RÚV
Frjálsar hendur
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Visita il sito del podcast e sostieni chi lo crea: www.ruv.is
Dove ascoltare?
I podcast nell'app Replaio Radio In arrivoI podcast stanno per arrivare nell'app. Installala ora e scopri per primo un modo tutto nuovo di vivere i podcast
Episodi
Íslandsferð C.W. Shepherd 1862 30.10.2022 52:00
Árið 1862 kom Bretinn Charles William Shepherd til Íslands í annað sinn. Hann hafði komið einu ári fyrr ásamt Holland til að kynna sér ýmislegt varðandi íslenska náttúru. Shepherd kom til landsins í seinna skiptið til þess að kanna Vestfirði og Vesturland og rannsaka íslenska fugla, eins og hann segir í bókinni The North-West Peninsula of Iceland. Steindór Steindórsson frá Hlöðum þýddi bókina og k...
Minningar Viktors Kravténko II 15.05.2022 52:00
Úkraínumaðurinn Viktor Kravténko lýsir því hvernig ferill hans sem námuverkamaður í Donbass-héraðinu upp úr 1920 endaði og hvernig samyrkjuvæðingunni í heimasveit hans í Úkraínu hafði reitt af. Þetta er mögnuð frásögn sem vakti svo mikla heift kommúnista þegar ævisaga Kravénkos kom út 1947 að það kom til réttarhalda í Frakklandi út af bókinni. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Æviminningar Úkraínumannsins Viktors Kravténko I 08.05.2022 52:00
Viktor Kravténko var Úkraínumaður á táningsaldri þegar rússneska byltingin gekk yfir og síðan valdarán kommúnista. Hann gekk til liðs við kommúnista og taldi þá mundu byggja upp nýtt og réttlátt þjóðfélag. Seinna stakk hann af úr landi og skrifaði með bandarískum blaðamanni frábæra bók, Ég kaus frelsið. Illugi Jökulsson les úr minningum hans þar sem segir frá fyrstu tilraunum til samyrkjubúskapar...
Útilegumenn, frásagnir úr Grettissögu og Biskupasögu 01.05.2022 52:00
Í Grettissögu er skemmtilegur kafli um dvöl útlagans Grettis Ásmundarsonar í Þórisdal, dularfullum dal uppi í jökli þar sem búa útilegumenn. Um aldir virðast Íslendingar hafa trúað því að slík útilegumannabyggð, bara býsna blómleg, væri í hinum leyndardómsfulla dal eða kannski í Ódáðahrauni þar sem sagt var að Oddur biskup hefði leitað hælis einu sinni. Illugi Jökulsson les frásagnir úr Grettissög...
Greinar og fyrirlestur frá 1922 17.04.2022 52:00
Illugi Jökulsson glugga í blöð og tímarit frá vorinu 1922. Meðal þess sem umsjónarmaður dregur fram er fyrirlestur sem Guðmundar Finnbogasonar, landsbókavarðar um „kynbætur manna", sem hann flutti á annan í páskum þetta ár. Stefán Jónsson læknir birti grein um „kynvillinga" í virðulegu tímariti, og einnig les hann lýsingar af skeleggum ljósmæðrum og alþýðufólki sem birtust í Læknablaðinu.
Eldgos og vesturferðir Íslendinga 10.04.2022 50:01
Illugi Jökulsson les úr fjörlegri frásögn Þorsteins Þorsteinssonar sem vildi skýra vesturferðir Íslendinga á ofanverðri 19. öld og sýndi því fram á hve ógurlega erfitt Ísland hefði alltaf verið!
Ísland til forna 03.04.2022 52:00
„Íslandi er svo í sveit komið á jörð þessari, að það virðist helzt vera miðstöð loftbelgings og lægða allra átta.“ Þorsteinn Þorsteinsson hét einn hinna frábæru íslensku alþýðumanna sem lögðu sál sína í að skrá hvers konar fróðleik um þjóð sína og sögu, þótt þeir þyrftu að gera það í hjáverkum frá brauðstritinu. Þorsteinn fór til Ameríku liðlega tvítugur og var þar lengst af húsamálari en hann skr...
Hrakningar og kvennamál 27.03.2022 52:00
Snemma vors 1916 fór Sturla Jónsson gangandi yfir Sprengisand vegna þess að hann ætlaði að hitta kærustuna sína. Hundurinn hans fór nauðugur með honum í þessa för. Aðeins annar þeirra komst alla leið. Pálmi Hannesson ritaði um þennan atburð, og les umsjónarmaður frásögn hans. Einnig segir frá öðrum manni sem lenti í hrakningum. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Árferði á Íslandi í 1000 ár 20.03.2022 52:00
Þorvaldur Thoroddsen tók fyrir rúmum 100 árum saman merkilega bók um „Árferði á Íslandi í 1000 ár“ og les umsjónarmaður upp úr köflum hans um þessi 15 ár í þættinum. Þar eru lýsingar stuttorðar, en þeim mun dapurlegri eru sögurnar. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Frásagnir Guðmundar Jónssonar frá Húsey af förufólki 13.03.2022 52:00
Guðmundur Jónsson frá Húsey var bóndi í Héraðsflóa. Hann flutti bláfátækur til Ameríku í byrjun 20. aldar og skrifaði endurminningar sínar í blaðið Lögberg. Guðmundur sagði m.a. frá förufólkinu sem var frægðarfólk síns tíma í hinu fábreytta íslenska samfélagi. Hann sagði frá Sigurði silkiblöðku, sem var gildur bóndi annars staðar á landinu en fór um Austurland og þóttist vera fátæklingur og betlað...
144 ára fréttir frá Rússlandi 27.02.2022 52:00
Árið 1878 höfðu Rússar nýlega sigrað Tyrki í stríði og voru með pálmann í höndunum á Balkansaga og í Kákasus. Alexander II keisari hafði aflétt bændaánauðinni 1861 og það stefndi allt til betri vegar í Rússlandi. Eða hvað? Byltingarmenn eins og Sergei Netsjaév og Vera Sasúlitsj voru ekki sátt og gripu til vopna. Og í Kaupmannahöfn sat Eiríkur Jónsson og skrifaði fréttir og fréttaskýringar um rússn...
Annar þáttur um Bjarna Brandsson sjómann 20.02.2022 52:00
Umsjónarmaður les úr æviþætti sem skrifaður var af Vilhjálmi Vilhjálmssyni um Bjarna Brandsson sjómann. Hér segir frá því þegar togari Bjarna sigldi á tundurdufl 1914, þegar þýskur kafbátur stöðvaði annan togara hans 1918 og þegar hann upplifði bæði frostaveturinn mikla og spænsku veikina sama ár. Lýsingin á spænsku veikinni í Reykjavík er mögnuð. Og loks er átakanleg lýsing á því þegar togarinn J...
Bjarni Brandsson sjómaður 13.02.2022 50:00
Umsjónarmaður les viðtal sem Vilhjálmur S. Vilhjálmsson blaðamaður átti við Bjarna Brandsson sjómann og birtist í Vikunni árið 1961. Bjarni segir m.a. frá uppeldi sínu á Snæfellsnesi og því þegar hann var um borð í togaranum Skúla fógeta, sem sigldi á tundurdufl í blábyrjun fyrri heimsstyrjaldarinnar. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Svetlana dóttir Stalíns segir frá Nadesju móður sinni 06.02.2022 52:00
Illugi Jökulsson les skrif Svetlönu Allilúévu um Nadesjdu um móður sína. Nadesja ólst upp í miðstéttarumhverfi í Pétursborg, þar sem öll fjölskyldan studdi þó uppreisn alþýðunnar gegn keisarastjórninni og kornung heillaðist Nadesjda af þungbrýndum byltingarmanni, Jósef Stalín. Ávöxtur ástar þeirra varð Svetlana en það var ekki auðvelt að vera kona Stalíns, sem aftur á móti dekraði við dóttur sína.
Úr þjóðfræðasafninu Grímu 30.01.2022 52:00
Í þjóðfræðasafninu Grímu eru ótal sögur um fólk af öllu tagi og „kynlega kvisti“. Þar á meðal er „Stutta-Sigga“ sem hér sést, Sigríður Benediktsdóttir. Illugi Jökulsson les frásögn um hana og aðra um „flogaveiku stúlkuna á Úlfá“ og 2-3 um Torfa Sveinsson á Klúkum í Eyjafirði, sem virðist hafa verið eins konar pólití fyrir sveitina og leitað var til hans þegar þurfti að koma upp um þjófa. Þessar fr...
Fleiri sagnaþættir Brynjúlfs frá Minna Núpi 23.01.2022 52:00
Illugi Jökulsson les frásöguþætti Brynjúlfs frá Minna Núpi, meðal annars um hreppstjóra í Rangárvallasýslu sem reyndu að reka burt nauðstadda flóttamenn eftir Skaftárelda.
