RÚV
Frjálsar hendur
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Visita il sito del podcast e sostieni chi lo crea: www.ruv.is
Dove ascoltare?
I podcast nell'app Replaio Radio In arrivoI podcast stanno per arrivare nell'app. Installala ora e scopri per primo un modo tutto nuovo di vivere i podcast
Episodi
Guðrún frá Kornsá segir frá Sigríði Oddnýju ömmu sinni 19.09.2021 52:00
Guðrún Björnsdóttir frá Kornsá segir frá ömmu sinni, einkadóttur Björns Blöndals sýslumanns og Guðrúnar konu hans. Sagt er frá uppeldi og ungum ástum í Húnavatnssýslu á 19. öld, en líka átakanlegum hlutum. Þegar amman, Sigríður Oddný, vildi læra að skrifa eins og bræður hennar, voru viðbrögð móður hennar þessi: „[Guðrún] leit hvasst á [dóttur sína], og spurði svo nokkuð harkalega, hvað hún ætlaði...
Dýrleif Einarsdóttir 12.09.2021 52:00
Umsjónarmaður gluggar betur í „Íslenskar kvenhetjur“ eftir Guðrúnu Björnsdóttur frá Kornsá. Nú segir hún frá Dýrleifu Einarsdóttur sem háði harða lífsbaráttu fyrir norðan kringum aldamótin 1900. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Guðrún frá Kornsá segir frá Jakobínu Jónsdóttur ljósmóður 05.09.2021 52:00
Guðrún Anna Björnsdóttir, var elst barna Ingunnar Jónsdóttur fræðikonu og Björns Sigfússonar bónda og Alþingismanns. Guðrún ólst upp á bænum Grímstungu, og síðar á Kornsá í Vatnsdal. Hún var kennari og skólastjóri, og gaf út bókina Íslenskar kvenhetjur árið 1948. Þar sagði hún frá íslenskum hvundagshetjum. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Miridítu-lýðveldið 25.07.2021 52:00
Prenk Bib Doda var að segja má andlegur guðfaðir Mirdítu-lýðveldisins, þótt hann lifði ekki að sjá það verða að veruleika sem sjálfstætt ríki í júlí 1921, eða fyrir réttum 100 árum. Frændi hans, Marka Gjoni, varð fyrsti forseti Mirdítu þegar sjálfstæðinu var lýst yfir. En hvar var Mirdítu-lýðveldið, og af hverju finnum við það ekki á neinu landakorti? Þá sögu segir Illugi Jökulsson í þættinum.
Atburðir við Brunnárós í Öxarfirði 1857 18.07.2021 52:00
Árið 1857 fórust sex menn í aftakaveðri við Brunnárós í Öxarfirði, en einn komst lífs af. En hver var hann? Um þessa dramatísku atburði les Illugi Jökulsson í þættinum og styðst við hinn ágæta sagnaritara Benjamín Sigvaldason.
Brot úr sjálfsævisögu Guðmundar J. Einarssonar 11.07.2021 52:00
„Kalt er við kórbak, kúrir þar Jón hrak,“ segir í vísunni. En „Kalt er við kórbak“ er líka heitið á sjálfsævisögu Guðmundar J. Einarssonar (1893-1980). Hann stríddi við fátækt og berklaveiki, upplifði spænsku veikina og hörku hjúkrunarkvenna á Vífilsstöðum, og þoldi kuldavetur mikla. Þetta er líka ástarsaga, því Guðmundur og stúlkan hans voru að basla við að draga sig saman og elska hvort annað me...
Sköpun heimsins 04.07.2021 52:00
Illugi Jökulsson segir aðeins frá fyrstu Mósebókum og les úr Biblíunni um sköpun heimsins, Adam og Evu og aldingarðinn, morðið á Abel, Nóaflóðið, Babelsturninn, hlutskipti Söru í Egiftalandi, tortímingu Sódómu og Gómorru.
Sjóðferðaminningar Sveinbjörns Egilssonar, lokaþáttur 27.06.2021 52:00
Umsjónarmaður lýkur lestri úr Sjóferðaminningum Sveinbjörns Egilssonar sem var háseti á skoska gufuskipinu Loch Lomond. Segir nú frá heimsókn skipverja til Kalkútta á Indlandi árið 1892. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Fleiri sjóferðaminningar Sveinbjörns Egilssonar 20.06.2021 52:00
Illugi Jökulsson heldur áfram að lesa úr Sjóferðaminnginum Sveinbjörns Egilssonar. Árið 1892 var hann háseti á gufuskipinu Loch Lomond, sem sigldi m.a. til Madras og síðan til Calcutta. Sveinbjörn hafði alltaf jafn gaman af að skoða í kringum sig og rannsakaði sérstaklega drottningar næturlífsins.
Sjóferðaminningar Sveinbjörns Egilssonar, framhald 13.06.2021 52:00
Þar var komið siglingu Sveinbjörns Egilssonar á kolaskipinu Loch Lomond til Austurlanda að skipið hafði viðdvöl í Aden í Jemen. Vinnumenn úr landi komu til að lesta kol og var það handagangur í öskjunni og loks varð uppþot um borð. Sveinbjörn segir alltaf skemmtilega frá - og svo liggur leiðin til Ceylon, eða Sri Lanka. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Sjóferðaminningar Sveinbjörns Egilssonar 06.06.2021 52:00
Sveinbjörn Egilsson var sonur Þorsteins Egilssonar og þar af leiðandi sonarsonur Sveinbjörns Egilssonar rektors. Hann ritaði Ferðaminningar: frásögur frá sjóferðum víða um heim. Meðal þess sem þar má lesa er frásögn af því þegar hann fór árið 1891 í skemmtiferð til Loch Lomond í Skotlandi. Hann fékk síðan óvænt hásetapláss á gufuskipinu Loch Lomond, sem lagði upp í langa siglingu til Indlands. Þes...
Háskaför sem fór ekki vel 30.05.2021 52:00
Haustið 1868 var Ulysses Grant kjörinn forseti Bandaríkjanna og fyrstu götuljósin voru sett upp í London. Þá lögðu fjórir Íslendingar upp frá Skaftártungum og ætluðu Fjallabaksleið yfir í Rangárvallasýslu. Þeir hurfu eins og jörðin hefði gleypt þá. Svo fundust þeir áratug síðar. Pálmi Hannesson skrifaði frásögn um þessa harmaför þeirra fjórmenninga, og við sögu koma ástir og örlög, dularfullur fyr...
Úr æviminningum Reinalds Kristjánssonar 23.05.2021 52:00
Illugi Jökulsson les úr hinum skorinorðu æviminningum Reinalds Kristjánssonar (1866-1940), Á sjó og landi. Að þessu sinni segir frá sjómennsku og póstferðum, deilum við mann og annan og svo segir Reinald frá kvennamálum sínum.
Ingibjörg Lárusdóttir 16.05.2021 52:00
Ingibjörg Lárusdóttir (1861-1949) sinnti barnauppeldi og óteljandi störfum á stóru heimili, saumaði líkklæði af list fyrir nágranna sína í Húnavatnssýslunni og fékkst örlítið við verslun. En milli línanna í svolitlu sagnakveri sem hún gaf út seint á ævinni, Úr djúpi þagnarinnar, er auðvelt að sjá að ef hún hefði verið uppi hundrað árum seinna hefði hún líklega orðið býnsa góður rithöfundur. Sumar...
Theódór í sæluhúsini í Hvítanesi 09.05.2021 52:00
Umsjónarmaður heldur áfram að lesa úr æviminningabók Theódórs Friðrikssonar. Að þessu sinni les hann frásögn Theódórs af því þegar hann var umsjónarmaður í sæluhúsinu í Hvítanesi í mánaðartíma í júlí 1942. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Silkileiðin 02.05.2021 52:00
Illugi Jökulsson fjallar um Silkileiðina og segir m.a. frá Justianianusi keisara, silkiormm, móberjatrjám og fyrstu iðnaðarnjósnurum sögunnar.
Ofan jarðar og neðan, framhald 25.04.2021 52:00
Illugi Jökulsson heldur áfram að lesa úrOfan jaðar og neðan, ævisögu Theódórs Friðrikssonar. Að þessu sinni les hann m.a. um puð Theódórs við að hrófla upp Reykjavíkurflugvelli í Bretavinnunni og frásögn af kynnum hans af litríkum ættfræðingi, Stein Dofra.
Veturinn 1940-41 í Reykjavík 18.04.2021 52:00
Theódór Friðriksson, sjómaður, verkamaður, rithöfundur, aðstoðardyravörður í Alþýðuhúsinu, skrifaði rómaða sjálfsævisögu, Í verum, þar sem hann lýsti hlutskipti alþýðufólks, en svo kom annað bindi, Ofan jarðar og neðan, þar sem hann lýsti meðal annars vetrinum 1940-1941 þegar hann var við dyravörslu á skemmtistað sem breskir hermenn og íslenskt gleðifólk af ýmsu tagi sótti ósleitilega. Illugi Jöku...
Úr æviminningum Svetlönu Stalín 11.04.2021 52:00
Umsjónarmaður les úr sjálfsævisögu Svetlönu dóttur Stalíns. Illugi gerir aðeins grein fyrir Nadezhdu, móður Svetlönu. Hann les úr þriðja kafla æviminninga Svetrlönu, þar sem m.a. er fjallað um afa hennar, Sergei Allilújev. Svetlana segir frá unaðslegu lífinu í sveitasælunni nálægt Moskvu, um sama leyti og Stalín hrinti af stað hungursneyðinni í Úkraínu þar sem önnur börn sultu tugþúsundum saman ti...
Rómarkeisarar og fylgjendur Krists 04.04.2021 52:00
Hvernig brugðust Rómarkeisarar af fyrstu fregnum af nýjum söfnuði sem kenndur var við dularfullan Gyðing, sem kallaður var Kristur? Claudius rak þá frá Róm, Neró kveikti í þeim, Domitianus ofsótti þá en Trajanus reyndi að svara samviskusamlega merkilegri fyrirspurn frá landstjóra sínum Pliníusi yngra. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Suez skurðurinn 28.03.2021 52:00
Risaflutningaskipið Ever Given situr nú fast í Súez-skurði. Af því tilefni segir umsjónarmaður frá upphafi og vígslu skurðarins, en þá hélt Ismail æðsti maður Egifta heljarinnar hátíð. Jafnframt er lesið úr minningum Sveinbjörns Egilssonar um siglingu eftir skurðinum laust fyrir 1900. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Lamaði drengurinn Einar Bekk Guðmundsson 21.03.2021 52:00
Haustið 1904 fæddist sprækur strákur á Seyðisfirði, sonur Vilborgar Sigríðar Jónsdóttur og Guðmundar Bekk. Hann var skírður Einar. Hálfs árs fékk hann lömunarveiki og ljóst þótti að hann myndi aldrei geta gengið. En þótt foreldrar hans væru fátækt alþýðufólk vildu þau gera allt sem þau gátu fyrir drenginn sinn og haustið 1913 lagði Guðmundur upp með lamaðan níu ára soninn í ótrúlega för til Kaupma...
Ferð umhverfis Vatnajökul 14.03.2021 52:00
Illugi Jökulsson les upp úr bókinni Fjöll og firnindi, frásagnir Stefáns Filippussonar, sem Árni Óla skrásetti. Stefán var oft fylgdarmaður erlendra gesta sem komu til landsins til að ferðast um hálendið. Illugi les frásögn af ferð sem Stefán fór sumarið 1933 í kringum Vatnajökul með Miss Smith, enskri konu sem hafði heyrt að engum hefði tekist að komast yfir árnar sem falla frá jöklinum að sumrar...
Langferð Steingríms Matthíassonar 4 - Litríkt líf í Austurlöndum 07.03.2021 52:00
Steingrímur Matthíasson læknir birti frásögn sína af ferð um Austurlönd í blaðinu Gjallarhorn, sem gefið var út á Akureyri. Illugi Jökulsson les um framandlegt líf, gróður, litina og fólkið sem vakti athygli Steingríms í ferðinni. Sagt er frá mannlífið í Singapúr og ótrúlega frjósaman gnægtagarð á Ceylon, sem nú heitir Sri Lanka.
Ferðasaga Steingríms Matthíassonar, síðasti hluti 07.03.2021 52:00
Steingrímur Matthíasson læknir birti frásögn sína af ferð um Austurlönd í blaðinu Gjallarhorn, sem gefið var út á Akureyri. Illugi Jökulsson les um framandlegt líf, gróður, litina og fólkið sem vakti athygli Steingríms í ferðinni. Sagt er frá mannlífið í Singapúr og ótrúlega frjósaman gnægtagarð á Ceylon, sem nú heitir Sri Lanka.
Podcast simili
Replaio non è un editore di podcast; i nomi dei programmi, le copertine e l'audio appartengono ai rispettivi autori e vengono distribuiti tramite feed RSS pubblici