Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2954 episodi

Podcastþættir Fótbolta.net

Visita il sito del podcast e sostieni chi lo crea: fotbolti.net

Autore

Fotbolti.net

Categoria

Sports

Sito del podcast

fotbolti.net

Ultimo episodio

25 nov 2026

Dove ascoltare?

I podcast nell'app Replaio Radio In arrivo

I podcast stanno per arrivare nell'app. Installala ora e scopri per primo un modo tutto nuovo di vivere i podcast

Scaricala su Google Play Installala gratis Android 10 mln+ di download · valutazione 4,7+ iOS in arrivo

Episodi

Útvarpsþátturinn - Mosó í Bestu deildina 05.10.2024

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 5. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Gestur þáttarins er Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar en Mosfellingar eru komnir upp í Bestu deildina. Farið er yfir fréttir vikunnar, Bestu deildina, tap Víkings í Sambandsdeildinni, Sæbjörn Steinke skoðar landsliðshópinn og Kristján Atli ræðir um enska boltann.

Risarnir tveir slást og annar þeirra stendur uppi sem meistari 03.10.2024

Einn stærsti leikur síðari ára í íslenska fótboltanum fer fram á laugardaginn þegar Valur tekur á móti Breiðabliki. Risarnir tveir í kvennaboltanum eigast þarna við í einum leik sem mun skera úr um það hvaða lið verður Íslandsmeistari. Breiðablik er með einu stigi meira fyrir leikinn. Það er óhætt að gera kröfu á áhorfendamet en leikurinn fer fram á Hlíðarenda á laugardaginn klukkan 16:15. Fótbolt...

Fótbolta nördinn - 16 liða úrslit: FH vs Gula Spjaldið 02.10.2024

Fótbolta nördinn er nýr hlaðvarpsþáttur hjá Fótbolti.net. Í þessum þáttum munu knattspyrnumenn og fjölmiðlamenn etja kappi í spurningakeppni. 16 liða úrslitin eru hafin og hægt er að hlusta á þeim í spilaranum og öllum öðrum hlaðvarpsveitum.

Hugarburðarbolti GW6 - Er Cole Palmer stjórnað af gervigreind? 01.10.2024

Cole Palmer með alvöru sýningu á brúnni og er sá fyrsti til þess að skora fernu í fyrri hálfleik frá stofnun úrvalsdeildarinnar 1992. Draumamark bakvarðarins dugði ekki til á Emirates. Liam Delap með tvennu fyrir Traktors strákana. Liverpool fóru á toppinn með því að leggja Úlfana 1-2 á meðan Man City mátti sætta sig við stig gegn sterkum Newcastle mönnum í norðrinu og Man Utd steinlá á heimavelli...

Innkastið - Töfrar, tár og trúðaskór 01.10.2024

Uppgjör á 2. umferð úrslitakeppni Bestu deildarinnar og Lengjudeildin gerð upp. Hverjir voru bestir? Tarik Ibrahimagic töfraði þrjú stig til Víkings og Breiðablik skoraði sigurmark beint úr horni. Nokkur lið eru hreinlega kominn í vetrarfrí og Vestri vann klaufalegt lið HK. Afturelding er komin upp í Bestu deildina. Elvar Geir, Valur Gunnars og Guðmundur Aðalsteinn í Innkastinu.

Enski boltinn - Nú hljóta þeir að reka Ten Hag og Palmer sjóðheitur 30.09.2024

Erik ten Hag getur ekki lifað mikið lengur í starfi hjá Manchester United. Það er bara svoleiðis, United hlýtur að fara að reka hann. United tapaði 0-3 gegn Tottenham í gær en það var farið vel yfir það í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag. Tryggvi Páll Tryggvason var á línunni og fór yfir leikinn í gær. Chelsea stuðningsmennirnir Haraldur Örn Haraldsson og Stefán Marteinn Ólafsson eru þá gestir og f...

Útvarpsþátturinn - Meistarabragur á báðum liðum 28.09.2024

Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars fara yfir allt það helsta í boltanum. Leikir vikunnar í Bestu deildinni, fótboltafréttir vikunnar, 50 milljóna króna leikurinn og ýmislegt fleira. Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA í beinni frá Akureyri.

Siggi Höskulds fer yfir vonbrigðatímabil 27.09.2024

Þórsarar voru stórhuga fyrir tímabilið og eftir velgengni á undirbúningstímabilinu var trúin fyrir norðan mikil, gera átti alvöru atlögu að sæti í Bestu deildinni. Byrjunin í deildinni var fín, vel gekk í bikarnum en svo fór að halla undan fæti og þegar leið á tímabilið var liðið hreinlega í fallhættu. Niðurstaðan varð 10. sætið. Sigurður Höskuldsson, þjálfari liðsins, ræddi við Sæbjörn Steinke og...

