Handkastið
Handkastið
Podcast by Handkastið
N'hésitez pas à visiter le site du podcast et à soutenir son créateur : soundcloud.com
Où écouter ?
Les podcasts dans l'appli Replaio Radio Bientôt disponibleLes podcasts arrivent très bientôt dans l'appli. Installe-la dès maintenant et découvre en avant-première une toute nouvelle façon de vivre les podcasts
Épisodes
Handkastið - Pétur Jóhann með sýningu og lítið um óvænt úrslit 25.09.2019 1:08:51
Í þættinum fórum við yfir 3. umferðina í Olís-deild karla, úrslitin í Olís-deild kvenna og Benedikt Grétarsson gestur þáttarins uppljóstraði Bounty-seðlinum auk þess sem Snickers-seðillinn var á sínum stað alla leið frá Þýskalandi. Allt saman í boði BK-Kjúklings
Handkastið - Seðillinn með permanent og hard work Heimir Árna 16.09.2019 1:06:07
Í þættinum fórum við yfir 2. umferðina í Olís-deild karla og úrslitin í 1. umferð Olís-deildar kvenna. Einnig gáfum við Rúnars Kára treyju, fórum yfir stuðlana fyrir næstu umferðir á Coolbet og völdum Coolbet-leikmann umferðarinnar. Allt saman í boði BK-Kjúklings.
Handkastið - Haukur Svindkall og Donna í landsliðið? 11.09.2019 52:04
-Farið yfir síðustu tvo leiki fyrstu umferðar Olís-deildar karla: FH-Selfoss og Haukar-HK. -Nýjasti verðandi atvinnumaður deildarinnar, Kristján Örn Kristjánsson (Donni) var í símaviðtali frá Eyjum. -Spáð í spilin fyrir 2. umferð Olís-deildar karla og 1. umferð í Olís-deild kvenna Allt saman í boði BK-kjúklings!
Handkastið - Olís-deildin farin af stað! 09.09.2019 51:47
Farið yfir fyrstu fjóra leikina í Olís-deild karla, spáð í spilin fyrir lokaleiki 1. umferðarinnar og að lokum tók Ponzen karaoke lag vikunnar!
Handkastið - Upphitunarþáttur sæti 6 - 1 03.09.2019 1:02:56
Seinni upphitunarþáttur Handkastsins fyrir Olís-deild karla.
Handkastið - Upphitunarþáttur sæti 12 - 7 01.09.2019 1:03:28
Fyrri upphitunarþáttur Handkastsins fyrir Olís-deild karla.
Handkastið - Styttist í veisluna! 21.08.2019 57:58
Handkastið fór yfir stöðuna á liðunum í Olís-deild karla en undirbúningstímabilið er í fullum gangi.
Handkastið - Ótímabær spá fyrir Olís-deild karla! 14.07.2019 1:10:32
Það eru innan við tveir mánuðir í 1. umferðina í Olís-deild karla og því löngu kominn tími til að koma með ótímabæra spá fyrir deildina! Fórum yfir leikmannagluggann og stöðuna á leikmannahópunum hjá liðunum.
Handkastið - Upphitun fyrir Final4 og Aron Pálmars í viðtali 30.05.2019 44:22
Í þættinum var hitað upp fyrir Final4 sem fram fer í Köln um helgina. Gestir þáttarins voru bræðurnir Lárus Helgi og Þorgrímur Smári Ólafssynir. Við fórum yfir liðin sem eru komin í Final4 auk þess sem við heyrðum í Aroni Pálmarssyni leikmanni Barcelona sem er að kominn í Final4 í áttunda skipti. Auk þess fórum við yfir stuðlana á Coolbet. Þátturinn er í boði BK Kjúklings.
Handkastið - TIL HAMINGJU SELFYSSINGAR! 22.05.2019 41:22
Selfyssingar eru Íslandsmeistarar í handknattleik í fyrsta skipti eftir tíu marka sigur á Haukum á heimavelli í kvöld! Við fórum yfir þennan svakalega leik, afhroð Hauka og allt Selfossliðið í þætti kvöldsins með Ragnari Njálssyni. Við óskum Selfyssingum til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn! Þátturinn er í boði BK Kjúklings!
Handkastið - Senur í Schenkernum - Fer bikar á loft á miðvikudaginn? 19.05.2019 35:42
Selfyssingar eru komnir með pálmann í hendurnar eftir sigur á Haukum í framlengdum spennutrylli í DB Schenkerhöllinni í kvöld. Lærisveinar Patta Jó. þurfa nú aðeins einn sigur í viðbót til að tryggja sér þann stærsta. Þátturinn er í boði BK Kjúklings.
Handkastið - Allt í járnum í úrslitaeinvíginu og djúsí-maraþon slúðurpakki 17.05.2019 1:03:11
Gestur þáttarins að þessu var Árni Stefán Guðjónsson. Haukarnir fóru á Selfoss og jöfnuðu þar metin í úrslitaeinvíginu með flautumarki. Við fórum vel yfir leikinn í kvöld auk þess að spá í spilin fyrir leikinn á sunnudaginn. Í lokþáttar buðum við síðan uppá svakalegan slúðurpakka. Einn sá stærsta hingað til í vetur! Þátturinn er í boði BK Kjúklings!
Handkastið - Fara Selfyssingar taplausir í gegnum úrslitakeppnina? 14.05.2019 41:09
Úrslitaeinvígið hófst í kvöld þegar Selfoss vann fimm marka sigur á Haukum á Ásvöllum. Einar Örn Jónsson mætti í Handkastið og fór yfir leikinn með Sérfræðingnum og Ponzunni. Einnig spáðum við í spilin fyrir leik tvö sem fram fer á föstudaginn á Selfossi. Þátturinn er í boði BK Kjúklings.
Handkastið - Tvö bestu liðin mætast í úrslitum, Áttan mætir í Olís og slúðurmolar 11.05.2019 1:04:50
Haukar eru komnir í úrslit um Íslandsmeistaratitilinn og mæta þar Selfyssingum. Í þættinum fórum við yfir oddaleik Hauka og ÍBV sem fram fór í dag. Auk þess spáðum við í spilin fyrir úrslitaeinvígið, ræddum um oddaleikinn í Grillinu þar sem HK vann Víking nokkuð sannfærandi. Í lok þáttar fengu nokkrir slúðurmolar að líta dagsins ljós. Þátturinn er í boði BK Kjúklings.
Handkastið - Afhverju hætti Elías Már? Sópur á Selfossi og töfralæknir í Hafnarfirði 06.05.2019 1:03:00
Gestur þáttarins að þessu sinni er góðvinur þáttarins, Benedikt Grétarsson íþróttafréttamaður og mikill handboltaáhugamaður. Selfyssingar eru komnir í úrslit og mæta þar annað hvort Haukum eða ÍBV sem mætast í fjórða leik á miðvikudaginn. Við fórum yfir leik kvöldsins þar Selfoss sló Val úr leik. Einnig fórum við yfir leik Hauka og ÍBV sem fór fram í gærkvöldi og öll lætin sem hafa einkennt það ei...
Handkastið - Selfyssingar í lykilstöðu og yfirvinna hjá aganefndinni 03.05.2019 59:41
Í þættinum fórum við yfir undanúrslitaeinvígin í karla boltanum. Það er allt á suðupunkti í báðum einvígum og mikil læti þar sem rauð spjöld hafa verið áberandi. Við fórum vel yfir rauðu spjöldin í Eyjum og ollarann frá Árna Steini. Gestur þáttarins var Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður hjá RÚV. Við ræddum síðan komu Egils Magg í FH, umspilið í Grillinu og 8-liða úrslitin í Meistara...
Handkastið - Haukur og Haukar á eldi og Þrefaldur GústiJó 01.05.2019 1:07:57
Ásbjörn Friðriksson spilandi þjálfari FH er gestur Handkastsins í þessum þætti. Í þættinum fórum við yfir úrslitaeinvígið hjá stelpunum þar sem Valsstelpurnar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn á sunnudaginn eftir 3-0 sigur á Fram. Einnig fórum við yfir undanúrslitaleikina karlamegin sem fóru fram í gærkvöldi. Í lokin tókum við stutt spjall við Ásbjörn um tímabilið hjá FH. Þátturinn er í boði BK...
Handkastið - Ránfuglinn sýnir klærnar, slúðurmolar og RúnarsKáraHornið 25.04.2019 1:00:38
Í þættinum fórum við yfir úrslitaeinvígið í kvennaboltanum, oddaleik Hauka og Stjörnunnar auk þess sem við töluðum um undanúrslitaeinvígin karla megin sem hefst á þriðjudaginn í næstu viku. Við fórum síðan yfir nokkra slúðurmola og í lokin buðum við upp á RúnarsKáraHornið. Þátturinn er að vanda í boði BK Kjúklings.
Handkastið - Páskakraftaverk og Bikarmeistararnir farnir í sumarfrí 22.04.2019 1:25:12
Í þættinum fórum við yfir fyrstu tvær umferðirnar í 8-liða úrslitunum í Olís-deild karla. Hituðum upp fyrir úrslitaeinvígið kvennamegin og ræddum umspilið í Grillinu bæði hjá strákunum og stelpunum. Í lok þáttar völdum við síðan Coolbet leikmann vikunnar. Þátturinn er að vanda í boði BK Kjúklings.
Handkastið - Landsliðsumræða, sameiginlegt úrvalslið karla og kvenna og hitað upp fyrir playoffs 18.04.2019 1:26:43
Fyrrum stjórnendur Fríkastsins, þeir Ingvar Örn Ákason og Baldvin Fróði Hauksson, voru mættir í New Balance stúdíóið ásamt Ponzunni. Rætt var um landsliðið og leikina gegn Norður-Makdóníu. Hitað upp fyrir úrslitakeppnina karla- og kvennamegin og rýnt í umspilið um sæti í Olísdeildunum. Í lok þáttar völdum við sameiginlegt úrvalslið Olísdeildar karla og kvenna. Þátturinn er í boði BK-kjúklings
Handkastið - Dr. Gaupi fer yfir Olís-deild karla 08.04.2019 1:16:45
Það þarf ekkert að lýsa þessu eitthvað mikið meira. Einfaldlega njótið. Þátturinn sem hlustendur Handkastsins hafa beðið eftir í allan vetur! Þátturinn er í boði BK Kjúklings og í samstarfi við Áttan Miðlar.
Handkastið - Saturday night edition! 06.04.2019 1:14:59
Handkastið sefur aldrei! Í þessum laugardagsþætti fóru Ponzan, Sérfræðingurinn og Keli the Cat yfir lokaumferðina í Olísdeild karla og fyrstu leikina í úrslitakeppninni kvennamegin. Einnig var spáð í spilin fyrir umspilið í Grillinu karla- og kvennamegin.
Handkastið - Ekki lengur lítill fugl og Fram áfram í bullandi fallbaráttu 03.04.2019 1:24:44
Næst síðasta umferðin í Olís-deild karla fór fram í kvöld og var umferðin gerð upp í þessum þætti Handkastsins. Gestur þáttarins er Styrmir Sigurðsson, fyrrum markvörður Stjörnunnar á gullaldar tímabili félagsins. Nokkrum slúðurmolum var hent út í kosmósinn og staðan bæði í fallbaráttunni og undanúrslitin hjá stelpunum skoðuð. Handkastið er í boði BK Kjúklings.
Handkastið - Titlaóður Gústi Jó, strákarnir hans Geirs á lífi og Gróttan fallin 31.03.2019 1:23:43
Ponzan og Sérfræðingurinn fóru yfir þriðju síðustu umferðina í Olís-deild karla, þar sem línur eru farnar að skýrast en þó talsverð spenna á flestum stöðum töflunnar. Farið var yfir stöðuna í Olís-deild kvenna, þar sem Ágúst Þór Jóhannsson bætti við enn einni dollunni í safnið. Farið yfir Coolbet-stuðlana fyrir næstu umferð Olís-deildar karla & kvenna og spáð í framhaldið.
Handkastið - Staða handboltans á Íslandi og nýjasti landsliðshópurinn 28.03.2019 1:12:01
Þeir Arnar S. Gunnarsson og Ásgeir Gunnarsson eru gestir Handkastsins í þessum þætti. Aðalumræðan í þættinum er staða handboltans á Íslandi. Í þættinum ræddum við einnig val GummaGumm. á íslenska landsliðshópnum fyrir leikina gegn Norður-Makedóníu. Í lok þáttar fórum við yfir stuðlana fyrir næstu umferð í Olís-deild karla og kvenna.
Podcasts similaires
Replaio n'est pas éditeur de podcasts ; les noms des émissions, les visuels et l'audio appartiennent à leurs auteurs et sont diffusés via des flux RSS publics