Úr fórum Brynjólfs á Minna Núpi 16.01.2022 52:00
Kristjá 9. Danakóngur hafði lítinn áhuga á Íslandi og sinnti lítt íslenskum málum. En einu sinni þurfti hann að skera úr um það hvort karl í Vestmannaeyjum mætti kvænast kerlíngu. Bergur Thorberg landshöfðingi var líka í málinu. Brynjúlfur Jónsson frá Minna-Núpi sagði frá þessu máli á sinn hátt. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Styttan af Ingólfi Arnarsyni 09.01.2022 52:00
Sunnudaginn 25. febrúar 1924 safnaðist mikill mannfjöldi saman á Arnarhóli til að fylgjast með þegar stytta af Ingólfi Arnarsyni eftir Einar Jónsson var afhjúpuð. Illugi Jökulsson rifjar upp aðdragandann sem var þó nokkuð langur.
Sjóorrusta í Norðurhöfum 02.01.2022 52:00
Þetta er þriðja frásögn Illuga Jökulssonar sem tengist orrustu á sjó sem átti sér stað í Norðurhöfum á annan dag jóla 1943. Breska herskipið Duke of York sigldi frá Akureyri á Þorláksmessu og var komið norður fyrir Noreg á annan í jólum. Þar var ráðist til atlögu við þýska orrustuskipið Scharnhorst í miklu illviðri. Barist var til þrautar og komst aðeins annar flotaforinginn af.
Herskipið Duke of York, framhald 26.12.2021 52:00
Eftir æsilega siglingu orrustuskipsins Duke of York inn í Eyjafjörð rétt fyrir jólin 1943, stigu nokkrir skipsmenn á land á Akureyri. Þar á meðal var Edward Eastway Thomas, sem hafði verið við mælingar á Íslandi 1941. Hann leigði herbergi hjá Bjarna Halldórssyni og Margréti konu hans um tíma. Edward Thomas var breskur hermaður og hafði gert uppdrætti af fjörðum, víkum og vogum á Vestfjörðum. Breta...
Breskt orrustuskip við Akureyri 1943 19.12.2021 52:00
Örfáum dögum fyrir jól árið 1943 brunaði risastórt breskt orrustuskip á fullri ferð inn Eyjafjörð og kastaði akkerum á Akureyri. Hvað var skipið að vilja og af hverju lá því svo mikið á? Og hver var hin óvenjulega fortíð aðmírálsins um borð? Og hvað hafði njósnaforingi skipsins verið að gera á Hornströndum? Umsjón: Illugi Jökulsson.
Lea Ypi og lífið í Albaníu 12.12.2021 48:49
Lea Ypi fæddist árið 1979 í Albaníu sem þá var harðlæst og afskekkt kommúnistasamfélag þar sem Enver Hoxha ríkti yfir öllu. Lea ólst upp við persónudýrkun, tvískinnung og kúgun á öllum sviðum en gerði sér enga grein fyrir því sjálf, og hélt að lífið með foreldrum sínum og ömmu væri hið besta hugsanlega líf. Nú er Lea prófessor í stjórnmálafræði við London School of Economics, stórsnjöll kona og va...
Æskuminningar Viktors Kravténkos, framhald 05.12.2021 52:00
Illugi Jökulsson heldur áfram að lesa úr æskuminningum Viktors Kravténkos, úkraínska flóttamannsins úr sæluriki Sovétríkjanna, þar sem hann segir frá árum heimsstyrjaldarinnar fyrri, þegar allt lífið breyttist - og það endanlega. Mögnuð og líka átakanleg frásögn.
Viktor Kravténkos 28.11.2021 52:00
Illugi Jökulsson les úr bókinni, Ég kaus frelsið, aðallega æskuminningar höfundarins, Viktors Kravténkos. Kommúnistar á Íslandi voru ekki sáttir þegar Lárus Jóhannesson lögmaður hafði þýtt og gefið út árið 1951 bók eftir Viktor, sem var flóttamaður frá Sovétríkjunum. Í bókinni fór hann ófögrum orðum um ríki Stalíns, og Þjóðviljanum var ekki skemmt að þessi falsáróður gegn verkalýðsríkinu eftir ein...
Sveinbjörn Egilsson, framhald 21.11.2021 52:00
Sveinbjörn Egilsson sigldi um öll heimsins höf, lenti í fellibyljum á Indlandshafi, hvirfilvindum út af Suður-Afríku og ofsaveðri út af Írlandi, en aldrei komst hann eins rækilega í hann krappan og þegar hann sigldi með dýrvitlausum manni á smábáti frá Vestfjörðum til Reykjavíkur. Eða ... hann ætlaði til Reykjavíkur, báturinn komst ekki alla leið.
Podcast simili
Replaio non è un editore di podcast; i nomi dei programmi, le copertine e l'audio appartengono ai rispettivi autori e vengono distribuiti tramite feed RSS pubblici