Már Gunnarsson

Unga Fólkið

Már Gunnarsson, tónlistarmaður og sundkappi, fær til sín ungt fólk sem hefur sögu að segja eða skarar fram úr á sínu sviði í lífinu. Í lok hvers þáttar er síðan tónlistaratriði í beinni.

No dejes de visitar la web del podcast y apoyar a su creador: ungafolkid.utvarpsaga.is

Autor

Már Gunnarsson

Categoría

Society

Web del podcast

ungafolkid.utvarpsaga.is

Último episodio

11 de abr. de 2024

¿Dónde escuchar?

Podcasts en la app Replaio Radio Muy pronto

Los podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts

Descárgala en Google Play Instálala gratis Android casi 10 M de descargas · valoración de 4,8 iOS muy pronto

Episodios

Þáttur 40, Thorunn Clausen 21.06.2021

Thorunn Clausen, leikari og tónlistarkona, hefur svo sannarlega upplifað tímana tvenna. Hún er einstakur laga- og textahöfundur og hafa verk hennar komið víða við. Hún hefur einnig þurft að ganga í gegn um mikinn missi sem enginn ætti að þurfa að upplifa.

Þáttur 39, Mögnuð saga Gunnars Kr 01.05.2021

Í þættinum fáum við að heyra magnaða sögu Gunnars Kr sem lenti ungur í alvarlegu slysi og missti bæði sjón og aðra höndina. Gunnar var fæddur árið 1936 og lést árið 2013.

Þáttur 38, Arnþrúður Karlsdóttir 26.04.2021

Arnþrúður Karlsdóttir hefur ekki hikað við að fara ótroðar slóðir og rutt brautina á fjölmörgum sviðum fyrir konur. Hún var ein af fyrstu lögreglukonum landsins, var í fíkniefnalögreglunni og rannsakaði kynferðisbrotamál hjá rannsóknarlögreglu ríkisins. Mikil íþróttakona og var landsliðsmaður í  kvennalandsliðinu í handbolta í áraraðir, háskólamenntaður blaða- og fréttamaður frá Noregi, sjónvarpsf...

Þáttur 37, Fritz Már Jörgensson 28.03.2021

Í þættinum minnumst við Guðjóns Elís Bragasonar, góðvinar Unga Fólksins, sem kvaddi okkur 19. mars síðastliðinn. Séra Fritz Már Jörgensson ræðir við okkur um sorgina, hvernig sorgin getur brotist fram á marga vegu og hvernig fólk lærir að lifa með missi. Fritz hefur starfað sem prestur í 5 ár og er einnig Glæpasögurithöfundur.

Þáttur 36, Aron Brink 28.03.2021

Við fáum að kynnast Aroni Brink sem er sonur tónlistamannsins Sjonna Brink, en hann lést á heimili sínu í janúar 2011. Aron hefur þurft að læra að lifa með sorginni en eftir andlát föður síns fór hann að þreifa fyrir sér í tónlist og hefur tekið þátt í The Voice Iceland og Söngvakeppni Sjónvarpsins.

Þáttur 35, Birgir 28.03.2021

Tónlistamaðurinn Birgir, sem heitir fullu nafni Birgir Steinn Stefánsson og er sonur tónlistamannsins Stefáns Hilmarssonar, hefur slegið rækilega í gegn í popp heiminum á undanförnum árum. Hann hefur átt tvö lög í Söngvakeppni Sjónvarpsins og lagið hans Can You Feel It hefur fengið yfir 24 milljónir spilana.

Þáttur 34, Sigrún Waage 28.03.2021

Már Gunnarsson ræðir við Sigrúnu Waage um ferilinn og lífið. Ung fór hún í virtan leiklistarháskóla og fékk fullt af spennandi verkefnum í framhaldi þess hér á Íslandi. Líf hennar hefur þó ekki alltaf verið dans á rósum.

Þáttur 33, Tómas Welding 02.03.2021

Tómas Welding er ungur kvikmyndagerðarmaður og tónlistamaður sem hefur sér  það að leiðarljósi að   framkvæma allt það sem honum dettur í hug. Tónlistin hans hefur notið nokkurra vinsælda, en vinsælasta lagið hans hefur hlotið yfir 11.000.000 hlustanir

Þáttur 32, Ragnheiður Ragnarsdóttir 22.02.2021

Í dag er víkingaþáttur hjá Unga Fólkinu. Við fáum í heimsókn leikkonuna og sunddrottninguna Ragnheiði Ragnarsdóttur, en hún fer með aðalhlutverk í hinum vinsælu sjónvarpsþáttum: Vikings, auk þess að eiga tvenna ólympíuleika að baki.

Þáttur 31, Hilmar Snær Örvarsson 15.02.2021

Í þætti vikunnar fáum við Hilmar Snæ Örvarsson í heimsókn til að segja okkur sögu sína sem einfættur skíðakappi. Hann hefur verið einfættur síðan hann greindist með krabbamein í lærlegg og þurfti þá að fjarlægja beinið, en hann lætur það svo sannarlega ekki stoppa sig.

Þáttur 30, Friðjón Einarsson 31.01.2021

Már Gunnarsson ræðir við Friðjón Einarsson, oddvita Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ og formann bæjarráðs, um líf hans, stjórnmál og uppgang Reykjanesbæjar.

