Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Mindenképp látogasd meg a podcast oldalát, és támogasd a készítőjét: fotbolti.net
Szerző
Fotbolti.net
Kategória
A podcast weboldala
Legutóbbi epizód
2026. nov. 25.
Hol hallgathatod?
Podcastok az alkalmazásban Replaio Radio HamarosanA podcastok hamarosan megérkeznek az alkalmazásba. Telepítsd most, és láss elsőként egy teljesen új megközelítést a podcastokhoz
Epizódok
Kjaftæðið - Arsenal er fancy Stoke 08.01.2026
Baldvin Borgars, Alli hundur og Jeppakallinn fóru yfir vikuna í boltanum.
Tveggja Turna Tal - Aron Baldvin Þórðarson 08.01.2026
Aron Baldvin Þórðarson er aðstoðarþjálfari Sölva Geirs Ottesen hjá karlaliði Víkings í fótbolta. Aron Baldvin komst í fréttirnar í vikunni þegar Eyjamenn reyndu að fá drenginn til Eyja úr hamingjunni. Víkingar vildu ekki selja. Í þessum þætti kynnumst við Aroni og áttum okkur glögglega á því hversvegna Víkingar vildu ekki missa hann frá borði! Taktískar pælingar með Arnari Gunnlaugs, stóísk ró Sö...
Kjaftæðið - Amorim rekinn! 05.01.2026
Baldvin Borgars, Frankarinn og Alli möppudýr fóru vel yfir brottrekstur Amorim og enska boltann að þessu sinni.
Enski boltinn - Kaldar nýárskveðjur og er Amorim búinn? 04.01.2026
Gleðilegt nýtt ár kæru hlustendur. Það hefur verið mikið um að vera í enska boltanum síðustu daga. Tvær umferðir voru spilaðar síðustu vikuna. Enzo Maresca og aðdáendur enska boltans fengu kaldar nýárskveðjur og allt gengur upp hjá Arsenal þessa dagana. Það er einhver hiti á bak við tjöldin hjá Manchester United og spurning hvort Rúben Amorim sé einfaldlega búinn hjá félaginu. Það var rætt um þett...
Fótbolta nördinn - Fótbolti.net vs Fylkir 04.01.2026
Annar þátturinn í 16-liða úrslitum Fótbolta nördans, en í þessum þætti eigast við Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson fyrir Fótbolti.net og Guðmundur Tyrfingsson fyrir Fylki. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni.
Leiðin úr Lengjunni: Ótímabæra spáin 03.01.2026
Mjög snemmbúinn upphitunar þáttur fyrir Lengjudeildina þar sem við spáðum fyrir því hvernig deildin mun fara. Stefán Marteinn, Haraldur Örn og Sverrir Örn mættu til að fara yfir sviðið.
Útvarpsþátturinn - Fyrsta ótímabæra spáin og stjóraskipti Chelsea 03.01.2026
Elvar Geir, Valur Gunnars og Baldvin Borgars ræða um Bestu deildina. Fyrsta ótímabæra spáin opinberuð. Haraldur Örn velur úrvalslið tímabilsins til þessa í ensku úrvalsdeildinni og spjallar um stjóraskipti Chelsea.
Hugarburðarbolti GW 19 Hirðfíflið mætti í studio 1 02.01.2026
Arsenal á toppnum þegar árið 2026 er gengið í garð. Unnu Aston Villa 4-1 í toppslag umferðarinnar. Enso Maresca er hættur með Chelsea. Var þetta planað hjá honum? Liverpool kraftlitlir á nýársdag heima gegn Leeds í 0-0 jafntefli. Man City náði ekki að vinna á leikvangi ljóssins en munu engu að síður vera í toppbaráttunni.
Kjaftæðið - Stórkostleg áramót fyrir Arsenal 02.01.2026
Baldvin Borgars, Frankarinn og Nonni Kristjáns fóru vel yfir áramótin í boltanum og helstu fréttir.
Kjaftæðið - Gummi Tóta í KR? 31.12.2025
Baldvin Borgars, Frankarinn og Alli hundur fóru yfir jóladagskánna.
Tveggja Turna Tal - Andri Freyr Hafsteinsson 29.12.2025
Andri Freyr Hafsteinsson er bóndasonur úr Skagafirði sem fékk snemma dellu fyrir fótbolta og þjálfun. Ejub Purisevic fékk hann til Ólafsvíkur sem leikmann, en fljótlega beindist allur fókus Andra Freys að þjálfun. Í Eftir að Andri Freyr flutti í bæinn hélt hann áfram í læri hjá miklu fagfólki, meðal annars Helga Jónasi Guðfinnssyni, Einari Einarssyni og Kristjáni Guðmundssyni.
Enski boltinn - Himnasending, Wirtz skoraði og þrjú efstu stinga af 28.12.2025
Gleðileg jól kæru hlustendur. Það var spiluð heil umferð í ensku úrvalsdeildinni eftir jólin og kláraðist hún í dag. Vængbrotið lið Manchester United vann Newcastle, Florian Wirtz komst á blað í ensku úrvalsdeildinni og efstu þrjú liðin eru stungin af, þau halda áfram að vinna. Guðmundur Aðalsteinn settist niður með Magnúsi Hauki Harðarsyni og Jóni Kaldal, stuðningsmanni Arsenal, í Pepsi Max stúdí...
Fótbolta nördinn - Draumaliðið vs KR 28.12.2025
Önnur sería Fótbolta Nördans er farin af stað, og í ár eru þættirnir í mynd. Í fyrsta þætti mætti Jóhann Skúli Jónsson fyrir Draumaliðið og tókst á við Halldór Snær Georgsson frá KR.
Útvarpsþátturinn - Kæfan 2025 27.12.2025
Haldið er í hefðina og Kæfan er á dagskrá í síðasta þætti ársins en þar er gleðin við völd þegar fótboltaárið er gert upp og veitt verðlaun í fjölmörgum flokkum. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas í beinni frá fiskabúrinu á Suðurlandsbrautinni. Gestir þáttarins eru Stefán Pálsson og Orri á X-inu.
Tveggja Turna Tal - Björn Daníel Sverrisson 25.12.2025
Fyrsti gestur annarar seríu er einn af bestu sonum Hafnfirðinga, Björn Daníel Sverrisson. Þessum jólaþætti er skipt í tvennt, svo mikið er efnið. Unglingalandsliðsmaður í handbolta og líklegur til að verða atvinnumaður í íþróttinni. Ljónin og gírafarnir í S-Afríku með Viking Stv, ávöxtun sektarsjóða, óvæntur áhrifavaldur í lífi Björns, Heimir og Eiður Smári, þjálfun og miklu meira er tekið fyrir í...
Hugarburðarbolti GW 17 Þegar Trölli stal jólunum! 23.12.2025
Fórum yfir GW17 í aðdraganda jóla og spáðum í leikina sem fóru fram. Í fyrsta skipti í sögu Hugarburðarbolta krýndum við Drottningu umferðarinnar. Gleðileg jól!
Kjaftæðið - Sérstakir gestir í jólaþætti 22.12.2025
Baldvin Borgars, Óskar Borgþórs, Aron Baldvin og Haraldur Örn settust í settið og ræddu boltann.
Enski boltinn - Slakt lið vann ömurlegt lið og Yoro horror show 21.12.2025
Það er margt að ræða eftir síðustu leiki í enska boltanum. Guðmundur Aðalsteinn kom sér vel fyrir í Pepsi Max stúdíóinu ásamt bræðrunum Magnúsi Hauki og Hinriki Harðarsonum núna þegar þrír dagar eru til jóla. Hinrik er atvinnumaður í Noregi en er mættur heim í jólafrí og fékk að láta gamminn geysa um sína menn í Liverpool. Liverpool lagði Tottenham í tíðindamiklum leik og þrjú efstu lið deildarinn...
Útvarpsþátturinn - Ólafur Ingi, fréttir úr Bestu og Davíð Snorri á línunni 20.12.2025
Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, er gestur þáttarins. Rætt er um Blikana og leikmannaferil Ólafs. Farið er yfir fréttir vikunnar, skúbb úr körfuboltanum og þá er Davíð Snorri Jónasson á línunni. Age Hareide er minnst og rætt um landsliðið. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Gleðileg jól!
Kjaftæðið - Föstudagsgír og Tufa tekur við Varnamo 19.12.2025
Baldvin Borgars, Frankarinn og Alli hundur voru léttir á föstudegi.
Kjaftæðið - Alvöru hiti í Pepsi Max studio-inu! 16.12.2025
Baldvin Borgars, Frankarinn og Alli hundur settust í settið og fóru yfir stóru málin.
Hugarburðarbolti GW 16 Mr.Handsome 16.12.2025
Fengum góða gesti í stúdíóið til að fara yfir leiki umferðarinnar. Úlfarnir skoruðu öll þrjú mörk leiksins á Emirates en töpuðu samt gegn Arsenal. Man City eru komnir í gang og setja pressu á Arsenal með 0-3 sigri á Crystal Palace. Liverpool sigraði Brighton 2-0 þar sem Mo Salah kom inn á strax í fyrri hálfleik við mikinn fögnuð stuðningsmanna. Aston Villa heldur áfram frábæru gengi og unnu glæsta...
Enski boltinn - Hvað ertu eiginlega að tala um? 15.12.2025
Farið er yfir leiki helgarinnar í enska boltanum og helstu sögulínur núna þegar jólin fara að detta í garð. Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur Harðarson fóru yfir málin í Pepsi Max stúdíóinu og svo átti Kári Snorrason sterka innáskiptingu. Kári var fenginn til að ræða vægast sagt athyglisverð ummæli Enzo Maresca, stjóra Chelsea. Svo sneri Mohamed Salah aftur hjá Liverpool en Hugo Ekitike er stj...
Uppbótartíminn - Ein sú besta kveður sviðið, kraftröðun og slúður 15.12.2025
Það er komið að sérstökum jólaþætti af Uppbótartímanum, hlaðvarpi um kvennaboltann. Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur komu sér vel fyrir í Pepsi Max stúdíóinu og ræddu við Fanndísi Friðriksdóttur, eina öflugustu fótboltakonu sem Ísland hefur átt, en hún lagði skóna á hilluna á dögunum. Fanndís fór yfir ferilinn og ákvörðun sína að hætta. Í lokin á þættinum var liðunum í Bestu deild kvenna kraf...
Útvarpsþátturinn - Óli Jó og er hægt að bæta Bestu? 13.12.2025
Útvarpsþáttur vikunnar. Umsjónarmenn eru Elvar Geir og Tómas Þór. Í fyrri hlutanum mætir Birgir Jóhannsson, framkvæmdastjóri Íslensks toppfótbolta (ÍTF), og ræðir ýmis mál. Er hægt að bæta Bestu deildina? Í seinni hlutanum er það svo hinn sigursæli Ólafur Jóhannesson en nýlega kom út bókin Óli Jó – fótboltasaga, sem er rituð af Ingva Þór Sæmundssyni íþróttafréttamanni. Útvarpsþátturinn mælir með þ...
Hasonló podcastok
A Replaio nem podcastkiadó; a műsorok nevei, borítóképei és hanganyagai a szerzőiket illetik, és nyilvános RSS-csatornákon keresztül terjednek.