RÚV
Frjálsar hendur
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Visita il sito del podcast e sostieni chi lo crea: www.ruv.is
Dove ascoltare?
I podcast nell'app Replaio Radio In arrivoI podcast stanno per arrivare nell'app. Installala ora e scopri per primo un modo tutto nuovo di vivere i podcast
Episodi
Æviminningar Gunnars Þorbergssonar, framhald 05.03.2023 52:00
Illugi Jökulsson heldur áfram að lesa úr æviminningum Gunnars Þorbergssonar, eða Gunnars Th. Oddssonar, eins og nefndi sig þegar hann bjó vestanhafs. Frásögnin hefst á því þegar ísbjörn nálgast land í Loðmundarfirði árið 1881.
Æviminningar Gunnars Þorberssonar, framhald 26.02.2023 52:00
Illugi Jökulsson heldur áfram að vinsa efni úr hinum fróðlegu æviminningum Gunnars Þorbergssonar, eða Gunnars Th. Oddssonar, sem fæddist á Loðmundarfirði 1865. Hann greinir frá uppeldi sínu á venjulegu alþýðuheimili á látlausan en snotran hátt og hlustendur frá að kynnast ýmsu sem ekki öllum hefði þótt frásagnarvert.

Sagt frá Gunnari Th. Oddssyni 19.02.2023 52:00
Árið 1936 birtist frétt í Norðablaðinu Degi, þar sem sagt var frá Gunnari Th. Oddssyni, sjötugum íslenskum hlaupara í Vesturheimi. Hann fæddist í Nes-hjáleigu í Loðmundarfirði 1865. Þegar hann var gamall maður í Vesturheimi ritaði hann svolítið kver með sjálfsævisögu sinni og fylgdi henni úr hlaði með þessum orðum: „Þó ég taki nú penna í hönd til að rita ferðasögu mína yfir lífshafið, finn ég vel...
Sagt frá Gunnari Th. Oddssyni 19.02.2023 50:00
Árið 1936 birtist frétt í Norðablaðinu Degi, þar sem sagt var frá Gunnari Th. Oddssyni, sjötugum íslenskum hlaupara í Vesturheimi. Hann fæddist í Nes-hjáleigu í Loðmundarfirði 1865. Þegar hann var gamall maður í Vesturheimi ritaði hann svolítið kver með sjálfsævisögu sinni og fylgdi henni úr hlaði með þessum orðum: „Þó ég taki nú penna í hönd til að rita ferðasögu mína yfir lífshafið, finn ég vel...
Hungursneyð í Úkraínu 1932-33 12.02.2023 52:00
Umsjónarmaður heldur afrma að lesa úr æviminningum Viktors Kravtsenkos. Haldið er áfram að segja frá hungursneyðinni í Úkraínu, sem Sovétmenn reyndu að halda í þagnargildi. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Samyrkjubús- og iðnvæðing í Úkraínu 1932 05.02.2023 52:00
Umsjónarmaður les úr æviminningum Viktors Kravtsenkos, þar sem fjallað er um samykjubúin í Úkraínu, iðnvæðinguna og harðstjórn Moskuvaldsins. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Ævisaga Viktors Kravtsjenkos, framhald 29.01.2023 52:00
Höfundur heldur áfram að lesa úr æviminningumr Úkraínumannsins Viktors Kravtsjhenkos, Ég kaus frelsið. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Hrakningar á sjó 22.01.2023 52:00
Umsjónarmaður les frásagnir sem Jens Hermannsson kennari safnaði saman og gaf út á síðustu öld. Þetta er frásagnir breiðfirskra sjómanna. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Hrakningar á sjó 22.01.2023 52:00
Umsjónarmaður les frásagnir sem Jens Hermannsson kennari safnaði saman og gaf út á síðustu öld. Þetta er frásagnir breiðfirskra sjómanna. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Munchhausen hjá Tyrkjasoldáni 15.01.2023 52:00
Umsjónarmaður heldur áfram að segja frá þýska baróninum af Munchhausen. Hann var kominn í þjónustu Tyrkjasoldáns og frásagnir hans eru lyginni líkastar. Umsjón: Ilugi Jökulsson.

Skólaár Þorvaldar Thoroddsen 08.01.2023 50:00
Þorvaldur Thoroddsen sem var einn merkasti vísindamaður okkar Íslendinga báðum megin við aldamótin 1900. Umsjónarmaður les úr minningum hans frá skólaárum í Latínuskólanum og fyrstu árunum í Reykjavík. Skemmtilegar lýsingar á skólalífi og höfuðstaðnum á ofanverðri 19. öld. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Lesið úr ævisögum íslenskra menntamanna 01.01.2023 52:00
Sú var tíð meðan Íslendingar voru enn undir stjórn Dana að þeim fannst Danir líta á þá sem ómenntaða barbara eða villimenn. Jón Thorkillius rektor skrifaði þá stuttar ævisögur íslenskra menntamanna til að sýna fram á annað, og í þessum þætti verður lesið úr nokkrum skemmtilegum ævisögum - til dæmis um Jón Vestmann sem átti æsilega ævi í þjónustu Tyrkja áður en hann gerðist mektarmaður í Kaupmannah...

Dagleg líf á dögum Krists 25.12.2022 50:00
Daglegt líf á dögum Krists er umfjöllunarefni þessa jólaþáttar, sem er framhald þáttarins á undan. Úr hvaða samfélagi voru þau Jósef og María sprottin, hverju trúðu þau og samferðamenn þeirra, hvert var samspil alþýðunnar í Palestínu við Rómverja, og var Jesúa frá Nasaret einstakur í sinni röð - eða bara einn af mörgum? Umsjón: Illugi Jökulsson.

Winston Churchill kemur til Reykjavíkur 18.12.2022 52:00
Í ágúst 1941 kom Winston Churchill í heimsókn til Reykjavík. Heimsóknin vakti mikla athygli, Reykvíkingar fögnuðu breska forsætisráðherranum ákaft og Churchill fannst lofið gott. En hvað var hann að vilja og hvernig gekk heimsóknin fyrir sig? Hér er leitað fanga m.a. í ævisögu lífvarðar Churchills og einnig vitnað í skrif hans sjálfs um heimsóknina, en þar þakkaði hann sér hugmyndina að hitaveitu...
Magnús Stephensen og Játníngar Rousseaus 11.12.2022 52:00
Jean-Jacques Rousseau (1712-1778) var einn af merkustu mönnum Evrópu á 18. öld, Hann var heimspekingur og rithöfundur sem átti furðu mikinn þátt í að móta skoðanir nútímafólks á bæði manninum og náttúrunni, en var líka einstakur brautryðjandi í sjálfsævisöguskrifum. Játningar hans eru bæði djúpur og einstaklega skemmtilegur vitnisburður um það. Í þessum þætti verður sagt frá Rousseau og svo glugga...
Viktor Kravténko og andstæðurnar 04.12.2022 52:00
Árið 1931 er Úkraínumaðurinn Viktor Kravténko kominn til Moskvu til að bera ráðamönnum kvartanir um hörmulegt ástand á heimaslóðum. Hann hittir ráðherrann Ordsjónikidze og hinn víðfræga Búkharin, sem taka honum fagnandi en um leið finnur hann á eigin skinni hve auðvelt er að láta ginnast af valdi og velsældum ráðamanna. En heima hjá foreldrum hans er komin munaðarlaus stúlka sem kippir honum niður...
Viktor Kravténko uppgötvar að ekki er allt sem sýnist 27.11.2022 52:00
Í lífi Úkraínumannsins Viktors Kravténkos er runninn upp einkennilegur tími. Hann er vongóður og dugmikill kommúnisti, sannfærður um að ekkert nema kommúnisminn geti kippt lífinu í lag en um leið fara að berast óhuggulegar sögur um hræðilegt ástand úti á landi og í heimsókn Kravténkos til verkamanna í Úkraínu rennur upp fyrir honum að „verkamannaparadísin" er eitthvað málum blandin. Umsjón: Illugi...

Münchhausen barón 20.11.2022 52:00
Münchhausen barón bjó í Þýskalandi á 18. öld og tók þátt í styrjöldum í Rússlandi, veiðiferðum og siglingum. Hann varð frægur fyrir litríkar ýkjusögur af afrekum sinum og upp úr þeim sögum samdi annar maður eina af frægustu og vinsælustu bókum samtímans. Hér segir frá því þegar Münchhausen ferðaðist milli viglína á fallbyssukúlu, fór til tunglsins og margt fleira skemmtilegt. Umsjón: Illugi Jökuls...
Ferðasaga Shepherds, þriðji hluti 13.11.2022 52:00
Þriðji og síðasti þátturinn upp úr ferðabók Englendingsins Shepherds frá 1862. Hann er nú á ferð um suðurhluta Stranda, Steingrímsfjörð, Ísafjarðardjúp og endar á því að fara upp á Drangajökul. Lýsingar Shepherds á fólkinu í landinu, en ekki síður náttúrunni eru ólíkar þeim sem birst hafa áður í Íslandslýsingum, hvort heldur Íslendinga sjálfra eða útlendinga. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Ferðabók Englendingsins Shepherd, annar hluti 06.11.2022 52:00
Illugi Jölulsson heldur áfram að glugga í ferðabók Englendingsins Shepherd, sem ferðaðist um landið vestanvert sumarið 1862. Hann var kominn upp á Arnarvatnsheiði í síðasta þætti, í frekar slæmu veðri enda var sumarið ekki gott. Shepherd og félagar hans halda þessu næst til Vestfjarða og eru frásagnir hans að mörgu leyti hreinskilnari og skemmtilegri en títt var um skrif erlendra ferðalanga um Ísl...
Podcast simili
Replaio non è un editore di podcast; i nomi dei programmi, le copertine e l'audio appartengono ai rispettivi autori e vengono distribuiti tramite feed RSS pubblici