Bergþór Másson

Skoðanabræður

www.patreon.com/skodanabraedurFremsta hlaðvarp landsins síðan 2019. Skoðanabræðralagið er samfélag sem sigrar saman. Bergþór Másson stýrir ferðinni og kynnir hlustendur fyrir cutting edge hugmyndum sem bæta líf þeirra. Viðtöl við sigurvegara, snillinga og sérfræðinga sem hugsa frjálst. Umfjöllunarefni eru: Menning, stjórmál, listir, viðskipti, heilsa. Ekkert er okkur óviðkomandi.5 þættir í mánuði. Fylgstu með á IG/X/Tiktok: @bm1995amorfatiBer er hver að baki nema sér bróður eigi.

Autor

Bergþór Másson

Categoría

Education

Web del podcast

podcasters.spotify.com

Último episodio

8 de abr. de 2026

¿Dónde escuchar?

Podcasts en la app Replaio Radio Muy pronto

Los podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts

Descárgala en Google Play Instálala gratis Android 5 M+ de descargas · valoración de 4,8 iOS muy pronto

Episodios

#360 Bók mánaðarins: Insanely Simple: The Obsession That Drives Apple's Success 01.03.2025

Hlustaðu í fullri lengd inni á www.patreon.com/skodanabraedur Styrktaraðilar þáttarins: Myntkaup, Stjörnugrís, Saltverk, World Class, Silkisvefn, Takk takk (SB15 kóði fyrir 15% afslátt á takktakk.is) Bók mánaðarins er um þráina eftir einfaldleika sem að keyrði Steve Jobs áfram. Þetta er mögnuð bók sem kennir manni hvernig maður heldur hlutunum einföldum bæði í viðskiptunum sínum og persónulega líf...

#359 Skoðanir Guðna Gunnarssonar 28.02.2025

Styrktaraðilar þáttarins: Myntkaup, Stjörnugrís, Saltverk, World Class, Silkisvefn og Takk takk (kóðinn SB15 fyrir 15% afslátt á takktakk.is) Guðni Gunnarsson lífsþjálfi snýr aftur í þáttinn. Guðni er mín stærsta fyrirmynd og hefur kennt mér magnaða hluti. Mikil blessun að fá hann til þess að deila visku sinni hérna með okkur. Guð blessi ykkur kæra bræðralag. Njótið þáttarins!

Klassík: Skoðanir Nökkva Fjalars Orrasonar 26.02.2025

www.patreon.com/skodanabraedur Styrktaraðilar þáttarins: Myntkaup, Stjörnugrís, Saltverk, World Class, Silkisvefn, Takk takk (SB15 fyrir 15% afslátt inni á takktakk.is) Klassískur þáttur með Nökkva Fjalari tekinn upp um jólin 2021. Það var ýmislegt í gangi þá. Guð blessi ykkur kæra bræðralag.

#358 Skoðanir Brynjars Karls 21.02.2025

www.patreon.com/skodanabraedur - prófaðu að koma í áskrift, ókeypis. Styrktaraðilar þáttarins eru: Myntkaup, Saltverk, Stjörnugrís, World Class og Silkisvefn. Brynjar Karl er körfuboltaþjálfari og íslenskur stríðsmaður. Hérna segir hann frá sínu ferðalagi, slagsmálum við swampið, hugsjónum og tilgangi. Guð blessi ykkur kæra bræðralag.

#357 Skoðanir Ásgeirs Kolbeinssonar 14.02.2025

Styrktaraðilar þáttarins: Myntkaup, Saltverk, Stjörnugrís, World Class og Silkisvefn. Hinn eini sanni Ásgeir Kolbeins er genginn í bræðralagið. Mikill heiður. Hérna er kafað ofan í hans pælingar. Mikið talað um stjörnuspeki - enda er Ásgeir djúpur í henni þessa dagana. Njótið vel kæra bræðralag. Fyrirtækið hans Ásgeirs: wwww.orkugreining.is

Klassík: Skoðanir Hjörvars Hafliðasonar 11.02.2025

www.patreon.com/skodanabraedur Styrktaraðilar þáttarins: Myntkaup, Saltverk, Stjörnugrís, World Class og Silkisvefn. Skoðanabræður klassík. Óttalausi leiðtoginn og spekingurinn Hjörvar Hafliðason mætti í þáttinn október 2021. Tímalaus epík. Njótið vel kæra bræðralag.

#356 Lífsreglurnar fjórar (ásamt Aroni Kristni) 07.02.2025

www.patreon.com/skodanabraedur Styrktaraðilar þáttarins: Myntkaup, Stjörnugrís, Saltverk & World Class. Lífsreglurnar fjórar er bókin sem gæti frelsað þig kæri hlustandi. Við Aron Kristinn Jónasson söngvari með meiru höfum báðir lesið hana milljón sinnum og getum með mikilli staðfestu sagt: Þetta er bókin. Í þessum þætti förum við í gegnum bókina og reglurnar fjórar sem hún leggur til þess að...

#355 Bók mánaðarins: Play It As It Lays - Joan Didion (Fyrri hluti) 01.02.2025

Styrktaraðilar þáttarins: Myntkaup, Stjörnugrís og Saltverk. Joan Didion skrifaði skýrt og fallega. Hún kjarnaði 60s í Kaliforníu og tjúnaði sig inn í hjarta Ameríku á sínum 70 ára rithöfundaferli. Hérna er farið yfir hennar vision, pælingar og áhrif. Hún byrjaði mikið af þessu sem við þekkjum vel í dag og hefur m.a inflúensað Lana Del Rey sérstaklega. Guð blessi ykkur kæra bræðralag.

#354 Skoðanir Magnús Jóhanns Ragnarssonar 31.01.2025

Styrktaraðilar þáttarins: Myntkaup, Stjörnugrís & Saltverk. Magnús Jóhann er tónlistarmaður sem hefur byggt upp sérstakt vörumerki úr sjálfum sér. Hann nördast í sinni eigin experimental instrumental tónlist á sama tíma og hann aðstoðar poppara landsins við smellagerð. Með því að blanda þessu saman hefur hann unnið sér inn frelsi til þess að skapa, sigra og vera hann sjálfur. Þessi þáttur fjal...

#353 Skoðanir Lukku Pálsdóttur 24.01.2025

www.patreon.com/skodanabraedur Lukka Pálsdóttir er frumkvöðull og heilsufrömuður. Hún er búin að vera að pæla í þessu í áratugi. Hérna förum við í gegnum hennar vitsmunalegu þróun, hvernig hugmyndir hafa komið, næringafræði, vísindi, grænmeti og kjöt. Ef þig langar til þess að fræða þig um hvernig maður eigi að borða og halda heilsu þá er þessi þáttur fyrir þig.

#352 Skoðanir Haralds Erlendssonar 17.01.2025

Haraldur Erlendsson geðlæknir og visionary snillingur mætir í þáttinn. Við tölum um hvað það er að vera geðveikur, afhverju fólk er hrætt við Guð, Carl Jung & Sigmund Freud, sameiginlega þætti norrænar, grískrar og indverskrar goðafræði, ADHD & elvanse, geðrof, hugvíkkandi efni og framtíð þeirra. Guð er snillingur!

#351 Skoðanir Eiríks Magnússonar (Ishmael) 10.01.2025

www.patreon.com/skodanabraedur Þessi þáttur er með skýran ásetning: Að fá þig, kæri hlustandi, til þess að gleypa appelsínugulu pilluna og uppgötva undursemdina sem Bitcoin er. Þetta er fyrir the tourist and the purist. Þú þarft ekki að vita neitt um peninga eða Bitcoin til þess að njóta. Gakktu inn með opinn huga og þú munt sannarlega fá að vita fullt um peninga og Bitcoin. Eiríkur Magnússon, ein...

#350 Skoðanir Gunnars Jörgen Viggóssonar 03.01.2025

Í byrjun árs 2024 hafði Gunnar Jörgen samband við mig og spurði hvort ég hefði áhuga á því að umturna lífi mínu. Ég svaraði játandi - og þá hófst svakaleg svaðilför. Til að byrja með hlustuðum við á bókina Change Your Paradigm, Change Your Life eftir Bob Proctor 30 mín á dag 60 daga í röð og töluðum saman í símann á hverju kvöldi um bókina. Síðan tókum við 110 daga hugleiðsluprógrammið Awakening T...

#349 Bók mánaðarins: Ilíonskviða 01.01.2025

Bók desembermánaðar er hin eina sanna Ilíonskviða. Hómer skrifaði þessa epík fyrir 2800 árum. Gjörsamlega undursamlegt! Hvaða þýðingu hefur þetta fyrir okkur í dag? Vendum kvæði okkar í kross í janúar, bók mánaðarins er:  Play It As It Lays eftir Joan Didion

#348 Þín eigin persónulega frelsisbarátta 27.12.2024

Þingmaðurinn Snorri mætir aftur inn ferskur á kanti. Þema þáttarins er vitsmunalegt og andlegt frelsi - hvernig öðlast maður slíkt? Þar að auki er hið stóra ár 2024 gert upp. Menn ársins tilkynntir. Guð blessi ykkur kæra bræðralag. Eina sem við vitum er að við vitum ekki neitt. Gleðilegt nýtt ár. Megi 2025 færa ykkur miklar blessanir.

#347 Leið listamannsins 20.12.2024

The Artist's Way er bók og 12 vikna prógram sem kennir þér að skapa það sem þig langar innst inni að skapa. Við Aron Kristinn Jónasson tókum þetta prógram núna í sumar/haust og það breytti lífum okkar beggja. Í þessum þætti förum við yfir þetta allt saman.

