Linda Pétursdóttir

Podcastið með Lindu Pé

Podcastþættir Lindu Pé sem er master lífsþjálfi. Linda kennir konum að uppfæra hugarfarið, umbreyta sjálfsmynd sinni- og ná árangri. Nánari upplýsingar: www.lindape.com

Mindenképp látogasd meg a podcast oldalát, és támogasd a készítőjét: lmlp.libsyn.com

Szerző

Linda Pétursdóttir

Kategória

Education

A podcast weboldala

lmlp.libsyn.com

Legutóbbi epizód

2026. szept. 23.

Hol hallgathatod?

Podcastok az alkalmazásban Replaio Radio Hamarosan

A podcastok hamarosan megérkeznek az alkalmazásba. Telepítsd most, és láss elsőként egy teljesen új megközelítést a podcastokhoz

Letöltés a Google Play-ről Telepítsd ingyen Android közel 10 M letöltés · 4,8-as értékelés iOS hamarosan

Epizódok

261. Brot af því besta 10.12.2025

Í lok árs finnst mér við hæfi að líta um öxl og rifja upp það fjölbreytta efni sem við höfum tekið fyrir hér í podcastinu á líðandi ári. Í þættinum finnur þú brot af því besta úr samtölum, kennslu og lífsþjálfunarþáttum – sambland af innblæstri, hugtökum og hugleiðingum sem minna okkur á hversu mikið getur breyst á einu ári. Podcastið fer nú í jólafrí og þetta er því seinasti þáttur ársins. Takk f...

260. Verkin tala 03.12.2025

Í þættinum „Verkin tala" ræði ég um tímabil aðgreininga – þar sem munurinn á þeim sem tala og þeim sem framkvæma verður augljós. Þetta er tímabil sem skiptir fólki í tvo hópa. Í hvorum hópnum ert þú?   LOKAÐ FYRIR SKRÁNINGAR Í LMLP - BIÐLISTI Nú er LOKAÐ fyrir skráningar í LMLP prógrammið . Skráðu þig á biðlista og við látum þig vita þegar opnar næst. SKRÁ MIG Á BIÐLISTA LÍFSÞJÁLFASKÓLINN - BIÐLIS...

259. Að breyta sögunni 26.11.2025

Í þessum þætti fjalla ég um hvað það þýðir að breyta sögunni – að stíga út úr gömlum mynstrum, taka ábyrgð og velja nýja leið. Þú lærir hvað það þýðir að vera sú sem tekur fyrsta skrefið – ekki aðeins fyrir sjálfa þig, heldur fyrir þær sem koma á eftir þér. Því þegar ein kona breytir sögunni, breytist heimurinn í kringum hana.   LOKAÐ FYRIR SKRÁNINGAR Í LMLP- BIÐLISTI Nú er LOKAÐ fyrir skráningar...

258. 5 bætiefni 19.11.2025

Í þessum þætti ræðir Linda Pé við Þorbjörgu Hafsteinsdóttur, hjúkrunarfræðing og næringarþerapista, um fimm lykilbætiefni sem flestir ættu að taka til að efla orku, styrkja ónæmiskerfið og stuðla að betri heilsu. Þú lærir hvaða fimm bætiefni skipta mestu máli, hvernig þau virka í líkamanum og hvers vegna þau eru grundvöllur jafnvægis og vellíðunar. Þorbjörg útskýrir einnig af hverju Omega-3 olía e...

257. Ertu fórnarlamb? 12.11.2025

Í þessum þætti förum við yfir hvað fórnarlambs hugarfar er – og hvers vegna það heldur okkur föstum í afsökunum, bið og hjálparleysi. Við skoðum hvernig þetta mynstur rænir þig kraftinum og kemur í veg fyrir breytingar – og af hverju þú getur ekki skapað nýtt líf fyrr en þú losar þig við fórnarlambið og tekur ábyrgð.   LOKAÐ FYRIR SKRÁNINGAR Í LMLP- BIÐLISTI Nú er LOKAÐ fyrir skráningar í LMLP pró...

256. Af hverju smækkarðu þig? 05.11.2025

Í þessum þætti fjalla ég um smækkun – hvernig konur læra að smækka sig, halda aftur af sér og vanmeta eigin kraft. Við skoðum hvernig þetta mynstur birtist í daglegu lífi, af hverju samfélagið þjálfar konur í að smækka sig og hvernig það minnkar sjálfstraust, metnað og möguleika. Síðan förum við í hvað gerist þegar kona hættir að smækka sig, leyfir sér að vera sú sem hún í raun er – og opnar á eig...

255. Vítahringur sjálfsniðurrifs 29.10.2025

Eftir að hafa unnið með þúsundum kvenna sá ég skýrt hvað margar festast í sjálfsniðurrifi -sem ákvarðar niðurstöðurnar í lífi þeirra. Ég útbjó Vítahring sjálfsniðurrifs sem samanstendur af fimm stólpum – og í þessum þætti leiði ég þig í gegnum hvern þeirra og sýni hvernig þú getur stigið út úr vítahringnum og skapað nýja framtíð.   LOKAÐ FYRIR SKRÁNINGAR Í LMLP- BIÐLISTI Nú er LOKAÐ fyrir skráning...

254. 20 ár fram í tímann 22.10.2025

Í þessum þætti ferðu 20 ár fram í tímann og hittir eldri útgáfu af sjálfri þér. Hún sýnir þér hvað skiptir raunverulega máli, hverju þú gætir séð eftir og hvaða ráðum þú vilt fylgja strax í dag. Þannig lærirðu að taka ákvarðanir sem móta framtíð sem þú getur verið stolt af og þakklát fyrir.   LOKAÐ FYRIR SKRÁNINGAR Í LMLP- BIÐLISTI Nú er LOKAÐ fyrir skráningar í LMLP prógrammið . Skráðu þig á biðl...

253. Stattu með þér 15.10.2025

Í þessum þætti tala ég um kraftinn sem felst í því að samþykkja sjálfa sig óháð skoðunum eða áliti annarra. Ég fjalla um hvernig stöðug þörf fyrir samþykki annarra getur veikt trú okkar á eigin gildi og leitt til þess að við setjum okkar eigin þarfir til hliðar. Þú lærir að veita þér sjálfssamþykki og hvernig það getur styrkt sjálfsmynd þína og hjálpað þér að lifa í meiri samræmi við eigin gildi....

252. Ekki gefast upp 08.10.2025

Í þessum þætti ræðum við hvað það þýðir að gefast ekki upp. Það er ekki gáfur né hæfileikar sem ráða úrslitum heldur staðfestan til að halda áfram. Þú færð hagnýt ráð sem hjálpa þér að styrkja þína eigin staðfestu-svo þú gefist síður upp þegar hindranir banka upp á.   LOKAÐ FYRIR SKRÁNINGAR Í LMLP- BIÐLISTI Nú er LOKAÐ fyrir skráningar í LMLP prógrammið . Skráðu þig á biðlista og við látum þig vit...

251. 12 vikna planið 01.10.2025

Í þættinum ræði ég hugmyndafræðina á bak við 12 vikna planið – og hvernig við getum skapað meiri árangur en við teljum mögulegt í dag. Ég tengi þetta við Vítahring sjálfsniðurrifs og vinnustofuna Leyfðu þér að skína og deili jafnframt hvernig ég er sjálf að skrásetja mína eigin vegferð inni í LMLP prógramminu, svo konurnar geti fylgst með, lært og tekið þátt í ferlinu með mér.   LOKAÐ FYRIR SKRÁNI...

250. Samband okkar við peninga 24.09.2025

Í þessum þætti talar Linda um tengsl peninga og sjálfsmyndar. Hún útskýrir hvernig sjálfsmyndin mótar hegðun okkar í fjármálum og hvaða áhrif hún hefur á hvernig okkur líður gagnvart peningum. Þáttur fyrir alla sem vilja bæta fjármálavitund sína og skapa jákvætt samband við peninga -og líða vel með það. LOKAÐ FYRIR SKRÁNINGAR Í LMLP- BIÐLISTI Nú er LOKAÐ fyrir skráningar í LMLP prógrammið . Skráðu...

249. 10 lífslexíur 17.09.2025

Í þessum þætti fer ég yfir 10 lífslexíur sem geta breytt því hvernig þú hugsar um sjálfa þig, lífið og framtíðina. Við ræðum sjálfsmynd, hugsanir, mistök, tilfinningalegan þroska, peninga, áhrifa hringinn þinn og hugrekkið sem þarf til að taka ákvarðanir á eigin forsendum. Þessar lexíur eru lykillinn að því að skapa líf sem endurspeglar hver þú vilt í raun vera. LOKAÐ FYRIR SKRÁNINGAR Í LMLP- BIÐL...

248. Vöxtur - Pallborðsumræður LMLP kvenna 10.09.2025

Í þessum þætti deila konur reynslu sinni af því að breyta sjálfsmynd sinni og ná langtíma árangri í lífi sínu. Þær segja frá því hvernig þær fóru frá því að upplifa sig flata yfir í ómótstæðilega, frá að vera stopp í óstöðvandi og leið í framúrskarandi. Þessar konur hafa allar gengið í gegnum umbreytandi ferli í LMLP prógramminu, sem hefur gefið þeim verkfæri og stuðning til að skapa nýtt líf. Þær...

247. Eftirsjá 03.09.2025

Þessi þáttur snýst um eftirsjá – eina sterkustu tilfinninguna sem heldur þér fastri í vítahring. Ég kenni þér hvernig þú getur breytt hugsunum þínum, gripið tækifærin, stigið út úr vítahringnum og byrjað að lifa lífinu á þínum forsendum – án afsakanna. → Má bjóða þér á örnámskeiðið „Lifðu án afsakana" með Lindu Pé? Taktu þátt fimmtudagskvöldið 4. september 2025, og þú lærir aðferð sem getur hjálpa...

246. Gerðu það sem þú ætlar að gera! 27.08.2025

Hefur þú verið í þeim sporum að vita upp á hár hvað þú átt að gera til að ná markmiðum þínum, en gerir það samt ekki? Í þessum þætti ræðir Linda um algengar ástæður þess að við framkvæmum ekki það sem við vitum að við þurfum að gera. Hún útskýrir hvernig vani, ótti og hugrænar hindranir geta staðið í vegi fyrir okkur og gefur leiðir til að brjóta upp mynstur og komast í virkni. Þáttur fyrir alla s...

245. 7 sjálfsræktarvenjur afreksfólks 20.08.2025

Í þessum þætti fer ég yfir 7 sjálfsræktarvenjur sem einkenna afreksfólk sem nær háum árangri án þess að brenna út. Þetta eru einföld, en áhrifarík dagleg skref sem hjálpa þér að vernda andlega orku, forgangsraða hvíld, setja mörk og halda skýrri stefnu. Þegar þú tileinkar þér þessar venjur verður auðveldara að lifa í jafnvægi, með meiri orku og árangri í bæði lífi og starfi. Hér að neðan eru upplý...

244. Grænt ljós 13.08.2025

Í þessum þætti talar Linda um frelsið sem fylgir því að hætta að bíða eftir að aðrir gefi okkur grænt ljós – og gefa okkur það sjálfar. Að við megum skipta um skoðun, breyta um stefnu, snúa við eða hætta við – án þess að biðja um leyfi. Þátturinn er hugleiðing um þann kraft sem kviknar þegar við veljum að standa með okkur sjálfum – óháð því hvað öðrum finnst.   Fylgdu Lindu á samfélagsmiðlum. ➡️ ...

243. Hótanir eða mörk í samböndum? 06.08.2025

Í þessum þætti útskýrir Linda muninn á því að hóta og að setja mörk og kennir hvernig hægt er að sleppa stjórn og minnka óþarfa spennu í samböndum. Hún fjallar einnig um skilyrðislausa ást og mikilvægi þess að taka ábyrgð á eigin viðbrögðum. Þáttur fyrir alla sem vilja bæta og dýpka samböndin í lífi sínu. Fylgdu Lindu á samfélagsmiðlum. ➡️  INSTAGRAM ➡️  FACEBOOK ➡️ TAKTU SKREFIÐ FB GRÚPPA ➡️ HEIM...

242. Út af sporinu 02.07.2025

Ferðu stundum út af sporinu þegar þér líður illa? Þreyta og efi geta látið okkur gleyma markmiðum okkar og stefnu – en tilfinningar eru ekki staðreyndir. Í þessum þætti líkir Linda vegferðinni við bát í stormi og hvað þú getur gert til að komast á leiðarenda. Og lært að halda þig við áætlun þína, líka þegar það er erfitt. Fylgdu Lindu á samfélagsmiðlum. ➡️  INSTAGRAM ➡️  FACEBOOK ➡️ TAKTU SKREFIÐ...

241. Fínstilling á miðju ári (Masterclass) 26.06.2025

Aukaþáttur! Nú þegar árið er hálfnað er fullkominn tími til að taka stöðuna á markmiðunum sem þú settir þér í upphafi árs og fínstilla þau. Ef þú byrjaðir árið með skýra sýn og markmið — en finnur að fókusinn hefur dvínað — þá er þessi masterclass fyrir þig. Þér er boðið á masterclass: Fínstilling á miðju ári á sunnudaginn kemur 29. júní. SMELLTU HÉR fyrir nánari upplýsingar og skrá þig, ókeypis!...

240. 8 atriði sem ég geri fyrir framtíðina (Þáttur 2 af 2) 25.06.2025

Framtíðin mótast ekki bara sjálfkrafa. Hún mótast af því sem við veljum að hugsa, gera og forgangsraða – dag eftir dag. Í þessari tveggja þátta röð ætla ég að deila með þér átta atriðum sem ég sjálf geri í dag – meðvitað og af ásetningi – til að lifa þannig að ég sjái ekki eftir neinu seinna meir. Þetta eru daglegar skuldbindingar, venjur og viðhorf sem styðja framtíð mína.  Í þessum síðari þætti...

239. 8 atriði sem ég geri fyrir framtíðina (þáttur 1 af 2) 18.06.2025

Framtíðin mótast ekki bara sjálfkrafa. Hún mótast af því sem við veljum að hugsa, gera og forgangsraða – dag eftir dag. Í þessari tveggja þátta röð ætla ég að deila með þér átta atriðum sem ég sjálf geri í dag – meðvitað og af ásetningi – til að lifa þannig að ég sjái ekki eftir neinu seinna meir. Þetta eru daglegar skuldbindingar, venjur og viðhorf sem styðja framtíð mína.  Í þessum fyrri þætti f...

238. Sjálfsmyndin: Sterkasta verkfærið 11.06.2025

„Hver ertu, þegar öll hlutverk, titlar og væntingar samfélagsins eru tekin burt?" Sjálfsmyndin er hvernig þú sérð sjálfa þig – og það hefur áhrif á allt í lífi þínu. Í þessum þætti, sem er upptaka úr LMLP prógramminu, förum við yfir fjórar stoðir sjálfsmyndar, framtíðarsjálfið þitt og hvernig þú getur endurmótað sjálfsmyndina til að lifa lífi sem þú elskar.   Fylgdu Lindu á samfélagsmiðlum. ➡️  IN...

237. Viltu læra lífsþjálfun? 04.06.2025

Í þessum þætti svara ég spurningum sem flestir spyrja áður en þeir skrá sig í Lífsþjálfaskólann. Þarf ég að vita fyrirfram nákvæmlega hvernig ég ætla að nýta námið? Er þetta bara fyrir fólk sem vill verða lífsþjálfar? Get ég nýtt námið í öðru starfi? Hvað ef ég er í fullri vinnu – eða efast um sjálfa mig? Ef lífsþjálfun vekur áhuga þinn… þá viltu hlusta.   Ath. Nú er OPIÐ fyrir skráningar í nám í...

Hallgasd a(z) Podcastið með Lindu Pé podcastot a Replaióban

Rádió és podcastok egy alkalmazásban - ingyen és regisztráció nélkül. Telepítsd még ma, és ne maradj le a premierről

Letöltés a Google Play-ről

A Replaio nem podcastkiadó; a műsorok nevei, borítóképei és hanganyagai a szerzőiket illetik, és nyilvános RSS-csatornákon keresztül terjednek.