fr

Handkastið

Handkastið

Podcast by Handkastið

N'hésitez pas à visiter le site du podcast et à soutenir son créateur : soundcloud.com

Auteur

Handkastið

Catégorie

Sports

Site du podcast

soundcloud.com

Dernier épisode

15 oct. 2026

Où écouter ?

Les podcasts dans l'appli Replaio Radio Bientôt disponible

Les podcasts arrivent très bientôt dans l'appli. Installe-la dès maintenant et découvre en avant-première une toute nouvelle façon de vivre les podcasts

Télécharger sur Google Play Installe-la gratuitement Android près de 10 M de téléchargements · note de 4,8 iOS bientôt

Épisodes

Bikarþynnka er vandamál og hvar var Kári Garðars? 12.03.2020

20. umferðin í Olís-deild karla var rædd og steinum velt varðandi málefni líðandi stundar og áhrif Covid-19 á Íslandsmótið. HK er fallið og veltum við því fyrir okkur hvað verður um leikmannahóp liðsins. Þátturinn er í boði BK - Kjúklings.

Final4 uppgjör og upphitun fyrir Olís 08.03.2020

Final4 helgin er að baki og fórum við yfir bikarúrslitin bæði í karla og kvennaflokki. Jóhann Gunnar Einarsson er gestur þáttarins. Eins fórum við yfir stuðlabergið á Coolbet fyrir næstu umferð í Olís-deild karla en einungis þrjár umferðir eru eftir af deildinni og spennan fyrir úrslitakeppninni eykst með hverjum deginum. Við óskum bæði ÍBV og Fram til hamingju með bikarmeistaratitilinn. Þátturinn...

Finnur Ingi í legkökunudd, Raggi Jó á Selfoss og Prinsinn á línunni 24.02.2020

19. umferðin í Olís-deild karla var gerð upp í þætti kvöldsins, slúðurmolarnir voru fjölmargir og Fjölnismenn voru kvaddir úr deildinni. Eyjamaðurinn, Benóný Friðriksson var í símaviðtali frá Eyjum þar sem hann fór yfir mál líðandi stundar. Við ræddum í lokin Final4 og Olís-deild kvenna. Þátturinn er í boði BK-Kjúklings.

Haukar orðnir bensínlausir og Nökkva Fjalars effect heldur áfram 17.02.2020

Farið var yfir 18.umferðina í Olís-deild karla með Ingvari Erni Ákasyni, Byssunni sjálfri. Rætt var um árangur Vals í Evrópu og stóra ferðakostnaðarmálið í tengslum við bikarleik Harðar og Þórs. Einnig ræddum við heimavöll Stjörnunnar í umferðinni, gamla góða Ásgarðinn. Þátturinn er í boði BK Kjúklings.

Halldór Jóhann í Cocks og Ýmir Örn á línunni 10.02.2020

Farið var yfir 17. umferðina í Olís-deild karla í þættinum að þessu sinni. Auk þess hringdum við í í nýjasta atvinnumann okkar Íslendinga, Ými Örn Gíslason og DJ-Hornið náði nýjum hæðum hjá Sérfræðingnum. Þátturinn er í boði BK Kjúklings.

Svarthvítur Hafnarfjörður og Patti í Stjörnuna? 02.02.2020

Í þættinum var farið 16. umferð Olísdeildar karla, þar á meðal Hafnarfjarðarslaginn, fallslaginn í Djúsmýrinni og baráttuna um Suðurland. Einnig var farið yfir stöðuna í Olísdeild kvenna, molar úr heimsboltanum og spáð í spilin fyrir 8-liða úrslit CocaCola bikarsins, sem fer fram í vikunni. Gestur þáttarins var Benedikt Grétarsson, betur þekktur sem Benni Bounty. Þátturinn er í boði BK Kjúklings

Nökkvi Fjalar mættur í Olís og viðkvæmni í Austurberginu 28.01.2020

Olís-deildin er komin á stað eftir 44 daga EM-pásu. Heil umferð fór fram í kvöld og fórum við yfir leikina í þættinum auk þess sem við hringdum í Ponzuna sem er staddur í Hollandi. DJ-Hornið var á sínum stað. Gestir þáttarins voru þeir Jóhann Skúli Jónsson lífskúnster og Baldvin Fróði Hauksson, hnattknattleiksþjálfari. Þátturinn er í boði BK Kjúklings.

EM Krufning Handkastsins 23.01.2020

Íslensku strákarnir hafa lokið leik á EM eftir kaflaskipta frammistöðu. Við fórum yfir frammistöðu liðsins og leikmanna á tveimur klukkutímum, spáðum í framtíðina og ræddum um heilbrigðiskerfið. Gestir þáttarins var Arnar Pétursson þjálfari íslenska kvennalandsliðsins og Ásgeir Jónsson aðstoðarþjálfari Aftureldingar. Þátturinn er í boði BK-Kjúklings.

EM Handkastið - Kaflaskipt spilamennska. "Syngjum, syngjum og tröllum, ÁFRAM ÍSLAND" 19.01.2020

Það er óhætt að segja að EM hingað til hafi verið kaflaskipt hjá strákunum okkar. Svekkjandi tapi gegn Slóvenum var fylgt eftir með góðum sigri á Portúgölum. Gestur þáttarins var Árni Stefán Guðjónsson, þjálfari mfl.kv. í Haukum. Í lok þáttar voru 10 heppnir þátttakendur dregnir út í Coolbet getraunaleiknum. Þátturinn er í boði BK-Kjúklings

EM Handkastið með Gunnari Birgis og Gaupi á línunni 15.01.2020

Gestur þáttarins var íþróttafréttamaðurinn og gönguskíðagarpurinn Gunnar Birgisson og þá var Guðjón Guðmundsson á línunni í upphafi þáttarins. Farið var yfir tapið gegn Ungverjum auk þess sem spilamennska leikmanna á mótinu hingað til var rædd. Sigurvegarar í Coolbet getraunarleik Handkastsins voru tilkynntir ásamt því að dregið var út sigurvegari í BK Kjúklings leik Handkastsins. Þátturinn er í b...

EM uppgjör með Steve Dagskrá - Ísland komið í milliriðla 13.01.2020

Gestir þáttarins voru stjórnendur Steve Dagskrá, þeir Andri Geir Gunnarsson og Vilhjálmur Freyr Hallsson. Fjallað var um fyrstu tvo leiki Íslands á Evrópumótinu og spáð í spilin fyrir framhaldið. Dregið var í getraunaleik Coolbet í lok þáttar. Þátturinn er í boði BK-Kjúklings

Handkastið - Upphitun fyrir EM 2020 og viðtal við Viggó Kristjánsson 08.01.2020

Í þættinum ræddu Ponzen og Snickers, ásamt Ásbirni Friðrikssyni leikmanni FH, um Evrópumeistaramótið sem hefst á morgun í Svíþjóð, Noregi og Austurríki. Slógum á þráðinn til Viggó Kristjánssonar leikmanns íslenska landsliðsins. Auk þess var farið yfir stuðlabergið hjá Coolbet. Þátturinn er í boði BK Kjúklings.

Handkastið - Valsmenn á siglingu og Gunni Magg í Mosó? 15.12.2019

Í þættinum var farið 14. umferðina í Olís-deild karla sem var síðasta umferð fyrir jól. Einnig var rætt um skrautlegan úrslitaleik á HM-kvenna. Sjóðandi heitur slúðurmoli úr Mosfellsbænum bar á góma auk þess sem úrslit í EM-leik Coolbet og Handkastsins voru tilkynnt. Þátturinn er í boði BK-Kjúklings.

Hákon Daði á eldi í 2. deildinni og EuroLalli með Jólasmell 09.12.2019

Í þættinum er farið yfir 13. umferðina í Olís-deild karla ásamt því að EM-leikur Handkastsins í samstarfi við Coolbet var kynntur. Davíð Örn Atlason er gestur þáttarins en hann skoraði 18 mörk í síðasta handboltaleik sínum á ferlinum í leik með Víkingi í 3.flokki B. Hákon Daði Styrmisson gerði gott betur um helgina og skoraði 20 mörk með ÍBV U í 2. deildinni og alls 24 mörk sama dag. Athyglisvert...

Handkastið - Þýska 103 í boði Phil Döhler og botnliðin í basli 02.12.2019

12. umferðin í Olís-deild karla gerð upp í þætti kvöldsins. Stefán Árni Pálsson, fréttamaður á Vísi og Stöð2Sport var gestur þáttarins. Phil Döhler lokaði búrinu á Selfossi, botnliðin eru í basli og Siggi Seðill hendir út pillum á twitter. Þátturinn er í boði BK-Kjúklings

Halldór Jóhann tekur við Fram og Viggó fer í Stuttgart! 25.11.2019

Stútfullur þáttur Handkastsins þar sem Einar Örn Jónsson er gestur þáttarins. Farið var yfir 11. umferðina í Olís-deild karla á handavaði, gengi liðanna í fyrri umferðinni var gert upp og Ponzen valdi besta leikmann hvers liðs. Einar Örn settist síðan í sæti GummaGumm og valdi 17 manna leikmannahóp sem hann myndi fara með á EM í janúar. Handkastið ætlar að gefa tvo miða á EM í janúar á næstu dögum...

Handkastið - Umferðin gerð upp og Úrvals- og Vonbrigðaliðið valin 18.11.2019

10. umferðin í Olís-deild karla er gerð upp í þættinum auk þess sem Úrvalslið fyrri umferðar og Vonbrigðaliðið er valið í lokþáttar. Ræddum auk þess úrslitin í síðustu umferð í Olís-deild kvenna og Vegna tæknilegrar örðugleika datt út umræðan um Snickers-seðilinn þar sem Snickers-ið fór yfir leikina í Coca-Cola bikarnum. Seðlinum verður postað inn á samfélagsmiðla Handkastsins. Þátturinn er í boði...

Handkastið - Lestrarhesturinn Siggi Seðill, FH vinnur ekki út á landi og RúnarsKáraHornið 11.11.2019

9. umferðin í Olís-deild karla var gerð upp í þætti kvöldsins. Rætt var um stöðu kvennahandboltans og í lok þáttar var RúnarsKáraHornið endurvakið vegna fjölda eftirspurna. Þetta er þáttur sem þú vilt ekki láta framhjá þér fara. Haukar ósigraðir á toppi deildarinnar. Hvað verður um Svein Aron? Stjörnumenn elska að kasta frá sigrum og Siggi Seðil var með Donna í rassvasanum. Þátturinn er í boði BK...

Handkastið - Óútreiknanlegir Fjölnismenn, HK bætir við sig og er heitt undir Rúnari? 04.11.2019

9. umferðin í Olís-deild karla var gerð upp í þættinum. Sérfræðingurinn stýrði umræðunni með þeim Ásgeiri Gunnarssyni og Þorkeli Gunnari Sigurbjörnssyni. Slúðurmoli úr Kórahverfi, ummæli Sigga Braga og miklu meira til rætt í þættinum.

Handkastið - Færeysk fuglaflensa fyrir norðan og Bossablossar á eldi! 31.10.2019

Í þættinum fóru Ponzan og Snickers yfir 7. umferð Olísdeildar karla ásamt góðvini þáttarins, Árna Stefáni Guðjónssyni, þjálfara kvennaliðs Hauka. Rætt var um íslenska landsliðið auk þess sem farið var yfir Coolbet stuðluna fyrir næstu umferðir í Olísdeildum karla og kvenna. Þátturinn er í boði BK-kjúklings.

Handkastið - Bubbi Morthens fer yfir ferilinn og #AskBubbi 25.10.2019

Hlynur Morthens er gestur Handkastsins þar sem hann fer yfir ferilinn, velur sitt draumalið leikmanna sem hann lék með á ferlinum og í lokþáttar fengu hlustendur að henda inn athyglisverðum spurningum á Bubba sjálfan. Í lokþáttar bauð Stymmi Snickers upp á Snickers-seðil helgarinnar en heil umferð í Olís-deild kvenna fer fram á morgun. Þátturinn er í boði BK Kjúklings.

Handkastið - ÍR-ingar ekki ósigrandi og dómaratuð í Eyjum 16.10.2019

Í þættinum var farið yfir síðustu fjóra leikina í 6. umferð Olís-deildar karla. Auk þess sem farið var yfir stöðuna á hverju og einu liði fyrir landsliðspásuna sem nú er framundan. Að auki var spáð í spilin fyrir næstu umferð í Olísdeild kvenna. Þátturinn er í boði BK-Kjúklings.

Handkastið - Skandall hjá Val og Stulli eltir markametið 13.10.2019

Í þættinum var farið yfir fyrstu leikina í 6. umferð Olís-deildar karla sem fram fóru í gær ásamt því að strákarnir ræddu um stórleik Olís-deildar kvenna sem fram fór einnig í gær þegar Framsóknarmaðurinn sótti tvo punkta. Þá var Bjarni Fritz þjálfari ÍR í símaviðtali en ÍR-ingar eru með fullt hús stiga í deildinni og mæta Fram annað kvöld í Safamýrinni. Þátturinn er í boði BK Kjúklings.

Handkastið - Krísa í Garðabænum og Seðillinn á toppnum! 09.10.2019

5. umferðin í Olís-deild karla var gerð upp í þættinum auk þess sem staðan í Garðabænum var rædd og glóðvolgur slúðurmoli úr 210 fylgdi með. Siggi Seðill situr á toppi deildarinnar eins og flestir bjuggust við og HK-ingar fara í do or die leik á laugardaginn. Þátturinn er í boði BK Kjúklings!

Handkastið - Taka 2 - Grænlenski tæknimaðurinn í heimsókn - Sorry Gunni Magg! 30.09.2019

Það var bras á Sérfræðingnum og Stymma í yfirferð sinni um 4. umferðina í Olís-deildinni. Grænlenski tæknimaðurinn kom og truflaði þá heldur betur og þurftu því aðra töku til að græja þáttinn. Við biðjum Gunna Magg. þjálfara Hauka afsökunar á því en við lofum að hringja í hann síðar í vetur og læsum grænlenska tæknimanninn inní kompu á meðan. Coolbet leikmaður 4. umferðarinnar var valinn og farið...

Écoute le podcast Handkastið sur Replaio

La radio et les podcasts dans une seule appli - gratuite, sans inscription. Installe-la dès aujourd'hui et ne rate pas le lancement

Télécharger sur Google Play

Replaio n'est pas éditeur de podcasts ; les noms des émissions, les visuels et l'audio appartiennent à leurs auteurs et sont diffusés via des flux RSS publics