Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2954 episodi

Podcastþættir Fótbolta.net

Visita il sito del podcast e sostieni chi lo crea: fotbolti.net

Autore

Fotbolti.net

Categoria

Sports

Sito del podcast

fotbolti.net

Ultimo episodio

25 nov 2026

Dove ascoltare?

I podcast nell'app Replaio Radio In arrivo

I podcast stanno per arrivare nell'app. Installala ora e scopri per primo un modo tutto nuovo di vivere i podcast

Scaricala su Google Play Installala gratis Android 10 mln+ di download · valutazione 4,7+ iOS in arrivo

Episodi

Útvarpsþátturinn - Besta, Valur og Amorim tekur við 02.11.2024

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 2. nóvember. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið er yfir helstu tíðindi Bestu deildarinnar eftir að tímabilinu lauk, og nýr formaður fótboltadeildar Vals, Björn Steinar Jónsson er á línunni. Í seinni hlutanum mætir Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur þáttarins, og gerir upp fyrsta fjórðung ensku úrvalsdeildarinnar. Ráðning Manchester United á...

Halldór Árnason - Íslandsmeistari í fyrstu tilraun 31.10.2024

Halldór Árnason gerði Breiðablik að Íslandsmeisturum síðasta sunnudag eftir úrslitaleik gegn Víkingi í Fossvogi. Halldór var á sínu fyrsta tímabili sem aðalþjálfari Breiðabliks en hann hafði áður verið aðstoðarþjálfari Óskars Hrafns Þorvaldssonar með liðið. Halldór mætti í spjall á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fór yfir frábært tímabil Blika, sem og sína leið í þjálfun.

Fótbolta nördinn - 16 liða úrslit: Afturelding vs Dr. Football 30.10.2024

16 liða úrslitin halda áfram og í þetta sinn tekur Haraldur Örn á móti Aftureldingu og Dr. Football. Fyrir Aftureldingu keppti Arnór Gauti Ragnarsson en fyrir Dr. Football keppti Sigurður Gísli Bond Snorrason.

Hugarburðarbolti GW9 Erik ten Hag rekinn! 29.10.2024

Chris Wood heldur áfram að skora mörkin fyrir Forest. 2-2 sanngjarnt jafntefli í stórleiknum á Emirates. Jarrod Bowen setti síðasta naglann í kistu Erik ten Hag. Haaland skoraði eina markið gegn dýrlingunum. Cole Palmer átti enn einn góða leikinn fyrir Chelsea og Welbeck skoraði auðvitað fyrir Brighton í hörku 2-2 jafntefli gegn Úlfunum.

Enski boltinn - Ten Hag rekinn og dramatík á Emirates 28.10.2024

9. umferð í ensku úrvalsdeildinni kláraðist um helgina. Það var jafntefli í stórleik umferðarinnar og Erik Ten Hag var rekinn sem stjóri Manchester United.

Innkastið - Grimmir Blikar verðskuldaðir meistarar 27.10.2024

Síðasta Innkast tímabilsins. Elvar Geir, Valur Gunnars og Sæbjörn Steinke ræða um síðustu umferðina og gera upp tímabilið. Lið ársins og verðlaunaafhending. Opinberað er val .Net á leikmanni ársins, þeim efnilegasta, dómara ársins og þjálfara ársins. Til hamingju Íslandsmeistarar Breiðabliks! HK-ingar féllu með hvelli og Valur tryggði sér Evrópusæti.

Útvarpsþátturinn - Láki og leikurinn stóri 26.10.2024

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 26. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Hitað vel upp fyrir úrslitaleik Víkings og Breiðabliks. Gestur er Þorlákur Árnason nýr þjálfari ÍBV, Hilmar Jökull stuðningsmaður Breiðabliks kemur í heimsókn og Haraldur framkvæmdastjóri Víkings er á línunni. Hitað er upp fyrir lokaumferð Bestu deildarinnar, rætt um Evrópusigur Víkings og farið yfir fréttir v...

Fótbolta nördinn - 16 liða úrslit: ÍA vs Stöð 2 23.10.2024

16 liða úrslitin halda áfram og í þetta sinn tekur Haraldur Örn á móti ÍA og Stöð 2. Fyrir ÍA keppti Arnór Smárason en fyrir Stöð 2 keppti Valur Páll Eiríksson.

Hugarburðarbolti GW8 Jón Steinsson var aftur hetja bláliða! 22.10.2024

Curtis Jones var munurinn á liðunum í leik Liverpool og Chelsea. Tvö frábær mörk hjá Man Utd í seinni hálfleik tryggðu sigurinn gegn Brentford. Man City eru ekki bara með gæðin heldur lukkudísirnar líka. Tottenham með glæstan sigur um helgina í Lundúnaslag gegn West Ham og Arsenal tapaði fyrsta útileik sínum á árinu sanngjarnt á suðurströndinni gegn Bournemouth.

Enski boltinn - Klopp ekki ómissandi og Sir Alex bolað burt 21.10.2024

Landsleikjahléið er búið og enska úrvalsdeildin er farin aftur af stað. Til allrar hamingju. Kristján Atli Ragnarsson og Óskar Smári Haraldsson, stuðningsmenn Liverpool, mættu í heimsókn í dag og fóru yfir áhugaverða umferð í ensku úrvalsdeildinni. Það er svo sannarlega nóg til að ræða eftir helgina.

Innkastið - Stjórnlaust hringleikahús 21.10.2024

Innkastið eftir hreint rosalega umferð í Bestu deild karla þar sem allt var á ystu nöf. Það er búið að leggja upp fyrir rosalega lokaumferð. Dómaraskandallinn og dramatíkin á Skaganum, Blikar stóðust pressuna, Gylfi íhugar að hætta, flautumark og fáránleiki í Kórnum og andlausir Vestramenn.

Tveggja Turna Tal - Árni Freyr Guðnason 21.10.2024

Gestur vikunnar er nýráðinn þjálfari Fylkis, Árni Freyr Guðnason. Árni er alinn upp í Hafnafirði. Hann spilaði upp yngri flokka FH en hans bestu ár sem leikmaður komu í Breiðholtinu sem leikmaður ÍR.Ásamt því að spila þá þjálfaði hann yngri flokka FH en hann hefur einnig þjálfað kvennalið FH og verið yfirþjálfari yngri flokka í Kaplakrika. Árni Freyr tók við ÍR þegar félagið var í vandræðum í 2.de...

Útvarpsþátturinn - Framtíð Norðmannsins og fall Fylkis 19.10.2024

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 19. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið er yfir fótboltatíðindi vikunnar, landsliðið, lokabaráttuna í Bestu deildinni og fleira. Hörður Snævar Jónsson ritstjóri 433.is er á línunni og ræðir um landsliðið og framtíð Age Hareide landsliðsþjálfara en Hörður telur framfarirnar ekki nægilega miklar undir hans stjórn. Ragnar Páll Bjarnason formaður...

Fótbolta nördinn - 16 liða úrslit: Fram vs Fótbolti.net 16.10.2024

16 liða úrslitin halda áfram og í þetta sinn tekur Haraldur Örn á móti Fram og Fótbolti.net. Fyrir Fram keppti Alex Freyr Elísson en fyrir Fótbolti.net keppti Stefán Marteinn Ólafsson.

Innkastið - Af hverju VAR ekki dæmt? 14.10.2024

Landsleikur Íslands og Tyrklands var gerður upp í þætti kvöldsins. Lokatölur urðu 2-4 fyrir gestina frá Tyrklandi. Fréttamenn Fótbolta.net, þeir Sæbjörn Steinke, Haraldur Örn og Sölvi Haralds fóru yfir leikinn, vafaatriðin og frammistöðuna. Það var ekki mikil ánægja með dómara leiksins og VAR myndbandstæknina á Laugardalsvelli. Þá var einnig rætt hvers vegna Gylfi Þór Sigurðsson kom ekki við sögu...

Tveggja Turna Tal - Þorsteinn Halldórsson 14.10.2024

Gestur vikunnar er Þorsteinn Halldórsson þjálfari Íslenska kvennalandsliðsins. Steini kemur frá Norðfirði en flutti ungur á mölina og fór í KR og lék þar lengi ásamt að hafa átt góð ár í FH og Þrótti Reykjavíkur. Þjálfaraferillinn er langur og við ræddum að mestu tímann hjá Breiðablik og landsliðinu samt því að hafa fórum yfir hvernig það væri að vera pabbi íþróttafólks. Við þökkum Nettó, Lengjunn...

Útvarpsþátturinn - Landsliðshetjur og Toddi 12.10.2024

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 5. október. Umsjón: Tómas Þór, Benedikt Bóas og Valur Gunnarsson. Gestir þáttarins eru þrír að þessu sinni. Fyrst komu Logi Tómasson og Orri Steinn Óskarsson sem áttu frábæran leik með landsliði Íslands í jafntefli við Wales í gær. Svo kom Þorvaldur Örlygsson formaður KSÍ og fór yfir málin. Að lokum var farið er yfir fréttir vikunnar, landsleikurinnn gerð...

Tveggja Turna Tal - Åge Hareide 10.10.2024

Åge Hareide bauð í viðhafnarútgáfu af Tveggja Turna Tali í kvöld. Í fyrsta sinn eru skipafréttir sagðar en Åge seldi togara upp á Skaga fyrir 25 árum sem átti eftir að skipta miklu máli þar í bæ. Við ræddum landsliðsþjálfarastarfið, muninn á Norðmönnum, Íslendingum, Dönum og Svíum og svo kom það í ljós að okkar maður er vinur Haralds Noregskonungs. Við þökkum að okkar bestu samstarfsfélögum í...

Fullkominn endir: Íslandsmeistararnir Ásta Eir og Kristín Dís 10.10.2024

Íslandsmeistararnir Ásta Eir og Kristín Dís Árnadætur mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og gerðu upp frábært tímabil í Kópavoginum. Breiðablik varð meistari eftir hreinan úrslitaleik við Val fyrir framan metfjölda áhorfenda síðasta laugardag. Þetta var fyrsti Íslandsmeistaratitill Blika síðan 2020. Einnig var um að ræða síðasta leik Ástu á ferlinum og síðasti leikinn sem þær systur...

Fótbolta nördinn - 16 liða úrslit: KR vs RÚV 09.10.2024

16 liða úrslitin halda áfram og í þetta sinn tekur Haraldur Örn á móti KR og RÚV. Fyrir KR keppti Axel Óskar Andrésson en fyrir RÚV keppti Jóhann Páll Ástvaldsson.

Hugarburðarbolti GW7 Danny Welbeck er eins og Benjamin Button! 08.10.2024

Brighton - Tottenham varð auðvitað veislan sem við spáðum. Liverpool með sterkan 0-1 sigur á Selhurst Park gegn Crystal Palace. Cole Palmer nokkuð rólegur um helgina og Haaland skorar ekki annan leikinn í röð. Saka í góðum gír á Emirates og Forest náðu í sterkt stig á Stamford Bridge.

Frá Eastbourne að Íslandsmeistaratitlinum 08.10.2024

Nik Chamberlain stýrði kvennaliði Breiðabliki til Íslandsmeistaratitils síðasta laugardag eftir hreinan úrslitaleik við Val. Hann var að klára sitt fyrsta tímabil hjá félaginu eftir að hafa gert flotta hluti með Þrótt þar áður. Nik, sem er frá Eastbourne á Bretlandseyjum, kom fyrst til Íslands árið 2007 en hann hefur verið hér samfleytt í býsna langan tíma. Hann mætti í dag á skrifstofu Fótbolta.n...

Enski boltinn - Eldhressir Mosóbræður í heimsókn 07.10.2024

Andréssynir úr Mosfellsbæ kíktu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fóru vel yfir málin. Bræðurnir eru stórskemmtilegir en í þættinum fara þeir aðeins yfir fótboltasumarið á Íslandi (Afturelding komst upp í Bestu deildina), lífið í akademíu á Englandi og síðastliðna umferð í ensku úrvalsdeildinni. Þeir þekkja enska boltann vel eftir að hafa verið báðir á mála hjá Reading, en Jökull er þa...

Innkastið - Vængbrotnir Valsarar hindruðu Blika 07.10.2024

Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn í Innkastinu eftir þriðju umferð úrslitakeppninnar. Víkingur og Breiðablik leiðast áfram hönd í hönd á toppi deildarinnar en bæði lið gerðu jafntefli. Við færumst nær úrslitaleik. Davíð Ingvars funheitur, mark frá miðju í Víkinni, erfitt að skilja Heimi Guðjóns, Fylkismenn eru fallnir, KR-ingar raða inn mörkum og Andri Rúnar nennir ekki Lengjudeildinni.

Tveggja Turna Tal - Magnús Már Einarsson 07.10.2024

Magnús Már Einarsson, Maggi.net, er gestur vikunnar. Magnús byrjaði 13 ára að starfa sem blaðamaður á fotbolti.net og breytti leiknum í umfjöllunumum íslenskan fótbolta ásamt Hafliða Breiðfjörð á næstu 19 árum. Sonur hans fótbrotnaði á fyrir nokkrum árum og það fékk Magga til að hugsa um hvað hann væri að gera í lífinu. Hann hætti á .net og fór að einbeita sér að þjálfun og að vera pabbi. Áranguri...

Ascolta il podcast Fotbolti.net su Replaio

Radio e podcast in un'unica app - gratis e senza registrazione. Installala oggi e non perderti il lancio

Scaricala su Google Play

Replaio non è un editore di podcast; i nomi dei programmi, le copertine e l'audio appartengono ai rispettivi autori e vengono distribuiti tramite feed RSS pubblici