Þáttur 29, Björk Arnardóttir 23.01.2021

Enn og aftur fer Unga Fólkið í hundana. Í þætti vikunnar fáum við aftur til okkar hundaþjálfarann Björk Arnardóttur og ætlum við að þessu sinni að ræða um almenna hundaþjálfun og hvað fólk þarf að gera til þess að byggja upp gott og fallegt samband við hundinn. Ef þú ert að velta fyrir þér hundakaupum eða ert að fá þér hund og vantar upplýsingar um grunnatriði þjálfunar, þá mátt þú ekki missa af þ...

Þáttur 28, Amanda Líf og Natan Dagur 15.01.2021

Við fáum í heimsókn Amöndu Líf Fritzdóttur, nútímadansara og ljóðskáld, og í lok þáttar heyrum við stuttlega í Natan Degi sem nýlega fékk fullt hús stiga í norska The Voice.

Þáttur 27, Stefan Octavian 09.01.2021

Stefan Octavian er fyrsta íslenska klámstjarnan. Hér fáum við að heyra sögu hans og hvernig klámheimurinn virkar.

Þáttur 26, Spjallað við hlustendur 20.12.2020

Í þættinum er jólastemningin ríkjandi. Már og Iva spila jólalög fyrir hlustendur og spjalla við allskonar fólk um væntanlegt jólahald.

Þáttur 24, Matti Matt 08.12.2020

Þetta er fyrsti jólaþáttur Unga Fólksins. Már Gunnarsson ræðir við stórsöngvarann Matta Matt, en hann hefur á sínum ferli ferðast um víðan völl og komið fram allstaðar frá sveitaböllum í að standa á sviði sem framlag Íslands í Eurovision. Að sjálfsögðu er spilað jólalag í lokin.

Þáttur 23, Sara Sigmundsdóttir 29.11.2020

Már Gunnarsson ræðir við Söru Sigmundsdóttur sem er ein bjartasta crossfit stjarna í heimi. Hún er með 1,8 miljónir fylgenda á instagram og hefur svo sannarlega þurft að klífa tinda til að ná þeim árangri sem hún hefur náð í dag.

Þáttur 22, Guðjón Elí 22.11.2020

Már Gunnarsson ræðir við Guðjón Elí sem er 18 ára jákvæður fótbolltastrákur úr Sandgerði með beinkrabbamein! Það er ekki auðvellt að þurfa að hætta að æfa og stunda það sem maður elskar að gera, breyta um lífsstíl til þess að ná bata, en það er ekkert annað sem kemur til greina en að sigrast á veikindunum.

Þáttur 21, GDRN 14.11.2020

Már Gunnarsson ræðir við tónlistarkonuna GDRN um ferilinn, tónlist og grímunotkun. Þau spila lag í lokin.

Þáttur 20, Már Gunnarsson 06.11.2020

Í þættinum er sýnt hvernig þáttastjórnandi með batteríslausan síma og ekkert hleðslutæki bjargar sér þegar viðmælandinn klikkar á að mæta. Már Gunnarsson ræðir við sjálfann sig um tónlist og lífið sjálft, spilar lög í beinni og rifjar upp brot af því besta úr fyrri þáttum.

Þáttur 19, Geir Ólafsson 29.10.2020

Már Gunnarsson ræðir við Geir Ólafsson um lífið, ferilinn og hvernig maður tekst á við áskoranir. Það er svo sannarlega spilað lag í lokin.

Þáttur 18, Björk Arnardóttir 25.10.2020

Hefur þú séð blindan einstakling ganga með leiðsöguhund? Og hefur þú spurt þig hvernig svona samstarf á milli manns og hunds gengur fyrir sig? Þá er þetta þáttur fyrir þig. Í þættinum er rætt við Björk Arnardóttur, hundaþjálfara, um leiðsöguhunda, hvernig þeir nýtast fólki í daglegu lífi og hvernig þeir eru þjálfaðir.

Þáttur 17, Magnús Þór Hafsteinsson 03.10.2020

Í þættinum er fjallað um flugslysið árið 1970 þegar vél Flugfélags Íslands fórst í Færeyjum. Viðmælandi er Magnús Þór Hafsteinsson sem er að gefa út bók um atburðinn. Í lok þáttar heyrum við í sigurvegurum söngkeppni framhaldsskólanna 2020.

Þáttur 16, Engill Bjartur 28.09.2020

Menn sækja sér innblástur við listræna sköpun með ólíkum hætti. Við heyrum í Engli Bjarti sem lagði af stað í langferð um Evrópu til að safna hugmyndum í nýjustu ljóðabókina sína. Meðal annars var hluti af þeirri innblásturssöfnun að skella sér á hóruhús. Við heyrum einnig í ungri og upprennandi tólistarkonu í hveragerði.

Þáttur 15, Sigga Kling 18.09.2020

Már Gunnarsson ræðir við spákonuna Siggu Kling. Opinskátt viðtal þar sem hlutirnir eru látnir flakka. Að sjálfsögðu er spilað lag í lokin.

Escucha el podcast Unga Fólkið en Replaio

Radio y podcasts en una sola app - gratis y sin registro. Instálala hoy y no te pierdas el estreno

Descárgala en Google Play

Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos