinnar viku. Slæmar verðbólgutölur í Bandaríkjunum - hvaða áhrif mun það hafa á stýrivexti í Bandaríkjunum? Með Birni Harðarsyni 14.02.2025 1:00:42
Í þessum þætti fara Björn og Kjartan yfir fréttir liðinnar viku. Færst hefur ákveðin ró yfir markaðinn og eru sumir byrjaðir að tala um "boring zone". Verðbólgutölur ullu vonbrigðum í Bandaríkjunum á miðvikudaginn, en verðbólga mældist 3% þar í landi, töluvert verr en spár höfðu gert ráð fyrir. Áhrif þessa og margt fleira er fjallað um í þessum þætti.
Mesta hreinsun crypto sögunnar | Voru 8-10 milljarðar USD þurrkaðir út aðfararnótt mánudags? Með Birni Harðarsyni 09.02.2025 59:10
Í þessum þætti ræða Björn og Kjartan um þær lækkanir sem hafa einkennt rafmyntamarkaði undanfarnar vikur, sérstaklega aðrar rafmyntir en Bitcoin. Met var slegið aðfararnótt mánudags þar sem talað er um að allt að 8-10 milljarðar Bandaríkjadollara voru þurrkaðir út (e. liquidated). Eru hin umtöluðu Trump áhrif að snúast í andhverfu sína? Þetta og margt fleira í þessum þætti.
Kristján Ingi Mikaelsson, meðstofnandi Visku Digital Assets og stjórnarformaður Rafmyntaráðs. 01.02.2025 1:22:37
Kristján Ingi mætti í fyrsta skipti í hlaðvarpið. Fáir, ef einhverjir, hafa haft jafnmarga snertifleti við rafmyntir á íslenskum markaði og Kristján. Hann hefur jafnframt talað fyrir Bitcoin á opinberum vettvangi í hartnær áratug. Í þessum þætti er farið yfir vegferð hans í heimi rafmynta og hann deilir með hlustendum sínum viðhorfum um Bitcoin og markaðinn. Mælum eindregið með hlustun!
Trump svarinn í embætti og byrjar með látum. Hvað í veröldinni er Trump Coin og hvernig hefur Trump farið af stað? Með Birni Harðarsyni 25.01.2025 58:16
Í þessum þætti er einkum fjallað um atburði vikunnar sem er að líða og fyrirbærið sem Trump Coin er og áhrifin sem það hefur haft á markaðinn. Björn er ekki ýkja hrifinn af framtaki forsetans að gefa út jarmmynt, en telur þó langtímaáhrifin ekki neikvæð. Þetta og margt fleira er fjallað um í þessum þætti.
Hvernig bregst rafmyntamarkaðurinn við fyrstu embættisdögum Trump? Með Birni Harðarsyni 19.01.2025 55:48
Í þessum þætti heimsækir Björn Harðarson hlaðvarpið eftir jólafrí. Farið er yfir það helsta sem hefur gerst síðustu vikur á rafmyntamörkuðum og hvers má vænta eftir að Trump verður svarinn í embætti eftir helgi.
Daði Laxdal Gautason hjá Sisu Group 21.12.2024 49:23
Í þessum þætti fengum við Daða Laxdal, framkvæmdastjóra vöruþróunar hjá Sisu Group, sem starfrækir meðal annars Epicbet. Daði fjallar um sína vegferð í heim rafmynta og hvernig vöxturinn hefur verið hjá rafmyntum á sviði veðmála. Fjallað var um veðmál Íslendinga á kosningarnar í nóvember og margt fleira.
Heldur altcoin season áfram? Með Birni Harðarsyni 14.12.2024 1:06:37
Í þessum þætti heldur Björn áfram að fjalla um helstu málefni líðandi stundar á rafmyntamörkuðum. Meðal annars er farið yfir nýjustu tilnefningar Donald Trump í lykilembætti, XRP, Solana og almennt um altcoins og að sjálfsögðu Bitcoin.
Brynjar Páll - Allt um Cardano 06.12.2024 1:08:46
Í þessum þætti ræðir crypto fjárfestirinn og Cardano maðurinn um grundvallaratriði Cardano bálkakeðjunnar. Farið er yfir víðan völl, þar á meðal er saga keðjunnar rakin, fjallað er um stofnanda keðjunnar, Charles Hoskinson, ásamt því að Brynjar skýrir frá sinni framtíðarsýn gagnvart Cardano. Ef þú hefur áhuga á Cardano er þetta skylduhlustun!
Er altcoin season hafið? Með Birni Harðarssyni 29.11.2024 1:11:02
Í þessum þætti er sjónum fyrst og fremst beint að öðrum rafmyntum en Bitcoin (altcoins). Björn svarar spurningunni hvort tímabil þeirra sé nú hafið og hvers megi vænta af þeim. Fjallað er um helstu rafmyntirnar eins og SOL, XRP, ADA, DOGE o.fl.
40% hækkun á gengi Bitcoin í nóvember - Er hægt að hundsa Bitcoin mikið lengur? Með Birni Harðarsyni 22.11.2024 1:06:27
Engu líkara er en að Donald Trump sé að setja saman Bitcoin-ríkisstjórn fyrir næsta kjörtímabil. Michael Saylor heldur áfram að kaupa BTC eins og óður maður og fleiri fyrirtæki fylgja eftir hans fordæmi. Solana nær hæstu hæðum og almenningur virðist vera að byrja að kveikja á perunni. Þetta og margt fleira ræðir Kjartan við Björn í þessum þætti.
Bitcoin nálgast $100.000. Ætlar ríkissjóður Bandaríkjanna að kaupa 1.000.000 BTC næstu 5 ár? Með Birni Harðarsyni 16.11.2024 57:15
Atburðarás í heimi rafmynta hefur verið vægast sagt svakaleg undanfarna daga og nú er útlit fyrir að ríki heimsins þurfi að taka afstöðu til þess hvort þau ætli að hafa Bitcoin sem hluta af varaforða sínum. Með fullnaðarsigri Repúblikana yfir báðum deildum þingsins velta margir því fyrir sér hvort frumvarp öldungardeildarþingmannsins Cynthia Lummis þess efnis nái fram að ganga. Kjartan og Björn br...
Bitcoin rýfur hæstu hæðir eftir nýafstaðnar forsetakosningar í Bandaríkjunum. Er $100.000 verðmiði framundan? Með Birni Harðarsyni 08.11.2024 58:56
Í þessum þætti fjallar Björn Harðarson um þýðingu og áhrif forsetakosninganna í Bandaríkjunum á Bitcoin og aðrar rafmyntir. Einnig fjallar Björn um undanfarnar hreyfingar á gengi Ethereum og ber það saman við Solana. Þetta og margt fleira í þessum þætti af Hlaðvarpi Myntkaupa.
Halldór Armand, rithöfundur ræðir nýútgefna bók sína, Mikilvægt rusl. 04.11.2024 1:07:25
Í þessum þætti ræða Halldór og Kjartan saman um bókina Mikilvægt rusl, sem er stórskemmtileg kómedía með Bitcoin ívafi og líklega fyrsta bókin á íslenskum markaði sem hægt er að kaupa fyrir Bitcoin. Einnig ræða þeir félagar um vegferð Halldórs sem rithöfundar og hvernig það kom til að hann varð hugfanginn af Bitcoin.
Staðan tekin á helstu rafmyntum. Kosningar væntanlegar í BNA. Er Bitcoin að fara yfir $70.000 í október? - Með Birni Harðarsyni 25.10.2024 57:33
Í þessum þætti spjalla Björn og Kjartan almennt um rafmyntir, fjalla um áhrif kosninganna í Bandaríkjunum á rafmyntir. Björn heldur því fram að við séum að fara að sjá nýjar hæðir á rafmyntamörkuðum á næstunni. Þetta og margt fleira var rætt í þessum þætti.
Bolamarkaðurinn er farinn af stað. Altseason handan við hornið - Með Birni Harðarsyni 28.09.2024 1:04:04
Í þessum þætti er farið yfir gengissveiflur undanfarinna vikna, helstu tíðindi markaðarins og af hverju Björn heldur að bolamarkaðurinn sé loksins byrjaður.
Rússíbanareið á rafmyntamörkuðum - Svartur svanur eða hvað? 09.08.2024 1:03:34
Í þessum þætti fjallar Björn Harðarson um þær miklu sveiflur sem einkennt hafa rafmyntamarkaðinn síðustu daga. Farið er yfir atburðarásina í tímaröð ásamt því að fjalla um það helsta sem hefur gerst með Bitcoin, Ethereum og Solana.
Hræðsla á mörkuðum vegna Mt. Gox - Er ástæða til að hafa áhyggjur? - Björn Harðarson mætir í settið 05.07.2024 1:07:17
Björn Harðarson mætti aftur og greindi lækkanir á rafmyntamörkuðum undanfarna daga. Fjallað var um áhrif þrotabús Mt. Gox. Einnig var fjallað um væntanlega kauphallarsjóði Solana og Ethereum, Bitcoin í samhengi alþjóðastjórnmála og margt fleira.
Podcast simili
Replaio non è un editore di podcast; i nomi dei programmi, le copertine e l'audio appartengono ai rispettivi autori e vengono distribuiti tramite feed RSS pubblici