#345 Skoðanir Vilhjálms Árnasonar 13.12.2024

Vilhjálmur Árnason prófessor emeritus í heimspeki er djúpur í fræðunum eins og titill hans gefur til kynna. Á fjörutíu ára ferli sínum hefur hann mikið fjallað um siðfræði: Hvað er rétt og rangt, gott og illt? Hvaðan fáum við þessar hugmyndir? Hvernig hafa þær þróast í gegnum tímann? Í þessum þætti ræðum við þetta allt saman sérstaklega í samhengi við Forn-Grikkland, Nietzsche, Íslendingasögurnar...

#344 Skoðanir Ólafs Stefánssonar 06.12.2024

Óli Stef handboltahetja segir frá vitsmuna- og andlegu ferðalagi sínu í gegnum lífið. Hvernig á maður að lifa og hvað á maður að gera við sig? Það er farið í þetta. Önnur stikkorð: skólakerfið, Þorvaldur Þorsteinsson, Nietzsche, Jung, Jordan Peterson, ayahuasca, stríðsmaðurinn.

#343 Bók mánaðarins: White - Bret Easton Ellis 01.12.2024

Bret Easton Ellis er bandarískur rithöfundur og podcastari fæddur árið 1964. Hann er þekktastur fyrir að hafa skrifað American Psycho. White (2019) eftir hann er bók mánaðarins núna í Nóvember. Bókin er menningargagnrýni skrifuð í esseyju/memoir formi og má túlka sem nokkurskonar ákall um að fegurðin eigi að þrífast og sjálfsritskoðun þurfi að stöðva. Bók mánaðarins í Desember er Ilíonskviða eftir...

#342 Skoðanir Hallgríms Helgasonar 29.11.2024

Hallgrímur Helgason var að klára 1600 blaðsíðna þríleik sem í stuttu máli fjallar um það hvernig nútíminn kom til Íslands. Hérna vorum við í 1000 ár án drauma og hugmynda - síðan breyttist allt. Í þessum þætti ræðum við listina, bókmenntirnar, söguna og náttúruna. Guð blessi ykkur kæra bræðralag.

#341 Skoðanir Söru Maríu Forynju 22.11.2024

www.patreon.com/skodanabraedur Sara María er helsti sérfræðingur Íslands í hugvíkkandi efnum og lauk nýlega námi í Transpersonal Psychotherapy við Ubiquity University. Hún rekur Eden Yoga og skipuleggur ráðstefnuna Psychedelics as Medicine sem verður haldin í Hörpu 27. febrúar 2025. Við förum um víðan völl. Sara segir frá náminu sínu, hvernig maður leiðbeinir fólki í áttina að sínum sannleika, hva...

#340 Að drepa meistarann sinn 15.11.2024

Sérstakur þáttur um það hvernig maður hugsar frjálst, lærir af meisturum sínum og heldur áfram í sínu persónulega þróunarferli. Í þessu samhengi eru tveir menn teknir fyrir: heimspekingurinn Friedrich Nietzsche og tónskáldið Richard Wagner. Það er sagt frá þessum mönnum (bæði fyrir the tourist & the purist) og samband þeirra greint í þaula út frá þessum pælingum um að drepa meistarann sinn og...

#339 Skoðanir Friðriks Rafnssonar 08.11.2024

Friðrik Rafnsson er þýðandi tveggja minna uppáhalds rithöfunda Milan Kundera og Michel Houellebecq. Í þessum þætti förum við yfir ítarlega yfir þessa tvo menn og Friðrik segir okkur frá hugmyndum þeirra, bókum og persónuleikum. Hann hitti Kundera oft og hefur þýtt hverja einustu bók hans. Houellebecq hitti hann líka þegar hann kom til Íslands árið 2012. Fyrri hluti þáttarins fjallar um Kundera og...

#338 Skoðanir Halldórs Armand 01.11.2024

www.patreon.com/skodanabraedur Fáðu bókina beint frá bónda inn á https://halldorarmand.is/ - 15% afsláttur með kóðanum BRÆÐRALAG Halldór Armand rithöfundur hefur aldrei verið ferskari. Hann var að gefa út nýja bók, Merkilegt Rusl. Lífsgleðin skín af honum eftir að hafa gengið í gegnum djúpa erfiðleika. Dásamleg saga. Það er farið yfir þetta allt saman og fleira: klassíska heiminn, andleg málefni,...

#337 Snorri á þing 25.10.2024

Snorri tyllir sér á bak MIðflokksfáknum og ríður út í sólsetrið. Guð er góður og við lifum á dásamlegum tímum. Þannig er það. Í þessum þætti tölum við um framboðið, stjórnmálaástandið og hvernig við viljum hafa Ísland alþjóðlega miðstöð frelsis, fegurðar og friðar. Það eru bjartir tímar framundan hjá Skoðanabræðralaginu. Mikið verður gott fyrir okkur að hafa mann inni á þingi. Þátturinn mun þróast...

Escucha el podcast Skoðanabræður en Replaio

Radio y podcasts en una sola app - gratis y sin registro. Instálala hoy y no te pierdas el estreno

Descárgala en Google Play

Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos