RÚV
Í ljósi sögunnar
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Mindenképp látogasd meg a podcast oldalát, és támogasd a készítőjét: www.ruv.is
Hol hallgathatod?
Podcastok az alkalmazásban Replaio Radio HamarosanA podcastok hamarosan megérkeznek az alkalmazásba. Telepítsd most, és láss elsőként egy teljesen új megközelítést a podcastokhoz
Epizódok
Shapira-málið 13.12.2019 42:50
Í þættinum er fjallað um mál sem skók fornleifafræðaheiminn í Evrópu á ofanverðri nítjándu öld. Forngripasali frá Jerúsalem birtist þá í Lundúnum og sagðist hafa í fórum sínum þrjú þúsund ára gamalt eintak af fimmtu Mósebók. Nokkru síðar var forngripasalinn látinn og handritin hans horfin.
Bhopal-slysið 06.12.2019 40:30
Bhopal-slysið var eitt skelfilegasta umhverfisslys sögunnar. Aðfaranótt 3 desember 1984 láku 30 þúsund tonn af eiturgasi frá verksmiðju Union Carbide sem framleiddi skordýraeitur. Gasið lagðist yfir stórt svæði umhverfis verksmiðjuna. Talið er að sjö til tíu þúsund manns hafi látist fyrstu dagana eftir slysið, en svæðið hefur ekki verið hreinsað. Margir misstu fjölskyldur sínar í slysinu og glíma...
Úígúrar 29.11.2019 39:56
Í þættinum er fjallað um sögu Úígúra, tyrkneskumælandi múslimaþjóðar í norðvestanverðu Kína, sem lengi hefur sætt ofsóknum af hendi kínverskra stjórnvalda.
Stórvesírinn 22.11.2019 38:11
Í þættinum er fjallað um sögu tyrkneska Ottómanveldisins um miðbik sautjándu aldar, og sér í lagi um Mehmet Köprülü, miskunnarlausan stórvesír sem sölsaði undir sig öll völd í ríkinu.
Þjóðarmorðið í Namibíu 15.11.2019 43:50
Í þættinum er fjallað um fyrsta þjóðarmorð tuttugustu aldarinnar, þegar þýskir nýlenduherrar þar sem nú er Namibía réðust af fullum þunga að hirðingjaþjóði einni sem hafði lítið gert þeim annað en að reyna að krefjast réttar síns gegn yfirgangi Þjóðverja. Tugþúsundum var þá útrýmt á þaulskipulagðan hátt, fólk látið veslast upp í skraufþurri eyðimörkinni eða þrælað til dauða í fangabúðum. Uppfærð ú...
Andaman-eyjar 08.11.2019 40:00
Í þættinum er fjallað um sögu Andaman-eyjaklasans í Indlandshafi, grimmilega fanganýlendu sem Bretar komu þar upp á nítjándu öld og afdrif frumbyggja eyjarinnar í kjölfarið.
Abba Kovner og Gyðingarnir í Vilnu III 01.11.2019 40:00
Þetta er þriðji og síðasti þáttur um andspyrnumenn Gyðinga í Vilníus í Litháen í seinni heimsstyrjöld, og leiðtoga þeirra, skáldið Abba Kovner. Í stríðslok varð hann heltekinn af hugmyndinni um að hefna fyrir glæpi Þjóðverja gegn Gyðingum, auga fyrir auga.
Abba Kovner og Gyðingarnir í Vilnu II 11.10.2019 40:04
Í þættinum er haldið áfram með sögu andspyrnumanna Gyðinga í Vilníus í Litháen í seinni heimsstyrjöld. Í þessum þætti er fjallað um afdrif Gyðinganna sem flúðu út í skóg eftir að gettóið í Vilníus var lagt niður.
Abba Kovner og Gyðingarnir í Vilnu 27.09.2019 40:00
Í þættinum er fjallað um vopnaða andspyrnuhreyfingu ungra Gyðinga í gettóinu í Vilníus í Litháen í seinni heimsstyrjöld.
Jean-Bédel Bokassa 20.09.2019 39:56
Í þættinum er fjallað um Jean-Bédel Bokassa, herforingja sem tók völdin í Mið-Afríkulýðveldinu á sjöunda áratug síðustu aldar og lét svo krýna sig keisara með miklum tilkostnaði.
Amelia Earhart 13.09.2019 44:49
Í þættinum er fjallað um bandaríska flugfrömuðinn Ameliu Earhart, og hvarf hennar á flugi yfir Suður-Kyrrahafi 1937.
Boris Johnson 06.09.2019 39:14
Í þættinum er fjallað um æsku og uppvöxt Borisar Johnsons, forsætisráðherra Bretlands.
Saga Súdans III 28.06.2019 42:44
Síðasti þáttur af þremur um sögu Afríkuríkisins Súdan. Í þessum þætti er fjallað um lokaár borgarstyrjaldarinnar í suðurhluta landsins, áhrif olíuvinnslu á átökin og klofning landsins, sem og stríðið í Darfúr-héraði í vestanverðu Súdan.
Bandarískir nasistar 21.06.2019 41:02
Í þættinum er fjallað um Þýsk-bandaríska bandalagið, nasistasamtök sem starfrækt voru af Bandaríkjamönnum af þýskum ættum á árunum fyrir seinni heimsstyrjöld, með þýska nasistaflokkinn sem fyrirmynd.
Saga Súdans II 14.06.2019 46:54
Í þættinum er fjallað um stormasama nútímasögu Súdans frá sjálfstæði 1956 og fram að valdaráni herforingjans Omars al-Bashir 1989.
Saga Súdans I 24.05.2019 42:15
Í þættinum er fjallað um sögu Afríkuríkisins Súdan fram á 20. öld, meðal annars um það hvernig Egyptar sölsuðu þetta stóra land undir sig og baráttu þeirra og Breta við súdanskan spámann og uppreisnarleiðtoga.
Sarajevo-handritið 10.05.2019 40:00
Í þættinum er sögð ótrúleg saga forns Gyðingahandrits sem skrifað var á Spáni á fimmtándu öld, rataði síðar til Sarajevó í Bosníu þar sem menn lögðu sig oftar en einu sinni í lífshættu við að bjarga því frá eyðileggingu.
Sarajevo-handritið 10.05.2019 40:18
Í þættinum er sögð ótrúleg saga forns Gyðingahandrits sem skrifað var á Spáni á fimmtándu öld, rataði síðar til Sarajevó í Bosníu þar sem menn lögðu sig oftar en einu sinni í lífshættu við að bjarga því frá eyðileggingu.
Kapphlaupið á Suðurpólinn IV 03.05.2019 40:00
Fjórði og síðasti þáttur um leiðangur breska sjóherforingjans Robert Falcon Scott á Suðurskautslandið. Í þessum þætti er fjallað um hið eiginlega kapphlaup hans og Norðmannsins Roald Amundsen á Suðurpólinn, og dapurleg endalok breska leiðangursins.
Kapphlaupið á Suðurpólinn III 19.04.2019 38:57
Þriðji þáttur um leiðangur breska sjóherforingjans Roberts Falcon Scott á Suðurskautslandið 1910. Í þessum þætti er fjallað um fyrsta sumar Scotts og leiðangursmanna á Suðurskautinu og undirbúning þeirra fyrir ferðina á pólinn. Þá er fjallað um „versta ferðalag heims“, þegar nokkrir Bretar fóru í leit að mörgæsareggjum um hávetur.
Kapphlaupið á Suðurpólinn II 12.04.2019 40:00
Annar þáttur um leiðangur breska sjóherforingjans Roberts Falcon Scott á Suðurskautslandið 1910. Í þessum þætti er fjallað um keppinaut Scotts á Suðurpólinn, Norðmanninn Roald Amundsen, og fyrri leiðangra hans og annarra Norðmanna á norðurslóðir.
Kapphlaupið á Suðurpólinn I 05.04.2019 40:00
Fyrsti þáttur um leiðangur breska sjóherforingjans Roberts Falcon Scott á Suðurskautslandið 1910. Í þessum þætti er fjallað um fyrirrennara Scotts í heimskautakönnun, fyrri leiðangur hans á Suðurskautslandið og undirbúning þess næsta.
Chagos-eyjar 22.03.2019 37:32
Í þættinum er fjallað um Chagos-eyjar, eyjaklasa í miðju Indlandshafi. Íbúar á eyjunum voru fluttir þaðan nauðugir á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar svo hægt væri að byggja þar bandaríska herstöð, og hafa þeir og afkomendur þeirra barist fyrir því að fá að snúa aftur æ síðan.
Hasonló podcastok
A Replaio nem podcastkiadó; a műsorok nevei, borítóképei és hanganyagai a szerzőiket illetik, és nyilvános RSS-csatornákon keresztül terjednek.