fr

RÚV

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

N'hésitez pas à visiter le site du podcast et à soutenir son créateur : www.ruv.is

Auteur

RÚV

Catégorie

Arts

Site du podcast

www.ruv.is

Dernier épisode

22 oct. 2026

Où écouter ?

Les podcasts dans l'appli Replaio Radio Bientôt disponible

Les podcasts arrivent très bientôt dans l'appli. Installe-la dès maintenant et découvre en avant-première une toute nouvelle façon de vivre les podcasts

Télécharger sur Google Play Installe-la gratuitement Android près de 10 M de téléchargements · note de 4,8 iOS bientôt

Épisodes

Kvennafrídagur, Land næturinnar, Þriðja vistfræðin 24.10.2023

Soffía Auður Birgisdóttir, bókmenntafræðingur, rýnir í nýjustu skáldsögu rithöfundarins Vilborgar Davíðsdóttur sem nefnist Land næturinnar og er framhald af bókinni Undir Yggdrasil sem kom út árið 2020 og fylgdi lífshlaupi Þorgerðar Þorsteinsdóttur, barnabarni Auðar Djúpúðgu. Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt, segir frá ráðstefnunni The Third Ecology eða Þriðja vistfræðin sem haldin var í Hörpu...

Pissuskál Duchamp eða Elsu, Seiðstorumur, Sequences 23.10.2023

Verkið Fountain eftir Marcel Duchamp, betur þekkt sem pissuskálin, markar kaflaskil í vestrænni listasögu, og er jafnan talið vera eitt af fyrstu verkunum sem síðar voru kennd við konseptúalisma, eða hugmyndalist. Nú hefur komið í ljós að þetta höfuðverk hans er mjög líklega alls ekki eftir hann, heldur eftir vinkonu hans, þýsku dada-listakonuna Elsu von Freytag-Loringhoven. Vakið var máls á þessu...

Stroke, Sara Björnsdóttir, nostalgía, Ég get ekki hætt að hugsa um... 19.10.2023

Ég get ekki hætt að hugsa um Rithöfundasamband Íslands er ný ljóðabók og skrifblokk eftir Daníel Daníelsson, verðandi rithöfund. Bókin er póstmódernísk í eðli sínu og ögrar viðteknum hugmyndum okkar um ljóðabókina. Daníel kíkir í heimsókn og útskýrir þennan gjörning. Listin er göldrótt, segir Sara Björnsdóttir sem sýnir um þessar myndir ný verk í Grafíksalnum við Tryggvagötu. Hvísl undirdjúpsins,...

Svipmynd af teiknara: Rán Flygenring 18.10.2023

Rán Flygenring er teiknari, en einnig rithöfundur, listamaður, hönnuður og aktívisti. Hún fæddist í Noregi en ólst að mestu leyti upp í Hlíðunum, umkringd pennum og pappír með þá ósk í brjósti að verða sendill þegar hún yrði stór. Rán er margverðlaunaður höfundur sem hefur gefið út fjölda bóka, ein eða í félagi við aðra. Í gær kom út hennar þriðja samstarfsverkefni með Hjörleifi Hjartarsyni, bókin...

Með verkum handanna, óperudagar og Á milli glugga og hurðar 17.10.2023

Með verkum handanna nefnist bók eftir textílsérfræðinginn Elsu E. Guðjónsson sem Þjóðminjasafnið var að gefa út. Við ræðum við Lilju Árnadóttur ritstjóra bókarinnar en hún lauk við verkið með aðstoð frá Merði Árnasyni eftir að Elsa féll frá 2010. Óperudagar hefjast nú á fimmtudag og er þetta í sjötta sinn sem óperudagar eru haldnir. Guja Sandholt, óperusöngkona og aðalskipuleggjandi daganna mætir...

Verðlaunafíaskó í Frankfurt, Sequences og Barbara Strozzi 16.10.2023

Kastljós fjölmiðla beinist um þessar mundir að bókamessunni í Frankfurt. Fjölmargir rithöfundar og útgefendur víðsvegar að saka aðstandendur messunnar um að þagga niður í palestínskum röddum, en athöfn sem verðlauna átti palestínska höfundinum Adaniu Shibli var tekin af dagskránni vegna atburða síðustu daga í Ísrael og Palestínu. Yfir 600 höfundar og útgefendur hafa nú sett nafn sitt undir bréf se...

Stelkur, Ómur aldanna, Kletturinn 12.10.2023

Í þætti dagsins lítum við í Ásmundarsal og ræðum við hljóðfærasmiðinn Hans Jóhannsson og Elínu Hansdóttur um sýninguna Ómur aldanna. Einnig hringjum við til Helsinki og fáum fregnir frá Kára Tulinius af nýja smásagnavefritinu Stelkur.is. Síðan mun Gréta Sigríður Einarsdóttir, bókmenntarýnir, leggja mat sitt á nýustu skáldsögu Sverris Norlands sem nefnist Kletturinn.

Svipmynd af leikara; Sigurður Þór Óskarsson 11.10.2023

Sigurður Þór Óskarsson, leikari, útskrifaðist úr leiklistardeild Listaháskóla Íslands árið 2012 og hefur síðan starfað hjá Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu ásamt því að koma fram í kvikmyndum og sjónvarpi. Meðal verka sem hann hefur komið fram í eru leikritin Billy Elliot, Djöflaeyjan, Kæra Jelena, Emil í Kattholti og Deleríum Búbónis en á skjánum hefur hann komið fram í Rökkri, Ófærð og Allra s...

Arkitektúr á tímum loftslagsbreytinga, Tríó Sól, nostalgía 10.10.2023

Á morgun hefst ráðstefna evópskra arkitektúrsagnfræðinga, sem haldin er á vegum Listaháskóla Íslands og MoMa í New York. Þar munu einir helstu fræðingar samtímans velta fyrir sér sambandi hins manngerða og náttúrulega umhverfis, sem er ansi spennuþrungið í dag, á tímum loftslagsbreytinga. Óskar Örn Arnórsson, arkitektúrsagnfæðingur og einn skipuleggjandi hátíðarinnar verður gestur okkar í dag. Str...

Mistök 09.10.2023

Við hugum að mistökum í þætti dagsins. Gerum upp tæknilega misferla sem áttu sér stað í minningarþætti Víðsjár um Guðberg Bergsson. Beinum linsunni inn á við og biðjumst afsökunar. Myndlistahátíðin Sequenses fer af stað í ellefta skipti í vikunni. Þar verður boðið upp á myndlistarsýningar, gjörninga, tónleika og kvikmyndasýningar. Á meðan hátíðinni stendur munu starfsnemar hennar koma í þáttinn vi...

Víkingur og Goldberg, Deleríum Búbónis, Jon Fosse 05.10.2023

Goldberg tilbrigðin í flutningi Víkings Heiðars Ólafssonar koma út hjá Deutsche Grammaphone á morgun. Víkingur er þegar byrjaður að kynna plötuna með tónleikum, tónleikar hans í Royal Festival Hall í London í síðustu viku fengu 5 stjörnur í Guardian og í gær birtist fyrsti dómurinn um plötuna í The Times, þar sem Víkingur fær einnig 5 stjörnur. Við kíkjum í heimsókn til Víkings í þætti dagsins. Ei...

Svipmynd af tónskáldi / Anna Þorvaldsdóttir 04.10.2023

Anna Þorvaldsdóttir er meðal kunnustu tónskálda Íslands og ekkert minna en súperstjarna í heimi klassískrar tónlistar. Verk hennar eru flutt í bestu tónleikahúsum heims og margar af helstu hljómsveitum heims hafa pantað hjá henni verk. Tónverkum hennar hefur verið lýst sem einstökum innan samtímatónlistar og sköpunarkrafti hennar mætti auðveldlega líkja við einhverskonar náttúruafl. Anna býr í Sur...

Ást Fedru, Sjónskekkjur, Pabbastrákar 03.10.2023

Ást Fedru eftir breska leikskáldið Söruh Kane er byggt á grísku goðsögninni um drottninguna Fedru sem verður ástfangin af stjúpsyni sínum Hippolítosi með skelfilegum afleiðingum. Leikstjóri verksins, Kolfinna Nikulásdóttir, verður gestur okkar í dag. Í Gallerí Gróttu á Eiðistorgi býður myndlistarkonan Ragnheiður Gestsdóttir gestum inn í veröld þar sem langanir og þrár manneskjunnar eru færðar í pa...

Stropha, Tatiana Bilbao og Þorleifur Gaukur 02.10.2023

Ingibjörg Elsa Turchi mætir til okkar og segir frá plötunni Stropha. Hljóðheimur plötunnar sver sig í ætt við fyrri plötu Ingibjargar, Meliae, og er skapaður af sömu hljóðfæraleikurum auk nýrra blásara. Hildigunnur Sverrisdóttir fjallar um verðlauna-arkitektinn Tatiönu Bilbao en verk hennar leggja áherslu á félagslegar þarfir manneskjunar og hafa það að markmiði að skapa arkitektúr sem er virðisau...

Guðbergur Bergsson 28.09.2023

Þáttur dagsins verður helgaður minningu Guðbergs Bergssonar, en hann verður jarðsunginn í sérstakri athöfn í Hörpu nú á föstudag. Guðbergur var margverðlaunaður höfundur sem sendi frá sér fjölda bóka, skáldsögur, ljóðabækur, barnabækur, smásagnasöfn og fleira. Einnig var hann afkastamikill þýðandi úr spænsku og ritaði greinar, gagnrýni og pistla í dagblöð, útvarp og tímarit. Skáldsaga hans Tómas J...

Svipmynd af fatahönnuði, Ekki málið 27.09.2023

Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður verður gestur okkar í svipmynd dagsins. Steinunn er fædd í Reykjavík árið 1960 en bjó um árabil í Frakklandi, Ítaliu og Bandaríkjunum. Hún stundaði nám í fatahönnun í París og við Parson School of Design í New York. Eftir útskrift starfaði hún hjá erlendum tískuhúsum á borð við Calvin Klein, Ralph Lauren, La Perla og Gucci, en ákvað árið 2000 að flytja heim til...

Pabbastrákar, Kammermúsík Og The Simple Act of Letting Go 26.09.2023

Þegar Kammermúsíkklúbburinn var stofnaður árið 1957 var kammertónlist sjaldan flutt í Reykjavík. Markmiðið með stofnun klúbbsins var að hefja markvissan flutning á lifandi kammertónlist. Nokkrum árum og mörghundrum tónleikum síðar er klúbburinn jafn lifandi sem fyrr og hefur þetta starfsár með pompi og prakt með tvennum tónleikum í Hörpu um helgina. Við ræðum við Halldór Hauksson, píanóleikara og...

Með Guð í vasanum, Húsvörðurinn og Liczba doskonala 25.09.2023

Kvikmyndin Liczba doskonala eða Hin fullkomna tala úr smiðju pólska kvikmyndagerðarmannsins Krzysztof Zanussi verður sýnd nú á miðvikudag á Pólskum kvikmyndadögum sem haldnir eru þessa dagana í áttunda sinn í Bíó Paradís. Myndin lætur sig varða stóru spurningarnar um formgerð heimsins, kærleikan, guð og dauðann. Við heyrum í leikstjóra myndarinnar í þætti dagsins. Árni Már Viðarsson opnaði fyrir h...

Écoute le podcast Víðsjá sur Replaio

La radio et les podcasts dans une seule appli - gratuite, sans inscription. Installe-la dès aujourd'hui et ne rate pas le lancement

Télécharger sur Google Play

Replaio n'est pas éditeur de podcasts ; les noms des émissions, les visuels et l'audio appartiennent à leurs auteurs et sont diffusés via des flux RSS publics