RÚV
Í ljósi sögunnar
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Mindenképp látogasd meg a podcast oldalát, és támogasd a készítőjét: www.ruv.is
Hol hallgathatod?
Podcastok az alkalmazásban Replaio Radio HamarosanA podcastok hamarosan megérkeznek az alkalmazásba. Telepítsd most, és láss elsőként egy teljesen új megközelítést a podcastokhoz
Epizódok
Ester Blenda Nordström II 25.09.2020 40:00
Annar þáttur af tveimur um Ester Blendu Nordström, brautryðjenda í rannsóknarblaðamennsku í Svíþjóð á fyrri hluta tuttugustu aldar. Í þessum síðari þætti er fjallað um feril Esterar eftir að hún snéri heim af Samaslóðum í Norður-Svíþjóð, um þátt hennar í finnska borgarastríðinu, ferðalög um Suður- og Norður-Ameríku, langdvöl á Kamtsjatka-skaga og forboðna ást.
Ester Blenda Nordström I 18.09.2020 40:00
Í þættinum er fjallað Ester Blendu Nordström (1891-1948), frumkvöðul í blaðamennsku í Svíþjóð. Meðal annars villti hún á sér heimildir og réð sig sem vinnukonu á bóndabæ til að fjalla um aðbúnað kvenna í sænskum landbúnaði, og ferðaðist um með Sömum í Norður-Svíþjóð.
McMartin-málið 11.09.2020 40:00
Í þættinum er fjallað um eitt lengsta og dýrasta dómsmál Bandaríkjanna. Árið 1983 var starfsfólk leikskóla í úthverfi Los Angeles sakað um að hafa níðst á tugum barna í sinni umsjá, og sögð félagar í leynilegum sértrúarsöfnuði djöfladýrkenda.
Dauðinn á Norðurslóðum 04.09.2020 40:00
Í þættinum er fjallað um Pólaris-leiðangur bandaríska könnuðarins Charles Francis Hall, sem vildi freista þess að komast fyrstur manna á Norðurpólinn 1871, en lést á leiðinni - á dularfullan hátt.
Alexander Lukasjenka 28.08.2020 40:00
Í þættinum er fjallað um ævi og feril Alexanders Lukasjenka, forseta Hvíta-Rússlands til meira en aldarfjórðungs.
Morðið á Olof Palme og Skandiamaðurinn 12.06.2020 44:15
Í þættinum er fjallað um Stig Engström, sænskan auglýsingateiknara sem nýverið var sakaður um að vera morðingi Olofs Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar, í febrúar 1986.
Hong Kong og fyrra ópíumstríðið 29.05.2020 40:02
Í þættinum er fjallað um sögu Hong Kong, fyrra ópíumstríð Kínverja og Breta og tildrög þess að Bretar lögðu undir sig Hong Kong.
Tenerife-slysið 15.05.2020 38:57
Í þættinum er fjallað um mannskæðasta flugslys sögunnar, þegar röð tilviljana og mistaka leiddi til þess að tvær Boeing 747-risaþotur skullu saman á flugvellinum Los Rodeos á Tenerife árið 1977.
Typhoid Mary 08.05.2020 40:00
Í þættinum er fallað um Mary Mallon, matselju í New York sem smitaði á sjötta tug manna af taugaveiki í upphafi 20. aldar, án þess að þó að sýna nokkur einkenni veikinnar sjálf. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Túrkmenistan 01.05.2020 43:31
Í þættinum er fjallað um sögu Mið-Asíuríkisins Túrkmenistan á tuttugustu öld og sér í lagi valdatíð hins sérvitra einræðisherra Saparmurat Niyazov, sem kallaði sig Turkmenbashi, „fremstan Túrkmena“.
Joe Biden 17.04.2020 40:35
Í þættinum er fjallað um æsku, uppvöxt og upphaf stjórnmálaferils Joe Bidens, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna og fambjóðanda til forsetaefnis Demókrataflokksins í komandi forsetakosningum 2020.
Bókaþjófurinn í Kaupmannahöfn 03.04.2020 41:47
Í þættinum er fjallað um stórtækasta bókaþjóf danskrar sögu, sem herjaði á Konunglega bókasafnið í Kaupmannahöfn á áttunda áratugnum og stal þaðan mörg þúsund bókum. Málið var ekki leyst fyrr en áratugum síðar.
Bókaþjófurinn í Kaupmannahöfn 03.04.2020 41:47
Í þættinum er fjallað um stórtækasta bókaþjóf danskrar sögu, sem herjaði á Konunglega bókasafnið í Kaupmannahöfn á áttunda áratugnum og stal þaðan mörg þúsund bókum. Málið var ekki leyst fyrr en áratugum síðar.
Leiðangur Þjóðverja á Nanga Parbat 1934, II 27.03.2020 40:26
Seinni þáttur um leiðangur þýskra göngumanna á fjallið Nanga Parbat í Himalajafjöllum árið 1934. Þegar göngumennirnir, ásamt nepölskum burðarmönnum, voru komnir langleiðina á tindinn gerði mikið illviðri og mennirnir þurftu að haska sér niður, sem reyndist hægara sagt en gert við slíkar aðstæður. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Leiðangur Þjóðverja á Nanga Parbat 1934, I 20.03.2020 40:44
Fyrri þáttur um ferð þýskra göngugarpa á fjallið Nanga Parbat í Himalaja-fjöllum árið 1934. Fjallgöngumennirnir nutu stuðnings stjórnvalda í Þýskalandi nasismans og ætluðu að sanna yfirburði þýskra fjallgöngumanna. Fjallið er það níunda hæsta í heimi og reyndist ekkert lamb að leika sér við. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Lindbergh-barnið 06.03.2020 43:59
Í þættinum er fjallað um það þegar 20 mánaða gömlum syni bandaríska flugkappans Charles Lindbergh var rænt af heimili þeirra í New Jersey í mars 1932. Við tók margra ára lögreglurannsókn sem fangaði athygli heimsbyggðarinnar.
Bernie Sanders 28.02.2020 40:00
Í þættinum er fjallað um bandaríska öldungadeildarþingmanninn og forsetaframbjóðandann Bernie Sanders - æsku hans í Brooklyn, háskólaár og baráttustörf í Chicago og upphaf stjórnmálaferilsins í Vermont.
Morðið á Rafik Hariri II 21.02.2020 42:21
Seinni þáttur um morðið á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, en hann lét lífið í bílsprengjuárás í miðborg Beirút um miðjan febrúar 2005. Í þessum síðari þætti er fjallað um feril Hariris eftir að borgarastyrjöldinni í Líbanon lauk, og umdeilda rannsóknina á dauða hans.
Morðið á Rafik Hariri I 14.02.2020 42:56
Í þættinum er fjallað um sprengjutilræði sem varð fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, Rafik Hariri, að bana árið 2005 og um borgarastyrjöldina sem geisaði í Líbanon í fimmtán ár frá árinu 1975.
Korean Airlines flug 007 17.01.2020 41:54
Haustið 1983 skaut sovésk orrustuþota niður suðurkóreska farþegaþotu, Korean Airlines flug 007 frá New York til Seúl, með þeim afleiðingum að allir um borð fórust.
Bougainville 10.01.2020 38:49
Eyjan Bougainville tilheyrir Papúa Nýju Gíneu, en eyjarskeggjar samþykktu nýlega í þjóðaratkvæðagreiðslu að lýsa yfir sjálfstæði. Saga eyjunnar er blóði drifin, en stríð brast þar út eftir að námafélagið Rio Tinto hóf þar umfangsmikið kolanám á sjöunda áratug síðustu aldar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Hasonló podcastok
A Replaio nem podcastkiadó; a műsorok nevei, borítóképei és hanganyagai a szerzőiket illetik, és nyilvános RSS-csatornákon keresztül terjednek.