Fotbolti.net

Fotbolti.net

Podcastþættir Fótbolta.net

Mindenképp látogasd meg a podcast oldalát, és támogasd a készítőjét: fotbolti.net

Szerző

Fotbolti.net

Kategória

Sports

A podcast weboldala

fotbolti.net

Legutóbbi epizód

2026. nov. 25.

Hol hallgathatod?

Podcastok az alkalmazásban Replaio Radio Hamarosan

A podcastok hamarosan megérkeznek az alkalmazásba. Telepítsd most, és láss elsőként egy teljesen új megközelítést a podcastokhoz

Letöltés a Google Play-ről Telepítsd ingyen Android 10 M+ letöltés · 4,7+ értékelés iOS hamarosan

Epizódok

Fótbolta nördinn - 433 vs Afturelding 08.02.2026

Sjötti þátturinn í 16-liða úrslitum Fótbolta nördans, en í þessum þætti eigast við Helgi Fannar Sigurðsson fyrir 433 og Arnór Gauti Ragnarsson fyrir Aftureldingu. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni.

Útvarpsþátturinn - Skagamenn hástökkvarar í ótímabæru 07.02.2026

Endurskoðuð ótímabær spá fyrir Bestu deildina. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars opinbera hvaða leikmenn þeir eru spenntir fyrir að fylgjast með og hverjir þurfa að stíga upp. Viðtal við Böðvar Böðvarsson og örstutt NFL horn.

Hugarburðarbolti GW 24 Sporðdreki í norður London! 02.02.2026

Arsenal eru með 6 stiga forskot eftir leiki helgarinnar. Tottenham og Man City gerðu 2-2 jafntefli í Norður London. Liverpool sigruðu Newcastle 4-1 á Anfield Road. Man Utd með 3-2 sigur á Fulham í spennu trylli. Aston Villa þurftu að lúta í gras á heimavelli gegn góðu Brentford liði 0-1. Þetta og allt hitt í GW24.

Enski boltinn - Leikhús draumanna stóð undir nafni 02.02.2026

Arsenal styrkti stöðuna á toppi deildarinnar með sannfærandi sigri á Leeds. Thomas Frank og lærisveinar hans í Tottenham tóku stig gegn City og Benjamin Sesko reyndist hetjan í dramatískum sigri Manchester United á Fulham í leikhúsi draumana. Þá vann Liverpool vann sinn fyrsta deildarleik á árinu og gott gengi Chelsea undir Liam Rosenior hélt áfram. Kári Snorrason, Magnús Haukur Harðarson og Sölvi...

Kjaftæðið - Víkingar að kaupa leikmann og stór helgi fyrir Arsenal 01.02.2026

Baldvin Borgars, Nonni Kristjáns og Tonson fóru yfir helgina í enska og íslenska.

Útvarpsþátturinn - Ólga í FH og Lengjudeildin aldrei verið stærri 31.01.2026

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net í beinni frá Suðurlandsbraut. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar og Tómas velur sitt landslið úr Bestu deildinni. Baldvin Már Borgarsson sérfræðingur þáttarins opinberar ótímabæra spá fyrir Lengjudeildina og skoðar hvað félögin þar hafa verið að gera í vetur. Skoðað verður hvað Íslendingar voru að gera í Evrópukeppnum og þá er sérs...

Kjaftæðið - El Jóhann setti saman lið Meistaradeildarinnar hingað til 29.01.2026

Baldvin Borgars, El Jóhann og Tonson gerðu upp Meistaradeildina og hituðu upp fyrir enska um helgina.

Fótbolta nördinn - Bomban vs Grindavík 28.01.2026

Fimmti þátturinn í 16-liða úrslitum Fótbolta nördans, en í þessum þætti eigast við Gunnar Hilmar Kristinsson fyrir Bomban hlaðvarp og Damir Muminovic fyrir Grindavík. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni.

Hugarburðarbolti GW 23 Martröðin raungerðist! 27.01.2026

Man Utd skellti toppliði Arsenal á Emirates vellinum 2-3. Chelsea og Man Utd komust upp fyrir Liverpool með tapi þeirra síðast nefndu gegn Bournemouth 3-2 á suðurströndinni. Crystal Palace tapaði 1-3 gegn Chelsea í Lundúna slag. West Ham unnu annan leik sinn í röð. Newcastle tapaði gegn Aston Villa á sínum heimavelli 0-2 um helgina og Everton og Leeds skildu jöfn.

Enski boltinn - Dansað á Emirates og stjórar valtir í sessi 26.01.2026

Manchester United fer býsna vel af stað undir stjórn Michael Carrick. Eftir sigur á Manchester City í síðustu umferð, þá fóru þeir á Emirates í gær og tóku sigur. Matheus Cunha sýndi brasilísk dansspor eftir að hann gerði sigurmarkið. Núna er toppbaráttan aftur orðin spennandi þar sem Aston Villa og Manchester City eru núna bara fjórum stigum á eftir toppliðinu. Liverpool tapaði á dramatískan hátt...

Kjaftæðið - Takk Man Utd! 25.01.2026

Baldvin Borgars, Nonni Kristján og Öddi Chelsea gómur fóru yfir helgina í enska, íslenska og svo komandi Meistaradeildarmiðvikudag.

Útvarpsþátturinn - Arnar Gunnlaugs og Eyjó Héðins 23.01.2026

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er tekinn upp á bóndadeginum. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Það eru tveir gestir þessa vikuna. Sá fyrri er landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson sem ræðir um verkefni ársins 2026 og um þróun liðsins undir hans stjórn. Svo kemur Eyjólfur Héðinsson, nýr yfirmaður fótboltamála hjá Breiðabliki. Hann ræðir um ýmislegt tengt Kópavogsliðinu og sínu starfi. Einnig er rætt...

Hugarburðarbolti GW 22 Þáttastjórnandi telur Manchester United vera betri en Arsenal! 21.01.2026

Man Utd sýndu gamla góða takta í 2-0 sigri á Man City á Old Trafford. Arsenal breikkaði bilið á toppnum í 7 stig þrátt fyrir 0-0 jafntefli gegn Notthingham Forest í Skýriskógi. Liverpool missteig sig gegn nýliðum Burnley 1-1 á Anfield. Það gengur ekkert upp hjá Tottenham í deildinni. Sunderland halda áfram að vera í Evrópubaráttu. Aston Villa tapaði heimaleik eftir svakalega sigurgöngu.

Fótbolta nördinn - SÝN vs FH 21.01.2026

Fjórði þátturinn í 16-liða úrslitum Fótbolta nördans, en í þessum þætti eigast við Ágúst Orri Arnarson fyrir SÝN og Björn Daníel Sverrisson fyrir FH. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni.

Alfreð: Tækifæri sem var of gott til að segja nei við 20.01.2026

Fyrrum atvinnu- og landsliðsmaðurinn Alfreð Finnbogason var ráðinn í upphafi árs nýr yfirmaður fótboltamála hjá norska stórliðinu Rosenborg. Hann kemur til félagsins eftir að hafa starfað hjá Breiðabliki í um eitt og hálft ár sem tæknilegur ráðgjafi. Fótbolti.net sló á þráðinn til Alfreðs og ræddi við hann um nýja starfið í Þrándheimi. Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að...

Kjaftæðið - United slátraði borgarslagnum 19.01.2026

Baldvin Borgars, Alli Davors og Tonson fóru yfir íslenska, enska og úrslitaleik AFCON.

Enski boltinn - Michael Carrick og Michael Scott 19.01.2026

Manchester er rauð eftir að United fór með sigur af hólmi gegn City í fyrsta leik Michael Carrick. Sigurinn var óvæntur en yfirburðirnir voru miklir sem var ekki síður óvænt. Farið var yfir þennan leik og aðra leiki helgarinnar í Pepsi Max stúdíóinu á þessum ágæta mánudegi. Rætt var til að mynda um nýjan stjóra Chelsea sem er athyglisverður, jafntefli Liverpool gegn Burnley og Tottenham sem er á ó...

Tveggja Turna Tal - Björn Daníel Sverrisson, Part II 18.01.2026

Þáttur vikunnar er seinni hluti viðtalsins við Björn Daníel Sverrisson. Þátturinn byrjar á stuttum hljóðbrotum við fyrrum þjálfara og vini Björns en svo tekur Björn við að segja frá stórkostlegum ferli sínum á Íslandi, Noregi og í Danmörku. Njótið!

Kjaftæðið - Upphitun fyrir enska og fréttir vikunnar 17.01.2026

Baldvin Borgars, Kári Snorra og Tonson fóru yfir vikuna í boltanum og hituðu upp fyrir helgina.

Útvarpsþátturinn - Föstudagsfjör og Balkanbræður 16.01.2026

Það er víða víða komið við í þætti vikunnar en hann er frumfluttur í hlaðvarpsútgáfu á föstudegi að þessu sinni. Umsjónarmenn eru Elvar Geir og Tómas Þór. Rætt er um fréttir vikunnar og leikjaniðurröðun Bestu deildarinnar. Gestur er Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður og er rætt við hann um Balkanbræður, stórmót og handbolta. Balkanbræður eru nýir útvarps og hlaðvarpsþætir - Þorkell f...

Fótbolta nördinn - RÚV vs Víkingur 14.01.2026

Þriðji þátturinn í 16-liða úrslitum Fótbolta nördans, en í þessum þætti eigast við Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson fyrir RÚV og Helgi Guðjónsson fyrir Víking. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni.

Kjaftæðið - Stóra bikarhelgin allsstaðar! 12.01.2026

Baldvin Borgars, Nonni Kristjáns og Big Glacier tóku bikarhelgina föstum tökum auk þess að ræða íslenska boltann.

Enski boltinn - Hver á að endurlífga Man Utd? 12.01.2026

Það var nóg að ræða í Pepsi Max stúdíóinu í dag. Stuttu eftir að síðasti þáttur var tekinn upp, þá ákvað Manchester United að reka Rúben Amorim. Hvað gerist næst? Guðmundur Aðalsteinn fékk þá Magnús Hauk Harðarson og útvarpsgoðsögnina Sigga Hlö í heimsókn til að fara yfir málin. Siggi er grjótharður stuðningsmaður United. Þá var rætt um leikina í FA-bikarnum sem fóru fram um helgina og síðustu umf...

Útvarpsþátturinn - Nýjustu sambýlismennirnir 10.01.2026

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 10. janúar. Gestir þáttarins eru Júlíus Mar Júlíusson og Hrannar Snær Magnússon sem eru farnir frá KR og Aftureldingu og gengnir til liðs við Kristiansund þar sem þeir verða sambýlismenn. Rætt er um þjálfaramál ÍBV, farið yfir lista yfir mest spennandi kaupin í Bestu deildinni og farið yfir fréttir vikunnar. Að auki er enski boltinn til umræðu en Manchest...

Hugarburðarbolti GW 21 Var lesin eins og "Litla gula hænan" 09.01.2026

Stórmeistara jafntefli 0-0 á Emirates hjá Arsenal og Liverpool í mígandi rigningu. Igor Thiago er ekkert að grínast með formið á sér. Fulham skellti Chelsea í kotinu. Man City og Aston Villa náðu ekki sigrum í sínum leikjum. Svakalegur leikur á St. James's Park þegar Newcastle lagði Leeds 4-3. Antoine Semenyo átti fallega kveðjustund fyrir Kirsuberin í 3-2 sigri gegn Tottenham. Degi seinna keypti...

Hallgasd a(z) Fotbolti.net podcastot a Replaióban

Rádió és podcastok egy alkalmazásban - ingyen és regisztráció nélkül. Telepítsd még ma, és ne maradj le a premierről

Letöltés a Google Play-ről

A Replaio nem podcastkiadó; a műsorok nevei, borítóképei és hanganyagai a szerzőiket illetik, és nyilvános RSS-csatornákon keresztül terjednek.