Þjóðmál
Þjóðmál
Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.
Mindenképp látogasd meg a podcast oldalát, és támogasd a készítőjét: www.thjodmal.is
Szerző
Þjóðmál
Kategória
A podcast weboldala
Legutóbbi epizód
2026. nov. 24.
Hol hallgathatod?
Podcastok az alkalmazásban Replaio Radio HamarosanA podcastok hamarosan megérkeznek az alkalmazásba. Telepítsd most, és láss elsőként egy teljesen új megközelítést a podcastokhoz
Epizódok
#479 – Kaffispjall með Kristjáni Inga – Hvað gerist eftir dýrasta framhjáhald sögunnar? 24.11.2026 1:13:30
Kristján Ingi Mikaelsson ræðir um ótrúlega atburðarás í kringum tæknirisann Nvidia. Við rýnum í þau gífurlegu verðmæti sem hafa þurrkast út af markaði síðastliðnar vikur þrátt fyrir methagnað félagsins, hvernig eitthvað af því er að skila sér til baka við endurráðningu forstjórans og stofnandans sem hafði áður komið sér í vandræði – ekki bara hjá fyrirtækinu heldur líka heima fyrir og hjá stjórnvö...
#478 – Helgarvaktin með Andrési og Erni – Erum við til fyrir ríkið eða er ríkið til fyrir okkur? 20.11.2026 1:51:50
Andrés Magnússon og Örn Arnarson mæta sprækir á Helgarvakt Þjóðmála. Við ræðum um allt það helsta í stjórnmálunum, rifjum upp þingmenn sama hafa skipt um flokka á miðju kjörtímabili, óraunhæfar væntingar ríkisstjórnarinnar um hallalaus fjárlög, skattahækkanir, verktakasamninga í utanríkisráðuneytinu, skráningu Bláa lónsins, bjagaða umfjöllum um verðlagskönnun ASÍ og margt fleira. Þá tökum við fyri...
#477 – Kaffispjall með Ingvari Þóroddssyni – Sterk bein og sterkt kaffi 17.11.2026 50:50
Ingvar Þóroddsson alþingismaður ræðir um ákvörðun sína um að segja sig úr þingflokki Viðreisnar og ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Ingvar fer yfir aðdraganda flokkaskiptanna, kjördæmahagsmuni í Norðausturkjördæmi – þar á meðal áhrif skattahækkana á baðlón og ferðaþjónustu – og segir frá því hvernig hann telur stefnu Viðreisnar í skattamálum vinna gegn atvinnulífinu. Þá ræðum við pólitíska...
#476 – Helgarvaktin með Herði og Þórði – Hátíðarkvöld Þjóðmála gert upp 13.11.2026 1:17:15
Hörður Ægisson og Þórður Gunnarsson mæta á Helgarvakt Þjóðmála þar sem farið er yfir heitustu málin. Í upphafi er farið yfir glæsilegt Hátíðarkvöld Þjóðmála og verðlaunahafa ársins, rætt um nýtingu starfsmanna Þórkötlu á bílskúr í Grindavík og rýnt í lokasprett hlutafjárútboðs Bláa lónsins. Þá er borin saman skattastefna jafnaðarmanna í Danmörku, ákvörðun Kópavogsbæjar að lækka fasteignaskatta á f...
#475 – Kaffispjall í Bláa lóninu með Grími Sæmundsen og Sigríði Margréti 09.11.2026 1:14:15
Kaffispjall vikunnar er tekið upp á Retreat hótelinu í Bláa lóninu. Þar er rætt við Grím Sæmundsen, stofnanda og stjórnarformann Bláa lónsins, og Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri félagsins, í aðdraganda hlutafjárútboðs félagsins sem fram fer í vikunni. Við rýnum í stóru spurningarnar varðandi fyrirhugaða skráningu félagsins, ástæður þess að nú er stefnt á hlutabréfamarkað, um uppbygginguna o...
#474 – Viðtal – Karl Wernersson 08.11.2026 54:30
Við ræðum við Karl Wernesson athafnarmann í sérstökum aukaþætti. Karl hélt nýlega erindi, sem barið heitið „17 ár í súpunni“, þar sem hann rakti þau málaferli sem hafa litað líf hans í að verða tvo áratugi. Við ræðum hvernig mismundandi dómar hafa haft afdrifaríkar afleiðingar á Karl sem og aðra sem honum tengjast, ósamræmi í kerfinu, lífið á bakvið luktar dyr, fjárhagslegar afleiðingar og margt f...
#473 – Helgarvaktin með Þórði og Hermanni Nökkva – Götustelpur í vanda 06.11.2026 1:39:29
Þórður Gunnarsson og Hermann Nökkvi Gunnarsson mæta léttir og kátir á Helgarvakt Þjóðmála. Við ræðum enn á ný um vanda Viðreisnar þar sem Landsvirkjunarmálið og staða fjármálaráðherra eru meðal annars í brennidepli auk þess sem bent er á enn fleiri dæmi sem sýna hvers konar kerfisflokkur Viðreisn er orðinn. Þá er rætt um tíst framkvæmdastjóra Flokks fólksins sem vill draga fram kjarnorkusprengjurn...
#472 – Kaffispjall með Boga Nils 03.11.2026 59:00
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, mætir í yfirgripsmikið viðtal þar sem farið er beint í kjarnann á rekstri og framtíð félagsins. Við ræðum afkomuna og horfur í rekstri, áhrif eldsneytisverðs, flotaendurnýjun, breytta samsetningu farþega, eldfim kjaramál, samskipti við flugstéttir og áskoranir við að tryggja samkeppnishæfni án þess að skaða orðspor félagsins. Þá er einnig rætt um raunverule...
#471 – Helgarvaktin með Sigríði Andersen og Tómasi Þór – Þar sem er reykur er eldur 30.10.2026 1:37:14
Sigríður Á. Andersen og Tómas Þór Þórðarson mæta á líflega Helgarvakt Þjóðmála þar sem farið er yfir heitustu málin í stjórnmálum, efnahagslífi og samfélagsumræðunni. Af nógu er að taka, mögulegum heimsendingum Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins, súra stemningu innan Viðreisnar sem og skattastefnu flokksins sem segist ekki vilja hækka skatta en gerir það samt, hagræðingaraðgerðir Reykjavíkurborg...
#470 – Kaffispjall með Birni Jóni – Veraldavafstur nú og áður 27.10.2026 1:05:15
Björn Jón Bragason, sagnfræðingur og lögfræðingur, ræðir nýjustu bók sína Veraldavafstur, þar sem fjallað er um sögu feðganna Sveins B. Valfells og Sveins Valfells í umróti 20. aldar. Við fjöllum um sögu frumkvöðla sem áttu stóran þátt í því að móta íslenskt atvinnulíf kreppur, höft og pólitískt mótlæti, hvernig iðnaðarfyrirtæki þurftu að stunda leynilega lánastarfsemi og margt fleira. Einnig er r...
#469 – Helgarvaktin með Stefáni Einar og Þórði Gunnars – Frelsisbollinn mættur og formaðurinn fer í frí 23.10.2026 1:33:30
Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson á líflega Helgarvakt Þjóðmála þar sem rætt er um stóru málin. Rætt er um vandræði Viðreisnar sem mögulega eiga eftir að verða fleiri, stöðu ríkisstjórnarinnar, frí formannsins í Asíu og hrókeringar í nefndarsetum á vegum flokksins. Þá er fjallað um óeirðirnar í Frakklandi sem sumir vilja bara kalla saklaus stúdentamótmæli, mögulega rannsókn á vinnubrögð...
#468 – Kaffispjall með Jóni Gnarr – Ekki í boði að sitja og þegja 20.10.2026 2:08:00
Jón Gnarr mætir í ítarlegt og persónulegt kaffispjall um pólitíska vegferð sína og hugmyndafræði. Jón rýnir í ákvörðun sína um að segja sig úr þingflokki Viðreisnar, svarar spurningum um það hvort að flokkurinn sé yfir höfuð frjálslyndur nema að nafninu til, hvað felist í því að styðja ríkisstjórnina þrátt fyrir það sem á undan er gengið og öðru sem snýr að starfi flokksins. Þá er rætt um nýlegar...
