Háskólinn í Reykjavík / Reykjavik University

Íþróttarabb HR

Íþróttarabb HR er þáttasyrpa innan HR hlaðvarpsins. Það er íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík sem heldur syrpunni úti. Í þáttunum er spjallað um hreyfingu, íþróttir, keppni, kennslu og þjálfun við gesti og gangandi í faginu. Viðmælendur koma víða að; sérfræðingar og fræðifólk, kennarar og gestafyrirlesarar, núverandi og fyrrverandi nemendur. Íþróttaiðkendur, afreksfólk og þjálfarar munu sömuleiðis koma við sögu. The RU Sports Chat (Íþróttarabb HR) is an independent series within the RU podcast. The sports science department of the University of Reykjavík hosts the RU Sports Chat, which is...

Auteur

Háskólinn í Reykjavík / Reykjavik University

Catégorie

Sports

Site du podcast

www.ru.is

Dernier épisode

18 juin 2026

Où écouter ?

Les podcasts dans l'appli Replaio Radio Bientôt disponible

Les podcasts arrivent très bientôt dans l'appli. Installe-la dès maintenant et découvre en avant-première une toute nouvelle façon de vivre les podcasts

Télécharger sur Google Play Installe-la gratuitement Android 5 M+ de téléchargements · note de 4,8 iOS bientôt

Épisodes

Íþróttarabb HR // 12. þáttur: Katrín Ýr Friðgeirsdóttir 03.04.2024

Katrín Ýr Friðgeirsdóttir  er doktorsnemi í íþróttavísindum og svefn, þar sem hún er að skoða áhrif hreyfingar á kæfisvefn. hún hef starfað sem styrktarþjálfari í meistaraflokk og undir 15 ára liði Íslands í knattspyrnu. Hefur mikinn áhuga á þjálfun kvenna með tilliti til tíðarhringsins, áhrif tíðarhringsins á frammistöðu, svefn, endurheimt, meiðslahættu og líðan kvenna í íþróttum.  UM ÍÞRÓTTAFRÆÐ...

Íþróttarabb HR // 11. þáttur: Dr. Hafrún Kristjánsdóttir 19.03.2024

Dr. Hafrún Kristjánsdóttir, Prófessor, er forseti íþróttafræðideildar. Rannsóknir hennar hafa meðal annars fjallað um geðheilsu íþróttafólks, sálfræðilega færni og andlegan styrk í íþróttum ásamt afleiðingum höfuðhögga. Hafrún hefur unnið mikið með öflugasta íþróttafólki landsins en hún var sálfræðingur íslenska keppnisliðsins á Ólympíuleikunum í London 2012, í Ríó 2016 og í Tokyo 2021.  Við settu...

Íþróttarabb HR // 10. þáttur: Ian Jeffreys 06.03.2024

Ian Jeffreys er nýr prófessor við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík. Ian er þekktur á heimsvísu í sínu fagi en hann hefur hlotið viðurkenningar fyrir störf sín sem þjálfari, kennari og höfundur. Ian er fyrrum atvinnumaður í rúgbí og alþjóðlegur þjálfari en hann er meðal fremstu vísindamann á heimsvísu er kemur að  hraða og snerpu þjálfun í hópíþróttum en svokallað Gamespeed kerfi og RAMP upp...

Íþróttarabb HR // 9. þáttur: Aron Gauti Laxdal 19.12.2023

Gestur Íþróttarabbsins að þessu sinni er Aron Gauti Laxdal, dósent í íþróttafræði við Háskólann í Agder í Noregi. Aron Gauti er með doktorsgráðu í skólaíþróttum frá Háskólanum í Stavanger og höfundur greinarinnar Til umhugsunar um framtíð skólaíþrótta. Aron Gauti hefur sinnt viðamiklum rannsóknum á skólaíþróttum í Noregi og var við kennslu við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík nú í desember....

Íþróttarabb HR // 8. þáttur: Chris Harwood og 5C aðferðafræðin 11.10.2023

Chris Harwood er gestur íþróttarabbs HR að þessu sinni. Hann er í fremstu röð meðal fræðimanna í íþróttasálfræði og starfar sem forstöðumaður rannsóknarmiðstöðvar íþrótta, heilsu og frammistöðuvísinda við Nottingham Trent háskólann í Bretlandi þar sem hann er jafnframt prófessor. Chris þróaði 5C aðferðafræðina sem er líklega útbreiddasta aðferðin til að kenna börnum, unglingum og foreldrum sálfræð...

Íþróttarabb HR // 7. þáttur: Daniel Gould og Robert Weinberg 26.09.2023

Gestir íþróttarabbsins að þessu sinni eru prófessoranir Daniel Gould og Robert Weinberg.  Weinberg og Gould eru vel þekktir fyrir störf sín á sviði íþróttasálfræði og líklega er á engan hallað þegar haldið er fram að þeir félagar séu með virtustu íþróttasálfræðingum allra tíma. Báðir hafa þeir verið tilnefndir á topp 10 lista yfir áhrifamestu íþróttasálfræðinga Bandaríkjana.  Þeir hafa þeir birt ó...

Íþróttarabb HR // 3. þáttur: Sveinn Þorgeirsson 21.09.2023

Í þessum þætti fræðumst við um hugmyndir sem Sveinn Þorgeirsson , kennari við íþróttafræðideild HR, er að kynna sér og gætu haft mikil áhrif á hvernig við nálgumst þjálfun hreyfingar í framtíðinni. Þetta eru hugmyndir hreyfivistkerfa og í þættinum eru þær bornar saman við þær hefðbundnu kenningar sem við höfum flest alist upp við og hafa mótað nálgun okkar við þjálfun og kennslu hreyfinga til þess...

Íþróttarabb HR // 4. þáttur: Ingi Þór Einarsson og Gunnar Páll Jóakimsson 21.09.2023

Ingi Þór Einarsson, lektor við íþróttafræðideild HR, og Gunnar Páll Jóakimsson, stundakennari við íþróttafræðideild HR, settust niður í Íþróttarabbi HR og ræddu þolþjálfun á breiðum grundvelli. Auk þess að vera fræðimenn með áratugareynslu í sínum fögum hafa báðir þjálfað sömuleiðis um áratugaskeið, Ingi Þór einkum í tengslum við sund og Gunnar Páll hefur sérhæft sig í hlaupum. Íþróttarabbið er ný...

Íþróttarabb HR // Hreyfivistkerfi: Sveinn Þorgeirsson, Snorri Örn Arnaldsson og Hafþór Aron Ragnarsson 21.09.2023

Sveinn Þorgeirsson , kennari við íþróttafræðideild HR, fær til sín tvo góða gesti í Íþróttarabbið til að spjalla um nýja nálgun við þjálfun hreyfinga sem byggir á hugmyndum um hreyfivistkerfi, sem áður hafa verið teknar fyrir í Íþróttarabbinu (þætti 3). Þessar kenningar eru meðal kennsluefnis sem tekið er fyrir í námskeiðinu Hreyfiþróun og -nám í grunnnámi íþróttafræðinnar. Til upprifjunar, þá eru...

Íþróttarabb HR // 5. þáttur: Þórir Hergeirsson 21.09.2023

Í þessum þætti af Íþróttarabbinu er rætt við Þóri Hergeirsson, þjálfara norska kvennalandsliðsins í handbolta. Gestaspyrill í þessum þætti er íþróttafréttakonan Edda Sif Pálsdóttir. Þórir hefur þjálfað norska kvennalandsliðið sem aðalþjálfari frá árinu 2009. Árangur hans með liðið hefur verið afar eftirtektarverður; níu sigrar á stórmótum og samtals fjórtán skipti á palli á þessum fjórtán árum. Í...

Íþróttarabb HR // 6. þáttur: Anton Sveinn Mckee 21.09.2023

Gestur Íþróttarabbsins að þessu sinni er sundmaðurinn Anton Sveinn McKee. Hann náði í sumar Ólympíulágmarkinu í 200 metra bringusundi fyrir Ólympíuleikana í París á næsta ári. Anton bætist þá í fámennan hóp íslenskra íþróttamanna sem keppt hafa á fjórum Ólympíuleikum. Í þættinum er farið vítt og breitt yfir feril Antons hingað til en það er Sunna Kristín Hilmarsdóttir, verkefnastjóri hjá samskipta...

Íþróttarabb HR // 2. þáttur: Peter O´Donoghue 21.09.2023

Gesturinn í þessum þætti af Íþróttarabbi HR er Peter O´Donoghue prófessor við Íþróttafræðideild HR. Peter er þekktur á alþjóðavettvangi fyrir vinnu sína, rannsóknir og kennslu á sviði frammistöðugreininga í íþróttum ( sport performance analysis ). Margir fyrrum nemenda hans hafa náð langt í íþróttaheiminum og meðal annars starfað fyrir Liverpool FC. Í þættinum er farið yfir feril Peters, sem í gru...

Íþróttarabb HR // 1. þáttur: Clive Brewer 21.09.2023

Í fyrsta þætti af Íþróttarabbi HR á Spotify er rætt við Clive Brewer sem er einn þeirra erlendu sérfræðinga sem kemur reglulega hingað til lands að kenna nemendum meistaranáms íþróttafræðinnar í HR. Sérsvið Clive er styrk- og þrekþjálfun og afreksþjálfun. Hann hefur víðtæka reynslu af líkamlegri þjálfun íþróttafólks allt frá börnum til Ólympíufara. Clive hefur skrifað hagnýtar kennslubækur fyrir þ...

Écoute le podcast Íþróttarabb HR sur Replaio

La radio et les podcasts dans une seule appli - gratuite, sans inscription. Installe-la dès aujourd'hui et ne rate pas le lancement

Télécharger sur Google Play

Replaio n'est pas éditeur de podcasts ; les noms des émissions, les visuels et l'audio appartiennent à leurs auteurs et sont diffusés via des flux RSS publics