Samstöðin

Samstöðin

News IS ↓ 702 episodios

Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum. Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.

No dejes de visitar la web del podcast y apoyar a su creador: samstodin.simplecast.com

Autor

Samstöðin

Categoría

News

Web del podcast

samstodin.simplecast.com

Último episodio

23 de oct. de 2026

¿Dónde escuchar?

Podcasts en la app Replaio Radio Muy pronto

Los podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts

Descárgala en Google Play Instálala gratis Android casi 10 M de descargas · valoración de 4,8 iOS muy pronto

Episodios

Rauða borðið - Helgi-spjall: Helen Ólafsdóttir 13.09.2025

Laugardagur 13. september Helgi-spjall: Helen Ólafsdóttir Helen María Ólafsdóttir öryggissérfræðingur segir okkur frá vondum stöðum sem hún hefur ratað á, góðu fólki og sterkri fjölskyldu, stríðsátökum, hvernig mannskepnan bregst við gagnvart hryllingi, ástinni og voninni um að heimurinn skáni.

Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 37 12.09.2025

Föstudagur 12. september Vikuskammtur: Vika 37 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Guðrún Margrét Guðmundsdóttir mannfræðingur, , Freyr Eyjolfsson öskukarl, Ragnar Þór Pétursson kennari og Sanna Magdalena Mörtudóttir forseti borgarstjórnar og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af menningarstríði og þjóðarmorði, þingsetningu og voðaverkum, ógn, átökum og litlum friðarvilja.

Fréttatíminn 11. september 11.09.2025

Fimmtudagur 11. september FRÉTTATÍMINN Gunnar Smári, Sigurjón Magnús og Björn Þorláks segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?

Rauða borðið 11. sept - Ungt fólk í basli, upplausn í Frakklandi, fangelsi, fólk sem heyrir raddir, fátækt og Innkaupapokinn 11.09.2025

Fimmtudagur 11. september Ungt fólk í basli, upplausn í Frakklandi, fangelsi, fólk sem heyrir raddir, fátækt og Innkaupapokinn Sérstök ástæða er til að gefa hlutskipti ungra Íslendinga gaum er kemur að menntun þeirra og misjöfnum ávinningi. Sigrún Brynjarsdóttir, hagfræðingur hjá BHM ræðir við Björn Þorláks hvort það borgi sig að vanmeta menntun. Einar Már Jónsson prófessor ræðir við Gunnar Smára...

Sjávarútvegsspjallið - 60. þáttur: Fiskveiðikerfið og Hafró 11.09.2025

Fimmtudagur 11. september Sjávarútvegsspjallið - 60. þáttur Grétar Mar Jónsson ræðir við Arthur Bogason.

Rauða borðið 10. sept - Gaza, sjálfsvíg, reynsluboltar, Fjallabak og söngkennsla 10.09.2025

Miðvikudagur 10. september Gaza, sjálfsvíg, reynsluboltar, Fjallabak og söngkennsla Helen Ólafsdóttir öryggissérfræðingur ræðir við Gunnar Smára um kröfur á íslensk stjórnvöld um aðgerðir gegn Ísrael vegna þjóðarmorðsins á Gaza. Metur ríkisstjórnin það svo að Bandaríkin muni beita okkur refsingum ef við beitum Ísrael aðgerðum sem geta bitið? Gunnar Smári ræðir við fjóra karla af mismunandi kynslóð...

Fréttatíminn 10. sept 10.09.2025

Miðvikudagur 10. september FRÉTTATÍMINN Gunnar Smári og Sigurjón Magnús segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?

Þriðjudagur 9. september - FRÉTTATÍMINN 09.09.2025

Þriðjudagur 9. september Gunnar Smári, María Lilja og Björn Þorláks segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?

Rauða borðið 9. sept - Lagaleg álitaefni, heimsmálin, fjárlög, flughávaði og listrænir feðgar 09.09.2025

Þriðjudagur 9. september Lagaleg álitaefni, heimsmálin, fjárlög, flughávaði og listrænir feðgar Við hefjum leik á liðnum Réttur er settur. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir fréttir í samhengi við lagaleg álitaefni. Í dag verður drepið á Eurovision, rétti rjúpnaveiðimanna til veiða, ólíkra stjórnarskráa nágrannalanda og fleira. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir hagfræðingur BSRB og Vilhjálmur Hilmarsson...

FRÉTTATÍMINN 8. september 08.09.2025

Mánudagur 8. september FRÉTTATÍMINN Gunnar Smári, María Lilja, Björn Þorláks og Kristinn Hrafnsson segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?

Rauða borðið 8. sept - Þjóð gegn þjóðarmorði, stjórnmálaveturinn, örorkukerfið og barnafátækt 08.09.2025

Mánudagur 8. september Þjóð gegn þjóðarmorði, stjórnmálaveturinn, örorkukerfið og barnafátækt Ragnheiður Steindórsdóttir, leikkona og stjórnarkona hjá Vonarbrú, Arna Magnea Danks, kennari, Sara Stef Hildar, baráttukona, Ólafur Ólafsson, myndlistamaður og einn skipuleggjenda fundarins „þjóð gegn þjóðarmorði“ sem haldin var um helgina ræða framhaldið við Maríu Lilju. Guðmundur Hrafn Arngrímsson, sem...

Sunnudagurinn 7. september Synir Egils: Trans, pólitísk átök og sviptingar, mótmæli, samstaða 07.09.2025

Sunnudagurinn 7. september Synir Egils: Trans, pólitísk átök og sviptingar, mótmæli, samstaða Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þingmennirnir Arna Lára Jónsdóttir frá Samfylkingu, María Rut Kristinsdóttir frá Viðreisn og Sigurður Örn Hilmarsson frá Sjálfstæðisflokki og ræða fréttir...

Laugardagur 6. september - Helgi-spjall: Lára Pálsdóttir 06.09.2025

Laugardagur 6. september Helgi-spjall: Lára Pálsdóttir Lára Pálsdóttir félagsráðgjafi segir frá fólkinu sínu, Jesús ömmu sinnar og sósíalisma afa, frá þolinmæði mömmu sinnar og alkóhólisma föðurs, frá uppreisnum sínum sem unglingur, ást á bókum, æskulýðsskóla í Sovét, sárum missi og að fá að fæðast á ný.

Föstudagur 5. september - Vikuskammtur: Vika 36 05.09.2025

Föstudagur 5. september Vikuskammtur: Vika 36 Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Atli Bollason myndlistarmaður, Brynja Cortes Andrésdóttir þýðandi, Hye Joung Park myndlistarkona og kennari og María Hjálmtýsdóttir kennari og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af upphlaupum, hneykslun, pólitískum hræringum, stríði og engum frið.

FRÉTTATÍMINN 4. september 04.09.2025

Fimmtudagur 4. september FRÉTTATÍMINN María Lilja, Björn Þorláks og Sigurjón Magnús segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?

Rauða borðið 4. sept - Fjárhagslegt ofbeldi, Alzheimer, Neytendur, Flokkur fólksins, Tónlist 04.09.2025

Fimmtudagur 4. september Fjárhagslegt ofbeldi, Alzheimer, Neytendur, Flokkur fólksins, Tónlist Sæunn Marínósdóttir, þolandi fjárhagslegs ofbeldis af hendi fyrrum maka segir sögu sína og hvernig kerfið býður uppá og hjálpar beinlínis gerendum ofbeldis. María Lilja ræðir við hana. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við Kristínu Kristófersdóttur um alzheimer. Hún er eiginkona manns með sjúkdóminn sem grei...

Miðvikudagur 3. september - FRÉTTATÍMINN 03.09.2025

Miðvikudagur 3. september FRÉTTATÍMINN Gunnar Smári, María Lilja og Sigurjón Magnús segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?

Miðvikudagur 3. september - Kastljósumræðan, hafstraumar, Sjálfstæðisflokkurinn, Reynsluboltar og mótmælendur 03.09.2025

Miðvikudagur 3. september Kastljósumræðan, hafstraumar, Sjálfstæðisflokkurinn, Reynsluboltar og mótmælendur Það veldur umtalsverðri vanlíðan hjá aðstandendum trans fólks að hlusta á vanstillta orðræðu Snorra Mássonar og sjá undirtektirnar. Þetta segir Þórgnýr Dýrfjörð, faðir transeinstaklings í samtali við Björn Þorláksson. Stefán Jón Hafstein sem hefur skrifað mikið um umhverfismál ræðir ögurstun...

Þriðjudagur 2. september - FRÉTTATÍMINN 02.09.2025

Þriðjudagur 2. september FRÉTTATÍMINN Gunnar Smári, María Lilja og Björn Þorláks segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?

Rauða borðið 2. sept - Hafstraumar, popúlismi, Píratar, rasismi, verðleikasamfélag og þétt byggð 02.09.2025

Þriðjudagur 2. september Hafstraumar, popúlismi, Píratar, rasismi, verðleikasamfélag og þétt byggð Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur ræðir við Gunnar Smára um fyrirsjáanlegt hrun hagstrauma í Atlandshafi sem mun leiða einskonar ísöld yfir Ísland. Er þetta mögulegt, ólíklegt eða næsta víst. Helen María Ólafsdóttir, öryggissérfræðingur varar við því að orðræða og framkoma Snorra Mássonar í Kastljó...

FRÉTTATÍMINN 1. september 01.09.2025

Mánudagur 1. september FRÉTTATÍMINN Gunnar Smári, Sigurjón Magnús og Björn Þorláks segja fréttir Samstöðvarinnar með sínu lagi. Hvert er samhengi fréttanna?

Rauða borðið 1. sept - Verðbólga, sósíalistar, Brics, Gufunesmálið og leigubílar 01.09.2025

Mánudagur 1. september Verðbólga, sósíalistar, Brics, Gufunesmálið og leigubílar Stefán Ólafsson prófessor og ráðgjafi Eflingar fer yfir stöðuna í efnahagsmálum í samtali við Gunnar Smára. Virkar hávaxtastefna Seðlabankans, mun verðbólgan éta upp kaupmáttinn og þarf stóraðgerðir í húsnæðismálum? Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi svarar fyrir vantrauststillögu sem borin var upp gegn henni...

Bridgeþátturinn 31. ágúst - Ný skref 31.08.2025

Sunnudagurinn 31. ágúst Bridgeþátturinn - Ný skref Magnús Magnússon landsliðsmaður, Matthías Imsland hjá BSÍ og Gunnar Björn Helgason ræða helstu tíðindi í bridgeheiminum með Birni Þorláks.

Synir Egils 31. ágúst - Efnahagur, orka, Grænland, stríð og meiri orka 31.08.2025

Sunnudagurinn 31. ágúst Synir Egils: Efnahagur, orka, Grænland, stríð og meiri orka Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða við þá um helstu fréttir og stöðuna í stjórnmálum. Að þessu sinni koma þingkonurnar Ása Berglind Hjálmarsdóttir í Samfylkingu, Halla Hrund Logadóttir í Framsókn og Sigríður Á. Andersen í Miðflokki og ræða verðbólgu, vexti og ríkisfjármá...

Rauða borðið - Helgi-spjall: Guðrún Jónsdóttir 30.08.2025

Laugardagur 30. ágúst Helgi-spjall: Guðrún Jónsdóttir Guðrún Jónsdóttir, fyrrum talskona Stígamóta, fagnar dómi mannréttindadómstólsins og lýsir baráttunni á bak við þann sigur, segir frá æsku sinni og uppruna, foreldrum sínum og hvaða áhrif þeir höfðu á líf hennar og persónuleika, dásemd þriðja æviskeiðsins og hvernig þeim lyndir saman, náttúrubarninu og baráttukonunni sem búa saman innra með Guð...

Escucha el podcast Samstöðin en Replaio

Radio y podcasts en una sola app - gratis y sin registro. Instálala hoy y no te pierdas el estreno

Descárgala en Google Play

Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos