Þjóðmál

Þjóðmál

Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.

Mindenképp látogasd meg a podcast oldalát, és támogasd a készítőjét: www.thjodmal.is

Szerző

Þjóðmál

Kategória

Society

A podcast weboldala

www.thjodmal.is

Legutóbbi epizód

2026. nov. 24.

Hol hallgathatod?

Podcastok az alkalmazásban Replaio Radio Hamarosan

A podcastok hamarosan megérkeznek az alkalmazásba. Telepítsd most, és láss elsőként egy teljesen új megközelítést a podcastokhoz

Letöltés a Google Play-ről Telepítsd ingyen Android 10 M+ letöltés · 4,7+ értékelés iOS hamarosan

Epizódok

#204 – Hvað ætlar þú að gera við peninginn sem þú sparar með skólamatnum? – Frumvarp aðlagað að lægsta samnefnara á þinginu 11.03.2024

Hörður Ægisson og Örn Arnarson ræða um stöðuna á vinnumarkaði í kjölfar undirritun kjarasamninga, ummæli stjórnarmanns VR um að það sé nóg til af fjármagni í þjóðfélaginu sem þurfi bara að sækja, ummæli Joseph Stiglitz um stýrivexti og verðbólgu, ímyndað samfélagslegt tap af meintu samráði skipafélaga, stjórnarkjör í Festi og undarlega hegðun lífeyrissjóða í aðdraganda kjörsins, fyrirhugaða sölu í...

#203 – Hugmyndir breyta heiminum – Þjóðmál á Iðnþingi - Aukaþáttur 09.03.2024

Hlaðvarpi Þjóðmála er annt um raunhagkerfið og var því að sjálfsögðu statt á Iðnþingi Samtaka iðnaðarins, sem nú fagna 30 ára afmæli. Rætt er við Sigurð Hannesson, framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, og Sigríði Mogensen, sviðsstjóra iðnaðar- og hugverkasviðs, og Hörð Ægisson, ritstjóra Innherja og yfirgreinanda Þjóðmála. Þá er einnig rætt við Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og...

#202 – Vinnumarkaðurinn ríkisvæddur með nýjum samningum – Ríkið vill matarsóun í skólum 08.03.2024

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða um nýjan kjarasamning sem undirritaður var í dag, hvaða áhrif hann hefur, hvað hann mun kosta, aðdraganda hans, undarlega aðkomu ríkisins að samningnum. Þá er rætt um þá aðila sem eiga ekki aðild að þessum samningi og hver staða þeirra er. Einnig er rætt um árásir á stjórnmálamenn, þörf á öryggisgæslu þeirra og annað því tengt.

#201 – Lífið er ekki málfundafélag – Hannes Hólmsteinn í viðtali 04.03.2024

Hannes Hólmsteinn Gissurarson ræðir um stöðuna í alþjóðakerfinu og pólitíkina hér heima í ítarlegu viðtali. Þá er fjallað um hlutverk háskóla, hvernig þjóðfélagsumræða er að þróast, rifjað er upp þegar hann ásamt fleirum stóð fyrir opnun ólöglegrar útvarpsstöðvar, rætt er um að það sé betra að flytja vörur og þjónustu á milli landa frekari en hermenn, hlutverk ríkisins í þeirri stöðu sem nú er kom...

#200 – Hér stöndum við og getum ekki annað 29.02.2024

Tímamótaþáttur í hlaðvarpi Þjóðmála, þáttur nr. 200. Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson fara yfir allt það helsta í viðskiptalífinu, nýtt nafn á sameinað félag Fossa og VÍS, bréf forstjóra Stoða til hluthafa, hversu oft sé hægt að nýta hækkað veiðigjald, samdrátt í hagkerfinu, viðbrögð Seðlabankans, stöðu Alvotech, undarlega baráttu gegn Rapyd, stöðuna í pólitíkinni og margt fleira.

#199 – Stjórnmálamenn þurfi að þora að taka afstöðu – Diljá Mist í viðtali 26.02.2024

Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður utanríkismálanefndar Alþingis, ræðir um nýlega ferð sína til Úkraínu, um stöðuna í stjórnmálunum hér heima og erlendis, hvernig henni varð við þegar veist var að henni fyrir utan Alþingi nýlega, um stjórnmálamenn sem veigra sér undan því að taka afstöðu til mála, blýhúðun á regluverki og hvort að það séu einhverjar líkur á því að...

#198 – Gömlu byssurnar sóttar upp í hillu – Ríkisstjórnin með fyrirvara ofan á fyrirvara 23.02.2024

Andrés Magnússon og Björn Ingi Hrafnsson fara yfir allt það helsta á vettvangi stjórnmálanna. Þeir ræða um skrautlega uppákomu í þinginu, hvernig umræða um útlendingamál hefur tekið breytingum, krísustjórnun RÚV fyrir hönd Samfylkingarinnar, ríkisstjórnarsamstarfið, stöðu fjölmiðla, hlaðvarpsframleiðslu opinberra stofnana og margt fleira.

#197 – Kaldur vetur á austurvígstöðvum – Evrópa vaknar við vondan draum 20.02.2024

Kristján Johannessen, fréttastjóri á Morgunblaðinu og stríðsfréttaritari Þjóðmála, ræðir um stöðuna í Úkraínu, hvernig herjum Rússa og Úkraínumanna hefur orðið ágengt, hvort að vestræn ríki séu að standa sig í stuðningi við Úkraínu, um tækjatjón Svartahafsflotans, ummæli Trump um varnarmál Evrópuríkja og margt fleira.

#196 – Bjórkvöld Þjóðmála – Live from Kringlukráin 15.02.2024

Við færðum Þjóðmálastofuna á Kringlukrána og tókum upp þátt fyrir framan fullt hús af hlustendum sem nutu þess að vera viðstaddir upptöku á valentínusardaginn. Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um undarlega umræðu stjórnmálamanna um HS Orku, hugmyndir VG um svonefnt atvinnulýðræði, um stöðu flugfélaganna og ferðaþjónustunnar, stöðuna í kjaraviðræðum auk þess sem teknar eru áhugaverðar...

#195 – Hversu margar ríkisstofnanir þarf í 400 þúsund manna samfélagi? 12.02.2024

Gunnar Úlfarsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, og Björgvin Ingi Ólafsson, meðeigandi hjá Deloitte, ræða um samspil hins opinbera og einkageirans, hvort að líkur séu á því að opinberir aðilar nýti sér þær lausnir sem einkafyrirtæki hafa upp á að bjóða eða þá þekkingu og reynslu sem þau búa yfir, hversu margar ríkisstofnanir það þarf til að reka um 400 þúsund manna samfélag, hvernig gögn nýtast til f...

#194 – Að loknu Viðskiptaþingi – Hvað eru fylgistölur stjórnmálaflokka að segja okkur? 08.02.2024

Andrés Jónsson og Friðjón R. Friðjónsson ræða um Viðskiptaþing, hvernig Viðskiptaráð hefur þróast, hvort að stjórnendur í atvinnulífinu eigi að taka þátt í þjóðfélagsumræðunni og þá hvernig, um samskipti einkageirans og hins opinbera, hvort að áhersla fyrirtækja á samfélagsskýrslur fari þverrandi og fleira þessu tengt. Þá er einnig tekin umræða um stöðuna í stjórnmálunum, hvort að ólík afstaða stj...

#193 – Ísland er gulleyja full af tækifærum – Þórdís Kolbrún í ítarlegu viðtali 02.02.2024

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir fjármálaráðherra og varformaður Sjálfstæðisflokksins, ræðir um stöðuna í stjórnmálunum og á stjórnarheimilinu, þá gagnrýni sem ríkisstjórnin fær á sig fyrir að ná ekki saman um stór og mikilvægi mál, um fjármálaráðuneytið og ríkisfjármálin, fyrirhugaða sölu á Íslandsbanka, hvernig hægt er að bregðast við stöðunni í Grindavík, stöðu Sjálfstæðisflokksins og margt fleira...

#192 – Verðbólgan kólnar og gul viðvörun á vinnumarkaði – Er ástæða til að stofna þjóðarsjóð? 31.01.2024

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um hjaðnandi verðbólgu og útlitið framundan, hvort að von sá á vaxtalækkun, kjaraviðræður sem nú eru í frosti, ummæli Vilhjálms Birgissonar í nýlegu viðtali í Spursmálum, hvort að rétt sé að stofna þjóðarsjóð eða ekki, andstöðu Landverndar við framförum, um stöðu Alvotech og Marel og margt fleira.

#191 – Sannleikurinn er fyrsta fórnarlambið í stríði – Upplýst umræða um átökin fyrir botni Miðjarahafs 25.01.2024

Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu, og Bjarni Már Magnússon, prófessor og forseti lagadeildar við Háskólann á Bifröst, ræða um stöðuna fyrir botni Miðjarahafs, um þá skautun sem á sér stað í umræðu um þau mál, frjálslega notkun gildishlaðinna hugtaka, og margt annað sem tengist þeim átökum sem nú eiga sér stað á svæðinu.

#190 – Er fálkinn orðinn múkki? – Tvígrip á glasið og ólögleg blokkering 23.01.2024

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson fara yfir atburði dagsins í pólitíkinni, vantrauststillögu sem var lögð fram en dregin til baka, aðdragandann og mögulegar afleiðingar, stöðuna í ríkisstjórnarsamstarfinu, aðgerðir vegna stöðunnar í Grindavík og þær ríkislausnir sem þar eru boðaðar, færslu utanríkisráðherra um mótmæli vegna hælisleitenda og margt fleira.

#189 – Launahækkanir en engar kjarabætur – Sáttartónninn brestur á hátónum 19.01.2024

Björn Brynjúlfur Björnsson hagfræðingur og Hörður Ægisson ræða um hvaða möguleikar eru til staðar varðandi húsnæði Grindvíkinga, hvaða áhrif það mun hafa á verðbólgu og vexti, hvað óvinsæl ríkisstjórn er líkleg til að gera, um stöðuna í kjaraviðræðum, um verðmætasköpun útflutningsgreina og margt fleira.

#188 – Svandís í vanda og siðfræðingarnir þagna – Árangur áfram, ekkert stopp í hlaðvarpi þjóðarinnar 09.01.2024

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um heitustu mál dagsins. Svandís Svavarsdóttir er í vanda og hlutabréfin eru græn. Það er ekki endilega orsakasamhengi þarna á milli en það er farið nánar yfir það í þættinum. Rætt er um stöðu matvælaráðherrans og ríkisstjórnarinnar, um þróun mála í kjaraviðræðum, dulda varasjóði ríkisins, stöðuna í orkumálum og afturhaldsáróður Landverndar, mögulegan...

#187 – Aukin orkuframleiðsla er forsenda framfara og hagsældar 05.01.2024

Eldur Ólafsson, forstjóri og stofnandi Amaroq Minerals, og Þórður Pálsson, forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá og efnahagsráðgjafi Þjóðmála, ræða um orkumál í sögulegu og efnahagslegu samhengi. Rætt er um mögulegan orkuskort hér á landi, hvaða þýðingu það hefur að búa til orku, til hvers hún er nýtt, hvernig hægt er að auka orkuframleiðslu, hvernig við stöndum í samanburði við aðrar þjóðir og mar...

#186 – Guðni kveður Bessastaði – Margir (halda að þér séu) kallaðir en fáir útvaldir 02.01.2024

Stefán Einar Stefánsson og Friðjón Friðjónsson ræða um þá óvæntu ákvörðun Hr. Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands, að gefa ekki kost á sér á ný. Rætt er um hvaða ástæður kunna að liggja þar að baki, aðdragandann að því hvernig Guðni varð forseti, sögulegan fróðleik um forsetaembættið og þá sem setið hafa á Bessastöðum, hvaða kandídatar eru líklegir til að bjóða sig fram og það sem meira máli...

#185 – Áramótaþáttur og flugeldasýning á Kringlukránni 30.12.2023

Það er mikill gestagangur í síðasta hlaðvarpþætti ársins sem tekinn er upp á Kringlukránni. Við horfum til viðskipta, atvinnulífs, stjórnmála og annarra þáttar þegar við förum yfir allt það helsta á árinu, tökum stöðuna um áramót og leggjum mat á komandi ár. Við förum yfir þetta í þremur lotum. Fyrst koma þeir Hörður Ægisson, Stefán Einar Stefánsson og Örn Arnarson. Í lotu tvö koma þau Gréta María...

#184 – Ekkert jólastress, bara stjórnarkreppa – Tökum aðra mynd 22.12.2023

Andrés Magnússon og Björn Ingi Hrafnsson ræða um skipan sendiherra, stöðuna á stjórnarheimilinu og í stjórnmálunum almennt, ríkisstjórn sem þorir ekki að takast á við alvöru mál og annað það helsta sem við þurfum að vita fyrir jólin.

#183 – Þunn lína milli stjórnmála og loftslagsmála – Guðlaugur Þór mætir í Þjóðmálastofuna 18.12.2023

Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku og loftslagsráðherra, mætir í Þjóðmálastofuna og svarar spurningum um orku- og loftslagsmál, þau áhrif sem þessir málaflokkar hafa á stjórnmálaumræðu, skattlagningu og lagasetningu. Þá er rætt um það hvort að rétt sé að staðsetja umhverfismál á vinsti-hægri ás stjórnmálanna, hvaða áhrif atvinnulífið hefur á þessa málaflokka, hvort að aðgerðir á Íslandi skip...

#182 – Yfirtökutilboð og verkfall hálaunastéttar – Möguleikinn á skynsömum kjaraviðræðum 15.12.2023

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson fara yfir allt það helsta, málefni Marels, verkfallsaðgerðir flugumferðarstjóra sem eru að stórskaða okkur, hvaða kröfur aðilar vinnumarkaðarins munu leggja fram í komandi kjaraviðræðum, horfurnar í hagkerfinu, skort á umræðu um hlutabréfaverð og margt fleira.

#181 – Kyrrstaða er vond staða – Hvernig er hægt að bera betur í dag en í gær? 11.12.2023

Gestur Pálmason stjórnendaráðgjafi hefur á undanförnum árum unnið með stjórnendum fyrirtækja, leiðtogum innan félagasamtaka og stjórnmálamönnum bæði hér á landi og erlendis. Hann mætir í Þjóðmálastofuna og ræðir um það hvort að sömu lögmál gildi um leiðtoga í ólíkum geirum, um leiðtoga sem verða værukærir og lenda í kyrrstöðu, hvort að stefnumótun sé ofnotað hugtak, hvort og þá hvernig markmið við...

#180 – Aðventumorgunn og gestagangur á Jómfrúnni 07.12.2023

Þáttur dagsins var tekinn upp á Jómfrúnni. Þar mættu nokkrir góðir viðmælendur til að ræða meðal annars um listamannalaun, niðurstöðu Pisa könnunar, furðulega umfjöllun ríkisfjölmiðilsins um krónuna, leit að heimildarmönnum, það hvort að Icesave skipti lengur máli í umræðunni, málefni Marels og Eyri Invest, orkumál og margt margt fleira. Meginmarkmið þáttarins var þó að hafa gaman, svona eins og í...

Hallgasd a(z) Þjóðmál podcastot a Replaióban

Rádió és podcastok egy alkalmazásban - ingyen és regisztráció nélkül. Telepítsd még ma, és ne maradj le a premierről

Letöltés a Google Play-ről

A Replaio nem podcastkiadó; a műsorok nevei, borítóképei és hanganyagai a szerzőiket illetik, és nyilvános RSS-csatornákon keresztül terjednek.