Hugarburðarbolti GW5 - Skrímslið sem breyttist í 5 ára krakka! 24.09.2024

Þvílíka skemmtunin hjá Man City og Arsenal á Etihad. Leikur sem bauð upp á allt. Luis Diaz á eldi með Liverpool. Tottenham í góðum gír um helgina. Newcastle tapaði gegn Fulham í London og það var leikur markvarðanna þegar Crystal Palace og Man Utd skildu jöfn 0-0 á Selhurst Park.

Innkastið - Túristar urðu sigurvegarar 24.09.2024

Hringborðið dregið fram í Innkasti vikunnar. Elvar Geir, Valur Gunnars, Guðmundur Aðalsteinn og svo Haraldur Örn stuðningsmaður KA. Bikarinn á Brekkuna! Til hamingju KA. Bikarúrslitaleikurinn er gerður upp en þar sýndi KA fyrirmyndar frammistöðu og vann verðskuldaðan sigur gegn Víkingi. Úrslitakeppni Bestu deildarinnar er farin af stað með glæsimörkum, áætlun Aftureldingar er að ganga upp í Lengju...

Enski boltinn - Leikur sem spannaði allt sviðið 23.09.2024

Það var sannkallaður stórleikur í ensku úrvalsdeildinni í gær þegar Manchester City spilaði við Arsenal. Jón Kaldal, stuðningsmaður Arsenal, og Magnús Haukur Harðarson, stuðningsmaður Liverpool, komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net og fóru yfir stórleikinn, og aðra leiki helgarinnar. Enski boltinn er í boði Nova.

Tveggja Turna Tal - Gunnlaugur Jónsson 23.09.2024

Gunnlaugur Jónsson er gestur vikunnar. Við félagarnir fórum yfir víðan völl enda áhugasvið og ferill Gulla afar athyglisverður. Nýdönsk, afhverju vann FH ekki 89?, Draumalið ÍA frá 1980, Gaui Þórðar, Teitur Þórðar, Selfoss, Valur, Þróttur og fjölmiðlabakterían bar á góma! Við lentum í tómum vandræðum með þjófavörnina, brunavarnirnar og margt fleira. Við þökkum Nettó, Netgíró, Lengjunni, Fitness Sp...

Útvarpsþátturinn - Umspilið, Rúnar Kristins og Besta 21.09.2024

Elvar Geir og Tómas Þór í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 laugardaginn 21. september. Sæbjörn Steinke er með þeim í þættinum. Rætt er um fréttir vikunnar, umspil Lengjudeildarinnar, bikarúrslitaleikinn, Bestu deildina og fleira. Gestur þáttarins er Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram.

Upphitun fyrir bikarúrslitaleikinn: Stuðningsmenn ræða málin 20.09.2024

Úrslitaleikur Mjólkurbikarsins fer fram á morgun þar sem Víkingur og KA munu eigast við. Haraldur Örn Haraldsson stuðningsmaður KA og Sverrir Örn Einarsson stuðningsmaður Víkings hituðu upp fyrir leikinn í þessu þætti.

Leiðin á Laugardalsvöll - Stórskemmtilegt fyrirbæri 20.09.2024

Á morgun fara fram undanúrslitin í Fótbolti.net bikarnum. Aðeins þarf að vinna einn leik í viðbót til að komast á Laugardalsvöll. laugardagur 21. september 13:00 Selfoss-Árbær (JÁVERK-völlurinn) 13:00 KFA-Tindastóll (Fjarðabyggðarhöllin) Bjarni Jóhannsson, þjálfari Selfoss, ræddi við Fótbolta.net í morgunsárið um sumarið á Selfossi en lið hans flaug upp úr 2. deildinni. Einnig var farið yfir undan...

Viktor Örlygur á leið í sinn fimmta bikarúrslitaleik 19.09.2024

Viktor Örlygur Andrason leikmaður Víkinga mætti í hljóðver Fótbolta.net í létta upphitun fyrir úrslitaleik Mjólkurbikarsins sem fram fer næstkomandi laugardag. Þar munu Víkingar mæta KA í úrslitum annað árið í röð og freista þess að vinna sinn fimmta bikartitil í röð.

Hugarburðarbolti GW4 Haaland heldur bara áfram sínu striki 17.09.2024

Haaland heldur bara áfram sínu striki. Robert Sanchez og Onana vörðu báðir vítaspyrnu í stöðunni 0-0 hjá sínum liðum. Fyrsti sigur Notthingham Forest á Anfield síðan 1969. Arsenal með montréttinn í Norður London eftir helgina og Ollie Watkins er vaknaður. Draumamörk í umferðinni.

Haukur Heiðar - Bikarúrslit, Deano og Alexander Isak 17.09.2024

Á laugardag fer fram bikarúrslitaleikur KA og Víkings á Laugardalsvelli; annað árið í röð mætast liðin í úrslitaleiknum. Í tilefni af því var KA-maðurinn Haukur Heiðar Hauksson fenginn til að hita aðeins upp fyrir leikinn. Haukur lagði skóna á hilluna eftir tímabilið 2021. Hann er uppalinn hjá KA, varð svo Íslands- og bikareistari með KR áður en hann tók skrefið út í atvinnumennsku og varð sænskur...

Innkastið - Rembingur og klaufabárðar 17.09.2024

22 umferðum er lokið í Bestu deildinni og komið að tvískiptingunni! Elvar Geir, Valur Gunnars og Guðmundur Aðalsteinn gera upp umferðina. Víkingur er á toppnum með öfluga markatölu, við höldum áfram að rembast við að búa til úrslitaleik, KR-ingar eru klaufabárðar og liðin í neðri hlutanum töpuðu nánast öll. Í þættinum er einnig fjallað um lokaumferð Lengjudeildarinnar og rýnt í umspilið. Svo er bi...

Enski boltinn - Að harka út sigur og getur Liverpool barist um titilinn? 16.09.2024

Landsleikjahléið er búið og fjórða umferðin í ensku úrvalsdeildinni var leikin um helgina. Ágúst Unnar Kristinsson og Óliver Elís Hlynsson, leikmenn ÍR, mættu í heimsókn og fóru yfir málin. Arsenal vann meistarasigur gegn erkifjendum sínum í Tottenham, raunveruleikatékk fyrir Arne Slot, Haaland er vélmenni og Manchester United komst aftur á sigurbraut gegn Southampton. Þetta og fleiri í þætti dags...

Tveggja Turna Tal - Ólafur Helgi Kristjánsson 16.09.2024

Óli Kristjáns er gestur sem allir þekkja. Óli var góður leikmaður fyrir FH, KR, AGF og Íslenska landsliðið og fáir Íslendingar hafa átt eins áhugaverðan þjálfaraferil. Það geta allir lært helling af því að hlusta á Ólaf. Skiptir þá engu hvort um sé að ræða þjálfun eða lífið sjálft. Við þökkum Nettó, Netgíró, Lengjunni fyrir samstarfið góða og óskum ykkur öllum þess að njóta vel! Það Er Alltaf Von

Útvarpsþátturinn - Kennslustund á Meistaravöllum 14.09.2024

Elvar Geir og Tómas Þór með útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 14. september. Víkingur komst aftur á topp Bestu deildarinnar með 3-0 sigri gegn KR-ingum sem eiga greinilega langt í land. Leikurinn er gerður upp og einnig heyrt í Arnari Gunnlaugssyni. Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar og hitað upp fyrir næstu umferð í Bestu deildinni og lokaumferð Lengjudeildarinnar. Sverrir Örn E...

Einn mesti sigurvegari sem hefur spilað í íslenskum fótbolta 12.09.2024

Pablo Punyed er einn mesti sigurvegari sem hefur spilað í íslenskum fótbolta. Hann lenti hér á landi aðeins 21 árs gamall og hefur fest hér rætur. Hann lítur núna á sig sem Íslending. Pablo spilar í dag með Íslands- og bikarmeisturum Víkings en hann er staðráðinn í að snúa aftur á fótboltavöllinn eftir að hafa slitið krossband á dögunum. Í þessum hlaðvarpsþætti ræðir hann um meiðslin, ferilinn til...

Innkastið - Landsliðið og Lengjudeildin 10.09.2024

Sérstakur aukaþáttur af Innkastinu á meðan Besta deildin er í landsleikjafríi. Umsjón: Elvar Geir. Farið er yfir landsleikinn í Tyrklandi og þá er fjallað vel um Lengjudeildina en síðasta umferðin verður leikin á laugardag. Fréttamenn .Net þeir Sölvi Haralds stuðningsmaður ÍR og Stefán Marteinn stuðningsmaður Njarðvíkur eru með Elvari í hljóðveri. Einnig Hilmar Jökull sem býður sig fram í formanns...

Tveggja Turna Tal - Hákon Sverrisson 09.09.2024

Hákon Sverrisson hefur þjálfað hjá Breiðablik í um 30 ár ásamt því að vera einn leikjahæsti leikmaður félagsins frá upphafi. Hákon hefur frá 2016 verið yfirþjálfari Blika en hefur auk þess í gegnum áratugina sérhæft sig í þjálfun yngstu iðkendanna og það væri gaman að vita hve mörg þúsund börn hafa hitt Hákon í Fífunni. Hákon Sverrisson er óumdeildur og góður maður. Hann er guðsgjöf fyrir fótbolta...

Ascolta il podcast Fotbolti.net su Replaio

Radio e podcast in un'unica app - gratis e senza registrazione. Installala oggi e non perderti il lancio

Scaricala su Google Play

Replaio non è un editore di podcast; i nomi dei programmi, le copertine e l'audio appartengono ai rispettivi autori e vengono distribuiti tramite feed RSS pubblici