#467 – Helgarvaktin með Jens Garðari og Konráð Guðjóns – Enginn veit hvaða lag verður samið á morgun 16.10.2026 1:47:09
Jens Garðar Helgason og Konráð S. Guðjónsson mæta í líflegt samtal um stjórnmálin, efnahagsmálin og áskoranir í atvinnulífinu. Í upphafi er slegið á létta strengi með tónlist og eðalveitingum ásamt því að vekja athygli á Áramótasprengju Þjóðmála. Þá fjöllum við um vont loft í Efstaleiti, afsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar, nýjar traustmælingar á stjórnmálamönnum, innihaldslausan aðgerðalis...
#466 – Kaffispjall með Ingva Þór og Helga Frímannssyni – Ölgerðin fær gula spjaldið – Markaðurinn hikstar en horfir til betri tíma 13.10.2026 1:05:00
Ingvi Þór Georgsson, framkvæmdastjóri Aflamiðlunar, og Helgi Frímannsson, sérfræðingur í markaðsviðskiptum hjá Landsbankanum, ræða um stöðuna í atvinnulífinu og á fjármálamarkaði. Gestirnir rýna í stöðu Ölgerðarinnar, ástæður þess að ráðist var í húsleit hjá félaginu fyrir helgi og tilraunir til útrásar með Collab, sem hefur reynst erfiðari en vonir stóðu til. Þá er einnig fjallað um loðnumælingar...
#465 – Helgarvaktin með Stefáni Einari og Ólöfu Skafta – Erfitt að verðmeta það sem ekki verður 09.10.2026 2:03:15
Stefán Einar Stefánsson og Ólöf Skaftadóttir mæta í líflegt samtal um heitustu málin – og sitthvað annað. Rætt er um kjarasamningana, leikþátt VR, opinbera starfsmenn sem bíða á kantinum, stýrivexti, heimskulegar hugmyndir um leigubremsu, fyrirsjáanlegan taprekstur hjá ríkinu, baráttuna við Fjölmiðlanefnd og margt annað. Þá eru fastir liðir á sínum stað, s.s. hrós vikunnar, viðmælendur stíga á svi...
#464 – Kaffispjall með Birni Bjarnasyni – Heimsókn úr Vesturheimi og brothætt staða ríkisstjórnarinnar 06.10.2026 1:09:45
Björn Bjarnason mætir í samtal um stóru málin í utanríkis- og innanlandspólitíkinni. Við fjöllum meðal annars um heimsókn Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í dag og mikilvægi samstarfs þjóðanna og öryggismála á Norður-Atlantshafi, og rýnum í væntanlega bók Björns þar sem hann greinir aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar, ESB-umræðuna í heild sinni og áhrif hennar á íslensk stjórnmál. S...
#463 – Helgarvaktin með Andrési og Birni Inga – Bara brosa og slappa af 02.10.2026 1:39:40
Andrés Magnússon og Björn Ingi Hrafnsson fara yfir heitu málin og pólitíska hausthrollinn. Rætt er um ummæli fjármálaráðherra um að heimili eigi að þola sársaukann, þingmenn sem rjúka út í fússi af fundum með sveitarstjórnarmönnum, nýjan Þjóðarpúls og það hvort að einhver sé að hlaupa með vinningskeflið í stjórnmálum þessa dagana, komandi vetur sem kann að verða þungur í efnahagslegu tilliti, ræðu...
#462 – Kaffispjall með Jóhanni Má í Wolt 29.09.2026 1:03:45
Jóhann Már Helgason, framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi, ræðir um innreið tæknifyrirtækisins á íslenskan markað, deilihagkerfið og röskun á vinnumarkaði auk þess sem hann svarar gagnrýni verkalýðsfélaga og fjölmiðla um stöðu sjálfstætt starfandi verktaka hjá fyrirtækinu. Þá er einnig rætt um tæknihliðina á starfsemi Wolt, hvað skýrir vinsældir þeirra þjónustu sem fyrirtækið býður upp á, áhrif á veiti...
#461 – Helgarvaktin með Hildi Sverris og Erni – Spilaborgin að hrynja 25.09.2026 1:58:20
Hildur Sverrisdóttir og Örn Arnarson mæta á skemmtilega helgarvakt þar sem stjórnmálin, vinnumarkaðurinn og efnahagsmálin eru krufin til mergjar. Pólitíkin tekur fljótt yfir þar sem gestirnir rýna í nýjustu átökin innan stjórnarliðsins og innanhússskilaboð sem minna helst á House of Cards. Velt er upp þeirri kenningu hvort breytingar séu í vændum á ríkisstjórnarsamstarfinu, farið er yfir verkföll...
#460 – Kaffispjall með Gunnari Baldvinssyni – Mikið unnið með fjárhagslegu sjálfstæði 22.09.2026 43:00
Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri Almenna-Lífsverk lífeyrissjóðsins, mætir í gott spjall um nýútkomna og endurbætta útgáfu af bók sinni, Farsæl skref í fjármálum. Bókin, sem er lokahuti í þriggja bóka röð ætlaðri til að efla fjármálalæsi, hefur stækkað umtalsvert og geymir hagnýt tæki og tól fyrir daglega fjármálastjórn og stærri ákvarðanir á lífsleiðinni. Rætt er um kosti og galla verðtryggðra...
#459 – Helgarvaktin með Árna Helga og Lilju Alfreðs – Vindurinn virkjaður, í logni 18.09.2026 1:51:54
Árni Helgason og Lilja Dögg Alfreðsdóttir mæta í líflegt og beinskeytt samtal um stóru málin í pólitíkinni og efnahagslífinu. Við ræðum um vindorkuverk sem var ræst í blankalogni, pirraðan fjármálaráðherra og óraunhæf markmið í fjárlögum, hvernig ríkisstjórnin ýtir því verkefni á undan sér að takast á við háa verðbólgu, tillögur um jöfnun atkvæðavægis og hvaða þingmenn eiga sæti sín undir því, bíl...
#458 – Kaffispjall með Óla Birni – Hamrað á grunnhugmyndum hægri manna 15.09.2026 1:26:15
Óli Björn Kárason ræðir um helstu hugmyndir hægri manna um frjálsan markað, minni ríkisafskipti og öflugt einkaframtak í kjölfar útgáfu á nýrri bók sinni, Villigötur valdsins. Í þættinum er meðal annars rætt um það hvort að ríkisvaldið sé að seilast of langt inn í einkalíf og atvinnulíf landsmanna, hvort að stjórnlyndi sé að verða nýtt norm, um það hvernig ríkið beitir sköttum til að hafa áhrif á...
#457 – Helgarvaktin með Ásdísi Kristjáns og Herði – Það þarf alvöru verkfæri ef það á að laga eitthvað 11.09.2026 1:32:50
Ásdís Kristjánsdóttir og Hörður Ægisson ræða fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar, boðaðar skattahækkanir, leikþáttinn við kynningu frumvarpsins, líkurnar á því að rekstur ríkissjóðs komist yfir núllið og falleinkunn markaðarins yfir frumvarpinu með vaxandi verðbólguvæntingum. Einnig er rýnt í stjórnmálin og stefnuræðu forsætisráðherra og mögulega hefndarför utanríkisráðherra, íslenska hlutabréfama...
#456 – Kaffispjall með Sigurði Má – Farið yfir sviðið í evrópskum stjórnmálum 08.09.2026 1:13:29
Sigurður Már Jónsson blaðamaður ræðir um pólitíska stöðu og horfur innan ríkja í Evrópu. Við rýnum í þróunina í Þýskalandi og Frakklandi - tveimur áhrifamestu ríkjum innan ESB - og hvernig innri krísur í þessum lykilríkjum hafa áhrif á stöðu sambandsins allt í heild sinni. Sérstaklega er sjónum beint að nýlegum kosningasigrum AfD í Þýskalandi og vaxandi fylgi stjórnmálaflokka víðs vegar um álfuna...
#455 – Helgvarvaktin með Heiðari Guðjóns og Sigríði Andersen – Raunveruleikinn bankar á dyrnar 04.09.2026 1:36:30
Heiðar Guðjónsson og Sigríður Á. Andersen mæta á helgarvaktina og fara yfir eftirmála þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðild að ESB, kröfur um rannsóknir á úrslitunum, viðbrögð þeirra sem lutu í lægra haldi, starfsemi Rúv í aðdraganda kosningarinnar og fleira. Þá er rætt um mögulega skuldakreppu í Frakklandi og skuldasöfnun annarra ríkja, stöðu hagkerfisins hér á landi sem glímir við verðbólgu, háa ve...
Hasonló podcastok
A Replaio nem podcastkiadó; a műsorok nevei, borítóképei és hanganyagai a szerzőiket illetik, és nyilvános RSS-csatornákon keresztül terjednek.