Podcaststöðin
Mótorvarpið
Bragi Þórðarson fjallar um allt mótorsport á fjórum hjólum og fær til sín góða gesti, bæði fyrrum og núverandi keppendur ásamt öðrum mótorsport-fræðingum.
No dejes de visitar la web del podcast y apoyar a su creador: podcasters.spotify.com
Autor
Podcaststöðin
Categoría
Web del podcast
Último episodio
14 de oct. de 2026
¿Dónde escuchar?
Podcasts en la app Replaio Radio Muy prontoLos podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts
Episodios
#46 Rallý og Rallýcross - Ívar Örn og Guðni Freyr 09.09.2020 1:35:03
Íslandsmeistararnir í AB Varahlutaflokki í rallinu fara yfir ferla sína í mótorsporti. Ívar og Guðni hafa keppt lengi í mótorsporti og fara þeir hér yfir ferla sína, sem í mörgum tilfellum er samofin Braga þáttarstjórnanda.
#45 Rallýcross o. fl. - Alexander Lexi Kárason 02.09.2020 1:39:39
Sögulegur viðburður í Mótorvarpinu þar sem Bragi fær til sýn gest og tala þeir ekki bara um Mótorsport á fjórum hjólum. Lexi hefur unnið fjölmarga titla í Snjókrossi en hefur einnig keppt í Motocross, Enduro, Go-Kart, Rally og Rallýcrossi.
#44 Torfæra og Rallýcross - Atli Jamil 26.08.2020 1:50:41
Atli Jamil hefur síðastliðin ár keppt í torfæru með góðum árangri, en hann seldi Thunderbolt eftir að hafa tryggt sér Noregstitilinn í fyrra. Nú keppir hann í Rallýcrossi á ofur-Yaris!
#43 Sögustund - Sigurður Þór Jónsson 19.08.2020 1:42:07
Bragi fær Íslandsmeistarann í torfæru frá 2006 í spjall. Sigurður Þór Jónsson keppti stanslaust í torfæru frá 1992 til 2009.
#42 Formúla 1000 - Jóhann Egilsson og Viktor Böðvarsson 12.08.2020 1:38:43
Bragi fékk til sýn þá Jóhann og Viktor til að tala um kappaksturinn Formúla 1000. Fyrsta kappaksturskeppnin fór fram á Íslandi í Júní 2020 og fóru þeir félagar yfir hvernig íþróttin virkar og framtíðarplön.
#41 Drift - Aron Jarl 05.08.2020 1:37:28
Aron Jarl hefur keppt í Drifti alveg frá því að fyrsta keppnin var haldin á Húsgagnarhallarplaninu árið 2005. Hann fer yfir ferilinn með Braga ásamt því að tala um hvað þarf til að vera góður í Drifti.
#40 Rallýcross - Ólafur Tryggvason 29.07.2020 1:38:06
Bragi ræðir við rallýcross kappann Ólaf Tryggvason sem hefur verið að keppa í sportinu síðan 2008.
#39 Torfæra - Óskar Jónsson 22.07.2020 1:33:06
Óskar er að byrja sitt annað ár í götubílaflokknum í torfærunni. Bragi fékk hann í spjall þar sem þeir fóru yfir ferilinn og smíðina á Úlfinum.
#38 Torfæra - Bessi Theodórsson 16.07.2020 1:16:28
Það er ávalt líf og fjör þar sem Bessi kemst í míkrófón! Bragi og Bessi fara yfir stöðuna í torfærunni.
#37 Torfæra og Rallýcross - Guðmundur Elíasson 15.07.2020 59:17
Ungstirnið Guðmundur Elíasson hefur verið að keppa í akstursíþróttum í fimm ár þrátt fyrir að vera aðeins 19 ára gamall. Hann fór yfir ferilinn með Braga ásamt því að tala um fyrstu umferðina í torfæru sem fram fór á Egilsstöðum.
#36 Sögustund - Gunnar Pálmi Pétursson 08.07.2020 1:43:13
Torfærukappinn Gunnar Pálmi hefur alls unnið 4 titla og hafði frá miklu að segja enda spannar torfæruferillinn rúm 20 ár.
#35 Rallý - Daníel Sigurðarson 01.07.2020 2:03:35
Danni hefur verið að keppa í ralli frá árinu 1998 og er einn besti ökumaður landsins. Hann á fjölda titla og gerði meðal annars gott mót í Bretlandi fyrir um 10 árum síðan.
#34 Kvartmíla - Ingólfur Arnarson 24.06.2020 1:39:30
Bragi fékk formann Kvartmíluklúbbsins í spjall, Ingólf Arnarson. Ingó vann einnig fyrstu umferð Íslandsmótsins í Kvartmílu í OF flokki.
#33 Drift - Jón Þór og Úlfar Bjarki 17.06.2020 1:41:32
Bragi talar um Drift við þá Jón Þór Hermannsson og Úlfar Bjarka Stefánsson en Jón vann fyrstu umferð Íslandsmótsins og Úlfar endaði þriðji.
#32 Rallýcross og Rallý - Vikar Karl Sigurjónsson 10.06.2020 1:28:18
Vikar gerði sér lítið fyrir og keppti bæði í ralli og rallýcrossi um sömu helgi. Hann fer yfir litríka mótorsporthelgi með Braga.
#31 Rallý - Gunnar Karl Jóhannesson 03.06.2020 1:52:32
Bragi talar við Gunnar Karl rallökumann og fara þeir fyrir feril hans bæði hér heima og í Bretlandi ásamt því að hita upp fyrir Suðurnesjarallið 2020.
#30 Torfæra - Ási Frændi 29.05.2020 1:14:03
Ásmundur Ingjaldsson hefur keppt í torfæru síðustliðin tvo ár og stefnir á titil í ár. Hann fer yfir ferilinn með Braga ásamt mörgu öðru.
#29 Rallýcross og Torfæra - Palli Rolla 25.05.2020 1:30:19
Páll Skjóldal Jónsson, betur þekktur í mótorsportinu sem Palli Rolla fór yfir ferill sinn í akstursíþróttum með Braga.
#28 Torfæra - Aron Ingi Svansson 17.05.2020 1:16:49
Bragi talar við Aron Inga um komandi tímabil í torfærunni sem og síðustu ár. Aron keppir á Stormi, sem í fyrra var eini bíllinn í keppni sem er ekki með V8 mótor.
#27 Torfæra - Danni Thunder og Mæja 11.05.2020 1:44:54
Torfæruhjónin Daníel Gunnar Ingimundarson og María Antonía Jónasdóttir fara yfir rúmlega 20 ára torfæruferilinn.
#26 Sögustund - Baldur Jónsson 07.05.2020 2:08:33
Þrefaldi Íslandsmeistarinn í ralli, Baldur Jónsson, talar við Braga um litríkan feril sinn og hvernig það sé að vera fæddur inn í ''rallfjölskyldu''.
#25 Sögustund - Pétur Bakari 27.04.2020 2:12:51
Bragi fékk Pétur S. Pétursson, betur þekktan sem Pétur Bakara, í spjall og fóru þeir félagar yfir tæplega 20 ára feril Péturs í torfæru, kvartmílu, rallýcrossi og ralli.
#24 Sögustund - Sigurður Bragi Guðmundsson 22.04.2020 2:01:54
Bragi fær nafna sinn í spjall þar sem þeir fara gaumgæfilega yfir magnaðann 35 ára feril Sigurðs Braga í rallinu.
#23 Rallý - Gummi Hösk og Halldór Vilberg 08.04.2020 1:38:58
Bragi fékk rallkappana Guðmund Höskuldsson og Halldór Vilberg Ómarsson í spjall bæði um rallý og tölvuleikjarallý. Þeir félagar stofnuðu hópinn 'Skítugt Rall' þar sem keppt er í tölvuleiknum Dirt Rally. Við biðjumst velvirðingar á að hljóðgæðin eru ekki alveg uppá sitt besta til að byrja með vegna tæknilegra örðugleika
#22 Torfæra - Jakob Cecil Hafsteinsson 25.03.2020 1:34:56
Bragi og Jakob fara víða við í torfærusögunni. Tala meðal annars um hvaða torfærubílar hafa verið flottastir og ljótastir, hvaða ár var það skemmtilegasta í torfærunni og margt fleira.
Podcasts similares
Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos