RÚV
Víðsjá
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
N'hésitez pas à visiter le site du podcast et à soutenir son créateur : www.ruv.is
Où écouter ?
Les podcasts dans l'appli Replaio Radio Bientôt disponibleLes podcasts arrivent très bientôt dans l'appli. Installe-la dès maintenant et découvre en avant-première une toute nouvelle façon de vivre les podcasts
Épisodes
Kona, Úr sveit í borg í sveit, Rúmmálsreikningur og Kaveh Akbar 21.09.2023 55:00
Í þætti dagsins heyrum við í nýjum bókmenntarýni Víðsjár: Kristínu Maríu Kristinsdóttur, sem verður með okkur í vetur ásamt fleiri gamalkunnum rýnum. Í dag rýnir Kristín María í bókina Konu, eftir nóbelskáldið Annie Ernaux, en hún kom nýverið út í íslenskri þýðingu Þórhildar Ólafsdóttur hjá Uglu útgáfu. Sýning Þórðar Hans Baldurssonar, Úr sveit í borg í sveit, hverfist um eins konar afturhvarf í s...

Svipmynd af Davíð Þór Jónssyni 20.09.2023 55:00
Davíð Þór Jónsson er margra hatta maður sem erfitt er að skilgreina á einn hátt. Það mætti nota orðið tónlistarmaður, píanóleikari, tónsmiður, gjörningalistamaður eða spunatónlistamaður. Davíð Þór segist sjálfur fyrst og fremst vera manneskja, sem um leið er faðir, dýravinur, bóndi og náttúruvinur sem lifir fyrir tónlist. Það mætti líka kalla hann galdramann augnabliksins.
Draugapennar, Konurnar á Eyrabakka, Pussy Riot 19.09.2023 55:00
Leigupennar eða draugapennar er fyrirbæri sem fylgt hefur hinu skrifaða máli um aldir. Draugapenni er í einföldu máli höfundur sem skrifar í nafni annars - manneskja sem semur eitthvað fyrir aðra manneskju sem síðan telst höfundur verksins; það gefur að skilja að leiga á slíkum pennum er yfirleitt í höndum efnameira fólks. Ástæða fyrir draugaskeytinu við orðið er sú að oft ríkir leynd yfir því hve...
Ef garðálfar gætu talað, Óróapúls, Perlan 18.09.2023 55:00
Óróapúls er önnur platan sem Kári Egilsson gefur út í ár en fyrr á þessu ári gaf hann út sálartónlistarplötuna Palm Trees in the Snow. Á Óróapúlsi má finna 9 frumsamin lög sem Kári tók upp ásamt einvala liði tónlistarmanna í Sundlauginni í Mosfellsbæ í fyrra. Tónlist Kára mun fylgja okkur í þættinum og síðan ræðum einnig við stuttlega við hann um plötuna. Hver vill kaupa Perluna fyrir 4 milljarða?...
List án landamæra, Tónleikur í Glerregni og ljósmyndun á söfnum 14.09.2023 55:00
Í þætti dagsins ferðumst við í huganum til suðurhluta Evrópu, heimsækjum Scrovegni kapelluna á Ítalíu og safn Sofiu drottningar í Madrid og veltum fyrir okkur lítt listrænni ljósmyndun gesta þeirra. Síðan ræðir Anna María Björnsdóttir við Írisi Stefaníu Skúladóttur, listrænan stjórnanda hátíðarinnar List án landamæra, og Ólaf Snævar Aðalsteinsson, sviðslistamann og stjórnarmeðlim hátíðarinnar, um...
Þjóðtungan, The Simple Act of Letting Go, Laust mál 13.09.2023 55:00
Á fimmtudag fer fram minningarfyrirlestur Gauta Kristmannssonar um Sigurð Nordal í Eddu, húsi íslenskunnar, undir merkjum Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Fyrirlesturinn er öllum opinn og ber heitið Hvað þýðir þjóðtungan? Þar verður litið til hugmynda Sigurðar Nordals um samhengið í íslenskum bókmenntum og þær skoðaðar í spegli þýðinga og þróunar bókmennta á Íslandi og í Evrópu. Í fr...
Landslag fyrir útvalda, Nordic Affect og sumarlestur 12.09.2023 55:00
Í þætti dagsins kíkjum í Hafnarborg þar sem verið er að setja upp haustsýningunasýninguna, Landslag fyrir útvalda, en hún verður opnuð ásamt einkasýningu á verkum Sindra Ploders í Sverrissal safnsins, næstkomandi fimmtudag, nánar tiltekið þann 14. September, klukkan átta. Tónlistarhópurinn Nordic Affect hefur vetrartónleikaröð sína í Mengi næstkomandi sunnudag, 17. September. Útgangspunktur tónlei...
Sjálflærðir læknar, Pálmavínsdrykkjumaðurinn, Ást Fedru 11.09.2023 57:43
Þegar tappari pálmavínsdrykkjumanns fellur óvænt frá leggur drykkjumaðurinn í leiðangur til að hafa uppi á honum í Dauðramannaþorpinu. Svo hljóðar efnislýsing bókarinnar Pálmavínsdrykkjumaðurinn eftir nígeríska rithöfundinn Amos Tutuola sem kom út í íslenskri þýðingu hjá Angústúru á dögunum. En bókin er frá miðri síðustu öld og að öllum líkindum fyrsta afríska skáldsagan á ensku sem kom út utan he...
Rauðir sokkar, Almar í tjaldi, Bara bækur og Stravinskí 07.09.2023 55:00
Listamaðurinn Almar Steinn Atlason hefur undanfarinn mánuð búið í tjaldi á miðjum folfvelli á Höfn og málaði þar það sem fyrir augu hans bar, í en gjörningurinn er vísum í þessa heimsókn Ásgríms. Við ræðum við Almar í þætti dagsins. Einnig heyrum við af málþinginu Á rauðum sokkum í hálfa öld. Elín Björk Jóhannsdóttir og Rakel Adolphsdóttir segja okkur frá þinginu og nýjum vef um Rauðsokkahreyfingu...
Svipmynd af Arnhildi Pálmadóttur 06.09.2023 55:00
?Hús eiga ekki að líta út eins og eitthvað ákveðið, heldur á formið að fylgja framboði á þeim efnum sem við höfum núna, efnum sem hafa þegar losað kolefni? Þetta segir Arnhildur Pálmadóttir arkitekt, en hún er gestur okkar í svipmynd dagsins. Arnhildur hlaut í liðinni viku viðurkenningu sem frumkvöðull í mannvirkjagerð á húsnæðisþingi. Í mati dómnefndar sagði meðal annars: ?Arnhildur hefur sýnt ef...

Fjallaloft, Sund og Hanna frá Jaðri 05.09.2023 55:00
Sýningin Fjallaloft hefur staðið gestum og gangandi opin í Listasal Mosfellsbæjar síðan 11. Ágúst. Sýningin er fyrsta einkasýning Henryks Chadwick Hlynssonar og samanstendur af landslagsmálverkum sem vega salt milli náttúruraunsæis og impressjónisma; þar sem Henryk leitast við að gefa nákvæma eftirmynd af jöklum og fjöllum en miðla á sama tíma upplifun þess sem horfir. Henryk hefur undanfarin ár s...

Ísleifur Konráðsson, myndlistargagnrýni, kjarnasamfélög 04.09.2023 55:00
Í þriðja tölublaði tímaritsins Myndlist á Íslandi er að finna grein eftir Eyju Orradóttur, kvikmyndafræðing, um framtíð myndlistargagnrýni þar sem hún gaumgæfir þær breytingar sem hafa átt sér stað í gagnrýnisskrifum myndlistar síðastliðna áratugi. Við ræðum við Eyju í þætti dagsins. Og við kynnum okkur list alþýðulistamannsins Ísleifs Konráðssonar, en um þessar mundir stendur yfir sýning á verkum...
Picasso, Norræna í ljóðum, arkitekt á ferðalagi, sumar í sveit 29.06.2023 53:19
Í ár eru 50 ár frá því að Picasso féll frá, en hann lést í apríl 1973, þá 92 ára gamall. Stóru söfnin úti í heimi keppast við að finna áhugaverðar nálganir á höfundaverk manns sem ekki aðeins er kallaður myndlistar risi 20 aldarinnar heldur einnig af mörgum talin vera snillingur. En það eru ekki allir samamála um það. Við kynnum okkur nokkrar ólíkar nálganir á höfundarverk hans í þætti dagsins. Þa...

Þyrí Huld Árnadóttir dansari 28.06.2023 55:00
Þyrí Huld Árnadóttir var valin dansari ársins á Grímuverðlaununum í ár og fékk einnig Grímuna fyrir dansverk ársins: Hringrás. Það var í þriðja sinn sem Þyrí hlaut titilinn dansari ársins en áður hlaut hún verðlaunin árið 2015 og 2018 fyrir hlutverk sín í verkinu Sin og Hin lánsömu. Þyrí gekk í Danslistarskóla JSB og Listdansskóla Íslands og hún er með BA gráðu í samtímadansi frá Listaháskóla Ísla...

Vísitala, Sumartónleikar í Skálholti og sköpunarkraftur náttúrunnar 27.06.2023 55:00
Hagfræði og myndlist, fagurfræði og fjármál - þetta eru heimar sem sjaldan mætast þannig að úr verði listaverk. En á fimmtudag opnaði í Ásmundarsal einkasýning Geirþrúðar F. Hjörvar sem kallast Vísitala. Þar eru listaverk sem sprottin eru upp úr persónulegri hrifningu Geirþrúðar á tölfræðilegum breytum settum fram á sjónrænan máta sem einföld tölfræðirit. Vísitala sækir innblástur í skýringarmyndi...
Xiuxiuejar, Anselm Kiefer og arkítekt við dómkirkjuna í Rouen 26.06.2023 55:00
Hekla Magnúsdóttir byrjaði níu ára gömul að læra á selló en þegar hún kynntist þeramíni á unglinsaldri þá var ekki aftur snúið. Síðan þá hefur þetta forláta hljóðfæri verið henni stöðugur innblástur og uppspretta sköpunar. Hekla fékk viðurkenningu úr Minningarsjóði Kristjáns Eldjárns gítarleikara þann 16. júní síðastliðinn, en sjóðurinn heiðrar árlega tónlistarfólk með fjárframlagi. Síðasta plata...

Cesar Alonzo Barrera, Langavitleysa/Chronic pain, Læknir verður til 22.06.2023 55:00
Cesar Alonzo Barrera er lýrískur stórtenór frá Venesúela, óperusöngvari, hljómsveitarstjóri og að auki píanóstillir. Cesar hefur búið á Íslandi í hálft ár og bíður niðurstöðu Útlendingastofnunar um alþjóðlega vernd. Cesar kemur fram á tónleikaröð Sönghátíðar Hafnarborgar og Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir ræddi við hann og Guðrúnu Jóhönnu Ólafsdóttur, söngkonu og vinnufélaga Cesars. Við fáum bókarýni...
Listasafn Einars Jónssonar 100 ára, Manneskjur vonandi, Kevin Ayers 21.06.2023 55:00
Árið 1909 bauð Einar Jónsson myndhöggvari íslensku þjóðinni öll verk sín að gjöf með því skilyrði að landssjóður kostaði flutning þeirra til landsins og annaðist varðveislu þeirra. Hafist var handa við að byggja Hnitbjörg og Listasafn Einars Jónssonar var svo vígt árið 1923, og varð um leið fyrsta íslenska safnið í eigin byggingu. Safnið var einnig vinnustaður Einar og eiginkonu hans, Önnu Marie M...
60 gjörningar, að hugsa í oeuvre, arkítekt á ferðalagi, tréútskurður 20.06.2023 55:00
Við förum í heimsókn í vinnustofu í Stykkishólmi í þætti dagsins, og hittum þar Ingibjörgu H. Ágústsdóttur. Ingibjörg sker listilega út í linditré, verk innblásinn af íslenskum þjóðsagnaarfi og fugla sem standa út frá veggjum. Ingibjörg er alin upp í stórhýsinu Tang og Ris í miðbæ Stykkishólms og þar er hún með glæsilega vinnustofu sem er fyrst og fremst slík, en hægt er að heimsækja eftir samkomu...
Podcasts similaires
Replaio n'est pas éditeur de podcasts ; les noms des émissions, les visuels et l'audio appartiennent à leurs auteurs et sont diffusés via des flux RSS publics