Samstöðin

Samstöðin

News IS ↓ 694 episodios

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum. Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.

No dejes de visitar la web del podcast y apoyar a su creador: samstodin.simplecast.com

Autor

Samstöðin

Categoría

News

Web del podcast

samstodin.simplecast.com

Último episodio

18 de oct. de 2026

¿Dónde escuchar?

Podcasts en la app Replaio Radio Muy pronto

Los podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts

Descárgala en Google Play Instálala gratis Android casi 10 M de descargas · valoración de 4,8 iOS muy pronto

Episodios

Synir Egils 23. ágúst - Ísland og Evrópusambandið, staða og horfur 23.08.2026

Sunnudagurinn 23. ágúst Synir Egils: Ísland og Evrópusambandið, staða og horfur Við ræðum fréttir og stöðu samfélagsins við Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur og þrjá prófessora: Sigrún Ólafsdóttur félagsfræðing og stjórnmálafræðingana Evu H. Önnudóttur og Eiríki Bergmann. Síðan reyna þingmennirnir Guðlaugur Þór Þórðarson og Pawel Bartoszek að sannfæra okkur að segja nei eða já í þjóðaratkvæðagreiðslunni...

Rauða borðið - Helgi-spjall: Óttar Guðmunds 22.08.2026

Laugardagur 22. ágúst Helgi-spjall: Óttar Guðmunds Óttar Guðmundsson geðlæknir kemur í Helgi-spjall og segir okkur frá æsku sinni og uppruna, mótunarárum og því ýtti undir þroska hans og hefti hann.

Talaðu við mig - 7. þáttur: Yung Gamli og Ezzi 21.08.2026

Föstudagur 21. ágúst Talaðu við mig - 7. þáttur: Yung Gamli og Ezzi Í þættinum í dag ræða Álfheiður og Emilía við við listamennina og samfélagsmiðlastjörnurnar Tuma Gonzo og Estefan Leó. Það var bráðskemmtilegt og sannur heiður að fá að kíkja inn í heilann á þessum kóngum. Við mælum heldur betur með að þið hlustið á þennan þátt, kæra Talaðu við mig bræðralag.

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 34 21.08.2026

Föstudagur 21. ágúst Vikuskammtur: Vika 34 Þau koma að Rauða borðinu Hallveig Rúnarsdóttir sópran, Bragi Páll Sigurðsson rithöfundur, Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi og Samúel Guðmundsson, smíðanemi, dyravörður og trommari og ræða við Gunnar Smára um fréttir vikunnar sem einkenndust af hækkandi vöxtum og matarverði, Evrópudeilum, kjaradeilum og öðru þjarki en líka sigrum og árangri.

Rauða borðið 20. ágúst - Fréttir dagsins, Evrópumál, bráðnun jökla og menntamál 20.08.2026

Fimmtudagur 20. ágúst Fréttir dagsins, Evrópumál, bráðnun jökla og menntamál Oddný Harðardóttir, fyrrum þingkona, Yngvi Ómar Sigrúnarson formaður Leigjendasamtakanna og Anton Helgi Jónsson skáld ræða Evrópukosninguna fram undan, ofurvexti, Menningarnótt fram undan og fleira. Björn Þorláks stýrir umræðunni. Ragnar Baldursson stjórnmála- og Kínafræðingur ræðir við Gunnar Smára um aðildarumsókn Íslan...

Sjávarútvegsspjallið 87. þáttur - Smábátar, smáútgerðir og fiskmarkaðir 20.08.2026

Fimmtudagur 20. ágúst Sjávarútvegsspjallið 87. þáttur Grétar Mar ræðir við þá Kjartan Sveinsson og Arnar Atlason um stöðu einyrkja og lítilla útgerða á fiskmörkuðum.

Rauða borðið 19. ágúst - ESB, refur, vextir, áfengissala og Fjalla Eyvindur 19.08.2026

Miðvikudagur 19. ágúst ESB, refur, vextir, áfengissala og Fjalla Eyvindur Gunnar Smári ræðir við Bjarka Þór Grönfeldt stjórnmálasálfræðing um hvað veldur því að einn ætlar að segja já en annar nei út frá sömu greiningum á stöðu mála. Ester Rut Unnsteinsdóttir líffræðingur er sérfræðingur í refastofninum á Íslandi. Að auki fylgist hún með stöðu annarra spendýra, svo sem minks og fugla. Hún ræðir vi...

Rauða borðið 19. ágúst - Hvalir og kvalir, ESB: já, nei og orðræðan og tónlistarkeppnir 18.08.2026

Þriðjudagur 18. ágúst Hvalir og kvalir, ESB: já, nei og orðræðan og tónlistarkeppnir Rósa Líf Darradóttir læknir og hvalavinur ræðir ákvörðun Kristjáns Loftssonar að hætta að reyna að selja Japönum hvalkjöt en stefna þess í stað að framleiðslu á járnpillum. Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar ræðir við Gunnar Smára kosti og galla aðildar Íslands að ESB. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor h...

Rauða borðið 17. ágúst - ESB, nei eða já, menning, umhverfismál og köngulær 17.08.2026

Mánudagur 17. ágúst ESB, nei eða já, menning, umhverfismál og köngulær Væri umhverfismálum Íslendinga betur borgið ef Íslendingar nytu aðildar að ESB? Þessari spurningu leitast Árni Finnsson hjá Náttúruverndarsamtökunum við að svara. Björn Þorláks ræðir við Árna. Gunnar Smári ræðir við listamanninn Atla Bollason um ESB og Ísland, menningarlega stöðu landsins og álfunnar. Dr. Ingi Agnarsson líffræð...

Synir Egils 16. ágúst - Evrópusambandið, þjóðaratkvæði og klofin þjóð 16.08.2026

Sunnudagurinn 16. ágúst Synir Egils: Evrópusambandið, þjóðaratkvæði og klofin þjóð Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við þau Sonju Ýr Þorbergsdóttur formann BSRB, Kristinn Hrafnsson ritstjóra Wikileaks og Piu Elizabeth Hansson forstöðumann Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands. Síðan koma fulltrúar frá Ungum Evrópusinnum og Ung gegn ESB-aðild og ræða kosti og kalla umsóknar um aðild...

Rauða borðið - Helgi-spjall: Halldóra Björnsdóttir 15.08.2026

Laugardagur 15. ágúst Helgi-spjall: Halldóra Björnsdóttir Halldóra Björnsdóttir íþróttafræðingur var með morgunleikfimi á RÚV í 40 ár. Hún segir hér Ásdísi Olsen frá lífi sínu og störfum.

Talaðu við mig - 6. þáttur: Aron M og Unnur B 14.08.2026

Föstudagur 14. ágúst Talaðu við mig - 6. þáttur Í þættinum í dag ræða þær Emilía og Álfheiður við meistarana Aron Mola og Unni Backman um lífið og tilveruna, leiklist, leikhús, LHÍ, Sigmundur Davíð í MR og margt fleira. Þvílíkur heiðir að fá að spjalla við þessa stórleikara og þjóðargersemar.

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 33 14.08.2026

Föstudagur 14. ágúst Vikuskammtur: Vika 33 Þau Þuríður H. Aradóttir Braun verkefnastjóri, Magga Stína tónlistarkona, Valgarður Guðjónsson söngvari Fræbblana og Þórunn Lárusdóttir leikkona ræða fréttir vikunnar við Gunnar Smára, fréttir sem einkenndust af karpi, myrkva, deilum, óvissu og gleði.

Sjávarútvegsspjallið 86. þáttur - Kvóti, fiskveiðiráðgjöf og slaufun 14.08.2026
Rauða borðið 13. ágúst - Reynsluboltar, vinstri ESB, heilun í stríði, húsnæðismál og landsbyggðin 13.08.2026

Fimmtudagur 13. ágúst Reynsluboltar, vinstri ESB, heilun í stríði, húsnæðismál og landsbyggðin Erna Bjarnadóttir hagfræðingur, Björn Leví Gunnarsson fyrrum þingmaður og Björg Eva Erlendsdóttir, Landvernd, ræða fréttir vikunnar. Sólmyrkvinn og ESB-umræðan verða meðal umfjöllunarefna, Björn Þorláks stýrir þættinum. Stefán Pálsson sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi Vinstrisins útskýrir sína afstöðu...

Rauða borðið 12. ágúst - ESB plús og mínus, geðheilsa og Megas 12.08.2026

Miðvikudagur 12. ágúst ESB plús og mínus, geðheilsa og Megas Gunnar Smári ræðir við Ögmund Jónasson fyrrum ráðherra og formann BSRB um þjóðaratkvæðagreiðslu um umsókn Íslands í ESB. Ögmundi list ekki á blikuna. Þorvaldur Gylfason hagfræðingur ræðir kosti aðildar að ESB, íslensku krónuna fjármálaspillingu og fleira í samtali við Björn Þorláks. Ólafur Ævarsson geðlæknir og Björn Þorláksson kryfja sa...

Rauða borðið 11. ágúst - Skólabyrjun, ESB, menningarbrunnur og sólmyrkvahátíð 11.08.2026

Þriðjudagur 11. ágúst Skólabyrjun, ESB, menningarbrunnur og sólmyrkvahátíð Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, var gestur Rauða borðsins. Nú styttist óðum í að skólarnir hefji störf eftir. Hvernig ætli gangi að ráða kennara, hvað með námsgögnin og hvað með einkunnir, með tölustöfum eða bókstöfum. Gunnar Smári ræðir við Gauta B. Eggertsson prófessor í hagfræði við Brown-háskólann...

Rauða borðið - 10. ágúst - ESB, hinsegin öldruð, sólmyrkvi og orkumál 10.08.2026

Mánudagur 10. ágúst ESB, hinsegin öldruð, sólmyrkvi og orkumál Guðmundur Hálfdanarson sagnfræðingur ræðir fullveldishugtakið og átökin vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar í lok mánaðarins á sögulegum nótum. Björn Þorláks ræðir við hann. Björgvin Huldar Soffíuson hjúkrunarfræðingur ræðir hinsegin miðaða öldrunarþjónustu. Andrea Jónsdóttir, plötusnúður og dagskrárgerðarmaður á Rás 2, tekur einnig þátt í...

Synir Egils 9. ágúst - Evrópusambandið, kosningar, kjarasamningar og fjölmiðlar 09.08.2026

Sunnudagurinn 9. ágúst Synir Egils: Evrópusambandið, kosningar, kjarasamningar og fjölmiðlar Synir Egils, þeir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, fá gesti og ræða stöðu mála og stjórnmálin. Í fyrri hluta þáttarins koma þau Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri SA, Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra og Halla Gunnarsdóttir formaður VR og ræða þjóðaratkvæðagreiðsluna um ESB, klofna þjóð og fallna k...

Talaðu við mig - 5. þáttur: Alaska1867 og Míó Stora 03.07.2026

Föstudagur 3. júlí Talaðu við mig - 5. þáttur: Alaska1867 og Míó Stora Í þættinum í dag ræddum við við eingin önnur en Alösku1867 og Míó Stora. Við ræddum um listina, innblástur, lífið og tilveruna, og fórum að sjálfsögðu í nokkra góða liði þar sem ýmislegt kom í ljós. Þetta var heldur betur skemmtilegt spjall sem hefði getað haldið áfram í alla nótt.

Sjávarútvegsspjallið - 85. þáttur: Fiskeldi 02.07.2026

Fimmtudagur 2. júlí Sjávarútvegsspjallið - 85. þáttur: Fiskeldi Grétar Mar Jónsson ræðir fiskeldi á sjó og landi við þá Elvar Þór Jónsson, framkvæmdastjóra Verndarsjóðs íslenskra laxastofna, og Jóhann Helga Stefánsson, framkvæmdastjóra Landssambands veiðifélaga.

Rauða borðið 30. júní - Neyðarréttur, demókratar, öryrkjar, mæðgur og bragðlaukar 30.06.2026

Þriðjudagur 30. júní Neyðarréttur, demókratar, öryrkjar, mæðgur og bragðlaukar Tekist er á um það fyrir dómstólum þessa dagana hvort akstur undir áhrifum megi réttlæta með neyðarrétti. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir við Björn Þorláks. Gunnar Smári ræðir við Svein Mána Jóhannesson doktor í sagnfræði um bandaríska Demókrataflokkinn, ólíkar deildir hans, stefnu og markmið í aðdraganda kosninganna í...

Rauða borðið 29. júní - Frost, evran, Suður-Kínahaf og besta útgáfan af okkur sjálfum 29.06.2026

Mánudagur 29. júní Frost, evran, Suður-Kínahaf og besta útgáfan af okkur sjálfum Páll Heiðar Pálsson fasteignasali ræðir stöðuna á fasteignamarkaði í samtali við Björn Þorláks og hvernig sótt er að nafni hans fasteignasölu. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir um Evrópu við Gunnar Smára, um Úkraínu, Evrópusambandið og evruna, veltir fyrir hvort rekja megi fólksflótta frá ríkjum Austur-Evrópu til...

Rauða borðið - Helgi-spjall: Örnólfur Árna 27.06.2026

Laugardagur 27. júní Helgi-spjall: Örnólfur Árna Örnólfur Árnason segir okkur frá lífshlaupi sínu, blaðamennsku, ferðamennsku, bókum, leikritum, óperum og listahátíðum, frá gildi þess að ferðast og leyfa heiminum að breytast sér og samfélagi sem mætti breystast til betra vegar.

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 26 26.06.2026

Föstudagur 26. júní Vikuskammtur: Vika 26 Ásdís Olsen sér um Vikuskammt að þessu sinni með gestum sínum, þeim Árelíu Eydís Guðmundsdóttur dósent, rithöfundi og fráfarandi borgarfulltrúa, Einari Skúlasyni þjóðfræðingi og göngugarpi, Halldóri Baldurssyni myndlistarmanni og skopteiknara, og Stefáni Ingvari Vigfússyni sviðshöfundi og uppistandara.

Escucha el podcast Samstöðin en Replaio

Radio y podcasts en una sola app - gratis y sin registro. Instálala hoy y no te pierdas el estreno

Descárgala en Google Play

Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos